Lesbók Morgunblaðsins - 22.04.1995, Page 7
'ggingar Klængs biskups, sem komu út til íslands á tveimur skipum haustið 1152,
eturinn. Sami háttur var á hafður við byggingu Ogmundarkirkju á öndverðri 16.
', Hreppum og Skeiðum sáu um flutningana og segir í heimildum að naut hafi ver-
ið notuð til að draga stórtrén.
Mynd: Búi Kristjánsson.
ósagt látið, en hitt á eftir að
koma í ljós, að þetta bamsmál
mun seinna tengjast Gissuri
Hallssyni með sérstökum hætti.
Barnsmóðirin
HIÐMIKLA viðmið, rómanska basilíkan. Séðinn
eftir miðskipi dómkirkjunnar í Pisa í átt að
kór. Hingað hafa pílagrímar á leið frá Islandi
til Rómar komið um daga Klængs og nærri má
geta hvort sú reynsla hafi ekki orðið frásagnar-
efni heima á íslandi. Kirkjan í Pisa var vígð
1118, sama ár og Gissur ísleifsson andaðist, en
bygging skírnarkapellunar hófst sama ár og
Klængur hóf byggingaframkvæmdir í Skálholti.
siglingarinnar með kirkjuviðinn í ljósi þess
að kirkja Guðs var í frumkristni tákngerð
í mynd skips, skipsins í ölduróti mannlífs-
ins, skips sem hér var hlaðið smíðaviði í
kirkju. Barnið, sem beið hans heima var
óneitanlega þáttur í ölduróti lífsins og hlaut
að verða umtalsvert vandamál fyrir hinn
nývígða biskup að kljást við í upphafi bisk-
upsdóms hans heima á íslandi. Þeir Klæng-
ur og Gissur hafa vafalítið siglt út samskipa
því Hungurvökuhöfundur segir að þá hafi
menn átt „að fagna tveim senn inum mestu
manngersemum á íslandi". Hvort Klængur
hefur fært vanda sinn í tal við Gissur Halls-
son er þeir stigu ölduna út til íslands skal
Þegar Klængur kemur heim
á biskupsstólinn úr vígsluförinni
er Yngvildur Þorgilsdóttir,
barnsmóðir hans, 22 ára að aldri
en hann sjálfur 47 ára. Við skul-
um gera ráð fyrir að Yngvildur
hafí fljótlega komið á fund
Klængs í Skálholt með barnið
til að leita lausnar á hinum sam-
eiginlega vanda þeirra, uppeldi
barnsins. Til að byija með reyn-
ir hún að fá biskup til að kvæn-
ast sér eða taka sig fyrir frillu.
í ljósi tengsla sinna við erkibis-
kup og uppbyggingar valds síns
á Skálholtsstóli, tekur Klængur
ekki þá áhættu í upphafí bisk-
upsdóms síns. Með því yrði
myndugleika hans stefnt í tví-
sýnu auk þess sem gera má ráð
fyrir að það stríddi gegn því,
sem hann vissi sjálfur að var
rétt. En Yngvildur er ung og
þarf að byggja upp nýja tilveru
og því finnst henni að Klængur
geti ekki skorast undan ábyrgð
á barninu. Svo stórbrotin er
þessi unga kona að hún gæti
hæglega þrýst á biskupinn með
því að minna hann á að brotið,
sem þau frömdu sameiginlega
megi ekki komast í hámæli og
að vilji hennar til að halda því
leyndu byggist á því að hann
losi hana undan vandanum að
þurfa að gera grein fyrir faðerni
barnsins og kosta uppeldi þess.
Hér er auðvitað um skáldskap
að ræða, þar sem ekkert er um
þetta vitað en við sjáum síðar,
hvernig Yngvildur gengur fram af skáld-
skapnum, þegar hún reynir að koma síðara
barni sínu yfír á aðra konu í fæðingu og
strýkur af landi brott frá barninu sínu ný-
fæddu enda telur Björn Þórðarson í ritgerð
sinni um þessa móður Jóru biskupsdóttur
að hér kunni að vera komin fyrirmyndin að
Guðrúnu Ósvífursdóttur Laxdælu.
Bygging Dómkirkjunnar
í SkálholtiHefst
Fólkið í Skálholti og forsjármenn héraðs-
ins áttu fljótlega eftir að komast að því, að
til stólsins var kominn biskup, sem var
meiri vinnuþjarkur en menn höfðu áður
kynnst. Honum var leikur einn að vinna
eigi færri en þijú störf samtímis, eins og
fram hefur komið í lýsingu hans. Fjöldi
manns hefur unnið við það um veturinn að
draga stórviðinn, sem lestaður var úr skip-
unum á Eyrarbakka upp ísilagða Hvítá.
Þetta hefur verið mönnum mikið erfiðis-
verk. Þurfti að beita bæði nautum og hest-
um svo takast mætti að koma 50 stórviðar-
bolum, sem hver um sig vóg hátt í þijú
tonn heim á staðinn. Með verkum sínum
hyggst Klængur nú sýna Haukdælum og
öðrum héraðsforsjármönnum hvað í honum
býr enda hlýtur fólkið á biskupssetrinu að
hafa verið gáttað á þvílíkri atorku í upp-
hafí ferils hins nýja biskups. Varla hefur
hann, klerkurinn að norðan, haft einhveijar
hugmyndir um ástand hinnar sjötíu ára
gömlu Skálholtskirkju Gissurar ísleifssonar,
áður en hann fór í vígsluför sína, þótt ekki
sé það útilokað og því gætu menn hafa
spurt sjálfa sig: „Hvers vegna lá svona
mikið á að byggja nýja kirkju?“ En Klæng-
ur hafði sínar ástæður. Hungurvaka getur
þess, að menn hafí haft nokkrar efasemdir
um Klæng fyrst eftir að hann kom að stóln-
um. En síðan kynnast menn meiri höfðings-
lund en þeir höfðu áður þekkt. Krafturinn
við kirkjubygginguna, veislur og vinargjafír
treysta hann smám saman í sessi. En
Klængur getur ekki leynt Haukdælina, þ.e.
Gissur Hallsson því, að hann hafði eignast
barn meðan á vígsluförinni stóð. Hvort þeir
menn, sem hann kann að hafa trúað fyrir
þessu leyndarmáli hafí séð samhengi á milli
byggingu kirkjunnar og þessarar syndar
biskupsins skal ósagt látið en við skulum
líta svo á að í bænalífí Klængs birtist þessi
tengsl. Rétt er að vanmeta ekki það kristi-
lega uppeldi og hina andlegu ögun, sem
Klængur hefur hlotið á Hólum. Hann var
meinlátsamari í mörgu lagi en aðrir biskup-
ar, segir Hungurvaka og því má gera ráð
fyrir að hann sé það agaður maður og þrosk-
aður að hann myndi ekki hætta því til að
fremja annan eins glæp og frændsemisspell
hið meira, eftir að vera orðinn biskup, hann
sem tryggja verður stöðu sína með verkum
sínum, vegna þess að hann hefur ekki ættar-
veldi að styðjast við. Kirkjubyggingarfram-
kvæmdirnar verða honum því sálarathvarf
og yfírbót innávið en útávið tæki til að
treysta völd sín og áhrif.
Biskupsdóttirin
I þeim „skáldskap", sem hér er notaður
til að stoppa upp í staðreyndagötin er gert
ráð fyrir að rekja megi kynni Þorvaldar
sonar Gissurar Hallssonar og Jóru til þess,
að hún hafi verið tekin í fóstur af Gissuri
og biskupsdóttirin því alist upp á heimili
hans ásamt Þorvaldi. Þar með var unnið
gegn því að þetta barnsburðarmál yrði gert
tortryggilegt og haft í flimtingum í héraðinu
og biskupinn hefur getað umgengist dóttur
sína, vegna þess hve tengsl Gissurar við
Klæng og Skálholt voru sterk. Tilboð Gissur-
ar um að taka Jóru í fóstur til að fírra bisk-
upinn meiri háttar vandræðum, hefur ekki
síður geta haft mikla þýðingu fyrir Gissur
sjálfan, því að fjölskyldubinding var besta
leiðin, sem honum hefur getað hugkvæmst
til að halda ítökum sínum í Skálholti og ná
valdi á Klængi. Sjálfur var Gissur laus í
rásinni, átti 4 börn með þremur konum utan
hjónabands (lifði búfjárlíf að mati erkibisk-
ups), svo ekki hefur það farið fyrir bijóstið
á honum að taka Jóru í fóstur. Slíkt var í
raun virðingarvottur, líkt og þegar hinn stór-
höfðingi þessara tíma, Jón Loftsson, tók
Snorra Sturluson í fóstur og leysti með því
úr vandræðum manna jafnframt því sem
hann treysti eigin valdastöðu. Er við minn-
umst hugsanlegra samvista þeirra Klængs
og Yngvildar á Hólum getum við hugsað
okkur að barnsmálið og aðskilnaðurinn við
Yngvildi hafí ekki verið með öllu þjáningar-
laus fyrir Klæng bæði sem biskup og mann-
eskju. En þjáningin leiðir til Guðsríkis og
með þann kross á bakinu minnir biskupinn
sig á syndir sínar, staðfestuleysi sitt, manns-
ins sem átti að hafa allan þroska til að stand-
ast freistingar holdsins. Og nú þarf hann
að yfirstíga freistni ijandans, sem hagnýtir
sér sjálft yfirbótarverkið, í þágu lævíslegra
áforma sinna um að fá biskupinn til að
miklast af byggingarframkvæmdunum,
gangast upp í lofi samferðarmannanna og
falla fyrir sætleika valdsins, sem kirkju-
byggingin skapar honum á staðnum þar sem
hún hefur smám saman verið að rísa af
grunni Gissurarkirkju. Klængur hefur því
margvíslegar ástæður til að hirta líkama
sinn að næturþeli, sem sagan segir að hann
hafi oft gert með því að ganga um berfætt-
ur í snjóum og frostum. Svo ötullega gekk
hann fram í þessum meinlætum sínum að
þau átti eftir að koma niður á fótum hans
og heilsu síðar á ævinni.
Kirkjusmiðurinn
Árni höfuðkirkjusmiður hefur ekki farið
varhluta af þessu háttemi biskupsins.
Stundum, þegar menn voru búnir að leggja
niður vinnu, eftir strangan vinnudag en
Ámi gekk um i dimmri kirkjunni og velti
fyrir sér verkfræðilegum þrautum, sem
lausn þurfti að fínnast á fyrir næsta morg-
un, varð hann var við biskupinn í klæðum
fátæklings á yfírbótagöngu í nágrenninu
hirtandi sinn líkama. Höfuðkirkjusmiðurinn
er gagntekinn af verki sínu, sem að hans
dómi ber að vinna Guði einum til dýrðar.
Hann veit að byggingin á að vaxa en smið-
ir hennar að minnka. Hann miklast því ekki
af vinnu sinni en gerir sér því betur grein
fyrir, hvað ræður gjörðum biskupsins er
hann minnist, hvað dróttinn sagði í guð-
spjalli, að það væri sumt kyn fjanda, að
eigi mætti sigra nema með föstu og bæna-
haldi.
Klængur hefur ráðið góða smiði að bygg-
ingunni, sem auk Árna höfuðsmiðs, vom
ieir Björn hagi Þorvaldsson og Illugi Leifs-
son er tegldu viðina. Þessir menn hljóta að
hafa þekkt til byggingu stafkirkna í Nor-
egi, tækni, sem þeir þurfa að nýta við bygg-
ingu dómkirkju í líkingu við þær, sem um
þessar mundir var verið að byggja úr steini
um gjörvallan hinn kristna heim. í Skál-
holti var hins vegar verið að reisa rómanska
basilíku úr tré, þýða stein jrfir á tré, eins
og Hörður Ágústsson orðar það svo hnitti-
lega. Margar spurningar hljóta að vakna
um þessa ótrúlegu framkvæmd: Var unnið
að kirkjusmíðinni jafnt vetur og sumar?
Hvernig var háttað vinnutíma verkamanna
almennt á degi hveijum? Hversu margir
unnu við bygginguna að staðaldri? Hversu
oft var gefið matarhlé og hvernig var stað-
ið að því? Hver var þáttur kvenna? Hvar fór
helgihaldið fram meðan á byggingarfram-
kvæmdum stóð? Var um að ræða straum
aðkomufólks árið um kring til að fylgjast
með framkvæmdunum og mátti þá heyra
frásagnir og samanburð við byggingu
kirkna, sem menn höfðu séð í smíðum á
pílagrímsleiðinni suður til Rómar? Hvernig
var staðið að því að reisa stöplanna svoköll-
uðu, sem bera bygginguna uppi og voru um
. 75-80 cm í þvermál að mati Harðar Ágústs-
sonar og ætla má að hafa vegið um tvö og
hálft tonn hver? Voru dráttardýr nýtt I því
sambandi? Hvemig vom sperrar hífðar upp
og festar á stöplana? Voru reistir vinnupall-
ar úti og inni? Hver vom helstu verkfærin?
Hvernig var staðið að öllum stærðarmæling-
um og öðmm merkingum? Hvemig festing-
ar voru notaðar? Ef unnið var að vetrinum,
hvernig var háttað lýsingu, t.d. innan húss
í skammdegismyrkrinu? Bmnnu eldar á
gólfi, sem menn gátu ornað sér við? Þannig
mætti halda áfram að spyija endalausra
spurninga, sem varpa ljósi á hvílík stórfram-
kvæmd hér hefur verið á ferðinni.
Við getum reynt að sjá fyrir okkur Áma
höfuðsmið við verkstjóm, að gefa verkafólk-
inu fyrirmæli, berandi ábyrgð á mælingum,
að allt falli rétt saman, á tali við Klæng,
gleypandi i sig matinn, gangandi frá verki
til tíða. Gera má ráð fyrir að hann sé þaul-
kunnugur táknmáli kirkubygginganna, eins
og því er lýst í Hómelíubókinni. Að hann
hafí gert sér grein fyrir að „svo sem kirkja
er gjör úr mörgum steinum eða tijám svo
safnast lýður til trúu af mörgum þjóðum
og tungum. Að sumt það, er í kirkjunni er
merki himinríkis dýrð, en sumt jarðlega
kristni. Að sönghús merki helga menn á
himni, ... Syllustokkar kirkjunnar postula
og spámenn,... Dyr kirkju merkja trúu rétta,
... Fjórir hornstafir ijögur guðspjöll, ...
Ræfur þá menn er hugskotsaugu sín hefja
upp af jörðu til himins dýrðar, ... Langvið-
ir, þvertré, klukkur, altari, bijóstþil, setu-
pallar, allt sé þetta þmngið táknrænni merk-
ingu. Gissur Hallsson, sem er í góðu vin-
fengi við Klæng biskup og mikils virtur í
Skálholti, kemur stundum með Jóm litlu
trítlandi sér við hlið til að líta á byggingar-
framkvæmdirnar en senn líður að því að
kirkjan verði tilbúinn til vígslu. Jóm er enn
ekki ljóst að biskupinn í Skálholti er faðir
hennar og hún hefur ekki mikið af móður
sinni að segja. Nú þegar dómkirkjan fer að
verða tilbúin til vígslu em þeir atburðir að
gerast í lífi Yngvildar, sem undirstrika, að
hún hefur ekki verið með hugann hjá Klængi
um þessar mundir, þaðan af síður búið hjá
honum með dóttur sinni.
Frændsemisspell HIÐ
Meira í Annað Sinn
Anno Domini 1157 sjást þijú tungl á lofti
og sýndist krossmark á því er í miðju var.
Þegar líður á þetta örlagaríka ár í lífí Yng-
vildar kemst hún í kynni við hinn 16 ára
gamla Þorvarð Þorgeirsson, sem þá dvaldist
með Sturlu í Hvammi en hún þá tíu árum
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 22.APRIL1995 7