Lesbók Morgunblaðsins - 14.05.1988, Síða 23
„Fatadeildin “ á markaðinum í
höfuðborginni Banjul.
að ferðast með þessum bátum,
fara í land við og við og heim-
sækja litlu þorpin, sem eru hér
og þar við flóðið. íbúamir eru
vingjarnlegir og hafa ekkert á
móti því að maður taki myndir
af þeim. Börnin flykkjast að
ferðafólkinu, forvitin, það er til-
breytni í því að sjá þetta hvíta
fólk, með skrítna sólhatta á höfði
og myndavélar á lofti.
Heimsókn í Gambíu er
ánægjulegt. Það er engin stjóm-
málaleg óró í landinu, sami for-
seti, Sir Dawda Jawara, hefur
setið við völd frá að hann var
kosinn þegar landið varð sjálf-
stætt. Fátækt sér maður ekki,
þó að lífskjör séu auðvitað allt
önnur en í vestrænum löndum.
Eftir að hafa verið í Gambíu
hugsar maður með ánægju um
blaktandi pálmatré, heiðskíran
himin, glampandi sól, skrækjandi
apa, sem sveifla sér á milli ttjá-
toppanna, og vingjarnlega íbúa.
Unnur Guðjónsdóttir
Matur seldur á markaðinum í
bænum Serekunda.
Kona að binda bamið sitt á bakið.
s
Sérhæfðar ferðavörur:
Skordýrafæla hitabeltisnætur
Ferðablaðið hefur áður birt
greinar um sérhæfðar ferða-
vörur — neysluvaming fyrir
neyslufrekasta flakkara í heim-
inum — ferðamanninn. AHtaf
er verið að koma til móts við
kröfur ferðamannsins og upp-
finningar eru margar og sumar
harla nýstárlegar. Hérna kem-
ur ein, sem kannski rnargir
hafa beðið eftir.
Hún er fyrir þá, sem eru svo
heppnir að ferðast um heitari lönd
og kjósa að ráða sínum nætur-
stað. Ferðavörur kynna hér með
hinn mikla moskítóflugnaeyðir,
er gefur þreyttum ferðamanni
friðsælan nætursvefn. Hann nefn-
ist „buzz-off“ eða „suðið í burt“
og er einföld innstunga með bún-
aði fyrir töflur sem eyða skordýr-
um.
Tíu tíma svefn
Innstungunni fylgja 20 töflur,
en hver tafla hefur áhrif í 10
klukkustundir þannig að flestir
ættu að geta sofið út! Leiðbeining-
ar: Setjið eina töflu í hólfíð og
stingið flugnaeyðinum í samband.
Góða nótt! Virðist einfalt og hand-
hægt. Töflumar gefa frá sér veika
lykt — þægilega fyrir ferðamann-
inn, en „lífshættulega" fyrir
moskítóflugur og önnur fljúgandi
óþægindi er hrella ferðamanninn.
Innstunguna er hægt að nota
hvar sem er í heiminum, ef með
fylgir hið sérhæfða aðlögunar-
rafkerfí frá alþjóðlegum ferðavör-
um ( kynnt í næsta Ferðablaði).
Flugnaeyðirinn kostar um 350
krónur. Pakki með 20 töflum kost-
ar um 200 krónur. Upplýsingar
og pantanir fyrir „buzz-off“ eru
hjá: Honey Halliday, Traveller
Intemational Products, 51 Hays
Mews, London WIX 5DB. Sími:
01-262 1976
Fyrir friðsælan nætursvefn
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 14. MAÍ 1988 23