Lesbók Morgunblaðsins - 15.03.1986, Side 10

Lesbók Morgunblaðsins - 15.03.1986, Side 10
HALLEY og GIOTTO Rannsóknarhnettinum GIOTTO er ætlað að mæta halastjörnunni Halley augliti til auglitis þann 13. mars 1986 og senda myndir af fundinum til jarðar. Þá myndar hali Halleys u.þ.b. 90° horn við braut hennar. Ekki er gert ráð fyrir að Giotto lifi af fundinn. Lesbók/Gói Giotto til fundar við Halley úti í geimnum Giotto var skotið á loft 2. júlí 1985 með Ariane- eldflaug. Upphaf hinnar 700 milljón kílómetra ferðar til að hitta Halley tókst vel, en menn voru ekki lausir við taugaæsing, því að það var aðeins um þrjú tækifæri að ræða, og ef Könnunarhnöttur geimvísindastofnun- ar Evrópu, Giotto, á að komast eins nálægt Halley-halastj örn- unni og kostur er, þótt næstum sé víst, að hann tortímist fyrir vikið Könnunarhnötturinn Giotto þegar verið varaðsetja bann sarnan / Toulous t Frakklandi. ekki hefði tekizt að nota neitt þeirra, hefði orðið að skjóta áætluninni á frest í 76 ár. Giotto ber langt af öðrum gervihnöttum, sem nú eru á leiðinni til móts við Halley, hvað háþróaðan tæknibúnað snertir. Þetta er fyrsta rannsóknarverkefni Geimvísinda- stofnunarinnar Evrópu svo langt úti í geimn- um, og það hafa fylgt því mörg meiri háttar vandamál varðandi miðunina, því að ekki verður vitað nákvæmlega um staðsetningu Halley-halastjömunnar fyrr en nokkrum dögum fyrir væntanlegan fund þeirra. Vandamálið er erfiðara viðfangs vegna þess, hve rokgjöm halastjaman er á ferð til sólar. Hiti sólar veldur því, að lofttegund- ir ijúka burt ásamt ryki með ójöfnum og ofsalegum hætti og skapa þrýsting, sem hrekur halastjömuna út af hinni áætluðu braut. Menn vonast þó til, að ýmsar tækni- aðferðir, sem beitt verður, muni draga úr frávikinu að lokum og gera Giotto kleift að ná fyrstu myndunum af kjama halastjömu, sem nokkru sinni hafa verið teknar. Á Alþjóðlegu Halley-Vaktinni Allan tímann, sem Giotto er á ferðinni, mun verða fylgzt með Halley gegnum gervi- hnetti og sjónauka á jörðu niðri á vegum hinnar alþjóðlegu Halley-vaktar. Með því móti mun fást vitneskja um stöðu kjamans, sem mun verða það nákvæm að ekki skeiki meira en 500 km. En það er þó ekki nógu gott fyrir hið endanlega stefnumót, því að sé gervihnettinum stýrt miðað við 500 km frávik, gæti fjarlægðin orðið allt frá 0 upp í 1000 km, þegarþau „hittast". Lausnin, sem menn hafa fundið og komið sér saman um, er bæði snjöll og skynsamleg og felur í sér þátttöku af hálfu Sovétríkjanna og Bandaríkjanna. Tveir sovézkir Vega- gervihnettir munu fara fram hjá halastjöm- unni sjö og fjórum dögum áður en Giotto kemur á vettvang, og myndavélar þeirra munu beinast að kjama hennar úr 10.000 km fjariægð. Sovézkir vísindamenn hafa- fallizt á að gefa Geimvísindastofhun Evrópu upplýsingar um stöðu kjamans, eftir því sem hún verður ráðin af myndunum. Geimrann- sóknastofnun Bandaríkjanna, NASA, mun veita liðsinni sitt við þessa leiðsögn með því að nota tækni sína og miðunarstöðvar beggja megin jarðar til að ákvarða stöðu beggja Vega-gervihnattanna, svo að ekki skeiki meira en 40 km. Samanlagt mun aðstoð Sovétmanna og Bandaríkjamanna draga úr hugsanlegri skekkju um miðun Giottos að því marki, að hún mun aðeins nema 130 km. Síðustu breytingamar á braut Giottos verður að ákveða flórum dögum fyrir fund hans og halastjömunnar, sem verður 13.—14. marz 1986. Giotto mun koma að hinum sýnilega hjúpi um klukkustund fyrir „fundartímann" og sennilega verða fyrir höggi 30 mínútum síðar. Mikið magn rykagna mun lenda á geimfarinu, en ef högghlífín og hið næma loftnet standast raunina, mun myndavélin senda síðan beztu myndimar af kjama halastjömunnar í lit til j arðar. Skipanir Geymdar í Minni Athyglisvert er, hve fjarlægð geimfarsins frá jörðu er mikil, þegar það hittir Halley fyrir. Það tekur boðin um 8 mínútur að berast hina 150 milljón kílómetra til jarðar, og það merkir, að ekki er um það að ræða að breyta braut þess á síðustu mínútum. Geimfarið fær því undirbúnar skipanir, sem geymdar em í minni þess og bíða síns tíma. Leiðangur Giottos er sérstakur að mörgu leyti. Öðmm gervihnöttum, sem stefnt hefur verið áleiðis til fjarlægra stjama í sólkerfinu, hefur tekizt vel ætlunarverk sín, en enginn hefur orðið að sinna þeim á jafnmiklum hraða, 68 km á sekúndu eða 244.800 km á klst., og hann á að senda geysilegt magn af upplýsingum til jarðar á síðustu mínútun- um, áður en hann eyðilegzt, sem líklegt er. Vísindamenn hafa unnið ötullega að því að gera sér grein fyrir aðstæðum í umhverfi halastjömunnar og hafa hannað Giotto með hliðsjón af því að hann gæti staðizt hinar geysiöflugu ryk- og ísagnir, sem munu verða á vegi hans — á 68 km hraða á sekúndu hefur ögn, sem vegur aðeins einn tíunda úr grammi, næga orku til að fara í gegnum 8 sm þykka álplötu. Hugvitssamleg högghlíf var útbúin til að vemda geimfarið, þegar það nálgast hala- stjömuna. Hún er í tvennu lagi, ytra borðið er 1 mm þykk álþekja, en 230 mm fyrir aftan hana er 13,5 mm þykk vamarplata úr níðsterku sérhönnuðu efni. Rykagnir, sem skella á ytra borðið, álþekjuna, leysast upp og innri vamarveggurinn á að taka við upplausninni. Þetta kerfí ætti að koma í veg fyrir að agnir allt að 0,1 grammi valdi skemmdum á Giotto. En þetta er engan veginn örugg vöm, því að stærri agnir gætu verið þama á ferðinni, og þær gætu skemmt rannsóknartæki geimfarsins og það, sem meira máli skiptir, 'stjóm- og fjar- skiptakerfí þess. Giotto á að senda myndir í fjórum litum af Halley halastjömunni, en mörg önnur verkefni á hann að leysa. Hann á að afla nákvæmra upplýsinga um samsetningu hjúps Halleys, greina rafgas hennar og rannsaka rykagnir á staðnum. Alls ætti Giotto að senda frá sér 600 milljónir bita (grunneiningar upplýsinga), sem flytja okkur mikilsverða vitneskju um myndun sólkerfisins fyrir 4.600 milljónum ára. Eftir 8 mín. ferð til jarðar verða myndim- ar sýndar eftir úrvinnslu á stómm skjám í stjómstöð Geimvísindastofnunar Evrópu í Darmstadt í V-Þýzkalandi. Þaðan munu sjónvarpsmjmdavélar senda myndimar um heim allan. Floti Könnunarhnatta Gervihnötturinn Vega 1 frá Sovétríkjun- um verður fyrstur könnunarhnattanna til að ná til Halley-halastjömunnar. Vega 1 og 2 var skotið á loft 15. og 21. desember 1984 í tvíþættum tilgangi, þar sem þeir fóm fyrst til Venusar og síðan var þeim beint með tilstilli þyngdarafls reikistjörnunnar áleiðis til fundar við Halley. Bæði geimförin skutu út búnaði, sem lenti heilu og höldnu á yfirborði Venusar, sem og loftbelgs-kanna í lofthjúp Venusar, þegar þau fóm hjá reiki- stjömunni 9. og 13. júní. Vega 1 mun fyrst ná fundi Halley 6. marz og geta kannað hana úr 10.000 km fjarlægð. Vega 2 mun koma á vettvang 9. marz, en fjarlægðin verður ekki ákveðin fyrr en Vega 1 hefur verið þama. Bæði em geimförin búin sjónvarpsmyndavélum og rannsóknartækjum af fullkomnustu gerð. Þau munu einnig á sinn hátt leiðbeina „Giotto" og auka á nákvæmni hans. Japanska geimrannsóknastofnunin sendi upp fyrsta japanska könnunarhnöttinn sem fer á milli reikistjama, 7. janúar 1985 frá eynni Kyushu. Hann kallast MS-T5 og mun fara í innan við sjö milljón kílómetra §ar- lægð hjá Halley-halastjömunni 11. marz til að rannsaka hinn svokallaða sólvind í ná- lægð hennar. Öðm japönsku geimfari, Planet A, eða Suisei, sem þýðir reikistjama var skotið á loft 18. ágúst 1985. Það mun fara hjá halastjömunni í 200.000 km fjarlægð 8. marz nk. I Bandaríkjunum urðu menn að hætta við að senda könnunarhnött út af Halley vegna niðurskurðar á fjárlögum. En eigi að síður tókst framtakssömum vísindamönnum að snúa gervihnetti, sem þegar var á braut úti í geimnum, inn á braut, sem mun bera hann í innan við 30 millj. km fjarlægð frá Halley-halastjömunni einhvam tíma í marz. 11. september mætti Isee, en svo hét gervi- hnötturinn, halastjörnunni Giacobini-Zinner — og var það þess vegna fyrsta vísindaleg rannsókn á halastjömu í sögunni. Könnun- arhnötturinn, sem nú hefur verið endur- skírður og nefnist ICE Intemational Comet- ary Explorer) er búinn 13 tækjum, og þess er vænzt, að 6 þeirra muni senda til jarðar gagnlegar upplýsingar um samansetningu halans á Halley. Sveinn Ásgeirsson tók saman og byggði á grein í „Flight Intemational".

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.