Lesbók Morgunblaðsins - 03.08.1996, Síða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 03.08.1996, Síða 16
 MorgunblaóiÓ/Þorkell FLYTJENDUR messu Jónasar Tómassonar með höfundi og stjórnanda HIÐ NYJA verk Jónasar er messa, sem ber heitið „Tibi laus“, og mun Jón- as hefja dagskrána á forspjalli um hana. Messan er samin fyrir Bachsveitina í Skálholti, en fyrir fáeinum árum hlýddi Jónas á tónlistarflutning hennar. Hann segist hafa heillast mjög af henni og langað til að semja fyrir hana. „Eftir tón- leikana sat ég á spjalli við Kristján Val Ingólfsson rektor Skálholtsskóla, á skrif- stofu hans og þá leið yfir tölvuskjáinn hjá honum textinn: „Tibi laus salus sit Christe" o.s.frv. Út frá þessu spunnust umræður og ekki leið á löngu uns til varð hugmynd að messu, sem hlaut nafnið „Tibi laus“,“ segir Jónas. Messa Jónasar er í hinum fimm grunn- þáttum; Kyrie, Gloria, Credo, Sanctus og Agnus Dei samkvæmt hefðinni, en jafn- framt bætir hann við eigin þáttum, sem eru Spiritus domini, Confirma Hoc Deus og Tibi laus. Jónas átti verk á Skálholtshátíð sumrin 1980 og 1981 og sagði að Helga Ingólfs- dóttir hefði talið tímabært að hann semdi verk á nýjan leik. Þá voru enn nokkur ár í stofnun Bachsveitarinnar með sín sérsmíð- uðu barokkhljóðfæri, en Jónas segist ekki hafa sett sig í neinar sérstakar stellingar þess meðvitaður að messan myndi fljúga af fornaldarstrengjum. „Það er kannski öðruvísi blær á messunni vegna barokk- hljóðfæranna en nóturnar eru eftir sem áður þær sömu og ef skrifað væri fyrir nútímahljóðfæri,“ segir Jónas. „Skipti mér sem minnst af Æfingunni er áfram haldið. Bachsveitin kemur sér fyrir og söngvararnir fimm, sem nefna sig Voces Thules, stilla sér upp. „Við byrjum á hljómsveitinni," segir Gunnsteinn Ólafsson stjórnandi. „Credo, annar taktur.“ Þetta er fyrsta heildarrennslið á Credo með hljómsveit og kór. Flatur tónn barokkhljóð- færanna ómar í látleysi sínu um salinn. Jónas fylgist með útí sal. „Hér heyrist skyld- leikinn við gregoríska sönginn," útskýrir hann við upphaf Credo. Hann segist ekki skipta sér af flutningnum, enda ekki ástæða til. „Hljóðfæraleikararnir eru svo miklir fagmenn að athugasemda er ekki þörf,“ segir hann. Credo líður út í ómstríðum hljómum og Jónas er spurður út í þá. „Óm- strítt og ómþýtt skiptast á til að valda spennu og víða leysi ég ómstríða hljóma VOCES Thules er skipuð fimm karlaröddum sem syngja messu Jónasar. Nýtt íslenskt tónverk fyrir sópran, fimm karlaraddir og hljómsveit eftir Jónas Tómasson veróur frumflutt á Sumartónleikum Skálholtskirkju í dag. Flytjendur, höfundur og stiórnandi hafa búió í Skálholti undanfarna viku vió æfingar, ásamt erlendum gestum sem munu flytja tónlist um helgina. ÖRLYGUR SIGURJÓNSSON fvlgdist með æfingu í vikunni og spjallaói vió Jónas tónskáld. SISi „TIBI laus salus et Christe rann yfir tölvuskjáinn hjá Kristjáni Val og til varð hugmynd að messu.“ Jónas Tómasson tónskáld í æfingahléi. upp í ómþýðum," segir hann. „Ég held að tónskáld setji nú æ færri ómstríða hljóma í verk sín nú um stundir en í býrjun aldar- innar. Þá reyndu menn að hneyksla og hömpuðu ómstríðum hljómum vegna þeirra sjálfra." Vel tempraóa hljómborðið EINN erlendu gestanna í Skálholti um helg- ina er bandaríski semballeikarinn William Heiles. Mun hann leika Das Wohltemperierte Klavier eftir Bach. Þetta er í fyrsta skipti sem verkið er flutt í heild sinni á íslandi, en hlutar úr verkinu hafa tíðum verið á efnis- skrám píanó- og semballeikara á tónleikum hérlendis. Verkið samanstendur af 24 prelúdíum og jafnmörgum fúgum. „Ég ákvað að læra allt verkið vegna þess að ég hefði ekki öðlast sama skilning á því að öðrum kosti," segir Heiles. „Einstakar prelúdíur og fúgur finnst mér komast betur til skila ef þær eru skoðaðar sem hluti af heild. Það sem mér finnst sérstætt við verkið er að Bach nálgast formið á alla hugsanlega vegu. Að hann skuli skrifa í öllum tóntegund- um er táknrænt fyrir það hvað meðferð hans er endanleg," heldur Heiles áfram. „Verkið hafði einnig mikið gildi fyrir nem- endur Bachs, sem voru að nema tónsmíðar." Heiles segir að ein og ein prelúdía komi betur út á píanói, en að hans mati hentar semballinn best ef litið er á verkið í heild. Heiles lék allt verkið í heild sinni fyrst fyrir tveimur árum, þá eftir minni eins og hann mun einnig gera nú. Hann hefur van- ist því að leika eftir minni og segir að lík- lega myndi honum frekar fipast ef hann tæki allt í einu upp á því að leika af blaði. DAGSKRA HELGARINNAR DAGSKRÁIN í Skálholti um helgina verð- - ur lengri en nokkurn tíma fyrr, enda verða allir dagamir þrír notaðir til tónleikahalds. • Dagskráin byijar í dag, laugardag, kl. 14 með forspjalli Jónasar Tómassonar um messu sína og kl. 15 verður hún frum- flutt. Kl. 17 í dag leikur svo Heiles fyrri hluta Das Wohltemperierte Klavier og seinni hlutann kl. 21 í kvöld. • Á morgun verður messa Jónasar end- urflutt kl. 15 og kl. 17 verður messa með norrænum kirkjuverkum Ieiknum á harð- angursfiðlu. Ki. 21 annað kvöld leikur Alf Tveit tónverk frá Þelamörk á harðang- ursfiðlu og kl. 22 syngur Voces Thules náttsöng úr Þorlákstíðum. • Á mánudaginn leikur svo Alf Tveit nýja dagskrá tónverka fyrir harðangurs- fiðlu eftir landskunna harðangursfiðlu- meistara í Noregi. 16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 3. ÁGÚST 1996

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.