Lesbók Morgunblaðsins - 16.03.1991, Page 12
verður fyrst fyrir augum Lexus frá lúxus-
bíladeild Toyota, mikill skartgripur meðal
slíkra bfla. Sagt verður frá reynsluakstri á
honum í Lesbók á næstunni. Toyota hafði
efnt til samkeppni meðal hönnuða og reist
sérstakt hús yfir veitingar, upplýsingar og
sölumennsku innan í sýningarhöllinni. Þar
að auki hefur Toyota fengið að reisa sérs-
takt sýningartjald utan við Palexpo, þar sem
sýnd eru furðu-farartæki. Sú sýning heitir
Toyota Idea Expo og verða henni gerð skil
síðar. Það óvenjulegasta við hana, var að
uppfinningamenn gátu látið gamminn geysa
án þess að hirða hið minnsta um gagnsemi.
Þótt nýmæli séu talin mörg á bílasýning-
unni í Genf, eru í raun verið að frumsýna
sárafáa bíla. Það sem beðið hefur verið eft-
ir með hvað mestri eftirvæntingu er frum-
sýningin á nýju S-iínunni frá Mercedes-
Benz, þ.e. stærstu gerðinni, sem búin er að
vera óbreytt í heilan áratug. Langt er síðan
bílablöðin fóru að birta teikningar af útliti
hans og uppá síðkastið hafa sést af honum
myndir, svo það kom heldur ekki beint á
óvart að sjá gripinn sjálfan. Hann er látleys-
ið uppmálað, en Benz-grillið er þó á sínum
stað og hönnuðimir hafa í engu glutrað
niður þessu sérstaka Benz-svipmóti. Hins-
vegar held ég að Benzinn hafi ekki vakið
hrifningu og að margir hafi búizt við mun
meiru. Sjálfum finnst mér eldri gerðin til-
komumeiri. Þ6 er þess að gæta, að Meree-
des-Benz hefur aldrei lagt áherzlu á neitt
það, sem telst grípandi við fyrstu sýn.
Reynslan hingaðtil er sú, að menn hafa lítt
hrifizt af nýjum gerðum, en þær hafa vanizt
þeim mun betur og það er fádæma ending
og styrkur, sem er aðall þessa bfls. Uppá
síðkastið hefur BMW haft yfirburðastöðu
með 12 strokka vélinni í 750-gerðinni, sem
fengið hefur orð fyrir að vera fullkomnasti
lúxusbíll í heiminum. Nú bíður Mercedes-
Benz ekki boðanna, en kemur strax með
12 strokka vél í 600-gerðinni. Svo mikill
troðningur var í kringum hann að það var
ómögulegt að ná af honum mynd og enginn
bíll á sýningunni fékk aðra eins athygii.
Hann var leðurklæddur að innan, en að
öðru leyti er ljóst að Mercedes-Benz heldur
áfram fast við þá stefnu, að innrétingin eigi
að vera sára einföld og án alls íburðar.
Annar þýzkur gæðavagn var og frum-
sýndur: 3-línan frá BMW. Sá bíll hefur ver-
ið rækilega kynntur í þessum bílaþætti eft-
ir reynsluakstur í Suður Frakklandi í des-
ember. Raunar var búið að kynna hann hér
með glæsilegri sýningu á Hótel íslandi á
vegum umboðsins áður en sýningin í Genf
fór fram. Sama má segja um Volvo 940 og
960. Það má því segja, að sumar nýjungar
berist hingað fljótt.
Alveg nýr af nálinni er líka Mitsubishi
Sigma, talsvert stærri bfll en Galant til
dæmis og íburðarmikill, ekki sízt að innan.
Að öllum líkindum verður hann kynntur
bflapressunni í í aprflmánuði og það fer þá
fram í Osió. Þessi bíll er 4.75m á lengd,
sama og BMW 520, svotil eins og Nissan
Maxima en 20 sm styttri en Honda Legend.
Það er m.a. gegn þessum bflum, sem kosta
líðlega 2.5 milljónir, að Sigma er beint.
Citroén frumnsýndi bíl í neðri milliflokki,
lengdin 4.07m, og er hann hvað verð og
stærð áhrærir á milli Citroén AX og BX.
Það var afbrigði af þessum bfl, raunar
breytt í öllum atriðum, sem vann París-Dak-
ar rallið í ár og sá bfll var einnig hafður
til sýnis. Hér hefur eitthvað farið úrskeiðis
með Citroén-svipmótið. í þessari ZX-gerð
má segja að hafí átt sér stað stæling á Fiat
Typo. Munurinn er þó sá, að rúðan á aftur-
hleranum hallast meira.
Af öðru sem þessi Lesbókarskrifari hefur
ekki séð áður, en vakti athygli, má nefna
nýjar og glæsilegar útfærslur á Honda Leg-
end, flaggskipi verksmiðjanna, svo og sport-
útfærslunni, Legend coupé. Þeim var hins-
vegar svolítið klaufalega komið fyrir á sýn-
ingunni og nutu sín ekki til fulls. Innrétting-
in sýndist fljótt á litið vera í svipuðum
gæðaflokki og í Lexus, sem að þessu leyti
hlýtur að verða tekinn til viðmiðunar.
Fjölnotabflarnir voru líka á sínum stað.
Chrysler í Ameríku var með Voyager, sem
nýtur geysilegra vinsælda þar, Evrópa
skartaði nokkrum útfærslum af Renault
Espace og frá Japan var Toyota með Prev-
iuna sína. Allt eru þetta bflar, sem kosta
mundu vel yfír 2 milljónir hér og lenda
undir í samkeppninni við jeppaná.
Meðal þess sem við sjáum aldrei á ís-
landi, en þama var til sýnis, eru sérstakar
gerðir af vönduðum bflum, aðallega þýzkum,
sem sérstakar, litlar bflasmiðjur taka í gegn,
beyta ögn í útliti svo þeir verði vígalegri
og auka við vélaraflið. Þekktust af þeim eru
Irmscher og Koenig Specials, sem þama
höfðu gert tryllitæki úr hinum nýja Opel
Calibra og búið til ennþá magnaðri Porsche
en hægt er að kaupa frá verksmiðjunni.
Gísli Sigurðsson.
Fjölnotabílar eins og þessir, Toyota Previa til hægri og Renault Espace, njóta nú geysilegra vinsælda víða erlendis, en
hér lenda þeir undir í samkeppninni við jeppana, sem eru á svipuðu verði.
Volvo sýndi nýju glæsivagnana sína, 940 og 960. Þeir hafa
nýlega verið kynntir í þessum bílaþætti eftir reynsluakstur
í Svíþjóð.
Honda Legend og Legend Coupé vöktu verulega athygli
fyrir glæsilega útfærslu og sýna að Japanir eru sífellt að
færa sig uppá skaftið í dýrari gerðum, sem þeir hafa lítið
sinnt til skamms tíma.
Meðal nýmæla á
sýningunni var þessi nýi
jeppi, Opel Frontera,
hér ístyttri útfærslunni.
Citroen frumsýndi gerð-
ina ZX, sem er hvað
stærð og verð snertir á
milli AX og BX. Að aft-
anverðu hefur sitthvað
verið fengið að láni frá
Fiat Typo.
Frönsku flaggskipin voru í Ijósu litunum. Að ofan: Peugeot 605 með 6 strokka, 24 ventla vél og Citroen XM; báðir leður-
klæddir að innan og með sameiginlegum höfundareinkennum Pininfarina.
'12
: .
5 jif 11 | » ? f f £ f J ]