Lesbók Morgunblaðsins - 14.05.1988, Page 22
Myndir frá Gambíu 1988
Gambía er eitt af minnstu
löndum Afríku, 10.367 km. Með-
albreidd landsins er 35 km og
lengd þess 300 km. Lega lands-
ins er sérkennileg, Gambía er
eins og fíngur sem potar inn í
landið Senegal, sem liggur við
Atlantshafíð í Vestur-Afríku.
Strönd Gambíu er 50 km löng
og frá hafínu og alveg inn í botn
landsins — og ennþá lengra —
rennur Gambíaflóðið.
Gambía er sjálfstætt ríki síðan
1965, en hafði áður verið ensk
nýlenda. Enska er ríkismál en
annars eru mörg tungumál töluð
innan hinna ýmsu kynþátta
landsins.
Áætlaður fólksfjöldi er um
700.000. Aðalatvinnugrein er
framleiðsla á jarðhetum. Góð
fiskimið eru fyrir utan Gambíu
og 1971 var fískiðnaði komið á
fót þar. Erlent fjármagn hefur
að mestu leyti staðið fyrir fisk-
iðnaðinum, m.a. japanskt. Fyrir
nokkru tók íslensk-norska ráð-
gjafarfyrirtækið NORFICO að
sér alhliða ráðgjöf um fískveiðar
og fiskvinnslu í Gambíu, fyrir
um 450 millj. íslenskra króna,
en samningurinn um ráðgjöfína
var gerður við Gambíustjóm.
Ferðaiðnaður í Gambíu er
frekar nýr af nálinni en fjöidi
ferðamanna er þó núna um 50
þús. árlega. Aðallega eru þetta
ferðamenn frá Bretlandi og
Skandinavíu. Ferðamannatíminn
er frá október til apríl, en þá er
loftslagið ákaflega gott. Sólin
skín allan liðlangan daginn og
Ánægt bam — ánægð móðir.
Farþegar koma í land úr bát á Gambíaflóðinu.
hitastig í lofti er 28°—32° ^>g í
hafinu og flóðinu um 24°. Það
er alveg hættulaust að synda í
hafínu þó að hákarlar séu ekki
langt undan, því þeir koma aldr-
ei það nálægt ströndinni. Dýralíf
er frekar fábreytt, lítið er um
stór dýr, en fuglalífið er því
margbreytilegra. Rúmlega 400
fuglategundir eru í landinu,
þ.á m. nokkrir íslenskir farfugl-
ar!
Gambíaflóðið er lífæð lands-
ins. Bátar og lítil skip eru stöð-
ugt á ferð með vörur og far-
þega. Það er ákaflega gaman
Matur lagaður á hlóðum á
bæjarhlaðinu.
22