Lesbók Morgunblaðsins - 04.03.1989, Qupperneq 8
er út frá er 10 milljónir punda. Seljandinn
er ókunnur.
Nái salan fram að ganga gæti þetta
málverk Picassos orðið ein dýrasta mynd
þessarar aldar. Listunnendur og venjulegir
safnarar fylgjast agndofa með því hvemig
listinni reiðir af í heimi fjármagnsins. Hinar
fögru listir, áður fyrr samheiti fyrir munað
borgarastéttarinnar, hafa komist í hendur
ágjamra braskara.
Listmarkaðimir em orðnir að spilavítum
þar sem veltan skiptir milljörðum. í byijun
nóvember seldi Sotheby-uppboðið í New
York 792 verk fyrir 231 milljón dollara á
fáeinum dögum. Christie seldi á svipuðum
tíma safn William Goetz, Hollywood-keisar-
ans, sem saman stóð af 28 impressjónískum
og módemískum verkum fyrir 85,25 milljón-
ir dollara. Salan tók innan við klukkutíma.
Myndin „Móðirin" sem Pieasso málaði
snemma á ferli sínum var slegin hjá Sothe-
by „ónafngreindum Suður-Ameríkumanni“
fyrir 24,75 miljónir dollara. Þetta var nýtt
heimsmet. Þetta var dýrasta Picassomál-
verkið, þriðja dýrasta málverk sem selst
hefur.
NýríkirJapanir
Hverjir taka þátt í þessum leik? Hvað
veldur því að upphæðimar verða svona ótrú-
lega háar? „Það er greinilega meira fjár-
magn til staðar í heiminum en nokkm sinni
áður," segir listaverkasalinn Stephan Hahn
frá New York.
Framar öllum öðmm sækjast nýríkir Jap-
anir eftir vestrænni menningu. „Við viljum
vera á sama menningarstigi og Evrópubúar
og Ameríkumenn,“ segir Masao Nangaku,
milljónamæringur frá Tókýó. Hinar ótrúlegu
verðhækkanir skipta Japan engu, þeir kaupa
án afláts. „Gullöld listaviðskiptanna rennur
brátt upp,“ segir mesti listaverkasali Jap-
ans, Tokushichi Hasegawa.
Nær alla sérfræðinga í heimi listamarkað-
arins gmnar að málverkakaup sé hagstæð
leið til að hvítþvo svart fjármagn. Mynd
Picassos, „Móðirin", sem einkennist af fróm-
lyndi og tilfinningasemi „misnotaði mafían
til að fela peninga sem fengust fyrir fíkni-
efnasölu", segir listaverkasali nokkur frá
New York. Sem dæmi um gífurlega verð-
hækkun á málverkum má nefna að mynd
eftir Auguste Renoir, „Kona að baða sig“,
sem slegin var í nóvember 1985 fyrir 1,65
milljónir dollara var seld fyrir skömmu fyr-
ir 8,5 milljónir dollara. „Við lifum á dýrleg-
um tímum," segir Leslie Waddington, 53
ára gamall listaverkasali frá London, „gróð-
inn hefur aukist gríðarlega".
Á sama tíma og verðgildi dollarans fell-
ur, hækkar verð á amerískri list. Nútíma-
málarar, svo sem Jasper Johns sem að Pic-
asso, Joseph Beuys og Andy Warhol látnum
erfði titilinn „mesti núlifandi listamaður-
inn“, fá stoltir en um leið skelkaðir fregnir
af því hvemig verð á verkum þeirra fara
úr öllum böndum.
Fyrst hækkaði mynd Jasper Johns,
„Hvítur fáni“, upp í 7 milljónir dollara á
uppboði hjá Christie. Kaupandinn var
sænskur auðkýfingur, Hans Thulin. Daginn
eftir eignaðist Samuel I. Newhouse jr., bóka-
útgefandi frá New York, mynd Jasper
Johns, „Þjófstart", og gaf fyrir hana 17
milljónir dollara. Listaverkasalinn Leo Cast-
elli minntist þess með eftirsjá að hann
keypti þessa litfögru mynd árið 1960 fyrir
3.150 dollara. Listamaðurinn var þakklátur
fyrir að fá um helming þeirrar upphæðar í
sinn vasa.
Yfírráð uppboðshúsanna yfír hinum fögru
listum verða æ meiri. Listaverkasalar sem
eftir PETER SCHILLE
Listmarkaður í Köln 1988. Þetta fyrirkomulag þykir mjög hafa ýtt undir sölu á listaverkum. Á mörkuðum af þessu tagi
eru galleríin með sýningabása.
Dýrasta listaverk til þessa eru írisblóm van Goghs, sem seldust á uppboði hjá Sotheby’s á 2.695 ihilfjónir. Kaupandinn
japanskt stórfyrirtæki og myndin mun vera geymd þar í skotheldum sýningarskáp.
Listagyðjan
á valdi Mammons
Listaverk eftir látna
stórmeistara seljast nú
fyrir þvílíkar upphæðir,
að það er utan og ofan
við skilning venjulegs
fólks. Og ekki bara eitt
og eitt verk, heldur
urmull. Á tæpri
klukkustund seldust í
New York 28 málverk
fyrir samtals um 85
milljónir dollara.
Myndlistin er ekki
lengur munaður
borgaranna, heldur
eftirsóknarverð vara,
sem braskarar með fullar
hendur fjár sækjast eftir.
Þar á meðal eru nýríkir
Japanir, auðmenn sem
hafa slæma reynslu af
verðbréfamarkaðnum og
jafnvel fíkniefnasalar.
rið 1905 er Pablo Picasso var 23 ára gamall
málaði hann „Loftfimleikamann og ungan
trúð“. Þetta þunglyndislega málverk sýnir tvo
unga menn sem horfa framhjá hvor öðrum.
Sá til hægri, loftfimleikamaðurinn, er með
iokuð augu. Hann safnar kröftum, ef til
vill fyrir sitt síðasta atriði, dauðann. Sá til
vinstri, sá yngri, hefur fyrir löngu úthellt
öllum sínum tárum. Af þeim sökum er hann
í litmiklum trúðsklæðum og andlit hans er
næstum eins fölt og hálskraginn. Ungu
mennimir tveir eru auk litanna einu hetjur
myndarinnar.
Árið 1911 var þetta málverk sem er frá
bleika tímabilinu á listferli Picassos sett upp
í þýska Von de Heydt-safninu í Wuppertal.
Árið 1937, á brúna tímabilinu í sögu Þýska-
lands, úrskurðuðu nasistar myndina tilheyra
þeim flokki listar sem þeir álitu úrkynjaða.
Árið 1939 var heimilað að myndin færi á
uppboð í Fischer-galleríinu í Luzem, þar sem
hún var slegin Roger Janssen, listaverka-
safnara frá Briissel, fyrir 80 þúsund svissn-
eska franka.
Nú, 52 ámm eftir fordæmingu myndar-
innar, býður Christie-uppboðið í London
hana til sölu. Lágmarksverðið sem gengið
M
Jí-:
ffigsam