Lesbók Morgunblaðsins - 11.11.1989, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 11.11.1989, Blaðsíða 9
hvers héraðs, líka hinna smæstu eininga. Þá er þess að geta að í tengslum við ferða- mannaþjónustuna hefur verið í gangi sérs- takt átak til eflingar atvinnulífs meðal ungs fólks, sem hefur fallið út úr skólakerfinu - eða er nýútskrifað úr skólum eða gengur atvinnulaust af einhveijum ástæðum. Þessu fólki eru sköpuð atvinnutækifæri við að leggja vegi og stíga, hreinsa ár og læki og treysta jarðveg til að koma í veg fyrir jarð- vegshrun í ijallshlíðum. Átakið er kallað “Stóra áætlunin“ og á þess vegum eru nú í vinnu um 850 manns. í Trentino eru tveir friðaðir þjóðgarðar samkvæmt náttúruverndarlögum. Þeir eru Adamello Brenta og Panaveggio Pale di San Martino. Lög um verndun flórunnar voru sett 1979. Nítján blómategundir eru alfriðað- ar og stranglega bannað að tína blómin eða taka plönturnar upp með rótum. Af öðrum tegundum má aðeins tína 5 stykki á dag (!) og í hæsta lagi er leyfilegt að tína 2 kg af skógarsveppum í sömu ferð. Bannað er að aka á skógarvegi utan þjóð- vegar í bíium í Trentino þrátt fyrir öflug mótmæli en reynslan hefur sýnt að slíkt er nauðsyn. Annars teppast þessir mjóu vegir á augabragði. Vélbátar eru ekki leyfðir á vötnum í hér- aðinu og ekki á þeim hluta Garda-vatns sem tilheyrir Trentino. Bannað er líka að lenda einkaflugvélum eða þyrlum á fjöllunum. Þyrlur eru hins vegar notaðar til að flytja sorp og úrgang frá fjallahótelum og Ijalla- kofum til að tryggja að umhverfi, ám og lækjum sé ekki spillt. Áður var slíkt grafið í jörð. Það er liðin tíð, segja menn. Og upp á hvað er svo boðið í samræmi við þessi nýju viðhorf til útilífs-iðkana sem hefur verið kallað á ensku „recreational activity"? Það sem fyrst ber að nefna er auðvitað loftslagið og veðráttan. Það sem boðið er upp á tií athafna er auðvitað breytilegt eft- ir árstíma - en raunar mætti nefna allar tegundir sem undir þessa skilgreiningu falla; allar tegundir skíðaíþrótta, fjallgöngur, klet- taklifur (þarna er frægur skóli fyrir byijend- Merktir göngustígar liggja umfiöllin. Þar er hægt að fá fylgd og leiðsögn sé þess óskað. ur í þeirri íþrótt) jöklaklifur, sund, hjóla- sp'ort, flugdrekaflug, fallhlífástökk, alls kyns bátasport, seglabrettasport (stundað 10 mánuði ársins á Gardavatni sem kallað hefur verið „Scala seglbrettaíþróttarinnar“) og skólar í tengslum við það í Riva del Garda og Torbole sem eru smáþorp við norðanvert vatnið. Kajakar og kanóar fara eftir ijallaám og lækjum (heimsmeistaramót í kanó-siglingum verður í Sole- dalnum árið 1993), hestasport, golf, tennis, skautaíþrótt- ir í skautahöllum og svo mætti áfram telja. Sums staðar og stundum þarf að notast við tilbúinn snjó í skíðabrekkunum. Það finnst heimamönnum ekki flókið mál - full- yrða bara að eingöngu sé notað í habn al- veg hreint vatn. Loks má geta þess að í Trentino-héraðinu eru víða vel búnir íjallakofar til leigu fyrir ferðamenn og fer eftirspurn eftir þeim vax- andi. í tengslum við slíka leigu er fyllsta öi-yggis gætt á vegum sérstakra aðila sem sinna öryggismálum. Þeir sem hafa það starf með höndum hafa fengið sérþjálfun í skólum sem eru þekktir og viðurkenndir á alþjóða vísu. Þá er þess og að geta að eftir- spurn ferðamanna eftir dvöl á bændabýlum fer einnig vaxandi því margir vilja kynnast sveitalífinu af eigin raun. Skipulögð tjald- ... ekkifyrir lofthræddal Ein af 350 skíðalyftum á svæðinu. svæði eru að sjálfsögðu víða með nútíma- legri þjónustu. Lyftunetið í skíðabrekkum er hvergi eins þéttriðið á Ítalíu og í Trentino og nákvæmt eftirlit haft með þeim í samræmi við lög. Meðalaldur þeirra er nú 10-15 ár,en talið er að endurnýjunar sé þörf eftir 20 ára notkun. Hér hefur verið drepið á helstu þætti sem Seglbretti eru afar vinsæl á Gardavatni vegna þess að þar blása hlýir vindar. Þar eru líka reknir skólar fyrir byrjend- ur í íþróttinni. boðið er upp á til útilífsiðkana í Trentino. Margt er sjálfsagt ótalið, en ekki má gleyma því sem helst yljar um hjartarætur þegar heim er komið eftir stutta kynnisferð - en það er viðmót heimamanna - fáguð fram- koma við ferðamenn svo þeir finna að þeir eru velkomnir gestir. Á leiðinni suður um Evrópu var flogið í björtu veðri yfir Alpafjöll - hrikaleg ofan frá séð með snævi þakta tinda, snjó í efri hlíðum; græna rinda neðar og þröng dal- verpi - greinilega fellingafjöll. Hvílíkur farartálmi á fyrri öldum, verður manni hugsað. Og þarna fór Hannibal forð- um daga með fílana sína og óvígan her til að leggja undir sig Ítalíu! Þannig koma Alpafjöllin fyrst inn í Evrópusöguna í skólum hér norður frá. Nú er öldin önnur. Þessi fjöll eru auðvit- að ennþá viðsjárverð - en íbúarnir hafa lært að umgangast þau og þeim hefur tek- ist að gera hlíðarnar að paradís ferðamanna sem vilja bara fara með friði. Svipmynd frá Gardavatni. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 11. NÓVEMBER 1989 9"

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.