Lesbók Morgunblaðsins - 11.11.1989, Page 6
Hvað er heilun ?
Ð fornu tíðkaðist sögnin að heila í norrænu
máli og merkti að gera einhvern heilan (eitt-
hvað heilt) eða með öðrum orðum að græða
eða lækna. Enska orðið „to heal“ eða „heal-
ing“ er samsvarandi íslenska orðinu heilun
og merkir einnig að græða. Það á sér langa
sögu og tengist gjarnan náttúru-, orku- eða
huglækningum. Starfsheitið heilari er viður-
kennt í Englandi og hafa heilarar þar myn-
dað með sér stéttasamband.
Til er mikill fjöldi
heilunarengla - það er ein
tegund tíva - er heilarinn
getur ákallað og unnið í
samstarfi við, en þeir
lúta stjórn einhvers •
hinna miklu heilara
jarðarinnar, svo sem
Krists.
Eftir HULD
JÓNSDÓTTUR
HvaðErHeilun
Heilun í sjálfu sér er allt sem gert er í
þeim tilgangi að bæta eitthvert ástand eða
gera heilt á ný. Hún getur t.d. verið allt frá
fáeinum huggunarorðum við barn sem hefur
meitt sig, til þess er menn nefna huglækn-
ingar eða jafnvel kraftaverk (sbr. lækningar
Jesú Krists).
Fjölbreytni heilunaraðferða er einnig mik-
il og næsta víst að engir tveir heilarar vinni
eins. Þó hugsa ég að flestir eigi það sam-
merkt að þeir tengja sig inn á hærri vitund-
arsvið og eru gjarnan verkfæri í höndum
vera á innri sviðum. í Norræna heilunarskól-
anum á Islandi er einkum kennd og æfð
andlega heilun og einnig lítillega segul-
magns- eða pranaheilun.
Andleg Heilun
í andlegri heilun hefur heilarinn meðvitað
samstarf við alheimsorkuna og hefur þann-
ig áhrif ekki aðeins á efnislíkama sjúklings-
ins heldur einnig á innri eða fínni líkami
hans (m.a. eter-, geð- og huglíkama). Heilar-
inn notar þá ekki orku frá sjálfum sér held-
ur stillir sig inn á orkustrauma alheimsins
og verður þannig farvegur alheimsorkunn-
ar, sem er allt í kringum okkur. Hann veit
að hann er farvegur, orkumiðlari, tengiliður
milli sjúklings og alheimsorkunnar. Þegar
heilarinn heilar aðra persónu fæst hann
einkum við orkuflæði áru hennar (hina fínni
líkami). Hann leitast við að leysa upp orku-
stíflur og hindra orkuuppsöfnun með því
að fá orkuna til að streyma fijálst um
líkama, huga og sál viðkomandi. Teljum við
það vera forsendu andlegs og líkamlegs
heilbrigðis sjúklingsins. Því flestir sjúk-
dómar, bæði líkamlegir og andlegir, eiga
upptök sín í hinum fínni líkömum mannsins
og koma fram sem skuggar í eterlíkama
hans löngu áður en líkamlegra sjúkdómsein-
kenna verður vart. Með góðri heilunarmeð-
ferð er því hægt að vinna fyrirbyggjandi
starf þ.e. vinna á því ójafnvægi í orku-
streymi persónunnar er síðar veldur líkam-
legum einkennum ef ekkert er að gert. Það
er framkvæmt með því að senda ákveðna
tegund orku eina eða fleiri inn í áru og
líkama viðkomandi. Aðeins nokkur prósent
nemanda ná þeirri þjálfun að heila líkam-
lega sjúkdóma enda krefst það mjög sterks
eterlíkama og mikillar þjálfunar í heilun.
Segulmagnsheilun
Þegar notuð or segulmagns- eða prana-
heilun beitir heilarinn eigin orkusviði þ.e.
færir hluta af eigin lífsorku yfir í orkusvið
sjúklingsins. Þetta getur haft góð áhrif og
flýtt fyrir bata en fjarlægir ekki orsök sjúk-
dómsins. Getur sjúkdómurinn því komið
aftur breyti sjúklingurinn ekki því í lífsvið-
horfi sínu eða daglegu lífi sem er hin raun-
verulega ástæða fyrir vanlíðan hans. Það
er eter- eða ljósvakalíkami sjúklingsins sem
verður fyrir áhrifum við þessa heilunarað-
ferð.
GóðurHeilari
Til þess að heiiari geti verið góður farveg-
ur þarf hann að styrkja sambandið við sinn
innri - mann og viðhafa aga í lífi sínu, þ.e.
leitast við að hreinsa líkama sína t.d. þann
jarðneska og ljósvaka- (eter)líkamann með
heilsusamlegu líferni, geðlíkamann með
hreinum tilfinningum og huglíkamann með
jákvæðum hugsunum. Segja má að góður
heilari hafi hreinsað þannig meðvitund sína
og skapað hjá sér það innra jafnvægi, að
hann' geti starfað sem tiltölulega hreinn
farvegur. Hafi umframorku og gott sam-
band við sinn innri mann eða sál.
Heilun Og Andleg Þróun
Heilun er einnig andleg þróun vegna þess ‘
að sannur heilari heilar af óeigingjörnum
hvötum, með þá ósk eina að leysa með-
bræðurna úr viðjum þjáninga og sársauka.
Þannig er heilun verkfærið sem gerir okkur
kleift að hjálpa meðbræðum okkar og systr-
um. Við lærum að geisla frá okkur kærleika
Guðs og setja okkur sjálf til hliðar þannig
að við getum hjálpað öðrum þ.e. að segja
án persónulegrar íhlutunar. Því hreinni og
fágaðri sem tilgangurinn er því meiri verður
andleg þróun heilarans og með því að fórna
hluta af sjálfum sér til þess að starfa sem
verkfæri Guðs nálgast maðurinn sál sína.
Þess vegna er heilun ein leið mannsins til
þess að nálgast sál sína, tengjast henni og
þróa meðvitað samband við hana.
Getum Við Lært Að Heila?
Við höfum oft verið spurð þessarar spurn-
ingar í Heilunarskólanum. Svarið er í sjálfu
sér ekki algilt en við getum sagt að allir
þeir sem vilja hjálpa öðrum geti heilað þ.e.
stillt sig inn á alheimsorkuna og verið far-
vegir/orkuleiðarar í samræmi við þroska
sinn. Nemendum Heilunarskólans er fyrst
og fremst kenndar heilunaraðferðir og æf-
ingar sem þjálfa þá í að leiða orku kærleik-
ans og vera farvegir alheimsljóssins í sínu
daglega lífi. Einnig að senda ljósið út yfir
jörðina í því skyni að hreinsa áru hennar
og það myrkur sem grúfir yfir jörðinni.
Þetta er einnig kallað vera starfsmaður
ljóssins.
Norræni Heilunarskólinn
Norræni heilunarskólinn hefur starfað á
íslandi síðan í janúar 1985 og útskrifað 9 .
námshópa. Námskeiðin standa yfir í 8-9
mánuði og er kennt eina helgi og tvö
fimmtudagskvöld í mánuði. Síðastiiðinn vet-
ur voru þijú námskeið með um 80 nemend-
ur í gangi, eitt í Reykjavík og tvö á Akur-
eyri. Heilunarskólinn er til húsa að Lauga-
vegi 163 í Reykajvík og sér íslenska heilun-
arfélagið um daglegan rekstur þess.
Norræni heilunarskólinn á sér enn fremur
hliðstæðu víða erlendis m.a. á Norðurlönd-
um, í Ástralíku og á Nýja-Sjálandi. Fræðsla
sú sem skólinn veitir í andlegum málum er
að mörgu leyti frá stofnendum Guðspeki-
hreyfingarinnar komin, en hugleiðslukerfin
og heilunaræfingarnar eru frá stofnenda
Norræna Heilunarskólans Anöndu Töru
Shan sem er dönsk, nú búsett í Ástralíu.
Myndin sem hér fylgir með, sýnir heilun-
arengil (tíva) við heilun. Slíkir englar heila
þannig að venjulega beina þeir fyrst hreins- *
andi orku inn í og í gegnum áru skjólstæðT
ingsins, með það fyrir augum að eyða
stíflum í ljósvaka- (eter) og geðlíkama hans
auk þess að eyða skaðlegum efnum í árunni.
Þeir stilla sig inn á tón (eða ,,orð“) einstakl-
ingsins sem venjulega er mishljóma í sálræn-
um veikindum, og reyna að koma aftur á
samræmi í flæði lífsorku hug-, geð- og et-
erlíkamans. Að lokum ákalla þeir guðlega
heilunarorku sem streymir frá uppsprettu
sinni gegnum áru tívanna og út til „sjúkl-
ingsins". Athöl'n þessi er mun áhrifaríkari
þegar maðurinn (heilari) ákallar meðvitað
og starfar í samvinnu við heilunarenglana.
(Geoffrey Hodson: The Kingdom of Gods.
Heilunarengill beinir læknandi orku að sjúku barni.