Lesbók Morgunblaðsins - 03.12.1988, Blaðsíða 20
Jól í öðrum löndum:
Jólasiðir
í Belgíu
Jólasiðir hjá hverri þjóð end-
urspegla oft þjóðlegar hefðir,
sem því miður bíða stundum
lægra hlut í hinu ríkjandi glysi
og gliti í kringum jólakaup-
mennsku stórborganna. En
jólasiðir í Belgíu hafa mikið til
staðist alla yfirborðsmennsku
og Belgar halda sínum þjóðlegu
hefðum.
Flestar belgískar borgir og þorp
eru skrautlýstar eins og aðrar
evrópskar borgir. Á torgum og í
kirkjum eru upplýst jólatré og
jólajötur með Jesúbarninu og á
meðan hinir ýmsu kórar æfa jóla-
lögin af kappi eru götur og torg
að fyllast af fólki í árvissri leit
að jólagjöfum; leit, sem beinist í
stöðugt ríkari mæli að opnum jóla-
mörkuðum, sem hafa á boðstólum
handunnar, ódýrar og oft per-
sónulegri jólagjafir. Jólatré
skreyta flest belgísk heimili og
víða má sjá dyrainnganga
skreytta með grenigreinum.
Sjötti desember
er hátíðisdagur
belgískra barna
Á meðal leitandi fólksfjöldans
hoppa dulbúnir jólasveinar og
gefa bömunum í hópnum smá-
gjafir og sælgæti. En það er heil-
agur Nikulás, sem skipar fyrsta
sæti í hugum belgískra barna og
hátíðisdagur hans er sjötti desem-
ber. Að kvöldi fimmta desember
setja belgísk böm því skóna sína,
ásamt skál með gulrótum og næp-
um, við arininn — ekki fyrir jóla-
hreindýrið heldur asna heilags
Nikulásar. Og að morgni sjötta
desember finna þau skál fulla af
appelsínum, mandarínum og
Briissel að vetrarlagi
100km
MorgunblaÖió/ KG
Belgía á landamæri að mörgum þjóðlöndum.
súkkulaði, ásamt gjöfum frá heil-
ögum Nikulási.
Miðnæturguðsþjónusta og
jólamáltíð á jólanótt
Allir, sem geta, sækja miðnæt-
urguðsþjónustu á jólanótt 25. des-
ember. Síðan hefst jólavakan með
jólamáltíð miðpunkti hátíðahald-
anna, þegar allar íjölskyldur safn-
ast saman til að neyta heilagrar
kvöldmáltíðar. Flestir koma sam-
an í heimahúsi, en það er að verða
vinsælla að fara í veitingahús.
Kalkún með hnetufyllingu er
hefðbundinn jólamatur í Belgíu,
oftast með sjávarrétti eins og
humri eða rækjum í forrétt. Langt
fram á jólanótt er síðan setið yfir
heitri vínblöndu, sem getur verið
jólaglögg, súkkulaði eða kaffi,
skreytt með þeyttum ijómatoppi.
Hátíðahöld í borgum
og bæjum
Þekktustu jólatónleikarnir eru
í borginni Brugge og byija alltaf
klukkan 11 ájólakvöld. I St. Pholi-
en, í nágrenni Liége, hefst kerta-
skrúðgangan klukkan 10 á jóla-
kvöld. Fremst gengur jólastjömu-
berinn, en honum fylgja bændur
með asna, kýr, kindur og geitur.
Skrúðgangan stefnir á aðaltorgið
í St. Pholien, þar sem jólajatan
stendur og leikarar í jólagervum
ganga á milli gesta og bjóða
ókeypis heitt jólaglögg, jólabúðing
eða heitar pönnukökur.
Jólahughrif í Brussel
Sjötti evrópski jólamarkaðurinn
verður haldinn dagana 9.-11. des-
ember á Grand Sablon-torgi í
Brussel. Fulltrúar frá flestum
Evrópulöndum verða þar með sýn-
ingarbása er bjóða úrval af mat-
vöru og jólagjöfum — einkennandi
fyrir þjóðlöndin. Aðaltorgið
„Grand Place" er skreytt að venju
með jólajötu og risastóru jólatré.
Á aðventunni er mikið um að vera
á torginu, kórar alls staðar að úr
heiminum syngja jólalög og jóla-
sveinn gengur að sjálfsögðu um
svæðið. Öll veitingahús við torgið
reyna að draga að sér athygli með
skreytingum — og keppa um við-
skiptavini með nógu freistandi
matseðlum.
Sælkerahelgar
ogjóladagskrá
í litlu borginni Durbuy eru tré
meðfram strætunum ljósum prýdd
og veitingahús og hótel keppast
við að bjóða upp á sælkerahelgar
og jólaskemmtanir. Ferðamanna-
staðir við belgísku ströndina eru
með helgartilboð og spilavítin í
Ostend, Blankenberge, Knokke
og Middelkerke bjóða upp á jóla-
máltíðir með hljómleikahaldi eða
danstónlist. Það er greinilega
mikið um að vera á aðventunni
og yfir jólin í Belgíu.
Ferðafréttir
frá Bretlandi
Heimsborgin London er mik-
ið sótt af íslenskum ferðamönn-
um. Margir fara þangað til að
sækja sér afþreyingu í menn-
ingarlífi eða í verslunar- og
viðskiptaerindum. Ferðafréttir
þaðan eru alltaf vel þegnar.
Leikhúsasafinið í
Covent Garden opnað
Leikhúsasafnið í Covent Gard-
en var opnað í nóvember með leik-
húsverkum, sem annaðhvort hafa
sérstaka þýðingu fyrir sögu leik-
hússins eða eru eftir leikritahöf-
unda, sem hafa skrifað sérstak-
lega fyrir sviðið. Sýningar hefjast
klukkan 7.30 á hveiju kvöldi,
nema á mánudögum, þegar safnið
er lokað. Leikhúsið tekur 80
manns í sæti og miðinn kostar 7
pund á föstudögum og laugardög-
um, en 6 pund aðra daga. Fyrsta
leikritið er „Horfðu reiður um
öxl“, eftir John Osbome, og verð-
ur sýnt til 18. desember. Með
sýningunni er verið að halda upp
á 30 ára sýningarafmæli leikrits-
ins, en um leið er minnst 100 ára
afmælis „Konunglega hirðleik-
hússins", þar sem leikritið var
fyrst sviðsett.
Kynnisferð um
leikhúslífíð í London
London er oft nefnd höfuðborg
leikhúslífsins og því mjög viðeig-
andi að skipuleggja þangað kynn-
isferðir um leikhúslíf. Félagið
,,Stagecraft“ býður upp á skipu-
lagðar vikuferðir til London, sem
byggjast á leikritakynningu. í
„pakkanum" er innifalið: Gisting
og morgunverður, leikhúsmiðar á
fimm sýningar; á söngleik, Shake-
speare-leikrit og sýningu hjá sjálf-
stæðum leikhóp. Að auki er þátt-
Hressir járnbrautarstarfsmenn
taka í samræðuhópum um leik-
húsverk og fyrirlestrar; heimsókn
í Leikhúsásafnið í Convent Garden
og þriggja rétta máltíðir fyrsta
og síðasta kvöldið. Dagsetningar
kynnisferðanna eru: 21.-28. jan-
úar; 11.-18. febrúar; 11.-18.
mars; 22.-29. apríl og 13.-20.
maí. Hver vika kostar 280 pund.
Vanessa Redgrave og
Tennesse Williams
Leikhúsgestum gefst kostur á
að sjá hina frægu leikkonu, Van-
essu Rédgrave, í „Helför Orfeus-
ar“ eftir Tennessee Williams, sem
verður frumsýnt í Haymarket-
leikhúsinu 13. desember. „Helför
Orfeusar" var síðast á sviði í
London fyrir 29 árum. Peter Hall
leikstýrir, leikarinn Jean Marc
Barr stígur sín fyrstu skref á leik-
sviði í London, sem Val Xavier,
en Vanessa leikur Lafði Torrance.
Hvernig á að
matbúajólasteikina
Flest er gert til að heilla ferða-
menn! Frumlegt tilboð kemur frá
hóteli í Norfolk, sem býður gest-
um sínum upp á aðstoð við að
matbúa jólasteikina, en Norfolk-
fylkið er frægt fyrir kalkúnana
sína. Hótelgestir fá afhentan 14
punda kalkún, sem er matreiddur
á ýmsa vegu fyrir þá — bæði í
kvöldverð og hádegisverð — eins
gott að gestirnir verði ekki leiðir
á einhæfu hótelfæði! Þeir fá einn-
ig 50 uppskriftir að kalkúnsteik
og þeim gefst kostur á að bragða
margskonar kalkúnfyllingu —
frítt borðvín, sem er að sjálfsögðu
framleitt í Norfolk — matarpakka
fyrir heimferðina, með reyktum
kalkún frá Norfolk. Hótelið er
greinilega með frumlega hug-
mynd að skemmtilegri vörukynn-
ingu! Tvær nætur með hálfu fæði
- og aukagjöld innifalin og kostar
allt 100 pund á Hótel Norwich.
Jólaskemmtanir
ogjólaljós
I skemmtigarðinum Alton Tow-
ers, um 140 mílur norð-vestur af
London, er mikið um að vera á
aðventunni; tónleikar og útileik-
hús, risastórt jólatré, fólk í bún-
ingum úr sögum Dickens gengur
um svæðið og hefðbundinn jóla-
matur í veitingahúsum. Á Traf-
algar-torgi verður kveikt á norska
jólatrénu 7. desember, en Norð-
menn hafa gefið Lundúnabúum
jólatré frá 1947. Best er að sjá
jólaljósin í London með því að
fara í skoðunarferðir „London by
Night“, en á hveiju kvöldi eru
tvær ferðir frá fimm stöðum mið-
svæðis. Ferðin kostar 2 pund fyr-
ir fullorðna, en 1 pund fyrir böm
og það þarf ekki að panta fyrir-
fram.
Kveikt á jólatrénu á Trafalgar-torgi, 10. desember
frá norsku þjóðinni frá 1947.
— árleg gjöf
20