Lesbók Morgunblaðsins - 30.03.1996, Page 2

Lesbók Morgunblaðsins - 30.03.1996, Page 2
: i ■ : -V ■ > ■ r **»'->"*' '* > * * v -V' ‘'C^C’y* •-- * T n*< ,t •>. ■ti /■ v\ - - MATTHIAS JOHANNESSEN Undir októberlaufi Þegar vindurínn blæs duft mitt úr opnum lófa og ég flýg eins og silfraður fugl af vísifingri hennar sem strauk hold mitt um stund snerti óbrunnið hold mitt um stund, þegar vindurinn blæs líf mitt úr lófa sínum og dagur og nótt vaxa saman í andrárlaust formleysi tímans sem táknmyndafræðingar kalla guð, þá minnumst við flöktandi ljóss sem leikur við óslokknuð augu og brosandi hlýju við hvíslandi varir áður en dauðinn yfirgefur bein sín eins og vængjaður fingur kveðji og haldi með hugsun minni undir loftstór fyrirheit opinna himna við hafið, Þú veizt allt um það eins og fuglar í vindneti tímans orð þín á afviknum stað og fljúga sem fiðrildi hefji ormgrænar hugsanir guðs af jarðbundnum blöðum, Þú veizt allt um það og orð þín drjúpa eins og vindur dreifi vorgrænu regni á visnandi blað eldurinn brennir hvíslið á titrandi vörum þegar nótt verður dagur og deyjandi dögun að myrkri og borgin þögul sem gröf undir októbeiiaufi í ágúst, þið sem deyið og við sem deyjandi lifum við sem flögrum í þéttriðnu neti tímans, vængjalaust duft og deyjandi orðin á vörum. En tíminn skilur eftir ómáð spor og ilm af gömlum júní sólarskipið fer sem vængjuð þögn um loftskurð milli greina og ilmur vorsins enn í fylgd með þér því enn er vor og veður stór sem áður ægðu mér nú dauðalogn í þínum hvítu seglum og þú ert enn sem andartak og hvítalogn við steina dagur í senn í mávsins vængjum fer að mildri þögn sem minnir á þig eina. Þessi tvö kvæði eru úr flokknum Um vindheim við- an i nýrri Ijóðabók Matthíasar Johannessen, t/ötn þin og vængur, sem kemur út um þessar mundir hjá Hörpuútgáfunni. 2

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.