Lesbók Morgunblaðsins - 31.10.1987, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 31.10.1987, Blaðsíða 12
Felix Thoresen Gengu með málverk út úr Tate Gallery Aveginum til Damaskus stendur maður og skimar útí fjarskann; við vegarbrúnina stend- ur ferðaritvél og uppvið hana hafa verið lagðar málaratrönur. Ofanúr himinhvolfinu hellist sólarliósið yfir landið og bakar allt sem á því Samtal við Felix Thoresen norskan rithöfund, málara og ferðalang, sem búið hefur í Beirút, ^ Grikklandi og írlandi þar sem hann lét málefni þjóðernissinna til sín taka. Hann var hér á rithöfundaþinginu í haust. Eftir KJARTAN ÁRNASON hrærist. Ekki er maðurinn að elta uppi Davíð konung til að gera honum skráveifu og því hefur drottinn kannski ekki séð ástæðu til að tala til hans af himnum ofan og snúa honum til rétttrúnaðar; nei þessi maður á hvorki sökótt við gvuð eða menn — hann er bara á puttaferðalagi. Lengi hefur hann rýnt inní hillingamar þegar hann um síðir sér bíl nálgast; hann þeytir þumlinum á loft og viti menn: bíllinn stansar. Maðurinn hleypur til með trönumar og ritvélina og biður ökumanninn bíða eitt andartak; síðan vindur hann sér bakvið stór- an stein sem stendur við vegkantinn og fyrren varir standa sjö stórar úttroðnar ferðatöskur á veginum; hiklaust hleður hann farangri sínum á bílinn meðan ökumaðurinn situr orðlaus og gapandi undir stýri; að lok- um stekkur maðurinn sjálfur um borð og hlær og klappar ökumanninum í bak og fyrir og lofar þolinmæði hans og rausnar- skap. Síðan silast bíllinn af stað eftir veginum til Damaskus. „Ég hafði varla verið í borginni nema fáeina tíma þegar gráskeggjaður öldungur kom til mín og spurði hvort ég kynni að teikna. Jú, ekki gat ég neitað því. Fylgdu mér, sagði hann, og leiddi mig inní dimma búðarholu þar sem öllu ægði saman; þaðan inní bakherbergi og enn innar gegnum ótal kytrur og allt umhverfið var nákvæmlega einsog ég hafði ímyndað mér í Austurlönd- um. Loks staðnæmdist öldungurinn innst í byggingunni og tók upp af litlu borði illa skreyttán pakka utanaf þvottaefni. Geturðu teiknað svona vel, spurði hann. Já og bet- ur, svaraði ég hógvær og þarmeð var ég orðinn auglýsingateiknari í Damaskus; þetta var einhvem tíma á sjötta áratugnum." Gestur A Bókmenntahátíð Segir Felix Julius Patrick Hartmar Thore- sen, fæddur í Kragero 30. janúar 1923, norskur rithöfundur, málari og ferðalangur og einn af gestum Bókmenntahátíðar hér um daginn. „Ég hef ferðast geysimikið um Evrópu og Austurlönd nær. Satt að segja fór ég á puttanum um alla álfuna með töskumar sjö og gekk bara vel. Eitt sinn bjó ég í kristna hlutanum í Austur-Beirút í Líbanon, löngu áður en allt fór þar í bál og brand. Én ég skildi ekkert í því hvað íbúðin sem ég tók á leigu var ódýr þráttfyrir að hún trónaði efst á háhýsi á góðum stað með útsýni til ailra átta; mér líkaði þetta auðvitað vel en það var ekki fyrr en komið var frammá sumar að ég skildi hversvegna leigan var svona lág; íbúð- in var með öllu óvarin fyrir sól og hitinn þar varð fullkomlega óbærilegur, ég hafðist ekki með nokkru móti við í henni á daginn og gat reyndar bara rétt skotist heim yfir blánóttina til að sofa. Á endanum gafst ég upp og flúði uppí fjöllin við Sídon. Eg sett- ist að í litlu þorpi og mitt fyrsta verk var að mála mynd af gamalli konu sem lá fyrir dauðanum. Og meðan ég málaði var her- bergið hennar sneisafullt af ættingjum sem hlógu og sungu og skemmtu sér konung- lega; sú gamla formæiti mér og óskaði ævarandi bölvunar því hún vildi ekki láta mála sig en þess á milli voru ættmenni hennar að kyssa hana og kjassa og klappa hátt og lágt í takt við sönginn; og um leið og kerla fór að halla um of var einhver kominn til að rétta hana við og snurfusa svo hún tæki sig nú vel út á mynd. Daginn eftir að ég lauk myndinni dó konan. Það varð mikil sorg og harmagrátur í þorpinu, hver einasti maður syrgði þessa gömlu konu enda hafði hún verið ættmóðir flestra þorps- búa. Sorgin var jafn djúp og gleðin hafði áður verið mikil og mér varð ósjálfrátt hugs- að til þess hvemig farið er með gamalt fólk í okkar heimshluta þarsem oft er komið fram við það af fullum fjandskap eða í besta falli algjöru afskiptaleysi. Norrænn Heilagur Elías En þorpsbúum þótti myndin takast svo vel að þeir báðu mig gera málverk af heilög- um Elíasi. Ég tók því vel og málaði hann einsog Óðin með sverðið reitt til höggs yfír höfði sér reiðubúinn að skilja milli bols og höfuðs á fómarlambi sínu, hausamir rúlluðu allt í kringum hann. Menn vom stórhrifnir af þessum hánorræna Elíasi og áðuren myndin var þomuð var hún drifin í helgi- göngu og ég með. En þráttfyrir hróp mín og köll brá mönnum heldur betur í brún þegar þeir Iutu að myndinni og vildu kyssa blóðið og komust að því að það var enn ekki storknað! Þetta vom alltaðþví undur og stórmerki. Síðan var heilagur norrænn Elías hengdur upp í kapellu fjallaþorpsins við Sídon og hangir þar vísast enn. Svo bjó ég í Kairó og þar hafði ég þjón sem hét Abdúl, brosmildan mann og glaðleg- an — nú hefur túrisminn máð brosið af andlitum Egypta — jæja, seinna flutti hol- lenskur myndlistarmaður inní íbúðina til mín en þegar hann fór að vinna með sem- ent á stofuborðinu hvarf Abdúl á braut og var nóg boðið; hafði þó kynnst ýmsu ... Eftir þetta fór ég með töskumar mínar til Þýskalands til að vinna í leikhúsi í Frank- furt en þegar til kom var náunginn sem hafði lofað mér vinnunni við störf á Eng- landi og ekki væntanlegur í bráð og enginn vildi taka ábyrgðina á að ráða mig að hon- um fjarstöddum. Ég ráfaði um stræti borgarinnar slyppur og snauður og renndi öfundaraugum innum glugga veitingahús- anna þarsem matargestir vom að háma í sig ijúkandi krásir. Eg hafði aldrei á ævinni verð jafn hungraður. En á þessu eigri mínu um götumar hafði ég þó rænu á að spyij- ast fyrir um vinnu og áður en klukkan sló 12 var ég orðinn námuverkamaður í Rúhr- héraðinu! Ég var settur í viðgerðarflokk sem

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.