Lesbók Morgunblaðsins - 11.11.1989, Blaðsíða 3
'filf'
T-EglHW
@ [o] ® iS [u] ® ® s s s® 3 s ®
Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvstj.:
Haraldur Svainsson. Ritstjórar: Matthías
Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aðstoð-
arritstjóri: Björn Bjarnason. Ritstjórnarfulltr.:
Gísli Sigurðsson. Auglýsingar: Baldvin Jóns-
son. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Sími 691100.
Forsíðan
Á efri myndinni er Brandenburgarhliðið í Berlín og á
þeirri neðri er múrinn illræmdi, sern búið er að gera
skrautlegan með ótal áletrunum. Á myndinni.er Ingi
Bogi Bogason, sem að undanförnu hefur búið og stund-
að kennslu í Vestur Þýzkalandi. Hann segir frá för
til Berlínar í grein í blaðinu.
Heilun
merkir að gera eitthvað heilt, iækna og merkir þá
tegund lækningar, sem sótt er tii æðri vera gegnum
mann, sem kemur sambandinu á. Þessar verur eða
lækningaenglar, sjá hvað að er og veita til sjúklings-
ins geislum, sem eru hluti af alheimsorkunni. Huld
Jónsdóttir segir nánar frá heilun í grein.
Trentino
Héraðið við Gardavatn á Ítalíu er afbúrðafagurt og
ferðamannþjónusta þar veitir 30 þúsund manns at-
vinnu. í sumar var efnt til kynnisferða fyrir blaða-
menn og Hulda Valtýsdóttir segir frá þessu. héraði,
þar sem umhverfisvernd og útilíf er éfst á blaði.
fíf’ til*
GRÉTA SIGFÚSDÓTTIR
Spurningin
stóra
Vér vitum svo margt sem
vísindin hafa kannað
og að sumu leyti sannað
En á lífi og dauða fást
ei skýringar neinar
nema tilgátur einar
Ef guð er efni sem andi
og alheimsins stjörnufans
eindir í líkama hans
Athvarf frómra sálna sem
fylgdu rödd síns hjarta
og búa í Ijósinu bjarta
Vér rennum vort æviskeið
á einangraðri jörð
sem eins konar afætuhjörð
Erum vér aðeins trúðar
sem fæðumst til að deyja
og fánýta baráttu heyja
Samruni efnis og anda
. er þó vort hjartans mál
svo og ódauðleg sál
Hvort erum vér hér til
að þroskast og læra
og hlusta á röddina mæra
Sem beinir hug vorum
— mannanna barna —
til hinna björtu stjarna
Eða er röddin blekking
byggð á óvissu og ótta
— undan dauðanum flótta
Og í angist vér spyijum:
Hvað býr í þokunni svörtu
meðal stjarnanna björtu
Eru það fordæmdar sálir
er sviku sitt hjarta
sem búa í myrkrinu svarta
i
Margt getur
plagað sundiðkendur
að er allnokkur hópur
fólks í landinu sem á hvetj-
um morgni rífur sig á
fætur fyrir allar aldir og
fer í sund. í haust ákvað
ég að bætast í þennan
hóp, koma mér í þjálfun
og taka aftur upp reglu-
bundið sund eftir nokkurra ára hlé. Ein vin-
kona mín og nágrannakona ákvað að slást í
för með mér og bauðst til að sjá um sætaferð-
ir í laugina sem ég þáði alshugar fegin. Minn-
ug hins gamla máltækis að betra er að fara
stillt af stað þá synti ég aðeins tvö hundruð
metra fyrsta daginn, næsta dag synti ég tvö
hundruð og fimmtíu metra og þannig koll af
kolli þar til ég var komin upp í þúsund metra.
Þá fór vinkonu minni ekki að verða um sel
og færði varfærnislega í tal við mig að hún
þyrfti að mæta til vinnu og vera vinnufær
svo hún treysti sér varla að lengja sund-
tímann mikið meira en þetta. Við syntum svo
þúsund metra í nokkra daga. Þá sáum við
að þrátt fyrir mikla og grandgæflega æfingu
þá vorum við aldrei skemur en hálftíma að
synda þessa vegalengd og ég oftast sýnu leng-
ur. Eftir töluverðar bollalengingar ákváðum
við að stytta sundtímann niður í 20 mínútur
sem gerir nálægt 700 til 800 metra og þar
við situr í dag. Það er ákaflega mikil andleg
og líkamleg upplyfting að synda en það er
stundum mjög erfitt að komast fram úr rúm-
inu. Lengi vel gekk þó allt vel og við vorum
mjög upprifnar vinkonurnar. En svo fór að
kólna og fyrstu dagana sem þurfti að skafa
af bílnum var vinkona mín andstutt og dauf
í dálkinn þegar hún rýndi út um hélaða bílrúð-
una á leið niður í sundlaug. En það var allt
annað hljóð í henni þegar við vorum á leið-
inni heim aftur. Þá var hún orðin ijóð og
hress í bragði og sagðist hvergi mundu hopa
fyrir snjó og vetri.
Af framangreindri frásögn mætti ætla að
lífið hefði verið okkur vinkonunum leikur einn
í þessum sundferðum okkar, að undantekinni
glímu við myrkur og veðurguði. En svo er
þó ekki. Það er margt smálegt sem getur
plagað sundiðkendur, sem ekki er augljóst
við fyrstu sýn. Ef við snúum okkur fyrst að
tæknilegum hlutum eins og hinum nauðsyn-
lega útbúnaði þá er t.d. oft mjög erfitt að
eiga við sundhettur. Ég keypti mér eina úti
í apóteki og skellti henni á höfuðið þrátt fyr-
ir að ýmsar velmeinandi manneskjur í kring-
um mig bentu mér á að það væri kerlinga-
legt og hallærislegt að synda með sundhettu.
Hárgreiðslumaðurinn minn sagði hins vegar
að hárið á mér yrði fljótlega ófagurt útlits
ef ég legði það reglulega í bleyti í klór og
orð hans vógu þyngst á metunum. í nokkra
daga var sundhettan til friðs en svo tók hún
uppá því að stækka og var komin vel niður
fyrir augu að nokkrum tíma liðnum. Þetta
fannst vinkonu minni, sem ekki notar sund-
hettu, hlægilegt. Hún sagði að bráðum kæm-
ist ég öll fyrir inn í sundhettunni. Þaulvön
sundkona heyrði á tal okkar og sagði við
mig að ég skyldi bara setja sundhettuna á
miðstöðvarofn þá myndi hún skreppa saman
aftur. Ég gerði þetta þegar ég kom heim og
næsta morgun var sundhettan aftur komin
ofan í viðráðanlega stærð. Nú liggur hún á
miðstöðvarofninum alltaf nema þegar hún er
á höfðinu á mér.
Þá víkur sögunni að sundgleraugunum.
Hér áður synti ég aldrei með gleraugu. En
þá var ég líka alltaf rauðeygð fram eftir degi
og stundum fékk ég slímhimnubólgu í augun.
Ég ákvað þess vegna að festa kaup á sund-
gleraugum. Fyrsta gleraugnamorguninn var
ég æði glaðhlakkaleg, ég gat synt og horft
út um alla laugina niðri í vatninu á meðan,
það var helst að gufan byrgði mér sýn þegar
ég stakk höfðinu upp úr. En þegar ég tók
svo gleraugun af mér að afloknu sundinu þá
kárnaði gamanið. Ég var mjög undarleg út-
lits. Öll í röndum og rauðum förum eftir gler-
augun og sundhettuna. Vinkona mín, sem
notar ekki sundgleraugu, sagði að ég væri
næstum einsog skrímsli. Ég lét ekki orð henn-
ar á mig fá heldur lengdi þegjandi í teygj-
unni á gleraugunum. Næsta morgun rann
vatnið nánast óhindrað inn í gleraugun og
ég var rauðeygð hálfan daginn. Næstu dagar
fóru í finna rétta stillingu á gleraugnateygj-
unni. Það tókst eftir rúma viku. Eg fæ að
vísu ennþá för en þau eru minni en fyrst og
enn minni ef ég syndi baksund en á því voru
þó ákveðin vandkvæði sem ég kem síðar að.
Sundbolurinn hefur ekki valdið mér neinum
vandræðum en hins vegar átti ég í basli með
teygjuna sem skáplykillinn hangir á og mað-
ur verður að bera með sét hvert sem maður
fer. Mér finnst að forsjónin hefði átt að útbúa
fólk með vasá, t.d. á maganum eins og keng-
úrurnar eru með. Það væri þægilegt tii þess
að geyma gleraugu, sundlykla og fleira sem
illt er að vera án. Jæja ég hef engan slíkan
vasa og mér fannst endilega að blóðrásin
myndi stöðvast hættulega mikið ef ég hefði
lykilinn svona lengi um ökklann. Mér fannst
ég stundum fá undarlega tilfínningu í fótinn
á meðan ég synti. En eftir nokkra íhugun
kom mér gott ráð í hug, ég brá teygjunni
utan um annan hlírann á sundbolnum og þar
með var það vandamál leyst.
Ég veit ekki hvort menn gera sér almennt
grein fyrir því að það er ákveðin stéttaskipt-
ing í sundlaugum, a.m.k. þegar byijendur
eiga í hlut. Fyrstu dagana kastaði enginn
kveðju á mig eða vinkonu mína. Við vorum
einsog ósýnilegar. Fastagestimir riksuðu
framhjá okkur með þóttafullu látbragði þess
sem er heimavanur, og þegar út í sundlaug-
ina kom máttum við vara okkur á að sömu
fastagestimir syntu ekki á okkur. Ég vék
lengi vel alltaf úr vegi og vinkona mín líka.
Verst af öllu var þó baksundsfólkið. Það legg-
ur jafnan af stað í fullkomnu kæmleysi um
alla aðra og hugsar bara um sig sína tilvist.
Eftir nokkra árekstra við baksundsfólk fór
ég að hugsa mitt ráð. Þannig var að ég kunni
nánast ekkert annað sund að gagni en bringu-
sund. Hins vegar fann ég fljótlega að ég
þreyttist talsvert í öxlum og handleggjum við
svo langt sund. Með tilliti til þessa og fasta-
gestanna ákvað ég að láta mér að kenningu
verða hið enska máltæki: If you can’t beat
them, join them (ef þú getur ekki sigrað þá
gakktu í lið með þeim). Ég ákvað að reyna
fyrir mér í baksundinu. Það gekk herfilega
fyrst, það fór mikið vatn inn í sundhettuna
mína og ég gleypti svo mikið vatn að mér
fannst ég aftur vera orðin tíu ára og stödd
í gömlu sundlaugunum, fékk svíðandi tilfinn-
ingu í lungun og fann næstum fyrir kútnum
á bakinu og korkinum í höndunum. En ég
gafst ekki upp og smám saman hef ég kom-
ist upp á lag með að synda baksund nokkrar
ferðir. Jafnframt er ég hætt að víkja úr vegi
nema tilneydd. Við vinkonumar höfum líka
hækkað í metorðastiganum í sundlaugunum.
Mjög margir óska okkur nú góðs dags og
sundlaugarverðimir brosa stundum til okkar.
Þetta yljar okkur um hjartaræturnar í frost-'
nepjunni.
Áður en ég lýk þessum sundlaugarskrifum
þá má ég til að segja frá einni opinberun sem
ég varð fýrir nýlega í sundlauginni. Ég var ,
að synda með höfuðið í kafi og sá þá við
bakkann í grunnu lauginni gamlan og sköll-
óttan mann sem kúrði sig í fósturstellingum
rétt við bakkann. Allt í einu skynjaði ég
sterkt að ég sjálf og allir hinir væmm fóstur
á sundi í gríðarstórum líknarbelg og einhvers
staðar væri stór, heit og mikil móðir sem sæi
um okkur öll. Eftir það á ég erfitt með að líta
á samferðafólk mitt í sundlauginni sömu aug-
um og áður. Æ ofan í æ sé ég okkur öll í
anda sem fóstur á ýmsum stigum á sundi í
hlýju legvatni tilverunnar og skiptir þá engu
hvort um er að ræða stóra og sterklega karl-
menn eða litlar og vesældarlega konur. Af
þessu má sjá að sundiðkan verkar örvandi á
hugmyndaflugið um leið og það styrkir hjarta
lungu og ýmsa vöðva. En engin er rós án
þyma, nú upp á síðkastið hef ég stöku sinnum
fengið undarlega óróleikatilfinningu í miðju
sundinu. Þegar ég talfærði þetta einu sinni
við vinkonu mína meðan ég var að þurrka
mér hafði hún pottþétta skýringu á fyrirbær-
inu. Hún hélt því hin rólegasta fram að ég
væri farin að finna fyrir því sem sumir segja
að öll fóstur finni ómeðvitað fýrir, kvíðanum
fyrir fæðingunni og hvað við taki eftir hana.
Þetta þótti mér svo afleit kenning að hún
flýtti sér að koma með nýja kenningu og
sagði að að kannski stafaði þessi óljósi óró-
leiki aðeins af streitu vegna þess að ég væri
alltaf áð flýta mér svo mikið að synda. Við
nánari umhugsun leist mér lítið betur á þessa
seinni kenningu. Það vita allir að streita er
slæm, auk þess sem hún er oft notuð sem
skálkaskjól. í hinu daglega sundi síðustu daga
hef ég talsvert reynt til að finna nýja og
meinlausari kenningu á fyrrnefndum óróleika,
sem raunar hefur ekki látið á sér kræla að
undanförnum vegna umræddra íhugana.
GUÐRÚN GUÐLAUGSDÓTTIR
\
LESBÓK MORGUNBtAÐSINS 11. NÓVEMBER 1989 3