Lesbók Morgunblaðsins - 03.08.1996, Page 16
MorgunblaóiÓ/Þorkell
FLYTJENDUR messu Jónasar Tómassonar með höfundi og stjórnanda
HIÐ NYJA verk Jónasar
er messa, sem ber heitið
„Tibi laus“, og mun Jón-
as hefja dagskrána á
forspjalli um hana.
Messan er samin fyrir
Bachsveitina í Skálholti,
en fyrir fáeinum árum
hlýddi Jónas á tónlistarflutning hennar.
Hann segist hafa heillast mjög af henni og
langað til að semja fyrir hana. „Eftir tón-
leikana sat ég á spjalli við Kristján Val
Ingólfsson rektor Skálholtsskóla, á skrif-
stofu hans og þá leið yfir tölvuskjáinn hjá
honum textinn: „Tibi laus salus sit Christe"
o.s.frv. Út frá þessu spunnust umræður og
ekki leið á löngu uns til varð hugmynd að
messu, sem hlaut nafnið „Tibi laus“,“ segir
Jónas.
Messa Jónasar er í hinum fimm grunn-
þáttum; Kyrie, Gloria, Credo, Sanctus og
Agnus Dei samkvæmt hefðinni, en jafn-
framt bætir hann við eigin þáttum, sem eru
Spiritus domini, Confirma Hoc Deus og
Tibi laus.
Jónas átti verk á Skálholtshátíð sumrin
1980 og 1981 og sagði að Helga Ingólfs-
dóttir hefði talið tímabært að hann semdi
verk á nýjan leik. Þá voru enn nokkur ár
í stofnun Bachsveitarinnar með sín sérsmíð-
uðu barokkhljóðfæri, en Jónas segist ekki
hafa sett sig í neinar sérstakar stellingar
þess meðvitaður að messan myndi fljúga
af fornaldarstrengjum. „Það er kannski
öðruvísi blær á messunni vegna barokk-
hljóðfæranna en nóturnar eru eftir sem
áður þær sömu og ef skrifað væri fyrir
nútímahljóðfæri,“ segir Jónas.
„Skipti mér sem minnst af
Æfingunni er áfram haldið. Bachsveitin
kemur sér fyrir og söngvararnir fimm, sem
nefna sig Voces Thules, stilla sér upp. „Við
byrjum á hljómsveitinni," segir Gunnsteinn
Ólafsson stjórnandi. „Credo, annar taktur.“
Þetta er fyrsta heildarrennslið á Credo með
hljómsveit og kór. Flatur tónn barokkhljóð-
færanna ómar í látleysi sínu um salinn.
Jónas fylgist með útí sal. „Hér heyrist skyld-
leikinn við gregoríska sönginn," útskýrir
hann við upphaf Credo. Hann segist ekki
skipta sér af flutningnum, enda ekki ástæða
til. „Hljóðfæraleikararnir eru svo miklir
fagmenn að athugasemda er ekki þörf,“
segir hann. Credo líður út í ómstríðum
hljómum og Jónas er spurður út í þá. „Óm-
strítt og ómþýtt skiptast á til að valda
spennu og víða leysi ég ómstríða hljóma
VOCES Thules er skipuð fimm karlaröddum sem syngja
messu Jónasar.
Nýtt íslenskt tónverk fyrir sópran, fimm karlaraddir
og hljómsveit eftir Jónas Tómasson veróur frumflutt
á Sumartónleikum Skálholtskirkju í dag. Flytjendur,
höfundur og stiórnandi hafa búió í Skálholti
undanfarna viku vió æfingar, ásamt erlendum
gestum sem munu flytja tónlist um helgina.
ÖRLYGUR SIGURJÓNSSON fvlgdist með æfingu
í vikunni og spjallaói vió Jónas tónskáld.
SISi
„TIBI laus salus et Christe rann yfir tölvuskjáinn hjá Kristjáni Val og til varð hugmynd
að messu.“ Jónas Tómasson tónskáld í æfingahléi.
upp í ómþýðum," segir hann. „Ég held að
tónskáld setji nú æ færri ómstríða hljóma
í verk sín nú um stundir en í býrjun aldar-
innar. Þá reyndu menn að hneyksla og
hömpuðu ómstríðum hljómum vegna þeirra
sjálfra."
Vel tempraóa
hljómborðið
EINN erlendu gestanna í Skálholti um helg-
ina er bandaríski semballeikarinn William
Heiles. Mun hann leika Das Wohltemperierte
Klavier eftir Bach. Þetta er í fyrsta skipti
sem verkið er flutt í heild sinni á íslandi,
en hlutar úr verkinu hafa tíðum verið á efnis-
skrám píanó- og semballeikara á tónleikum
hérlendis. Verkið samanstendur af 24
prelúdíum og jafnmörgum fúgum. „Ég ákvað
að læra allt verkið vegna þess að ég hefði
ekki öðlast sama skilning á því að öðrum
kosti," segir Heiles. „Einstakar prelúdíur og
fúgur finnst mér komast betur til skila ef
þær eru skoðaðar sem hluti af heild.
Það sem mér finnst sérstætt við verkið
er að Bach nálgast formið á alla hugsanlega
vegu. Að hann skuli skrifa í öllum tóntegund-
um er táknrænt fyrir það hvað meðferð
hans er endanleg," heldur Heiles áfram.
„Verkið hafði einnig mikið gildi fyrir nem-
endur Bachs, sem voru að nema tónsmíðar."
Heiles segir að ein og ein prelúdía komi
betur út á píanói, en að hans mati hentar
semballinn best ef litið er á verkið í heild.
Heiles lék allt verkið í heild sinni fyrst
fyrir tveimur árum, þá eftir minni eins og
hann mun einnig gera nú. Hann hefur van-
ist því að leika eftir minni og segir að lík-
lega myndi honum frekar fipast ef hann
tæki allt í einu upp á því að leika af blaði.
DAGSKRA
HELGARINNAR
DAGSKRÁIN í Skálholti um helgina verð- -
ur lengri en nokkurn tíma fyrr, enda verða
allir dagamir þrír notaðir til tónleikahalds.
• Dagskráin byijar í dag, laugardag, kl.
14 með forspjalli Jónasar Tómassonar um
messu sína og kl. 15 verður hún frum-
flutt. Kl. 17 í dag leikur svo Heiles fyrri
hluta Das Wohltemperierte Klavier og
seinni hlutann kl. 21 í kvöld.
• Á morgun verður messa Jónasar end-
urflutt kl. 15 og kl. 17 verður messa með
norrænum kirkjuverkum Ieiknum á harð-
angursfiðlu. Ki. 21 annað kvöld leikur
Alf Tveit tónverk frá Þelamörk á harðang-
ursfiðlu og kl. 22 syngur Voces Thules
náttsöng úr Þorlákstíðum.
• Á mánudaginn leikur svo Alf Tveit
nýja dagskrá tónverka fyrir harðangurs-
fiðlu eftir landskunna harðangursfiðlu-
meistara í Noregi.
16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 3. ÁGÚST 1996