Lesbók Morgunblaðsins - 21.01.1989, Page 14
Vetrargolf
í Portugal
Á meðan skfðamenn flykkjast í
Alpafjöllin, fara golfleikarar frá
Norður-Evrópu í stríðum straum-
um suður á bóginn til þess að
komast á grænt gras og fyrsta
flokks golfvelli. Sá straumur hef-
ur að hluta til legið til Kanaríeyja
eins og við þekkjum, en sá ann-
marki er þar, að aðeins er um að
ræða tvo velli og álagið á þá er
gífurlegt, ekki sízt völlinn í Masp-
alomas.
Á vorin og fram eftir hausti
er Mallorca og Costa del Sol sjálf-
sagður valkostur með gnægð af
frábærum golfvöllum, en mörgum
fínnst hinsvegar, að vallargjöld
séu komin yfír velsæmismörk.
Yfír veturinn hefur ekki legið
„golfstraumur" til þessara staða,
enda er þá hægt að búast við rign-
ingu og lægra hitastigi en við vilj-
um hafa í sólarlandaferðum.
Af einhveijum ástæðum hefur
þriðji valkosturinn í Evrópu lítið
verið á dagskrá hér; nefnilega
Portúgal, þar sem allan veturinn
er óskahiti golfleikara, svona um
og yfír 20 stig, eða svipað og á
Kanaríeyjum. Sólardagar eru um
360 ári, eða svo að segja hver
einasta dag og þegar hitinn var
lægstur nú um jólaleytið, var hann
18-20 stig.
Þama má segja, að golf sé fyr-
ir utan sólina og blíðuna eitt meg-
in aðdráttaraflið, - svo og verðlag,
sem hvergi er lægra í Vestur
Evrópu. Það voru Bretar, sem
fyrstir byggðu golfvöll í Portúgal
1890, en nú eru þar 20 vellir og
22 í byggingu, þar af sextán 18
holu vellir. Golf er orðið einskonar
stóriðnaður í Portúgal og dregur
að gesti í þeim mæli, að einungis
á völlunum í Penina eru leiknir
140 þúsund hringir á ári. Það eru
einkum Bretar, Hollendingar,
Svíar og Þjóðveijar, sem flykkjst
til Portúgal á vetuma.
Ferðamannastraumurinn bein-
ist einkum á Algarveströndina,
sem er syðst í landinu og næst
Afríkuströndum. Þar eru nú 7
meiri háttar golfvellir, tveir þeirra
eru raunar 27 holur og á Penina
er um 36 holur að spila.
Völ er um hótel alveg við vel-
lina, en sumum hefur þótt um-
hverfíð full dauflegt þegar borið
er saman við Mallorca eða Torre-
molinos. Hægt er að ráða bót á
því með því að vista sig á hótel-
um, sem standa í þéttbýli við sjó-
inn; þar eru gnægð veitingahúsa,
verzlanir og annað, sem fólk vill
hafa við hendina. Þaðan er líka
fremur skammt að fara á golf-
vellina og kostar lítið að taka
leigubíla. Sjálfsagt er að taka bíla-
leigubíl, ef á að fara í leiðangur
og sjá meira af landinu en þama
gefst, en sé verið á Algarveströnd-
inni til þess að hvfla sig og leika
golf, er ekki talið nauðsynlegt að
vera á bflaleigubfl.
Vallargjöldin eru mismunandi,
en miklu lægri en tíðkast í Mar-
bella á Spáni. Oftast eru þau sam-
svarandi 1000-1200 ísl. krónum,
en sé samið fyrir allan dvalartí-
mann, er hægt að fá þau fyrir sem
svarar 800 krónur. Verðlag á veit-
ingahúsum er mjög lágt. Ferða-
blaðið hafði tal af manni, sem var
þar ásamt konu sinni um jólin og
nefndi hann sem dæmi, að íburð-
armikil jólamáltíð fyrir þau hjónin
kostaði 700 krónur á mann, en
venjuleg góð máltíð kostar helm-
ingi minna. Hótelin eru líka ódýr.
Um jólin kostaði Qögurra stjömu
hótel við höfnina í Vilamoura
1000 kr á mann á dag, innifalinn
var íjölbreyttur morgunverður.
Samkvæmt upplýsingum þessa
viðmælanda blaðsins, kostaði
þriggja vikna ferð um jólin 50
þúsund á mann, þar með talið flug
alla leið frá íslandi til Portúgal,
gisting og morgunverður.
Á Vilamoura I, einum fræg-
asta vellinum á Algarve-
ströndinni. Sá sem slær óná-
kvæmt og lendir útaf braut,
er oftast undir trjám, en
gras sem boltinn týnist í er
ekki til.
Penina er lúxushótel með 18 holu völl og tvo 9 holu velli.
Þægilegur lúxusstaður, en dálítið á afskekktum stað.
Golfvellir á Algarve-
ströndinni
Flogið er til Faro þegar leiðin
liggur á Algarveströndina og það-
an em aðeins 15 km á VALE
DO LOBO, sem sá frægi kappi
Henry Cotton teiknaði. Cotton á
mikinn þátt í að auka straum
kylfínga til Portúgal eftir langa
veru sem golfkennari á Penina
eftir að lauk keppnisferli hans.
CQtton er nú nýlega látinn. Vale
do Lobo er einn af frægari völlun-
um, samtals þrír 9 holu vellir,
auðkenndir með gulu, appelsínug-
ulu og grænu. Frægasta holan
og mikið ljósmynduð er sjöunda
holan á gula vellinum, 170 metra
flug yfír klettótta skominga. Ann-
ars em flestar brautimar innan-
um eikur og appelsínutré. Golfbfla
er alsstaðar hægt að fá.
Ennþá nær, eða 10 km frá flug-
vellinum er VILAMOURA 2, í
nálægð við bátahöfn með sama
nafni. Þetta er 6.o20 m langur
völlur, par 72. Flatimar á seinni
hlutanum þykja smáar og erfítt
að hitta þær og þama eins og
yfírleitt á þessum völlum er
Bermúdagras og reynist mörgum
Með allt á hjólunum.
með allri hugsanlegri íþróttaað-
stöðu, afþreyingu og ævintýra-
legri lúxusaðstöðu — sem kostar
líka sitt! Út frá þessum vemduðu
gististöðum eða lokuðu þorpum
hættir ferðamaðurinn sér í skoð-
unarferðir um næsta nágrenni,
en oft má segja, að hótel og sér-
hæfð ferðamannaþorp séu ekki i
tengslum við umhverfí sitt (ef loft-
slag er undanskilið) og gætu þess
vegna verið hvar sem er!
„Hitabeltisímynd“ í
Evrópu-loftslagi
Hollendingar hafa sýnt ein-
staka hugkvæmni við að nota sér
þá möguleika, sem gróðurhúsin
gefa. Undir glerþaki hafa þeir
skapað sundlaugarparadís, með
hitabeltisgróðri í tengslum við lítil
sumarhús — óskastaður §öl-
skyldu, sem vill skoða sig um á
þessum slóðum, en jafnframt
dvelja á „sólhlýjum" hvíldarstað.
Hugmynd þeirra, að losa sig við
þá annmarka, sem óstöðug veðr-
átta hlýtur að hafa í för með sér
til að laða að sér ferðamenn — er
í hraðri sókn um alla Evrópu og
á trúlega eftir að koma hingað.
Að hvíla sig í
skoðunarferðum
Næst kemur sá ferðamaður,
sem vill sjá og skoða sem mest —
vera á stöðugri ferð, en hafa lítið
fyrir því. Sá hinn sami vill kannski
sitja í rútu og sjá landslagið líða
hjá og hlusta á fróðleiksmola leið-
sögumanns — eða vera á stöðugri
siglingu allt fríið og koma við á
mörgum höfnum. Frændur okkar
Danir eru frægir fyrir að vilja
hafa lítið fyrir fríinu, en aftur á
móti finnst Norðmönnum að
líkamleg árejmsla sé ómissandi
hluti af fríinu. Unga fólkið kýs
að flakka um Evrópu í ódýrum
lestarferðum „Eurorail" eða um
Bandaríkin með „Greyhound"-
rútunum. En meira af eldra fólki
kýs skipulagðar rútuferðir eða
Iúxussiglingar, um gríska Eyja-
hafíð, Miðjarðarhaf, Karabíska
hafíð, jafnvel upp Nfl í átt að
Viktoríufossum eða sigla eftir
lengsta fljóti í Kína. En það er
Iíka hægt að fá lúxuslestarferðir
eins og með Parísar-hraðlestinni,
„Höllinni á hjólum" í Indlandi og
víðar og unga fólkið getur líka
fengið ódýrari siglingar, eins og
„Barefoot Cruises" á gömlum
skútum út frá Flórída. Eitthvað
fyrir alla.
Inuit-indíáni í Kanada við tjald sitt.
Ævintýraferðir
Ferðamaður, sem leitar að æv-
intýraferðum, á kannski erfitt
með að velja — úrvalið er svo
mikið. Honum bjóðast safaríferðir
með jeppum um eyðimerkur
Afríku til að skoða villta dýrarík-
ið; heimsóknir til hellisbúa eða
fólks í moldarkofum, í Lappatjöld,
til Inuit-indíána í Kanada; svifflug
yfír eyðimerkur með loftbelg;
fjallgönguferðir í Himalayafjöll-
um; skoðunarferð í.stærsta fugla-
varpsvæði Afríku í gömlum eldgíg
í Kenýa; að þjóta yfír snjóauðnir
Lapplands í hreindýrasleðum —
fara um Grænlandsjökul f hunda-
sleðum; áhættusigling með kajök-
um um vatnsmiklar ár, t.d. í
Kanada; útsýnisflug með þyrlum
yfir fegurstu staði í Bandaríkjun-
um, Ástralíu og víðar; lax- og sil-
ungsveiðar í Klettafjöllum allt upp
til Alaska; leikhúsferð í Bolshoj-
leikhúsið í Moskvu. Farartækin
eru óteljandi, yfír snjóvíðáttur, láð
og lög og alltaf verið að reyna
að hafa þau sem frumlegust eða
sem nýtískulegust.
Sá sem stundar íþróttir eins og
golf eða skíði, finnur víða ferða-