Lesbók Morgunblaðsins - 16.03.1991, Síða 4
I
Arinstofan, stærsta vistarveran í Kehisteinhaus, gegnir nú hlutverki veitinga-
húss, enda kemur þangað mikill fjöldi ferðamanna á ári hverju.
Testofan, eða Evu Braun-salurinn, er einnig notuð fyrir veitingareksturinn. Það-
an er stórkostlegt útsýni til tignarlegra fjalla.
IÞýzkalandi eru tveir fjölsóttustu ferðamannastaðir
landsins hús, sem byggð voru yfir geðbilaða þjóð-
höfðingja. Annað þeirra, Neuschwanstein-kastalann,
lét Lúðvík konungur Bæjaralands byggja uppi
á fjallshrygg norðaní Alpafjöllunum, en hitt:
Göng, sem sprengd voru langt inn í
fjallið, unz komið er að lyftunni upp í
Kehlsteinhaus.
Kehlsteinhaus, var byggt yfir Adolf Hitler
og átti að heita svo að Nasistaflokkurinn
gæfi honum það á fimmtugsafmæli foringj-
ans vorið 1939. Það er tilviljun, að Kehl-
steinhaus var ekki eyðiiagt í loftárásum
brezka flughersins 1945. Það af húsinu,
sem ofanjarðar er, sést illa og sprengjurn-
ar hittu ekki. Sá gjörningur var samt dæmi
um þá skammsýni, sem alltaf fylgir
stríðsrekstri. Arnarhreiður Hitlers, þar sem
hann hafði ekki komið öll stríðsárin, hafði
ekkert hernaðarlegt gildi. Nú hefur húsið
hinsvegar það gildi, að Þjóðveijar hafa
góðar tekjur af þeim mikla fjölda ferða-
manna, sem fer þangað á ári hveiju. Það
eru umfram allt Bandaríkjamenn, segja
þeir í Berchtesgaden, dalnum sem varð
frægur fyrir þetta makalausa hús. Þeir sem
sízt koma þangað eru Þjóðveijar sjálfir.
Frá Salzburg í Austurríki er ekki nema
um hálfs annars tíma akstur til Berchtes-
gaden, þvi tota sem heyrir til Þýzkalandi,
teygist talsvert langt inn í Austurríki. Þar
er tignarlegt fjalllendi, Obersalzberg, og
ber Hoher Göll hæst, 2525 metra hátt.
Hvass fjallshryggur teygist niður úr Hoher
Göll og þar var Kehlsteinhaus byggt í lið-
lega 2 þúsund metra hæð.
Berchtersgaden var og er enn rólegt
þorp, þar sem vinaleg hús í Alpastíl kúra
í skjóli undir skógi vöxnum brekkum. Það
var kannski eðlilegt, að Austurríkismaður-
inn Hitler leitaði þangað eftir friðsælum
stað, fyrst í íburðarlausu bjálkahúsi, sem
síðar var breytt í stóran og íburðarmikinn
móttökustað: Berghof. Þar eyddi foringinn
löngum stundum með hirð sinni, svo sem
Albert Speer, arkitekt hans og síðar her-
væðingarráðherra, segir frá í endurminn-
ingabók sinni. Þarna áttu gæðingarnir
Bormann og Göring sumarhús; einkum
þótti hús Görings íburðarmikið. Það var
enn til marks um skammsýnina, að her-
menn bandamanna sprengdu þessi hús, eða
kveiktu í þeim, í stríðslokin. Berghof varð
líka eldinum að bráð; eftir að hafa laskast
í loftárás, kveiktur þýzkir hermenn í því
áður en þeir yfirgáfu það.
Það er hinsvegar Kehlsteinhaus, sjálft
arnarhreiðrið, sem eftir stendur og þangað
liggur ferðamannastraumurinn. Menn
leggja bílum sínum niðri í dalnum og kaupa
sér far með rútubílum, sem fara allar göt-
ur upp að lyftugöngunum, sem ná um 120
Kehlsteinhaus séð ofan frá. Húsið stendur í liðlega tvö þúsund metra hæð yfir
sjó. Veginum, sem sprengdur var inn í fjallshlíðina, er ekki haldið opnum að
vetrarlagi.
metra inn í fjallið - og þaðan er farið með
lyftu upp í Kehlsteinhaus. Þessum vegi -
svo og Kehlsteinhaus - er lokað í fyrstu
snjóum og venjulega er ekki opnað aftur
fyrr en um miðjan maí.
í endurminningum Alberts Speer kemur
fram, að þessi makalausa og fima dýra
framkvæmd hafi verið hugmynd Bor-
manns, sem vildi allt til vinna að vera í
náðinni hjá Hitler og leitaðist einnig við
að einangra hann í fámennri klíku. Það
er ekki rétt, sem stundum hefur heyrst,
að Albert Speer hafi teiknað húsið, sem í
raun er ekki annað en ein stór arinstofa
ásamt minni testofu, borðstofu, eldhúsi,
stofu varða og vélasal þar sem dísilvél úr
kafbáti var komið fyrir til vara, ef rafmagn
færi. Arkitektinn, sem Bormann fékk til
verksins hét Roderic Fick.
Albert Speer gerir grín að þessu hugar-
fóstri Bormanns í bók sinni, en ekki þarf
að efa, að Hitler var þessu samþykkur.
Hann þóttist ekki vita um kostnaðinn, sem
fór uppí sem svarar til 250 milljón mörk
á núvirði og sagði að þetta væri alfarið
mál Bormanns.
Verkið hófst haustið 1936 með gífurlega
erfiðri vegarlagningu. Inn í bergið þurfti
að sprengja krákustígaveg, rúmlega 6 km
langan með jarðgöngum á fimm stöðum.
Þessi vegur er mjór og nútíma rútubílar
fylla svo út í hann, að maður horfir út um
gluggann og beint framaf hengifluginu,
sífellt hærra og hærra. Það skal tekið fram,
að sá akstur er ekki fyrir lofthrædda. Þeg-
ar honum lýkur í nærri 2 þúsund metra
hæð er komið á bílastæði, þar sem rútu-
bílamir eru yfirgefnir og gengið lárétt inn
í ijallið eftir um 120 metra löngum
göngum. Við enda þeirra opnast lyftan upp
KEHLSTEINHAUS
ARNARHREIÐUR
HITLERS
4