Lesbók Morgunblaðsins - 04.03.1989, Side 11
7=H ■%«i
B i L A R
Hliðin getur opnast öll, - rennihurðir opnast fram og aftur og enginn dyrastafur
á milli. Framsætin geta snúizt, farþegasætið jafhvel svo það snýr aftur.
Megane
frá Renault
- forsmekkur
að 21.
öldinni
Megane - framtíðarbíllinn frá Renault er einungis búinn þvi sem tæknilega mögulegt er eins og sakir standa og umgjörð-
in utan um alla þá hátaekni er bseði frönsk og framúrskarandi.
\ • I
t.
er á hnapp og út kemur skúffa með farangurinn
í skottinu.
, .-r. .«r~
Stýri og mælaborð úr Megane. Hér er engin geimskipafantasía og það vekur
athygli, að á mælaborðið koma ekki tölrænar tölvuupplýsingar um hraða og
annað sem ökumaður þarf að vita, heldur eru kunnuglegir og kringlóttir mæl-
ar. Þeir hafa einfaldlega reynst bezt.
Framtíðarspámenn bílaiðn-
aðarins sýna okkur annað
veifið svo háfleygar hug-
myndir, að framkvæmd
þeirra hlýtur að vera langt
utan við sjóndeildarhring-
inn á hafi tímans. Þótt
þróunin sé nokkuð hröð,
var búið fyrir 25 árum að spá bílum fyrir
annó 1989, sem ekki hafa orðið að veru-
leika. í annarri deild spámennskunnar hjá
bílaiðnaðinum eru svo þeir, sem smíða „pró-
tótýpur", sýningareintök, þar sem kynnt er
nýjasta mögulega hátækni - og framúr-
stefnuútlit. Þetta er tækni og útlit, sem
telja verður að sé á næsta leiti; aðeins er
eftir að þróa framleiðsluaðferðir þannig að
boðlegt verð náist.
í þessum flokki er sýningarbíllinn Megane
frá Renault, sem telja verður að sé vel
mögulegt þróunarskref og trúlega er þama
raunhæfur forsmekkur að 21. aldar bflnum,
- að minnsta kosti eins og hann gæti orðið
í upphafi aldarinnar.
Megane sýnir, að Fransmenn hafa ekki
hugsað sér að láta deigan síga i samkeppn-
inni við Japani og aðra risa í bflaiðnaðinum.
Hér er hönnunin lykilatriði og Megane sýn-
ir, að Fransmenn eiga góða bflahönnuði.
Hitt er svo annað mál, að þeir gætu alveg
eins verið ítalir, sem hafa getið sér mikið
orð á þessu sviði. Á Megane er útlitið eitt
út af fyrir sig frumlegt og listrænt. Líkt
og löngum tíðkaðist á Citroen er langt á
milli öxla og það hefur sérstaka þýðingu
hér, því Megane er með rennihurðum og
enginn dyrastafur á milli þeirra, svo hægt
er að opna alla hliðina uppá gátt eins og
myndin sýnir. Vilji aftursætisfarþegar hafa
rúmt um sig, er hægt að renna sætinu um
29 sm aftur og færist þá afturrúðan sem
því nemur aftur á skottið. Til þæginda er
skúffa dregin aftur úr skottinu þegar far-
angur er settur í það - og tekinn út.
Framúrskarandi þægilegt er að setjast
uppí Megane að framan, því framsætin snú-
ast í 90 gráður og vísa þá út. Jafnframt
er hægt að snúa farþegasætinu að framan
um 180 gráður, ef farþeginn vill snúa að
þeim, sem sitja ( aftusætinu. Beltin eru fest
í sætið og verka jafn vel, hvemig sem sæt-
ið snýr. Jafnframt er mjög fullkomið stilli-
kerfi á sætunum og að sjálfsögðu með
„minni" ef fleiri en einn aka bílnum.
Megane er með 6 strokka, 250 hestafa
vél og forþjöppu. Drif er á öllum hjólum og
stýring sömuleiðis. Fjöðrunin er rafeinda-
stýrð, búin nemum sem greina ávallt hvað
framundan er og búa fjöðrunarkerfið undir
holur eða aðrar ójöfnur. Til er sjálfskipt
útgáfa og önnur með venjulegri gírstöng,
sem jafnframt gegnir hlutverki kúplingar.
Ekkert óvænt gerist þótt ekið væri á nagla
á fullri ferð. Megane er með Michelin ATS
kerfi, sem byggist á samþjöppuðu frauði
næst felgunni. Þegar springur þenst frauðið
út á sama andartaki og fyllir út í dekkið.
Megane er tilraunabfll, þar sem unnið er
með nýjustu hátækni, en merkustu nýmælin
eru í raun og veru í umgjörðinni; í hönnun
og útliti ásamt rennihurðunum og lengingar-
möguleikanum að aftan.
GS.
„Gróðurhúsið“ nefha þeir hjá Renault
afturrúðuna, sem rennur um 29 sm
aftur á skottið, ef aftursætisfarþegar
vilja hafa rúmt um sig. í glerinu er
sérstök vörn gegn sólarhita.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 4. MARZ 1989 1 1