Lesbók Morgunblaðsins - 21.01.1989, Page 3

Lesbók Morgunblaðsins - 21.01.1989, Page 3
N I-FgPáHf &i:o R o u n | íb] [l] f*] fS] fH Q3® S! Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvstj.: Haraldur Sveinsson. Ritstjórar: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aðstoð- arritstjóri: Björn Bjarnason. Ritstjórnarfulltr.: Gísli Sigurðsson. Auglýsingar: Baldvin Jóns- son. Ritstjórn: Aöalstræti 6. Sími 691100. Jórvík Víkinga Sýning í Norraena Húsinu og Þjóðmirrjasafhi, sem opnuð verður í dag, gefior okkur alveg nýja innsýn í dagiegt líf á víkingaöld í Jórvík á Engiandi komst fomleiMræðin heldur betur í feitt, því þar hafe vaiðveizt ótrúlega vel hverskonar hhitir, san fólk notaði í daglegri lífebaráttu sinni og fer þar minnst fyrir vcpnurn Þessir frægu ribbaldar, vflangarnir voru einnig og ekki síður verzlunarmenn og laghentir hand- verksmenn. Ferðablaðið flallar m.a. um fjölbreytni í ferðavali, sem alltaf er að aukast. Aukin samkeppni leiðir af sér betri þjónustu og nú er í boði m.a. aukið úrval ævintýrafeiiða fyrir alla aldurshópa og ferðamenn eiga auðveldara með að tengja áhugamál sín frístundaferðalögum. Forsíðan Myndin er af sviðsetningu í Víkingasa&inu í Jórvík á Engiandi, þar sem fundizt hefur gífurlegt magn af alls- konar hlutum, sem tengjast daglegu lífí á víkingatíman- um. Myndin tengist umflöllun um Víkingasýninguna í Norræna Húsinu og Þjóðminjasafninu. Listakonur í Bandaríkjunum þykir sumum að hafí verið settar skör lægra en karlamir og það er hluti af kvennabyltingunni að bæta úr því. Nú hefur það gerzt, að stofnað hefur verið sérstakt þjóðlistasafn kvenna í bandarískri list og er það til húsa 1 virðulegri byggingu í Washington. UÓD VIKUNNAR í SJÓNVARPI 22. JANÚAR Þótt form þín hjúpi graflín — Eftir HALLDÓR LAXNESS Þóttform þín hjúpi graflín, granna mynd, oggoymiþögul moldin augun blá hvar skáldið forðum fegurð himins sá, — ó fjarra stjörnublik, ó tæra lind — og eins þótt fölni úngar varir þær sem eitt sinn þíddu kalinn hlekkjamann, þær hendur stirðni er Ijúfar leystu hann oglyki dauðansgreip um báðar tvær, það sakar ei minn saung, því minning þín í sálu minni eilíft lífsér bjó afyndisþokka, ást og mildri ró, einsogþú komst ífyrsta sinn til mín; einsogþú hvarfst ítign sem mál ei tér, með tár á hvarmi í hinsta sinn frá mér. Útsýniðfrá kennarastólnum haust tók ég að mér stærðfræði- kennslu í 8. og 9. bekk unglinga- skóla í forföllum í nokkrar vikur. Ég hafði aldrei kennt unglingum, en ég vissi að skólinn var í góðu áliti. Skólastjóri sagði mér að ■ kennsla unglinga væri 90% mann- leg samskipti. Ég tók eftir því í frímínútum að kennarar töluðu mikið um agamál, um það hvemig nú væri látið í þessum bekknum eða hinum bekknum og hvað væri til ráða og um vandræði ein- stakra nemenda. Nokkur huggun virtist vera í því fólgin að minnast enn erfiðari árganga. Mér varð hugsað til þess hvemig mundi vera í þeim unglingaskólum sem ekki væm í jaftimiklu áliti, hvílíkt tauga- stríð starf kennara væri og þá auðvitað um leið skóladvölin nemendunum. Skólastjóri var alltaf tilbúinn að leggja kennurum lið, ef þeir vom í vandræðum. Einn kennarinn bar viðhorfin til agamála saman við ástand- ið í skóla þar sem hann kenndi áður. Þar hefði aldrei verið minnzt á agavandræði, því að allir áttu að vera svo fullkomnir, og máttu kennarar eiga sín vandræði sjálfír. Var hann feginn því að hér töldust aga- vandamál ekki feimnismál og þakklátur fyr- ir þann stuðning sem fékkst til að stilla óróaseggi. Elzti kennarinn hélt því fram að þeim kennara væri ekki trúandi sem aldrei þættist eiga í vandræðum með nemendur. Þó að skólabragur þætti góður miðað við það sem menn vildu búast við í unglinga- skóla, spilltist námstími verulega af klið og óróa. Virkir námstímar verða því ekki marg- ir á degi hveijum. Mér verður hugsað til þeirra sem hér áður fyrr lásu utan skóla eða voru stuttan tíma í skóla á vetri, eins og tíðkaðist til sveita, og þykist sjá af þess- ari reynslu hvað þar hefur munað miklu um að tíminn ódrýgðist ekki eins og nú gerist i skólum með fjölmenna bekki og með nem- endur sem koma í skólann vansvefta eftir myndasýningar í heimahúsum. Nemendur í 9. bekk skiptust í bekki eftir því hve hratt þeir vildu fara yfír námsefnið, í hraðferð, miðferð og hægferð. Mér var ókunnugt um þetta skipulag og þótti það merkilegt. Nemendur völdu hraða í hverri námsgrein, og gat sami nemandi t.d. farið hægferð í einni grein, en miðferð í annarri. Gátu bekkimir því greinzt nokkuð í sundur eftir námsgreinum. í hægferðarbekk sem ég kenndi voru nemendur af ýmsu tagi. Sumir gátu lítið og höfðu lítinn áhuga, aðr- ir höfðu áhuga og vildu njóta kennslu, en þurftu að leggja talsvert að sér. Nokkrir hefðu getað lært, en kærðu sig ekki um það. Sumir hinna áhugalausu vom spakir í tímum, en aðrir óværir, og sagði kennarinn sem ég gegndi fyrir, að hér yrði að sætta sig við nokkum klið. Þurftu hinir áhugasam- ari nemendur stundum að tala nokkuð hátt til að kennarinn heyrði til þeirra þegar hann stóð upp við töflu. Þessi aðgreining á nemendum 9. bekkjar þótti rejmast vei. Meiri kyrrð væri í tímum en áður, og var fyrirkomulagið talið í þágu jaðarhópanna, þeirra sem minnst gátu og þeirra sem vom fremstir. Ég sé fyrir mér þá nemendur í hægferðinni sem verst eiga með að læra og reyna oft vanmátt sinn í tímum, hvort þeim hefði ekki liðið hálfu verr í bekk sem væri meira blandaður og með enn hraðari yfirferð. Það var nokkur ánægja að kenna þeim sem gátu lítið og vildu læra og njóta kennslu þrátt fyrir klið- inn, eiginlega var það það í starfínu sem mest var varið í og að fá fyrir í kveðju- skyni þakkir með handabandi. Ætli það sé ekki í slíka reynslu sem kennarar sækja styrk þegar á móti blæs? Kennslustund í hraðferðinni var hins vegar eins og leikur og daglegt tilhlökkunarefni. Þar heyrðist varla aukatekið orð, en stundum varð al- menn umræða um rök reikningslistarinnar í tengslum við dæmaúrlausnir. I 9. bekk er orðið nokkuð skýrt hveijum fellur skólanám og hveijir una skólaskyl- dunni illa. Ýmsir hljóta að valda áhyggjum. Nemendur sem ekki hafa nokkum áhuga á námi venjast á að veija tíma sínum illa, venjast þeirri tilfínningu að beygja sig fyrir því sem þeim hlýtur að fínnast vera ofbeldi (skólaskyldunni), bíða eftir því að hveijum tíma ljúki, að hveijum degi ljúki, að kennslu- vikunni ljúki og að veturinn endi og skóla- skyldan. Þeir venjast á að hunza allt sem þeir sem ráða ætlast til. Þótt þeim leiðist eru þeir ekki endilega til vandraeða í tímum. Ég skil ekki að þetta sé í þeirra þágu. Þeir ættu að fá að ráða sér og eiga kost á því að koma til náms síðar þegar þeir hafa gert sér grein fyrir gildi þess. Sumum mun famast illa, en svo er líka nú. Reynslulitlum manni dettur ýmislegt í hug sem reyndum þykir óraunhæft. Fyrstu tvo dagana fylgdi ég kennaranum, sem ég leysti af, í tíma og gat liðsinnt honum með því að ganga á milli nemenda og leiðbeina þeim hveijum eftir ástæðum, en á meðan gat hann staðið við töfluna og kennt öllum hópnum. Þetta er einmitt það sem hver kennari þarf oft að gera samtímis, að kalla á almenna athygli og sinna þörfum ein- stakra nemenda. Er ekki líklegt að kennar- ar nýttust betur með því að tveir kennarar væru saman? (Til að halda óbreyttum kostn- aði yrði að stytta kennslutíma um helming í þeim greinum þar sem þessu yrði beitt.) Þannig gætu kennarar komið til móts við mismunandi þarfír nemenda. Kennarar gætu líka lært hver af öðrum, og þeir þyrftu ekki að vera einir að klást við erfíðan bekk. Ég spái því reyndar að erfíðum bekkjum og þreyttum kennurum mundi fækka veru- lega með slíkum vinnubrögðum. BJÖRN s. StefAnsson LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 21. JANÚAR 1989 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.