Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 03.03.1990, Qupperneq 13

Lesbók Morgunblaðsins - 03.03.1990, Qupperneq 13
LESBOK M O R G U N B L A Ð S I N S 3. MARZ 1990 FERÐ4BMÐ LESBÓKAR Þar sem áður var eyðimörk eru nú grænar flatir, kaktusar og tilbúin vötn. Myndin er frá McCormic Ranch. Tignarlegt teigstæði á Boulders- vellinum innan um risa-björg og kaktusa. nsoti'O 'mo>f áiovri ,5s<{ ra» £ ttavelst 1 ■ riimmn YETRARGOLF í ARIZONA AÐ fara í vetrargolf til Arizona þykir kannski nokkuð Qarlægur möguleiki, en svo þarf ekki að vera. Flugið þangað frá New York er um það bil þriðjungi lengra en suður til Florida, en í staðinn fæst umhverfi sem er álíka mikið sér á parti og Island. Hér er bent á vetrargolf af þeirri ástæðu, að nú er vetur og frost á Fróni, en einnig vegna þess, að varla er ráðlegt að fara þangað á sumrin sökum hitans. Arizona er mestan part fjöll og eyði- mörk, en í þeirri eyðimörk er stórmerkilegt landnám, sem helg- ast af því, að hægt er að breyta eyðimörkinni í aldingarð með vatnsveitum og það hefur verið gert. A því svæði sem heitir Valley of the Sun, búa nú 2 milljónir manna, einkum í borgunum Phoenix og Scottsdale, en þar að auki er borgin Tucson. Þangað eru nú 108 flug á degi hveijum frá New York. í Arizona skín sólin í 320 daga á ári og kaktusar og gijót setja mestan svip á eyðimörkina. Eðli- lega eru brautir á golfvöllunum þarna ekki flennivíðar, því jarð- vegur hefur verið fluttur að. Þótt ótrúlegt megi virðast, kemur vátn við sögu sumsstaðar, en utan brauta er ekki kræsilegt; einkum gijót, kaktusar og harðger eyði- merkurgróður, sem er eins og vír, ef reynt er að slá úr honum. Algerlega einstætt umhverfi á golfvelli. Á Boulders-vellinum er því líkast sem grænt gólfteppi hafi verið lagt innan um gulbrúna kletta. Teigar og flatir eru eins og grænar eyjar uppúr grjóti og eyðimerk- urgróðri. Hér er par-3 hola á Desert Mountain-velli við Scottsdale. Tucson er sá staður í Banda- ríkjunum, þar sem samfelld byggð hefur ver- ið hvað lengst. Það er menning- arborg; mikil myndlist, leik- hús, sinfóníu- hljómsveit og óperuhús. Fjórir helztu golfvellir borgarinnar eru í námunda hver við annann við rætur Santa Ca- talina-fjallanna. Þar er fyrstan að nefna VENT- ANA CANYON Golf and Rac- quet Club, með tveimur 18 holu völlum, sem Tom Fazio hefur teiknað og þar á meðal er dýrasta hola, sem hann hefur gert; par-3 á Mountain- vellinum, þar sem slegið er af klettastalli og yfir kaktusabreið- ur, en flötin vandhitt og komið fyrir niðri í gljúfri. Ventana-völl- urinn tekur að- eins takmarkað- an ijölda gesta - sem gerast fé- lagar í skamman tíma - en dvalar- staðurinn LO- EWS VENT- ANA CANYON RESORT er gal- lopinn og völlur- inn, Canyon Co- urse, er einnig teiknaður af Fazio. Ævin- týraleg þykir 13. holan þar, 145m. löng par-3, lengst niður á við, en flötin lítil og vel varin sandglompum. Þriðji mögu- leikinn í Tucson er „Dúfan", eða Rauðar rósir og gosbrunnar við THE WESTIN 18. flötina - og hótelið í bak- LA PALOMA, sýn. Myndin er frá Ventana fjögurra stjörnii Canyon golfvellinum. dvalarstaður, þekktur fyrir fegurð og kyrrð. Arkitekt vallanna er enginn annar en Jack Nicklaus og þar eru 27 holur um að velja. Þetta er eyði- merkurgolf í hástigi, segir í aug- LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 3. MARZ 1990 13

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.