Lesbók Morgunblaðsins - 30.03.1996, Síða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 30.03.1996, Síða 15
< I HRAFNHILDUR BLÖNDAL Lifandi kitlandi eru þau augun í hættulega fallega andlitinu langt í burtu þau eru svo nálæg giskandi á hvað þurfi athygli að fá ég vil hvíslandi varnarorð ég skeyti lítt um skynsemi spennandi ólgu sem er næs finn örvandi fiðringinn í maganum ég loka augunum njótandi samvista við fallega manninn eru hugarórar einir raunverulegir í huga mínum skapandi myndir samveru hans og mín þar til ég snerti himininn með fingurgómunum það ergaman að vera til MARGRÉT GUÐMUNDSDÓTTIR Gimsteinar Heimurinn minn varsvo undarlega samansettur af skelfingu, hryllingi fegurð og frelsi. í einni hendingu sviptist ég á milli veggja í barsmíðum var kramin milli stórra handa traustinu rúin. Á andartaki komin í fjöruna fögru þar sem aldan lék sér við fætur mína himinninn rann saman við hafið. Fuglarnir tóku sál mína og flugu með hana upp í loftið. Þá sá ég allt í annarri vídd. Hversu fátækt var fólkið af hlýju og kærleik það barðist við óttann og ósýnileg tröll. Það gleymdi að við fætur þess lágu gimsteinar sem glitruðu. Barnið sem engu illu trúir barnið sem var traustinu rúið. Svo tíndi ég sóleyjar, baldursbrár og fleira — skreytti í kringum mig bjó til fallegan heim því ég trúði að senn mundi birta og sólin á gimsteinana glitra. HÚSIÐ Öldugata 18, teiknað af Þorleifi Eyjólfssyni árið 1927. Eitt hinna sérstæðu íbúðarhúsa hans er setja svip sinn á gamla vesturbæinn í Reykjavík. Ljósmynd: Magnús Ólafsson. Ljósmyndasafn Reykjavíkur. Jafnframt sneri Þorleifur sér í auknum mæli að verslunarstörfum og búrekstri. Hann festi kaup á erfðafestulandinu Hjallalandi við Kaplaskjólsveg árið 1936 og bjó þar til ævi- loka. Þorleifur hafði alla tíð teiknistofu á heimili sínu og sinnti þar ýmsum verkefnum samhliða öðrum störfum. Meðal þess voru sambýlishús með litlum íbúðum við Rauðarár- stíg 36-42 og Bogahlíð 11-17, sem bróðir hans, Helgi Eyjólfsson byggingarmeistari, reisti fyrir eigin reikning. Af merkum bygg- ingum eftir Þorleif sem ekki hefur áður ver- ið getið má nefna sumarhótelið Þrastarlund við Sogsbrú, sem brann árið 1942; verslun- ar- og íbúðarhús Guðsteins Eyjólfssonar við Laugaveg 34; byggingar Sláturfélags Suður- lands; öl- og gosdrykkjaverksmiðu Þórs hf. við Rauðarárstíg og Hjallakirkju í Ölfusi, sem skartar sérkennilegu, kúpullaga turnþaki. Að auki liggur eftir hann fjöldi uppdrátta af iðnaðar- og íbúðarhúsum, auk smærri við- bygginga og breytinga, alls um 600 teikning- ar. Allmörg frumrit húsateikninga sinna lét hann húseigendum í té vegna breytinga og er lítt vitað um afdrif þeirra. Þorleifur Eyjólfsson var einn ellefu stofn- félaga Byggingameistarafélags Islands, sem var fyrsta fagfélag íslenskra húsameistara og forveri.Arkitektafélags íslands. Svo vill til að stofnfund þess bar upp á 30. afmælisdag hans, þann 30. mars 1926, fyrir nákvæmlega 70 árum. Það sama ár kvæntist hann Guð- laugu Margréti Halldórsdóttur (1901-1978) og eignuðust þau sex böm, sem öll eru á lífi. Þorleifur lést þann 29. júní árið 1968. ‘Starfsheitið húsameistari er hér notað um þá sem stundað höfðu framhaldsnám í húsagerðarlist í tækni- legum fagskólum að loknu iðnnámi, en sú var raunin með flesta þá sem störfuðu við húsateikningar í Reykjavik fram yfir 1930. Eru þá undanskildir þeir Guðjón Samúelsson og Sigurður Guðmundsson, sem báðir höfðu stundað nám í byggingarlist á háskóla- stigi við Listaakademíuna í Kaupmannahöfn. Einar Sveinsson var fyrsti íslendingurinn er lauk háskóla- prófi í byggingarlist frá þýskum tækniháskóla árið 1932. Heimildir: Æviágrip Þorleifs Eyjólfssonar arkitekts, tekið saman af Herði Þorleifs- syni, handrit. Nemendaritgerð um Þorleif Eyjólfsson eftir Jónínu M. Sævarsdóttur, varðveitt í bókasafni MHÍ. Teikningasöfn Þorleifs Eyjólfssonar og Sigurðar Pjeturs- sonar. Húsaskrá Árbæjarsafns. Munnlegar frásagnir barna Þorleifs um föður sinn. Ýmsar blaðagreinar. Aðstoð við útvegun myndefnis og heimilda: afkomendur Þorleifs Eyjólfssonar, Arkitektafélag íslands, Ár- bæjarsafn, Byggingafulltrúinn í Reykjavík, Ljósmyndasafn Reykjavíkur, Oddfellowregl- an, Ungmennafélag íslands. Grein þessi er unnin á vegum Byggingar- listardeildar Listasafns Reykjavíkur á Kjar- valsstöðum og Rannsóknarsjóðs íslenskra arkitekta. Höfundar eru arkitektar í Reykjavík. ÚTLITSTEIKNING Þorleifs Eyjólfssonar af verslunar- og íbúðarhúsi Guð- steins Eyjólfssonar að Laugavegi 34, dagsett í febrúar 1929. Af stærri verk- um Þorleifs hefur þetta hús varðveist án nokkurra útlitsbreytinga. AUSTURSTRÆTI 10, Braunsverslun, teiknuð af Þorleifi Eyjólfssyni árið 1930. Tímamótaverk í íslenskri nútímahúsagerð. Ljósmynd: Magnús Ólafs- son. Ljósmyndasafn Reykjavíkur. < I I LESBÓK MORGUNBtAÐSINS 30.MARZ1996 15

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.