Lesbók Morgunblaðsins - 03.06.1989, Side 14
íslensk náttúruskoðun
Gisting við jökulrætur
— í vinsælasta þjóðgarði íslands
Allt frá því að bíllinn vann sér
brautir yfir sanda og jökulár
Skeiðársanda hefur þjóðgarður-
inn á Skaftafelli dregið til sín
ferðamenn — sem fer alltaf fjölg-
andi. Enda er óvíða veðursælla
en í skjóli jöklanna og óvíða
skartar náttúran fegnrra. Að-
staða í þjónustumiðstöð og á
tjaldsvæði er líka til fyrirmynd-
ar. En á ísaköldu landi er oft
betra að eiga víst húsaskjól og
gistirými er eftirsótt við þjóð-
garðinn. Við skulum líta á hvað
er til reiðu og hvað er í upp-
byggingu.
Bærinn Bölti, uppi í brekkum
þjóðgarðsins, hefur um árabil verið
með svefnpokagistingu. A Hofi í
Öræfum — um 20 km frá Skafta-
felli — er gistiheimili, með 22 gisti-
rúmum — val um svefnpoka eða
uppbúin rúm. Ferðafólk getur mat-
reitt í eldhúsi eða keypt morgun-
verð og stakar máltíðir á bænum.
Gisting á Hofi hefur verið með ein-
dæmum vinsæl — oft uppbókuð.
Ferðablaðið spurðist frétta hjá
Sigrúnu Sæmundsdóttur, húsfreyju
á Hofi.
Gistiheimilið á Hofí
í Öræfíim
— Ertu að bæta við þig, Sfgrún?
„Já, við erum að taka 3 hús í
notkun, sem segja má að séu eins
og lítil sumarhús — hentug fyrir
vikudvalir. Hvert hús er tvískipt
og hver helmingur er með fjöl-
skylduherbergi og sérinngangi, en
snyrting er sameiginleg. Islending-
ar hafa mikið spurt um svona gist-
ingu og við komum nú til móts við
þær kröfur“.
— Dvelja gestir eitthvað á bæn-
um eða fara þeir beint í Skafta-
fell? „Frakkar og Þjóðverjar sækj-
ast eftir að vera hér um sauð-
burðinn — þeim fínnst til dæmis
alveg stórkostlegt að sjá rollu bera!
Útlendingar eru líka mjög hrifnir
af gesta-matseðlinum hjá mér, sem
hljóðar upp á kjöt og Iq'ötsúpu eða
saltkjöt og baunir — úr íslensku
lambalq'öti. En íslendingar fara
yfírleitt beint í Skaftafell."
— Er munur á íslenskum og
erlendum ferðamönnum?
Víða er fallegt í skjóli jöklanna.
„Ótrúlega mikill! Útlendingar
eru miklu betur búnir fyrir göngu-
ferðir; betur skóaðir og með regn-
fatnað, sem íslendingar eru oft
ekki með. íslendingar virðast alltaf
vera í kapphlaupi við tímann og
góða veðrið — njóta ferðalagsins
ekki eins mikið.“
— Hvað er löng leið að Hofi frá
Reykjavík?
„Þægilegur 5 tíma akstur með
hvíldum. Núna er Mýrdalssandur
allur malbikaður — aðeins Tung-
umar og smáspotti milli Svínafells
og Hofs ómalbikaður. Héðan að
Skaftafelli er 15 mínútna akstur".
Nýtt gistiheimili að
rísa á Freysnesi
Á bænum Freysnesi við Skafta-
fell er líka að rísa lítið gistiheimili,
með 8 tveggja manna herbergjum
með baði. Að auki eru 5 gistiher-
bergi, með sameiginlegri snyrtingu
í íbúðarhúsi. Þjónustumiðstöðin við
tjaldsvæðið verður rekin frá Freys-
nesi í sumar. Við hringdum í hús-
freyjuna, Önnu Maríu Ragnars-
dóttur.
Upp á hvemig þjónustu verður
boðið í sumar?
— „Við verðum með morgun-
verðarhlaðborð í þjónustumiðstöð-
inni. Erum búin að ráða til okkar
góðan kokk og stefnum líka að
betri þjónustu á kvöldin — jafnvel
að bjóða upp á skemmtiatriði. Við
munum reyna að gera þjónustumið-
stöðina hlýlegri og heimilislegri."
Helstu gönguleiðir
Gönguleiðir eru margar og vel
merktar. Nálgist göngubækling hjá
landvörðum, með korti yfír helstu
gönguleiðir, sem eru: 1) GILJA-
LEIÐ AÐ SVARTAFOSSI, 1-E4
klst. — leið sem flestir ganga —
og ef gengið er um hálftíma lengur
er komið 2) AÐ SJÓNARSKERI,"
en þaðan er gott útsýni eins og
nafnið ber með sér. 3) AÐ RÓTUM
SKAFTAFELLSJÖKULS, 1-Uá
klst. Þar sem göngustígur endar
mun varúðarskilti mæta göngufólki
í sumar — en óvenju mikið skrið
er á jöklinum og hættulegt að koma
nærri honum! 4) AÐ KRISTÍN-
ARTINDUM, 5-04 klst. - fallegur
og auðveldur gönguhringur. Frá
efsta sjónarhóli er fallegt útsýni
yfír Morsáijökul í vestri og Skafta-
fellsjökul í austri. Hraustmenni
ganga alla leið upp á Kristínartind!
5) AÐ UPPTÖKUM SKEIÐAR-
ÁR, 7-8 klst. Þessi leið krefst auka-
pars af strigaskóm og sokkum, því
Samgöngur til Wash-
ington fí’á New York
— og ferðaþjónusta í Washington
Sfy'ög góðar samgöngur eru á milli Washington og New York.
Hoppflug eða „Shuttle flight“ er á klukkutíma fresti frá La Guar-
dia-flugvelli í New York til Washington (kl. 6.30 f.h. til 21.30
e.h.). Lestarferðir eru á klukkutíma fresti frá Pen-brautarstöðinni
í miðborg New York.
Lestir og flugvélar
Lestin reynist oftast þægilegri
og miklu ódýrari kostur. Þú ferð
frá brautarstöð í miðri Manhattan
— ódýrir leigubflar — engin bið
eftir farangri og ferðin tekur að-
eins 2 tíma og 49 mínútur. Verð:
3.590 kr. Lestin heldur þó ekki
alltaf áætlun og tímabundnir
ferðamenn Iq'ósa kannski heldur
flugið, sem er tæplega einn tími.
Betra að vera á flugvallarhóteli
við La Guardia — leigubfl frá
Manhattan getur seinkað í um-
ferðinni. Þægilegar feijuferðir eru
frá Manhattan (frá 34. stræti —
austurbakka, upplýsingar í síma
1-800-54) til LaGuardia, sem
tengjast hoppfluginu til Washing-
ton -fargjald aðra leið kr. 1.120.
Venjulegt flugfargjald er 10.584
kr. -hægt að komast niður í rúm-
ar 5.000 kr. ef pantað er með
viku fyrirvara. Leigubíll frá Man-
hattan til La Guardia kostar um
1.700 kr.
Mjög góð þjónusta er í „Amt-
rak“-lestunum — breið og rúmgóð
sæti, sem hægt er að halla aftur
(snúa öll í rétta átt) — veitingar,
jafnvel sími og „telex“. Vissara
að panta sæti með fyrirvara. í
Washington er komið og farið frá
hinni sögulegu og nýlega end-
umýjuðu brautarstöð við Massac-
husetts Ave. í flugvélunum er líka
simi og hægt að hringja um allan
heim — en háð veðurskilyrðum!
Hvað kostar dvöl í
Washington?
Hótelkostnaður í Washíngton
er mjög mismunandi. Lítil gisti-
hús, „motel“, í úthverfunum eru
ódýrust. Tveggja manna herbergi
þar kosta um 2.800 kr. — í sömu
gistihúsakeðju í miðbænum um
4.500 kr. Á stærri hótelum í mið-
bænum er algengt verð fyrir
tveggja manna herbergi um
9-10.000 kr. en helgarverð (frá
föstudegi til mánudags) um
6-7.000 kr. Eitt skemmtilegasta
hótelið, en um leið eitt dýrasta,
er „ Mayflower" — eldra, virðu-
legt hótel, nýlega endumýjað.
Gisting í Washington er mikið
bókuð á vorin og fram eftir sumri.
Fæðiskostnaður er líka veru-
legur, en hægt að spara með því
að fá sér aðeins góðan morgun-
verð og eina máltíð á dag. Á
Washington-svæðinu er góð að-
staða til að borða úti á fallegum
stöðum — bæði í listigárðinum
„Rock Creek“ og meðfram
Potomac-ánni. í skoðunarferðum
er hagkvæmast að nota þjónustu
bíla sem fara á tveggja tíma fresti
frá 17 stöðum miðsvæðis og aka
á milli áhugaverðustu staðanna.
Hafíð samband við: „Old Town
Trolley, sími 269-3020.“ Besti
tíminn til að heimsækja Wash-
ington er á haustin (frá septem-
berbyijun fram í miðjan nóvem-
ber) — veðrið yfírleitt gott og
aðalferðamannastraumurinn bú-
inn.
Nánari upplýsingar hjá: „Wash-
ington Convention and Visitors
Association, 1575 I St., N.W.,
Washington, DC 20005,(202)
789-7000.“
Kort yfij* gönguleiðir í þjóðgarðinum.
á nokkrum stöðum þarf að vaða.
Hafíð samráð við landverði og fáið
lánaða stafí til að kanna botninn!
Það er líka hægt að aka frá sandin-
um inn á upptökunum — en gætið
ykkar! Leiðin er stórvarasöm —
þarf að aka yfír einn árfarveg, þar
sem botninn er svo stórgrýttur að
jafnvel jegpar sitja fastir á hásing-
unni. 6) í BÆJARSTAÐASKÓG;
514-6 14klst. og enn lengra 7) I
KJÓSARBOTN, 10-12 klst. - til
að skoða hina hrikalegu nátt-
úrufegurð í litfögru líparítinu. En
gætið ykkar — hafíð samráð við
landverði — göngubrúin yfír Morsá
er brotin! 8) AÐ MÓRSÁRJÖKLI,
6-7 klst. í þessari göngu má fylgja
fjallshlíðinni inn á jökli — engin
vöð.
Nánast daglega eru skipulagðar
gönguferðir með landverði — aug-
lýstar daginn áður. Þeim má gróf-
lega skipta í jurta- , jarðfræði- og
söguferðir. Nýjung í þjónustu sum-
arsins eru „bamastundir" — farið
verður í leiki með ungum bömum
— reynt að vekja þau til umhugsun-
ar um náttúruna og tengsl þeirra
við hana. O.Sv.B.
Upplýsingar: Gisting í uppbúnu
rúmi kostar kr. 1.100, svefnpoka-
gisting kr. 750, morgunverður kr.
450-500, á manninn í tjaldi kr. 280
(ókeypis fyrir böm innan 14 ára
og 50% afsláttur fyrir ellilífeyris-
þega). Tjaldsvæðið er opið frá 1.
júní til 15. september. Gistiheimilin
eru opin allt árið.
Þjóðgarðsreglun 1. Skaðið ekki
gróður, né truflið dýralíf. 2. Fylgið
merktum göngustígum. 3. Rífíð
ekki upp gijót, né hlaðið vörður.
4. Einungis er heimilt að hafa tjöld
og svefnbíla innan skipulagðra
svæða. 5. Skiljið ekki eftir rusl, né
urðið það á víðavangi. 6. Kveikið
ekki elda. 7. Hellið ekki heitu vatni
á gróið land. 8. För um þjóðgarðinn
með gæludýr er háð sérstöku leyfí.
9. Næturró á tjaldsvæði frá kl.
23.00-7.00.
14
i