Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 03.08.1996, Qupperneq 15

Lesbók Morgunblaðsins - 03.08.1996, Qupperneq 15
JÓN Sigurðsson píanóleikari og Ásdís Arnardóttir sellóleikari. Sumarstemmning með Bach og Beethoven Á ÞRIÐJUDAGSTÓNLEIKUM í Listasafni Siguijóns Ólafssonar á þriðjudaginn koma fram Ásdís Arnardóttir sellóleikari og Jón Sigurðsson píanóleikari. Á efnisskrá eru eftirtalin verk: Gömbusónata nr. 2 í D-dúr BMV 1028 eftir Johann Sebastian Bach, Sónata nr. 3 í A-dúr opus 69 eftir Beethov- en, Myndir á þili eftir Jón Nordal, Haban- era eftir Maurice Ravel og Le Grand Tango eftir Astor Piazzolla. Ásdís sagði i samtali við Morgunblaðið að það yrði sumarstemmning á þessum tón- leikum. „Það verður létt yfir þeim enda eru verkin öll þessleg. Dansarnir hressa mjög upp á andrúmsloftið en Piazzolla hefur oft verið kallaður konungur tangósins." Ásdís Arnardóttir nam sellóleik hjá Ge- orge Neikrug í Boston í Bandaríkjunum, þjá Richard Talkowsky í Barcelona og Gunnari Kvaran í Reykjavík. Hún hefur haldið tónleika í Bandaríkjunum og á Spáni. Jón Sigurðsson stundaði nám hjá Helgu Laxness og Halldóri Haraldssyni, Eriku Haase í Hannover í Þýskalandi og Caio Pagano í Bandaríkjunum og hefur haldið tónleika í Bandaríkjunum og á Islandi. Á námsái-um sínum léku þau Ásdís og Jón saman í Tónlistarskólanum í Reykja- vík. „Þetta var fyrir svonatíu árum,“ segir Ásdís, „en síðan hittumst við ekkert fyrr en í vetur og ákváðum þá að spila eitthvað saman. Það var mjög gaman að spila með Jóni forðum ogjþað hefur gengið mjög vel að æfa í vetur. Eg vænti þess að þetta verði skemmtilegir tónleikar." Tónleikarnir hefjast kl. 20.30. Fjórar sýningar í Nýlistasafninu KATRÍN Sigurðardóttir, Lind Völundar- dóttir og Pietertje van Splunter opna sýn- ingar í aðalsölum Nýiistasafnsins í dag kl. 16.00. í setustofu verður opnuð kynning á verkum Ana Mendieta. • Katrín Sigurðardóttir sem sýnir í efri sölum safnsins er búsett í New Ýork. Verk hennar er innsetning og hefur fengið heitið Viðbúnaður3. „Nafnið skírskotar til þess tímabils sem verkin eru unnin á og lýsir því ferli sem þau fæddust innan. Þau eru því afkvæmi ákveðins viðbúnaðar. Gengið er út 'frá táknrænum og merkinarlegum gildum þeirra hluta og aðferða sem notuð eru. Verkin eru nokkurskonar andstæða við vegsömun á hátækninni og óður til lág- tækninnar," segir í kynningu en þetta er fímmta einkasýning Katrínar. • Lind Völundardóttir sem býr og starfar í Hollandi sýnir eitt verk í Gryfjunni. Verk hennar er : “Myndræn útfærsla á enn til- finningalegri upplifun og á sér engan fram- vörð í heimi orða, en finnur til skyldleika með vel kveðnum ljóðlínum3,“ að því er fram kemur í kynningu. Þetta er önnur einkasýning Lindar en hún hefur átt verk á samsýningum heima og erlendis. • Pietertje van Splunter frá Hollandi sýnir málverk í Forsal safnsins. Pietertje sem er fædd 1968 hefur dvalist hérlendis af og til s.l. ár. Sýning hennar ber heitið “Dagbók frá Íslandi3. „Að jafnaði málar Pietertje stórar myndir en ákvað að vinna litlar olíumyndir fyrir þessa sýningu eftir að hafa komist að þeirri niðurstöðu að til- komuleiki og víðátta hins íslenska landslags rúmist ekki innan stærðarmarka málverks- ins,“ segir í kynningu. • Ána Mendieta (f. 1948 d. 1985). í setu- stofunni stendur Nýlistasafnið fyrir kynn- ingu á verkum þessarar kúbönsku mynd- listakonu. Verk hennar, líf og starf er kynnt á myndböndum og litskyggnum. Ana Mendieta fæddist og ólst upp á Kúbu en nam og starfaði sín fullorðinsár í Bandaríkj- unum og í Mexíkó. í kynningu segir: „Ana Mendieta nýtti sér á djarfan hátt alls kon- ar aðferðir frá hvaða menningu sem var til að hrinda hugmyndum sínum í fram- kvæmd. Hún vann stöðugt að eins konar staðfestingu á sjálfsvitund sinni sem ein- staklings og vár framlag hennar til sam- tímalistar seinni hluta 20. aldar einstætt." Sýningin er hingað komin frá Listasafn- inu í Helsinki og er lítill hluti stórrar yfir- litssýningar á verkum Ana Mendieta sem Listasafnið stóð fyrir s.l. vor og síðan var sýnd í Listasafninu í Uppsölum í sumar. Sýningarnar eru opnar daglega frá kl. 14.00 - 18.00 og þeim lýkur 18. ágúst. FORNIRHLUTIR í NÝSTÁRLEGU LJÓSI , Morgunblaðið/Sverrir KRISTIN Guðjónsdóttir með eitt verka sinna. Kristín Guójónsdóttir á aó baki sex ára listnám; fyrst« Myndlistar- og handíöaskóla íslands og svo í listaháskólann CCAC (California College of Arts and Crafts) í Noröur-Kaliforníu. Þaóan útskrifaöist hún voriö 1995 með BFA gráðu af tveimur náms- brautum, skúlptúr og gleri. VALA GEORGSDÓTTIR hitti Kristínu aó máli í tilefni þess, að í dag opnar * hún fyrstu sýningu sína á Islandi í Galleríi Stöölakoti. Fimm þúsund manns hafa séð Stone Free UPPSELT hefur verið á allar tíu sýningar Leik- félags íslands á leikriti Jims Cartwrights, Stone Free, á fyrstu tveimur sýningarvikunum í Borg- arleikhúsinu. Alls hafa um fímm þúsund manns séð sýninguna og mun vera fátítt að leiksýning- ar fái viðlíka aðsókn á jafn skömmum tíma hér um slóðir. Bæta hefur þurft við aukasýningum til að anna eftirspurn eftir miðum. Næstu sýningar á Stone Free verða fimmtu- daginn 8. ágúst kl 20.00, föstudaginn 9. ágúst kl 23.00 — sem verður jafnframt fyrsta miðnæt- ursýningin — og laugardaginn 10. ágúst kl 20.00. Til eru miðar á þessar sýningar en for- svarsmenn Stone Free gera hins vegar ráð fyr- ir að þeir seljist fljótt upp. Norskur kór í Norræna húsinu SÖNGHÓPURINN Kulturmix heldur tónleika í Norræna húsinu í dag laugardaginn 3. ágúst kl. 18.00. Stjórnandi kórsins er Per Oddvar Hildre einn af kunnustu kórstjórnendum Nor- egs. Sönghópurinn hefur verið starfræktur í 10 ár. Auk tónleikahalds í Noregi hefur hópurinn komið fram á tónleikum í New York og New Orleans. Allir eru veíkomnir, aðgangur ókeypis. Myndir fró Dublin í Eden ÞORSTEINN Eggertsson sýnir í Eden, Hvera- gerði um verslunarmannahelgina. Sýningin verður formlega opnuð á laugardaginn klukkan 14. Á henni eru 20 málverk, flest unnin í Dublin á írlandi. Þar hefur Þorsteinn dvalið undanfarið ár, meðal annars sem fréttamaður Bylgjunnar. Þetta er sjötta einkasýning Þorsteins en hann hefur tekið þátt í samsýningum hér á landi og erlendis. Meðal annars tók The Waldock Art Gallery í Dublin nokkrar myndir hans til sýninga síðastliðinn vetur. Sýning Þorsteins í Eden lýkur 14. ágúst næstkomandi. Ljóðaupplestur ó Kaffi Oliver „TÖLUM eins og ekkert sé“ heitir síðari ljóða- dagskrá úr ljóðabókum Sigfúsar Daðasonar sem Hjalti Rögnvaldsson leikari flytur á Kaffi Oliver við Ingólfsstræti á þriðjudagskvöld klukkan 22. Myndlist og postulín LÁRA Janusdóttir sýnir myndlist og postulín í Grænu höndinni, Breiðumörk 3 í Hveragerði. Sýningin verður opnuð í dag og stendur til 17. ágúst. r NÁMSÁRUNUM í Kaliforníu hlaut Kristín tvisvar styrk til sumarnáms við Glerlistarskólann í Pilchuck í Washington-fylki en eftir útskrift úr CCAC var henni boðið að dvelja sem gistilistamaður við sama glerlistarskóla haustið 1995. Nú hefur Kristínu verið boðið að vinna að verkum sínum við Kholer Art Center í Wisconsin næsta haust. Auk þess hlaut hún 6 mánaða starfslaun frá Launasjóði íslenskra mynd- listamanna. Kristín hefur tekið þátt í mörgum sýningum. „Ég vil ekki tala of mikið um hvaðan ég fæ hugmyndir,“ segir Kristín, „þó má nefna að verk mín vísa til einhvers gamals og þá hugsanlega til fornra áhalda sem höfð voru til sjávar og sveita." — í bæjarlæk á Vestfjörðum, nálægt sum- arbústað foreldra minna, fann ég eitt sinn fullt. af brotnu leirtaui, á sumum brotanna voru lítil göt með reglubundnu millibili. Löngu síðar komst ég að því að það hefði tíðkast að spengja eða staga saman leirílát, potta og aðra nytjahluti sem sprungu eða brotnuðu ekki verr en svo að raða mætti brotunum saman. Ég er heilluð af hugsunarhætti sem þessum og sé í honum mikla fegurð. í verk- um mínum leitast ég við að fá fram þá tilfinn- ingu sem þessi fundur og margir fleiri höfðu á mig á unglingsárunum. CCAC — Ég valdi CCAC vegna þess að sá skóli bauð upp á kennslu í meðferð glers. Ég hef alltaf verið heilluð af gleri og var búin að prófa mig áfram í að mála, líma og grafa í gler áður en ég fór út. Ég kom úr skúlptúrdeild MHÍ með það í huga að nota gler í skúlptúr en ekki til skrautmunagerðar eða í nytjalist. Mér skild- ist fljótlega að hér var ég á lítt troðnum slóð- um. Ég fór að beita við glerið aðferðum úr textílvinnu og úr skartgripa- og leirmuna- gerð. Leirmót fyrir misskilning - Það var mikill áfangi þegar ég fór fyrir misskilning að nota leirmót til að steypa gler- ið í. Mér hafði verið gefin bók um verk eins af frumkvöðlum glerlistar, Réne Lalicque, þar voru nokkur orð um þá tækni er hann hafði notað til að steypa verk sín. Ég las að hann hefði notað „Semiplastic refractory mold“ — en hvað merktu þau orð? Ég spurð- ist fyrir í skólanum og fékk loks svar í keramikdeildinni að þetta væri hábrennslu- leir og raunar á þessi lýsing líka við hann. Ég hafði þá sömu viku keypt poka af þess háttar leir svo ég dreif mig í að búa til fyrsta mót mitt með íslenska vaðsteina í huga en þá hafði ég séð í Þjóðminjasafninu jólin áð- ur. Þetta var vorið 1993. Síðan hef ég næst- um eingöngu notast við leir í glermót mín. Það var ekki fyrr en nærri tveimur árum síðar að ég fór að skoða Coming Museum, , sem er líklega stærsta glerlistasafn heims. Ég ákvað að skreppa inn á veglegt bókasafn safnsins og fletta upp fyrstu formúlu Laliqu- es. Þá komst ég að því að hann hafði notað til helminga blöndu af gifsi og fínmöluðum brenndum leir. Ég labbaði því út med örlitla gæsahúð þegar ég hugsaði til þess að ef ég hefði ekki fengið það svar á sínum tíma að „Semiplastic refractory mold“ ætti við há- brennsluleir þá hefði ég ekki dottið niður á þessa frábæru aðferð sem er undirstaða mik- ils hluta þess sem ég geri. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 3. ÁGÚST 1996 1 5

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.