Lesbók Morgunblaðsins - 07.09.1996, Qupperneq 2
NÝTT LEIKÁR AÐ HEFJAST í ÍSLENSKU ÓPERUNNI
GALDRA-LOFTUR, CALLAS
OG KÁTA EKKJAN
NÝTT leikár hefst senn í íslensku
óperunni. Verða tvö verk frum-
sýnd, Master Class með Callas
eftir Terrence McNally og Káta
ekkjan eftir Franz Lehár, auk þess sem
Galdra-Loftur eftir Jón Ásgeirsson verður
endurfrumfluttur. Garðar Cortes óperustjóri
segir að leikárið leggist afar vel í sig og
mikil spenna sé í herbúðum íslensku óper-
unnar. Endurbætur hafa verið gerðar á svið-
inu í sumar og meðal annars settar upp
nýjar ljósarár og segir Garðar að aðstaðan
sé því orðin mun betri en verið hafi.
Fyrsta verkefni vetrarins er íslenska óp-
eran Galdra-Loftur eftir Jón Ásgeirsson sem
sýnd var við mikla aðsókn á Listahátíð í
Reykjavík í júní síðastliðnum. Fyrirhugaðar
eru fimm sýningar, sú fyrsta 14. september
en sú síðasta 6. október. Sérstök sýning
fyrir skólabörn og eldri borgara verður 5.
október.
Tvær breytingar hafa orðið á hlutverka-
skipan frá því í vor, Þóra Einarsdóttir, sem
söng hlutverk Dísu, og Bjarni Thor Kristins-
son, sem var í hlutverki gamla mannsins,
geta ekki tekið þátt í sýningunni vegna
anna í Bretlandi og Austurríki. Alda Ingi-
bergsdóttir tekur við hlutverki Dísu en Við-
ar Gunnarsson, sem syngur hlutverk Gott-
skálks biskups í sýningunni, mun jafnframt
taka að sér hlutverk gamla mannsins. Aðrir
söngvarar verða sem fyrr Þorgeir J. Andrés-
son, Elín Ósk Óskarsdóttir, Bergþór Pálsson
og Loftur Erlingsson. Leikstjóri er Halldór
E. Laxness, búningar eru eftir Huldu Krist-
ínu Magnúsdóttir, lýsing eftir David Walters
og leikmynd gerir Axel Hallkell.
Önnur frumsýning vetrarins verður Mast-
er Class með Callas eftir Terrence McNally,
4. október. Er verkið byggt á upptökum sem
gerðar voru þegar María Callas tók nokkra
efnilega söngvara í tíma í Julliard-listaskó-
lanum í New York en kennslustundirnar
hlutu nafnið Master Class. Leikstjóri er
Bjarni Haukur Þórsson en með aðalhlutverk
fara Anna Kristín Arngrímsdóttir, sem leik-
ur Maríu Callas, Marta Halldórsdóttir, Ellen
Morgunblaóió/Halldór
ÞORGEIR J. Andrésson, Elín Ósk Ósk-
arsdóttir og Loftur Erlingsson í hlut-
verkum sínum í óperu Jóns Ásgeirsson-
ar Galdra-Lofti sem verður fyrsta við-
fangsefni íslensku óperunnar á leikár-
inu sem er að hefjast.
Freydís Martin, Stefán Helgi Stefánsson og
Þorsteinn Gauti Sigurðsson. Þýðandi verks-
ins er Ingunn Ásdísardóttir, sviðsmynd og
búningar eru eftir Huldu Kristínu Magnús-
dóttur og Benedikt Axelsson annast lýsingu.
Stærsta viðfangsefni leikársins verður
óperettan Káta ekkjan sem ungverska tón-
skáldið Franz Lehár, sem lengst af starfaði
í Austurríki, samdi árið 1905. íslenska óp-
eran hefur ekki áður tekið Kátu ekkjuna,
sem hefur um áratugaskeið verið eitt vinsæl-
asta verk sinnar tegundar í heiminum, upp
á sína arma en Þjóðleikhúsið sýndi hana
árið 1956. Leikstjóri verður Andrés Sigur-
vinsson en ekki hefur endanlega verið valið
í hlutverk. B^yrirhuguð frumsýning er 7. febr-
úar.
Tónleikar
Fimm tónleikar verða á vegum Styrkt-
arfélags íslensku óperunnar í vetur, hinir
fyrstu 21. september. Koma þar fram banda-
ríska sópransöngkonan Lia Frey-Rabine og
Selma Guðmundsdóttir píanóleikari. Söng-
konan kemur hingað til lands í boði Richard
Wagner-félagsins á íslandi en hún söng
meðal annars Brynhildi í Niflungahringnum
í Þjóðleikhúsinu 1994. Efnisskráin verður
mjög Wagnerísk, auk þess sem þar verður
að finna ljóð eftir m.a. Verdi og Bartók.
26. nóvember verða tónleikar Kristins
H. Árnasonar gítarleikara, þar sem hann
mun leika verk eftir Mudarra, Sor, Ponce
og Rodrigo.
11. janúar 1997 kemur röðin að Sigur-
birni Bernharðssyni fiðluleikara og James
Howsmon píanóleikara en sá fyrrnefndi var
einn fimm tónlistarmanna til að komast \
þriðja hluta Tónvakakeppninnar 1996. Á
tónleikunum verður komið víða við og með-
al annars flutt verk eftir Schönberg, Schum-
ann og Sarasate, auk djöflatrillusónötu Tart-
inis-Kreislers.
Elsa Waage altsöngkona og David Shaw
píanóleikari efna til tónleika í Islensku óper-
unni i febrúar. Elsa hefur um árabil sungið
í óperum og á tónleikum hé_r heima og er-
lendis en hún er búsett á Ítalíu, þar sem
hún söng nýverið á Scala-safninu í Mílanó
ljóð eftir Wagner, sem hún syngur einnig á
þessum tónleikum, auk annars efnis.
Lokatónleikarnir í röðinni verða þann 15.
apríl þegar Jóhann Smári Sævarsson bassa-
söngvari og Mares Skuja píanóleikari stíga
á svið. Jóhann Smári er fastráðinn við óper-
una í Köln í Þýskalandi en hann hefur ekki
í annan tíma efnt til sjálfstæðra tónleika
hér á landi. Á efnisskrá verða meðal annars
Ijóð eftir íslenska höfunda, Tjækovskí og
Rachmaninof og aríur eftir Verdi og Mozart.
FYRSTA FRUMSYN-
ING 100. LEIKÁRS
EF VÆRI ég gullfiskur heitir leikrit eftir
Árna Ibsen sem verður fyrsta frumsýning á
hundraðasta leikári Leikfélags Reykjavíkur.
Leikritið er farsi að frönskum hætti en með
íslenskt inntak. Leikstjóri er Pétur Einars-
son. Leikendur í sýningunni verða Ásta Arn-
ardóttir, Eggert Þorleifsson, Guðlaug Elísa-
bet Ólafsdóttir, Halldóra Geirharðsdóttir,
Helga Braga Jónsdóttir, Kjartan Guðjónsson,
Rósa Guðný Þórsdóttir, Sigurður Karlsson,
Sóley Elíasdóttir og Þórhallur Gunnarsson.
Lýsingu annast Elvar Bjarnason. Halga I.
Stefánsdóttir hannaði búninga og Sigurjón
Jóhannsson leikmynd.
Frumsýning verður föstudaginn 13. sept-
ember kl. 20 á stóra sviði Borgarleikhússins.
EF VÆRI ég gullfiskur eftir Árna Ibsen er farsi að frönskum hætti. Halldóra Geirharðs-
dóttir og Eggert Þorleifsson í hlutverkum sínum.
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR
TÓNLISTARVERÐLAUN
NORÐURLANDARÁÐS
BJÖRK OG
CAPUT-
HÓPURINN
TILNEFND
BJÖRK OG CAPUT-hópurinn
verða tilnefnd til tónlistarverð-
launa Norðurlandaráðs á þessu ári
frá Islandi. Árni Harðarson, for-
maður tilnefningarnefndar, sagði
í samtali við Morgunblaðið að
bæði hin tilnefndu veru vel að
henni komin. „Það þarf í sjálfu sér
ekki að kynna Björk en hún hefur
rofið ýmis landamæri í tónlistinni
og sýnt mikla fjölhæfni í tónlist-
arstílum. Caput-hópurinn hefur
áunnið sér mikla virðingu í tónlist-
arheiminum, bæði hérlendis og
erlendis; hann hefur lengi verið í
fremstu röð lítilla hljómsveita og
sérstaklega í flutningi á nútíma-
tónlist. Það var orðið tímabært að
þau hlytu tilnefningu.“
Tónlistarverðlaunum Norður-
landaráðs er úthlutað annað hvert
ár, til skiptis til tónskálda og tón-
listarflytjenda eins og nú. Þetta
er í annað sinn sem Björk er til-
nefnd til verðlaunanna en hún
fékk einnig tilnefningu fyrir
tveimur árum.
MENNING/
LISTIR
í NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Ásmundarsafn
Mótunarárin í list Ásmundar Sveinssonar.
Kjarvalsstaðir
Sýn. á málverkum og skúlptúrum eftir súr-
realistann Matta frá Chile. Sýn. á verkum
Jóhannesar Sveinssonar Kjaival í austursal
til 22. desember. Sýn. á nýjum verkum
eftir Guðrúnu Gunnarsdóttur til 19. októ-
ber.
Gerðuberg
Sjónþing Brynhildar Þorgeirsdóttur til 6.
október.
Sjónarhóll
Sýn. á verkum Brynhildar Þorgeirsdóttir
til 6. október.
Listhús 39
Árni Rúnar sýnir til 25. september.
Þjóðminjasafnið
Sýning á silfri til septemberloka.
Hafnarborg
Arngunnur Ýr sýnir til 16. september.
Helga Magnúsdóttir sýnir í Sverrissal til
15. september.
Gallerí Fold
Gréta, Elsa Margrét Þórsdóttir sýnir til 15.
september, Þórdís Elín Jóelsdóttir sýnir í
kynningarhorni til sama tima.
Gallerí Greip
Valgerður Guðlaugsdóttir sýnir.
Gallerí Stöðlakot
Hrefna Lárusdóttir sýnir akrýlmyndir til
8. september.
Gallerí Listakot
Guðrún Þórisdóttir sýnir.
Gallerí Sólon Islandus
Guðrún Guðjónsdóttir sýnir til 18. septem-
ber.
Við Hamarinn
Bjarni Sigurbjörnsson sýnir til 22. septem-
ber.
Gallerí Hornið
Gréta Mjöll Bjarnadóttir sýnir ti! 18. sept-
ember.
Norræna húsið
KOM grúppan, íslenskir og japanskir lista-
menn sýna til 8. september.
Nýlistasafnið
Kaldal - aldarminning_ til 15. september.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
Yfirlitssýning á verkum Siguijóns. Opið
laugardaga og sunnudaga kl. 14-17. Kaffi-
stofan á sama tíma.
Hornstofan Laufásvegi
Vefnaðarsýning til 8. september.
Myndás
Ljósmyndasýning Lárusar S. Aðaisteins-
sonar til 20. september.
Gallerí AllraHanda - Akureyri
Þórey Eyþórsdóttir sýnir til 23. sept.
Galleríkeðjan - Sýnirými
Sýnendur í september: í sýniboxi: G. R.
Lúðvíksson. I barmi: Einar Garibaldi Eiríks-
son. Berandi er: Bruno Mussolini.
TONLIST
Laugardagur 7. september
Orgeltónleikar í Hallgrímskirkju kl. 12 á
hádegi; Jonathan Brown orgelleikari frá
Cambridge á Englandi. Clare College Chap-
el Choir frá Cambridge á Englandi í Skál-
holtskirkju kl. 17. Stjórnandi Timothy
Brown. Strengjasveit Tónlistarskólans í
Keflavík í Ytri-Njarðvíkurkirkju kl. 17.
Sunnudagur 8. september
Clare College Chapel Choir frá Cambridge
á Englandi í Hallgrímskirkju kl. 20.30.
Stjórnandi Timothy Brown.
Mánudagur 9. september
Clare College Chapel choir í Cambridge á
Englandi á tónleikum í Reykholtskirkju
Borgarfirði kl. 21. Stjórnandi Timothy
Brown.
Þriðjudagur 10. september
Síðustu sumartónleikar Listasafns Sigur-
jóns Ólafssonar verða í kvöld kl. 20.30;
Ingveldur Ýr Jónsdóttir mezzósópran og
Jónas Ingimundarson píanóleikari.
LEIKLIST
Loftkastalinn
Á sama tíma að ári lau. 14. sept,
Sirkus Skara skrípó sun. 8. sept.,
Sumar á Sýrlandi lau. 7. sept.
Borgarleikhúsið
Stone Free lau. 7. sept.
Skemmtihúsið
Ormstunga lau. 7. sept.
Kaffileikhúsið
Hinar kýrnar lau. 7. sept.
Islenska óperan
Galdra-Loftur ópera eftir Jón Ásgeirsson
lau. 14. sept.
Upplýsingar um listviðburði sem óskað er
eftir að biiiar verði í þessum dálki verða
að hafa borist bréflega fyrir kl. 16 á mið-
vikudögum merktar: Morgunblaðið, Menn-
ing/listir, Kringlunni 1, 103 Rvík. Mynd-
sendir: 5691181.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 7. SEPTEMBER 1996