Lesbók Morgunblaðsins - 26.08.1995, Side 4

Lesbók Morgunblaðsins - 26.08.1995, Side 4
Sumar- dósentinn Á STOFNUNARDEGI Háskóla íslands 17. júní 1911, þegar öld var Iiðin frá fæðingu Jóns Sigurðssonar - þá fóru fram mikil hátíðahöld í Reykjavík. Myndin er af skrúðgöngunni í Kirkjustræti og „hafði aldrei sést annar eins manngrúi á Islandi. “ en síðan kom ræða rektors sem var nokk- urs konar stefnuræða háskólans en þar sagði hann m.a.: „Góðir háskólar eru gróðrarstöðvar menntalífs hjá hverri þjóð sem er, sannkall- aðar uppeldisstofnanir þjóðarinnar í besta skilningi. Ut frá góðum háskólum ganga hollir andlegir straumar til hinna ungu menntamanna og frá þeim út í allar æðar þjóðarlíkamans. Þessir straumar hafa vekj- andi áhrif á þjóðernistilfinninguna, en halda henni þó í réttum skorðum, svo hún verði ekki að þjóðdrambi eða þjóðernisrembingi. Sannmenntaður maður elskar þjóðerni sitt og tungu, en hann miklast ekki af þjóðerni sínu, fyririítur ekki aðrar þjóðir né þykist upp yfir þær hafinn. Slíkt er heimskra að- all... Það vantar. .. mikið á, að Háskóli íslands fullnægi þeim kröfum, sem menn eru vanir að gera til háskóla nú á dög- um,.. . Háskóli vor á að stefna að því að laga smátt og smátt það sem áfátt er, svo að hann fullnægi kröfum tímans ... Fram- tíð háskólans er undir því komin, að honum takist æ betur og betur að ávinna sér traust og hylli þjóðarinnar. . .“ Meðan athöfnin fór fram í Alþingishúsinu safnaðist almenningur saman á Austurvelli. Talið er að um sjö þúsund manns hafi verið á Austurvelli og hafði þvílíkur og annar eins mannfjöldi aldrei verið saman kominn á einn stað á íslandi fyrr. íbúar Reykjavík- ur og Seltjarnarneshrepps voru þá um tólf þúsund. Klukkan var farin að nálgast tvö þegar skrúðganga mjakaðist af stað eftir Kirkjustræti og Suðurgötu að kirkjugarðin- um. Fyrir göngunni fór lúðraflokkur en síð- an var hún þannig skipuð að fremst fór landstjórnin, þó vantaði bæði ráðherrann og landritarann, konsúlar erlendra ríkja, alþingismenn, bæjarstjórn Reykjavíkur, þeir sem ætluðu að leggja blómsveig á leiði Jóns Sigurðssonar komu næstir og á eftir þeim tæplega eitt þúsund börn með íslenskan fána, þ.e. bláhvíta fánann. Félagar í Stúd- entafélaginu gengu saman undir íslenskum fána á eftir börnunum en á eftir þeim komu félög iðnaðarmanna og verkamanna og lest- ina ráku þeir sem ekki voru í neinu félagi. Þegar menn höfðu komið af sér krönsunum í kirkjugarðinum hélt hersingin til baka eft- ir Tjarnargötu og Vonarstræti á Austur- völl. Af svölum Alþingishússins hélt Jón J. Aðils sagnfræðingur ræðu um Jón Sigurðs- son en hann var talinn með „rómsnjöllustu mælskumönnum landsins“ og fullyrt var að HÁSKÓLI íslands var formlega stofnaður á hundrað ára afmæli Jóns Sigurðssonar 17. júní 1911. Mikil hátíðahöld fóru fram í Reykjavík þann dag og víðar, t.d. á fæðingar- stað Jóns á Hrafnseyri þar sem afhjúpaður . m má a . p *• Wwk f ■ ^ ;,“Y' ■' . jj ÍÞRÓTTAMÓT sett á Melavellinum 17.júní, 1911. Það getur talizt tímans tákn, að allir þátttakendur standa í hvíldarstöðu glímumanna. Um kvöldið var reynt að dansa á Melavellinum, en þeirri samkomu varð að slíta vegna slagsmála. í september kom skellurinn þegar Jón Aðils var skipaður í stöðu Hannesar. „Varð ég allmjög hvumsa við þessa veitingu“ sagði hann, enda átti hann von á því að verða skipaður sjálfur og hafði raunar undirbúið sig launalaust í tvö ár til að geta kennt í hinum nýstofnaða Háskóla íslands. Eftir JÓN ÓLAF ÍSBERG var bautasteinn Jóns. í bautasteininn er greiptur eirskjöidur með mynd af Jóni og sverð, sem Einar Jónsson gerði, og er þar vísað til þess að Jón hafi verið „óskabarn Islands, sómi þess, sverð og skjöldur" en þau orð munu upphaflega komin frá Bene- dikt Gröndal. ' Hátíðahöldin í Reykjavík hófust snemma morguns í menntaskólanum með því að af- hjúpað var málverk Þórarins B. Þorlákssonar af Jóni Sigurðssyni sem nemendur höfðu gefið skólanum. Þorleifur H. Bjarnason kenn- ari og kennslubókahöfundur flutti ræðu og sungið var ljóð eftir Steingrím Thorsteinsson skáld og rektor skólans. Allt er í heiminum hverfult og það má hafa Steingrím Thor- steinsson til merkis um það en árið 1850 var hann rekinn úr skólanum fyrir þátttöku sína í pereatinu, þ.e. þegar skólapiltar hróp- uðu niður rektorinn Sveinbjöm Egilsson, en lauk prófi utanskóla árið eftir. Þegar athöfninni í menntaskólanum lauk hófst messa hjá séra Bjama í dómkirkjunni en í predikuninni lagði hann út Jóh. 8, 31-32. „Jesús sagði því við þá Gyðinga, sem tekið höfðu trú á hann: Ef þér herrar mínir stand- ið stöðugir í orði mínu, þá eruð þér sannar- lega lærisveinar mínir, og munið þekkja sannleikann, og sannleikurinn mun gjöra yður frjálsa.“ Þótti predikun séra Bjarna sérlega snjöll og hvetjandi. Eftir messu var opnuð iðnsýning í leikfimisal barnaskólans og þar vom að sjálfsögðu sungin ættjarðar- ljóð og haldnar langar ræður um landsins gagn og nauðsynjar. A hádegi hófst sú athöfn sem flestir höfðu beðið eftir; stofnun Háskóla Islands. Athöfn- in fór fram í sal neðri deildar Alþingis en þangað hafði verið boðið helsta fyrirfólki bæjarins en almenningur, þ.e. þeir fáu sem komust inn, fékk sæti í hliðarherbergjum. Salurinn hafði verið skreyttur í tilefni dags- ins og lýsir Ísafold salnum þannig; „Bakvið forsetastólinn var glugginn byrgður með stóru dannebrogsflaggi, en innan í því minna fálkaflagg. Beint á móti stóð á háum stalli klæddum bláum dúk mynd Berlingsens af Jóni Sigurðssyni í marmara. En bláhvíti fáninn var útlagi við þessa athöfn. Mundi þó margur hafa kosið að hann að vera þar í öndvegi. Hitt miður viðkunnanlegt að láta bijóstmynd forsetans horfa beint við fálkanum innlimuðum í dannebrog. Ekki mun háskólaráðið í heild sinni hafa ábyrgð á þessari skreytingu.“ Eigandi ísafoldar var Björn Jónsson sem verið hafði ráðherra íslands frá því að Hann- es Hafstein var borinn vantrausti árið 1909 en Björn fór sömu leið og Hannes á þinginu um vorið. Nýi ráðherrann, Kristján Jónsson, lét hins vegar ekki sjá sig þennann dag, hafði siglt á konungsfund nokkrum dögum fyrr. Athöfnin hófst á því að sungið var hluti af kvæðaflokki eftir Þorstein Gíslason ritstjóra Lögréttu. Þessu næst tók Klemens Jónsson landritari til máls en hann var stað- gengill ráðherra og las upp skeyti frá kóng- inum. Undir forystu háskólarektors Björns M. Olsen var þá hrópað nífalt húrra fyrir Friðriki VIII. Danakonungi eftir að hann hafði beðið kónginn vel að lifa. Segja má að þetta hafi verið fyrsta opinbera verk háskólarektors. Klemens flutti stutta ræða allir hefðu heyrt hvert einasta orð sem hann sagði. Jón sagði m.a. í ræðu sinni: „Þegar eitthvað óvenjulegt stendur .til, einhver mannfagnaður eða hátíðahöld úti við, mun flestum hugleikið að veðrið sé sem best. Þess hafa auðvitað allir óskað í dag. En þó liggur mér við að segja að einu gildi hversu viðri,- svo fögur er m/imingdagsins. Land vort er á marga lund öfganna land og andstæðnanna. Það er kuldalegt og ömurlegt og eyðilegt umhorfs þegar ekki sér til sólar, þegar þoka og dimmviðri taka fyrir útsýn alla. En það getur aldrei orðið svo dimmt í lofti, svo napurt og kuldalegt, að ekki birti fyrir hug- skotssjónum vorum, að ekki ylji um hjartá- ræturnar, er vér rennum huganum til Jóns Sigurðssonar." Jóni Aðils var þökkuð ræðan með dynj- andi lófataki og síðan 'hóf lúðraflokkurinn að spila Ó, guðs vors lands, og var ætlast til að almenningur syngi með „en það brást nú sem ella“, segir í ísafold. Að lokum söng karlakór nokkur kvæði, m.a. eftir Hannes Hafstein og Þorstein Erlingsson, en síðan lauk samkomunni. Ýmsar aðrar uppákomur voru þennann dag og um kvöldið voru haldin þijú sam- 4

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.