Lesbók Morgunblaðsins - 11.03.1989, Síða 6
A R K 1 T E K T w U R
Hús eftir Peter Cook - tilraun til samtengingnr náttúru og byggingarlistar, 1981.
Hugmynda-
smiðurinn
Peter Cook
Peter Cook: Skýjakfjúfar f Ástralíu, 1984.
Fátt er dýrmætara en nýjar og ferskar hugmynd-
ir. Það er hlutskipti flestra að fara í gengin
spor; fáum er gefínn sá frumleiki, sem skiptir
sköpum. í allri hönnun, hvort heldur hún snýst
um hús, borgarskipulag, bíla, húsgögn eða blöð
og tímarit, er sífellt verið að leita nýra leiða.
Sé það vanrækt, leggst kennimark stöðnun-
arinnar eins og grámosi á verk mannanna.
í stjómmálum er talað um „list hins
mögulega". Sú hugmynd á ekki síður við í
arkitektúr. Skipulagsfræðingar og arkitekt-
ar verða að byggja á „hinu mögulega",
hvort sem það er nú list eða ekki. En utan
og ofan við það starfa einskonar spámenn,
sem taka ekki í sama mæli mið af því mögu-
lega. Hugmyndir þeirra komast ef til vill
ekki lengra en á pappírinn, en í sumum
þeirra býr sá neisti, sem kveikir bál. Þess-
vegna eru hugmyndasmiðir nauðsynlegir
fyrir framþróunina.
Einn sá frægasti úr þeim skáldlega hópi
er án efa Peter Cook, sem ætlar að messa
yfir okkar mönnum úr stétt arkitekta og
raunar hveijum sem heyra vill í Norræna
Húsinu á mánudagskvöld. Teikningar hans
minna oft harla lítið á hefðbundnar grunn-
myndir og útlitsteikningar arkitekta og þarf
ekki annað en líta á forsíðumyndina til að
sannfærast um það. Oft eru teikningar
Cooks hreinræktuð myndlistarverk í ætt við
grafikmyndir Þorðar Hall til dæmis. Og sé
litið þannig á málið, er ljóst að Peter Cook
er ágætur og frumlegur myndlistarmaður,
sem notar náttúru og mannvirki að jöfnu
sem yrkisefni. Sá mikli ótti, sem arkitektar
virðast hafa hver af öðrum, háir bersýnilega
ekki þessum frumlega hugsuði, sem hefur
raunar þá sérstöðu að teikna ekki hús sem
eiga að rísa einhversstaðar.
Peter Cook hefur gegnt mikilvægu hlut-
verki í byggingarlistarsögunni í nær 30 ár.
Hann hefur haldið fjölda sýninga og fyrir-
lestra, ferðast og kennt, unnið til verðlauna
í samkeppnum og setið í dómnefndum.
Hann var mótandi afl í The Institute of
Contemporary Arts í London og ein aðaldrif-
fjöður AA-skólans í þau 20 ár, sem hann
kenndi þar. Frá 1985 hefur hann gegnt
stöðu prófessors í byggingarlist við þýzku
Næstkomandi mánudag,
13. marz, kl 21.00,
heldur Peter Cook,
arkitekt og gagnrýnandi,
fyrirlestur í Norræna
Húsinu í boði
Arkitektafélags íslands,
sem er 50 ára á þessu
ári. Af þessu tilefni er
stutt kynning á þessum
merka hugmyndasmið.
Glerlistasafh í Langen í Þýzkalandi. Peter Cook í samvinnu við C. Hawlay, 1986.