Lesbók Morgunblaðsins - 03.12.1988, Page 12

Lesbók Morgunblaðsins - 03.12.1988, Page 12
T E fJ L T MT 1 T I M I S O A R A Svo tíl affir í flokkiHéð- ins lMtfiki einkaþjáltara Dagbókarbrot eftir Fríðu Ásbjömsdóttur 29. júlí. éðinn lék undarlega í dag. Vinningur sýndist vera á næsta leiti, þá virtist sem honum væri öllum lokið. Hann lék skákinni niður og andstæðingurinn fór að hlæja og hristi hausinn. Ég fann, að ekki var allt með felldu. Sagt frá síðari hluta keppninnar á heimsmeistaramóti ungmenna í Timisoara í Rúmeníu, þar sem þau Héðinn Steingrímsson og Guðfinna Lilja Grétarsdóttir kepptu við erfiðar aðstæður Síðari hluti Héðinn Steingrímsson með verðlauna- gripi sína frá þvíhann varð heimsmeist- ari ungmenna, 12 ára og yngri. Héðinn var orðinn lasinn. Magaveikur og með höfuðverk. Hér er sérslök læknavakt allan sólarhringinn. Læknirinn gaf okkur nokkrar tegundir af pillum. 30. júlí. H éðinn tefldi í dag og skákin fór í bið. íslendingamir þurfa ekki lengur að óttast að lenda í biðskák. Aströlsku fararstjóram- ir eru engir skákfræðingar en hafa komið sér inn undir hjá Rússunum. Rússamir em með fímm sérfræðinga á taflsviðinu og föð- ur Kamski að auki. Mér fínnst á þeim, að þeir séu hingað komnir til þess eins að sigra og það verði og skuli heppnast. Ástralimir sögðu mér að hafa samband við þá eða Rússana beint ef keppendur mínir lentu í biðskákum. Hollenski fararstjórinn er líka tilbúinn að leggja okkur lið, ef þannig stend- ur á, svo og fleiri ágætir menn. Héðinn á biðskák á móti einhentum Júgóslava, Tratar að nafni. Skákdómarinn spurði Héðin hvort hann skrifaði undir jafntefli, en Héðinn hafnaði. í býti — eða kl. 9.00 — í fyrramálið á Héðinn að mæta á skákstað. Eftir kvöldmat börðum við að dyrum hjá Rússunum og báðum þá að líta á biðskákina. Þótt þeir virtust ekkert óðfúsir að gera það létu þeir tilleiðast og töldu stöðuna jafntefli. Þar sem Héðinn kvartaði um óþægindi í höfði og maga ákváðum við að hafa tal af lækninum. Þegar þangað kom leið skyndilega yfír Héðin og féll hann á gólf Iæknastofunnar. Læknirinn var sýnilega felmtri sleginn, flýtti sér að losa um föt drengsins, þreifaði á púlsi og hljóp í símann. Þegar Héðinn rank- aði við sér og fór að jafna sig ákvað læknir- inn að senda hann í sjúkrabíl á bamaspít- ala. Fylgdi ég honum þangað og fékk að dveljast þar, meðan frekari rannsókn fór Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, íslenzki keppandinn í kvennaflokki á skákmót- ininu í Timisoara í Riimeníu. fram. Eftir 4 stunda dvöl á spítalanum var okkur leyft að fara í leigubíl heim á hótel- ið. Þegar Héðinn vaknaði morguninn eftir var hann mun hressari. Fór á skákstað og tefldi biðskákina, sem fór í bið öðm sinni. Hafði þá hagur Héðins vænkast verulega og vakti taflmennska hans athygli. Síðdegis átti að tefla nýja umferð. Fór ég þess á leit við skákstjórann, að Héðinn fengi að fresta skákinni, enda hafði það komið fram í rúmönskum dagblöðum, að annar íslenzki keppandinn hefði veikst og verið fluttur á sjúkrahús. Skákstjórinn taldi ókleift að fresta skákinni, annaðhvort yrði að gefa hana eða tefla. Héðinn tók þann kost að mæta til leiks og hefja taflið. Hann kvartaði fljótlega um svima og rétti fram höndina til uppgjafar. Samúð ýmissa áhorfenda duldist ekki. Duffl- as Woód, ástralskur kunningi minn, ók okk- ur Héðni á bamaspítalann, en Héðinn átti að mæta þar að tafli loknu. Á mótsstað hafði ég kynnst nokkuð Vic- tor Frias, fyrirliða bandarísku sveitarinnar. Sýndum við honum einnig biðstöðuna. Bauðst hann Ijúfmannlega til að koma upp á herbergi okkar og skoða hana nánar, sem hann gerði, ásamt Ilian, sem þá var efstur í flokki drengja undir 16 ára aldri. Töldu þeir báðir, að Héðinn ætti að geta unnið. Álit Rússanna morguninn eftir var sam- hljóða. Annars var Héðinn, þegar hér var komið sögu, heldur rislágur. Vinningslíkur á biðskákinni voru því kærkomin uppörvun. Júgóslavinn hafði einnig pælt heilmikið í skákinni og vissu báðir hvað helst var til sóknar og vamar. Svo fór að Héðinn vann. Hann ákvað að reyna að tefla síðdegisskák- ina. Hlaut hæglátan og hógværan andstæð- ing, enskan pilt, Woods að nafni, og vann. 4. ágúst. Nú virtist létta til hjá okkur. Góður svefn. Lilja virtist leika á als oddi — hafði góðan félagsskap á kvöldin og taflmennskan í góðu lagi. . Við Héðinn fengum heimsókn í gærkvöldi frá rúmenskri konu, sem er dóttir prófess- ors í eðlisefnafræði, starfsbróður Steingríms, mannsins míns. Steingrímur hafði skrifað honum og sagt honum frá okkur. Dóttur hans, sem einnig er eðlisefna- fraeðingur, tókst að hafa uppi á okkur. I Rúmeníu leggur ríkið þær skyldur á herðarþeim, sem Ijúka háskólanámi, að þau vinni þar, sem ríkið ákveður næstu þrjú árin. Nú vildi svo til, að þessi rúmenska kona var gift eðlisefnafræðingi og átti hann eftir hálft ár af þessum þrem ámm, sem hann varð að ósk stjómvalda að vinna í allt annarri borg en kona hans. Að loknu þessu hálfa ári bjóst konan við að fá mann- inn til sín. Þau vom búin að festa sér íbúð í blokk. Von var á barni eftir 4 mánuði. Þau vom búin að ákveða að bömin yrðu bara tvö í framtíðinni. Daglegt lff fólks er mjög fyrirhafnarsamt í Rúmeníu. Það þarf að standa í biðröðum frá því kl. 4.00—5.00 á morgnana til að fá nauðsynjavömr. Hún sagðist ekki geta séð fyrir sjálfri sér, ef ekki kæmi til aðstoð foreldra hennar við að afla nauðsynlegra hluta. Það væm ekki peningar, sem þau vantaði. Ég spurði, hvort hana langaði ekki til að flytjast vestur fyrir tjald og freista gæfunnar þar. Hún sagði, að Vesturlönd mgluðu hana í ríminu — úrvalið væri þar allt of mikið — hún kynni ekki að velja og hafna. I sínu heimalandi vissi hún hvar hún hefði hlutina. „En hvað um framfarir á vísindasviðinu — er þér ekki hugleikið að fá að fylgjast betur með á þeim vettvangi?“ spurði ég. „Jú, að vísu. Framfarir eiga örðugt uppdráttar hér eins og er.“ Síðustu þijú orðin sagði hún með breyttum áherzluróm. Það var áberandi hve fólkið notaði mikið almenningsvagna og hve ódýrt var að nota þá. Fáir bflar vom á götunum. Trabantar og Lödur vom aðalfarkostimir. Þau feðgin fylgdu okkur fótgangandi báðar leiðir til og frá hóteli. 5. ágúst. í gær tefldi Héðinn hvítum gegn Robert Selzer, vini sínum frá Bandaríkjunum. Héð- inn hafði haft orð á því við mig kvöldinu áður, að ekki væri svo gott að tefla við vin sinn. „Hann er alls ekki vinur þinn á tafl- borðinu á meðan á skákinni stendur. Bara á eftir,“ sagði ég. Það skrýtna var, að það sama hafði Robert (Bobby) sagt við sína foreldra kvöldið áður og pabbi hans hafði svarað á sömu lund og ég hafði gert. Héð- inn kom með óvænta byijun, sem Bobby réð ekki við. Hann var alla skákina í klemmu, komst aldrei út með sína menn til virkrar andstöðu. Bobby var sáraóánægður með skákina, sem lauk með vinningi Héðins. í gær var nýr rúmenskur læknir á vakt. Hann gaf mér „glucosa minerals“-duft ti að setja út í vatnsglasið hjá Héðni. Héðni snarbatnaði í höfðinu og sviminn hvarf í bili. Undanfarna daga hefur Kamski Gata verið í fyrsta sæti en hann tapaði sinni fyrstu skák gegn Eran Liss frá Israel, vini okkar. Nú þegar tvær umferðir em til leiks- loka em 10 drengir nefndir, sem hugsanlega gætu orðið sigurvegarar. I þessum hópi er Héðinn talinn með (bjartsýni). Héðinn tefldi næst við Kamski Gata en sú skák fór illa. Héðinn hafði svart og var kominn með fallega uppbyggða sóknarstöðu og Gata var sýnilega farið að líða illa. Augnaráðið, sem hann sendi pabba sínum, lýsti spurningu og smá ótta. Pabbi Gata gerðist órólegur, sló hnúum í lófa sér hvað eftir annað og sló líka í handriðið. Hann benti á mig og síðan á Héðinn. Ég skildi ekki hvað hann meinti. Við höfðum ekkert tungumál til að geta talað saman. Svo kom afleikurinn hjá Héðni og Gata komst að baki árásarliðs Héðins og brytjaði það nið- ur. Þessi afleikur var Héðni í rauninni ljós, áður en hann lék, en Héðinn var ekki með fulla krafta þama og lengi á eftir gat hann ekki fyrirgefið sér þetta og vildi ekki um það ræða. Það var ekki fyrr en að mótinu loknu eða tveim dögum síðar, að Héðinn ræddi við Kamski. Þeir hittust þá í anddyri hótelsins. Kamski var með allt sitt hafúr- task á heimleið. Héðinn og Gata töluðust við í miklu bróðerni og kvöddust sem vinir. Mér virtist Kamski indæll piltur. Hann talar nokkuð góða ensku. Kamski sagði við mig „your son is a very good player" (sonur þinrr' er mjög góður skákmaður). Ég þakk- aði honum fyrir falleg orð og sagði það væri ekki sama fyrir mig, hver segði þetta. Það var áfall fyrir Kamski að ná ekki fyrsta sætinu en raunar virtist áfallið mest fyrir föður hans. Hann var með jarðarfararsvip. Það er svo mikill, mikill munur út í frá að ná fyrsta eða öðru sæti í heimsmeistara- keppni. 7. ágúst. Síðasta umferðin var tefld í dag. Héðinn tefldi við smávaxinn, þeldökkan dreng frá Quatar, Mohamed Ahmed. Hann hafði tölu- vert af alþjóðlegum skákstigum og mætti þamá með tvo skákfræðinga með sér. Þess- ir náungar voru líka í Puerto Rico í fyrra. Annar aðstoðarmanna hans fylgdist mjög náið með Héðni frá byijun — ritaði niður byijanir hans og reyndar hjá fleirum vænt- anlegum mótheijum. í fyrstu skák Héðins var þröng á þingi umhverfis hann — það vildu svo margir skrá niður byijunarleikina hjá honum. Héðinn vann skákina og endaði þar með 7 vinninga af 11 mögulegum. Héð- inn hafði orð á því að skákinni afstaðinni, að hann gæti vel hugsað sér að tefla eina skákina enn. Honum var farið að vaxa ás- megin. Eran Liss vann Sundrshan Kumaran í 12 t 1

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.