Lesbók Morgunblaðsins - 21.01.1989, Side 3
N
I-FgPáHf
&i:o R o u n | íb] [l] f*] fS] fH Q3® S!
Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvstj.:
Haraldur Sveinsson. Ritstjórar: Matthías
Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aðstoð-
arritstjóri: Björn Bjarnason. Ritstjórnarfulltr.:
Gísli Sigurðsson. Auglýsingar: Baldvin Jóns-
son. Ritstjórn: Aöalstræti 6. Sími 691100.
Jórvík Víkinga
Sýning í Norraena Húsinu og Þjóðmirrjasafhi, sem opnuð
verður í dag, gefior okkur alveg nýja innsýn í dagiegt líf á
víkingaöld í Jórvík á Engiandi komst fomleiMræðin heldur
betur í feitt, því þar hafe vaiðveizt ótrúlega vel hverskonar
hhitir, san fólk notaði í daglegri lífebaráttu sinni og fer þar
minnst fyrir vcpnurn Þessir frægu ribbaldar, vflangarnir
voru einnig og ekki síður verzlunarmenn og laghentir hand-
verksmenn.
Ferðablaðið
flallar m.a. um fjölbreytni í ferðavali, sem alltaf er að
aukast. Aukin samkeppni leiðir af sér betri þjónustu og
nú er í boði m.a. aukið úrval ævintýrafeiiða fyrir alla
aldurshópa og ferðamenn eiga auðveldara með að tengja
áhugamál sín frístundaferðalögum.
Forsíðan
Myndin er af sviðsetningu í Víkingasa&inu í Jórvík á
Engiandi, þar sem fundizt hefur gífurlegt magn af alls-
konar hlutum, sem tengjast daglegu lífí á víkingatíman-
um. Myndin tengist umflöllun um Víkingasýninguna í
Norræna Húsinu og Þjóðminjasafninu.
Listakonur
í Bandaríkjunum þykir sumum að hafí verið settar skör
lægra en karlamir og það er hluti af kvennabyltingunni
að bæta úr því. Nú hefur það gerzt, að stofnað hefur
verið sérstakt þjóðlistasafn kvenna í bandarískri list og
er það til húsa 1 virðulegri byggingu í Washington.
UÓD VIKUNNAR í SJÓNVARPI
22. JANÚAR
Þótt form þín
hjúpi graflín —
Eftir HALLDÓR LAXNESS
Þóttform þín hjúpi graflín, granna mynd,
oggoymiþögul moldin augun blá
hvar skáldið forðum fegurð himins sá,
— ó fjarra stjörnublik, ó tæra lind —
og eins þótt fölni úngar varir þær
sem eitt sinn þíddu kalinn hlekkjamann,
þær hendur stirðni er Ijúfar leystu hann
oglyki dauðansgreip um báðar tvær,
það sakar ei minn saung, því minning þín
í sálu minni eilíft lífsér bjó
afyndisþokka, ást og mildri ró,
einsogþú komst ífyrsta sinn til mín;
einsogþú hvarfst ítign sem mál ei tér,
með tár á hvarmi í hinsta sinn frá mér.
Útsýniðfrá
kennarastólnum
haust tók ég að mér stærðfræði-
kennslu í 8. og 9. bekk unglinga-
skóla í forföllum í nokkrar vikur.
Ég hafði aldrei kennt unglingum,
en ég vissi að skólinn var í góðu
áliti. Skólastjóri sagði mér að
■ kennsla unglinga væri 90% mann-
leg samskipti. Ég tók eftir því í
frímínútum að kennarar töluðu mikið um
agamál, um það hvemig nú væri látið í
þessum bekknum eða hinum bekknum og
hvað væri til ráða og um vandræði ein-
stakra nemenda. Nokkur huggun virtist
vera í því fólgin að minnast enn erfiðari
árganga. Mér varð hugsað til þess hvemig
mundi vera í þeim unglingaskólum sem
ekki væm í jaftimiklu áliti, hvílíkt tauga-
stríð starf kennara væri og þá auðvitað um
leið skóladvölin nemendunum. Skólastjóri
var alltaf tilbúinn að leggja kennurum lið,
ef þeir vom í vandræðum. Einn kennarinn
bar viðhorfin til agamála saman við ástand-
ið í skóla þar sem hann kenndi áður. Þar
hefði aldrei verið minnzt á agavandræði,
því að allir áttu að vera svo fullkomnir, og
máttu kennarar eiga sín vandræði sjálfír.
Var hann feginn því að hér töldust aga-
vandamál ekki feimnismál og þakklátur fyr-
ir þann stuðning sem fékkst til að stilla
óróaseggi. Elzti kennarinn hélt því fram að
þeim kennara væri ekki trúandi sem aldrei
þættist eiga í vandræðum með nemendur.
Þó að skólabragur þætti góður miðað við
það sem menn vildu búast við í unglinga-
skóla, spilltist námstími verulega af klið og
óróa. Virkir námstímar verða því ekki marg-
ir á degi hveijum. Mér verður hugsað til
þeirra sem hér áður fyrr lásu utan skóla
eða voru stuttan tíma í skóla á vetri, eins
og tíðkaðist til sveita, og þykist sjá af þess-
ari reynslu hvað þar hefur munað miklu um
að tíminn ódrýgðist ekki eins og nú gerist
i skólum með fjölmenna bekki og með nem-
endur sem koma í skólann vansvefta eftir
myndasýningar í heimahúsum.
Nemendur í 9. bekk skiptust í bekki eftir
því hve hratt þeir vildu fara yfír námsefnið,
í hraðferð, miðferð og hægferð. Mér var
ókunnugt um þetta skipulag og þótti það
merkilegt. Nemendur völdu hraða í hverri
námsgrein, og gat sami nemandi t.d. farið
hægferð í einni grein, en miðferð í annarri.
Gátu bekkimir því greinzt nokkuð í sundur
eftir námsgreinum. í hægferðarbekk sem
ég kenndi voru nemendur af ýmsu tagi.
Sumir gátu lítið og höfðu lítinn áhuga, aðr-
ir höfðu áhuga og vildu njóta kennslu, en
þurftu að leggja talsvert að sér. Nokkrir
hefðu getað lært, en kærðu sig ekki um
það. Sumir hinna áhugalausu vom spakir í
tímum, en aðrir óværir, og sagði kennarinn
sem ég gegndi fyrir, að hér yrði að sætta
sig við nokkum klið. Þurftu hinir áhugasam-
ari nemendur stundum að tala nokkuð hátt
til að kennarinn heyrði til þeirra þegar hann
stóð upp við töflu.
Þessi aðgreining á nemendum 9. bekkjar
þótti rejmast vei. Meiri kyrrð væri í tímum
en áður, og var fyrirkomulagið talið í þágu
jaðarhópanna, þeirra sem minnst gátu og
þeirra sem vom fremstir. Ég sé fyrir mér
þá nemendur í hægferðinni sem verst eiga
með að læra og reyna oft vanmátt sinn í
tímum, hvort þeim hefði ekki liðið hálfu
verr í bekk sem væri meira blandaður og
með enn hraðari yfirferð. Það var nokkur
ánægja að kenna þeim sem gátu lítið og
vildu læra og njóta kennslu þrátt fyrir klið-
inn, eiginlega var það það í starfínu sem
mest var varið í og að fá fyrir í kveðju-
skyni þakkir með handabandi. Ætli það sé
ekki í slíka reynslu sem kennarar sækja
styrk þegar á móti blæs? Kennslustund í
hraðferðinni var hins vegar eins og leikur
og daglegt tilhlökkunarefni. Þar heyrðist
varla aukatekið orð, en stundum varð al-
menn umræða um rök reikningslistarinnar
í tengslum við dæmaúrlausnir.
I 9. bekk er orðið nokkuð skýrt hveijum
fellur skólanám og hveijir una skólaskyl-
dunni illa. Ýmsir hljóta að valda áhyggjum.
Nemendur sem ekki hafa nokkum áhuga á
námi venjast á að veija tíma sínum illa,
venjast þeirri tilfínningu að beygja sig fyrir
því sem þeim hlýtur að fínnast vera ofbeldi
(skólaskyldunni), bíða eftir því að hveijum
tíma ljúki, að hveijum degi ljúki, að kennslu-
vikunni ljúki og að veturinn endi og skóla-
skyldan. Þeir venjast á að hunza allt sem
þeir sem ráða ætlast til. Þótt þeim leiðist
eru þeir ekki endilega til vandraeða í tímum.
Ég skil ekki að þetta sé í þeirra þágu. Þeir
ættu að fá að ráða sér og eiga kost á því
að koma til náms síðar þegar þeir hafa
gert sér grein fyrir gildi þess. Sumum mun
famast illa, en svo er líka nú.
Reynslulitlum manni dettur ýmislegt í
hug sem reyndum þykir óraunhæft. Fyrstu
tvo dagana fylgdi ég kennaranum, sem ég
leysti af, í tíma og gat liðsinnt honum með
því að ganga á milli nemenda og leiðbeina
þeim hveijum eftir ástæðum, en á meðan
gat hann staðið við töfluna og kennt öllum
hópnum. Þetta er einmitt það sem hver
kennari þarf oft að gera samtímis, að kalla
á almenna athygli og sinna þörfum ein-
stakra nemenda. Er ekki líklegt að kennar-
ar nýttust betur með því að tveir kennarar
væru saman? (Til að halda óbreyttum kostn-
aði yrði að stytta kennslutíma um helming
í þeim greinum þar sem þessu yrði beitt.)
Þannig gætu kennarar komið til móts við
mismunandi þarfír nemenda. Kennarar
gætu líka lært hver af öðrum, og þeir þyrftu
ekki að vera einir að klást við erfíðan bekk.
Ég spái því reyndar að erfíðum bekkjum
og þreyttum kennurum mundi fækka veru-
lega með slíkum vinnubrögðum.
BJÖRN s. StefAnsson
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 21. JANÚAR 1989 3