Lesbók Morgunblaðsins - 16.03.1991, Page 14
ALDARAFMÆLI
OG HÁTÍÐAHÖLD
í Evrópu á sumri komanda
Á hverju ári er kjörin ný menningarborg af Evrópuráðinu.
Og árlega fagnar eitthvert land eða borg aldarafmæli sínu
eða minnir á þekkta syni sína hvort sem þeir hafa ríkt sem
konungar eða ríkja enn í hugum allra sem ódauðlegir lista-
menn.
DUBLIN MENNINGAR-
BORG EVRÓPU 1991: Há-
punktur hátíðahaldanna er opn-
un írska nýlistasafnsins og Rit-
höfundasafnsins, og vígsla Toll-
hússins, sem er eitt stærsta og
merkasta minjasafn um sögu
Dublin.
SVISS 700 ÁRA: í Sviss
minnast menn 700 ára afmælis
svissnesku stjórnarskrárinnar
með tilheyrandi hátíðahöldum á
hinum fjóru tungumálasvæðum
landsins. Á þjóðhátíðardaginn,
1. ágúst, mun athyglin beinast
að svæði nálægt Luzern-vatni
þar sem kantónurnar Schwyz,
Uri og Unterwalden þvinguðu
fram drög að ríkjasambandinu
árið 1291.
MOZART-ÁR í AUSTUR-
RÍKI: í Austurríki er þess minnst
að 200 ár eru liðin frá dauða
Mozarts með röð af hátíðahöld-
um, tónleikum, óperu- og ballett-
sýningum, listsýningum og tón-
listarsamkeppnum. Sérstakar
uppákomur verða í fæðingarbæ
hans, Salzburg, og í Vínarborg
þar sem hann dó 5. desember
1791 aðeins 35 ára gamall. Mörg
önnur lönd minnast einnig hins
ódauðlega listamanns. í Nice,
höfuðborg Cote d’Azur í Frakkl-
andi, verður allt óperutímabilið
helgað Mozart.
ÖNNUR ALDARAFMÆLI:
Þýska borgin Hannover fagnar
750 ára afmæli. í Bretlandi er
mikið um dýrðir vegna 500 ára
afmælis Hinriks konungs VIII.
Og á írlandi eru hátíðahöld víðar
en í Dublin — hinum 300 ára
Limerick-samningi er fagnað,
sem batt enda á umsátur um
samnefnda borg.
Strandhögg í sænska skerjagarðinum.
OPNANIR OG
UPPÁKOMUR
Leopold Mozart með börnum sínum.
Frá hinu geysifagra bókasafni
í Trinity College í Dublin, þar
sem Keltabókin er dýrmætasti
sýningargripurinn.
i nokkrum Evrópulöndum
Margt laðar ferðamenn til Evrópu, en nýir staðir og viðburðir
bætast við árlega. Eftirfarandi yfirlit sýnir opnun nýrra staða
og ýmsar uppákomur á sumri komanda.
* SEX SPILAVITI I DAN-
MÖRKU: Já, frændur okkar Dan-
ir eru að opna 6 spilavíti í sumar
— og eru þar með fyrstir Norður-
landaþjóða til að leyfa opinbert
fjárhættuspil! í maí verður heimili
rithöfundarins Karenar Blixen
opnað fyrir almenning. Nýja safn-
ið nefnist Út úr Afríku og er í
Rungstedlund norður af Kaup-
mannahöfn.
* SAMEINUÐ BERLÍN OG
SÖGULEGAR A-ÞÝSKAR
BORGIR: í Dresden, Weimar,
Leipzig og Potsdam er verið að
stofnsetja upplýsingamiðstöðvar,
sem ferðamönnum er ráðlagt að
snúa sér til. Áður var aðeins ein
upplýsingamiðstöð fyrir allt A-
Þýskaland. Fólk er beðið að at-
huga, að sú gisting sem býðst,
nær ekki gæðamati Vestur-
landabúa. Sameinuð Berlín er svo
eftirsótt, að þær ferðaskrifstofur,
sem ekki hafa þegar bókaða gist-
ingu, komast ekki að. Pergamon-
safnið í Berlín er t.d. eitt af merk-
ustu listasöfnum í heimi. Og Inter-
city-hraðlestin verður tekin í notk-
un 2. júní, á leiðinni Hamborg-
Múnchen, með viðkomu í Frank-
furt og Stuttgart.
* BRETAR FAGNA 500 ÁRA
AFMÆLI HINRIKS KONUNGS
VIII. með yfírgripsmiklum sýn-
ingum frá 14. apríl í Hampton
Court höll og „National Maritime“
safninu í Greenwich frá 29. apríl.
Báðar sýningar eru opnar út sept-
ember. Keltar í Wales fagna upp-
runa sínum í sumar með tónlist-
ar- og bókmenntauppákomum,
listsýningum og íþróttaviðburð- '
um.
* PERLAN í REYKJAVÍK: Og
ekki má gleyma opnuninni hér í
höfuðborginni, sem búið er að
auglýsa fyrir erlenda ferðamenn.
Perlan verður opnuð í apríl!
* SKANSINN í STOKKHÓLMI
100 ÁRA: 25. maí hefjast níu
daga hátíðahöld í Stokkhólmi til
að minnast þess að 100 ár eru
liðin frá því að útisafnið Skansinn
var opnað. í Stokkhólmi verður
einnig „Vatnahátíð“ 9.-18. ágúst
með margskonar íþrótta- og
menningarviðburðum til að minna
á mikilvægi skerjagarðsins rétt
fyrir utan sænsku höfuðborgina.
* SKOÐUNARFERÐIR MEÐ
KAFBÁT í MÓNAKÓ hefjast í
sumar, en í Mónakó er hið fræga
„ Oceanographique" -safn.
* NÝR FINNSKUR GOLF-
VÖLLUR i Tomíó í Finnlandi
teygir sig inn yfir landamærin til
Svíþjóðar — og er því eini golfvöll-
ur heims sem nær inn í tvö þjóð-
lönd. Það má því slá kúluna yfir
til Finnlands eða Svíþjóðar! Völl-
urinn verður opnaður á árinu.
Hinn hagsýni ferðamaður;
Hvernig* má spara í ferðalaginu?
- nokkur heilræði í farteskið
Sparnaðarliðir
I sumarleyfinu á að eyða
peningum — finnst mörgum!
Fríið er ekki afslappandi, ef
stöðugt er verið að horfa í
hverja krónu, og maurapúkar
eru ekki skemmtilegir ferðafé-
lagar. Og á sérstökum augna-
blikum eru það litlu aukaút-
gjöldin sem gera sumarleyfið
svo skemmtilegt — að taka
leigubíl í stað strætisvagns —
að fara í notalega veitingahús-
ið, en ekki í þetta einfalda (sem
er aðeins ódýrara) — að kaupa
sér kampavínsflösku í staðinn
fyrir vín hússins — já, hvers
vegna ekki? Þegar litlu frávikin
eru talin saman, vega þau ekki
mikið í samanburði við heildar-
kostnað ferðarinnar. — En,
gættu þín! — Freistingar eru á
hverju götuhorni! — Það er
ætlast til að þú kaupir og eyðir!
* KAUPTU PAKKAFERÐ!
Pakkaferðir gefa ferðamanninum
kost á að kaupa mestallt fyrirfram
og borga e.t.v. með afborgunum
heima. Yfirleitt veita þær umtals-
verðan afslátt af gistingu, bíla-
leigu o.fl. Pakkaferðir teljast frá
skipulögðum hópferðum til ein-
staklingsferða, þar sem greitt er
fyrir flugmiða, hótel og bíla-
leigubíl samtímis. Gott dæmi um
pakkaferð er sigling með lysti-
skipi þar sem fæði, gisting og
afþreying er innifalið í verðinu.
* HALTU GISTIKOSTNAÐI
NIÐRI! Ef ferðast er á milli staða
t.d. í bílaleigubíl, er tilvalið að
gista á ódýrari stöðum. Bænda-
gistingar og gistiheimili með
morgunverði gefa oft betri innsýn
í þjóðlífið en 5 stjömu alþjóðleg
hótel. Og gististaðir eru yfirleitt
mun ódýrari rétt utan við stór-
borgir. 5g þú sparar þér þjórfé!
Því dýrari sem hótelin eru því
meira þjórfjár er ætlast til af þér.
* NOTAÐU LESTIR OG
STRÆTISVAGNA! Evrópsku
Á milli kastala og sveitasælu er „vel brúuð“ leið, ef ferðalagið er
vel skipulagt fyrirfram.