Lesbók Morgunblaðsins - 23.11.1996, Qupperneq 14
MIÐAUSTURLÖND2
Morgunblaðið/Jóhanna Kristjónsdóttir
í KÓRANiNUM verður hvergi séð að guð líti á konur óæðri körlum þó svo að þær skuli sýna mönnum sinum undirgefni, eru þeir
ekki síður brýndir til að sýna konum fulla virðingu og sóma.
RANGTÚLKAÐAR
KENNINGAR
EFTIR JÓHÖNNU KRISTJÓNSDÓTTUR
Verst hgfg konur farió út úr mistúlkunum ó islam,
hvort sem er varðandi almenna stöóu þeirra,
---------------7---------
klæóaburó eóa hvaóeina. I Kóraninum er til
dæmis hvergi vikió aó því aó konur eigi aó hyljg
andlit sitt, en lögó óhersla á aó þær klæói sig
siðsamlega og forðist léttúð í framkomu.
EINS og getið var um í fyrstu
greininni hafa þrjú eingyðistrú-
arbrögð heimsins átt uppruna
sinn í Miðausturlöndum, gyð-
ingatrú, kristni og islam.
Áhangendur þeirra trúa allir á
sama guðinn og tilbiðja hann.
Margt eiga þau sameiginlegt
og það sem skilur og þyngst vegur er túlkun
þeirra á hvenær boðanir guðs hættu að
streyma til jarðarinnar.
Hvort sem miðað er við þá landfræðilegu
skilgreiningu að Miðausturlönd nái til jaðars
Norður-Afríku í vestri annars vegar og aust-
ur til Afganistan eða hún er bundin við Arab-
íuskagann upp til landamæra Tyrklands er
óhætt að staðhæfa að um 95% íbúa, eða
meira eru áhgangendur islams.
Gabriel erkiengill birtist Múhameó
fyrst árió 610
Fæðingarstaður spámannsins Múhameð s,
fæddur Abdullah, var Quarish sem taldist til
Mekka árið 570 eftir Krist. Hann var af ætt
Hisham sem taldist til yfirættbálksins Abu
Manaf. Múhameð var um fertugt þegar
Gabríel erkiengill birtist honum í fyrsta skipti
og hélt svo fram næstu tuttugu ár eða til
andláts Múhameðs 632.
Múhameð lét skrá nákvæmlega niður boð-
un Gabríels og í Kóraninum, hinni helgu bók
múslima, verður til ritmálið arabíska. Til
þessa dags hefur ekki svo mikið sem púnkti
verið breytt í Kóraninum frá upphaflegu gerð-
inni. Því hefur verið haldið fram að Kóraninn
sé í raun óþýðanlegur á aðrar tungur og víst
er að þýðingin þykir sérlega vandmeðfarin.
Á íslensku kom Kóraninn út í þýðingu Helga
Hálfdanarsonar fyrir fáeinum árum.
Kenningar Múhameðs, eða réttara sagt,
orð erkiengilsins öðluðust ekki hljómgrunn í
einu vetfangi. Þótt hann fengi sína fyrstu
opinberun árið 610 er það ekki fyrr en þrem-
ur árum síðar að hann byijaði að prédika.
Múhameó réósl gegn hjágwóodýrkwn
og spilltw liferni samlióarmanna sinna
I fyrstu söfnuðust aðeins að honum fáir
fylgismenn en þeir reyndust honum dyggir.
Hann réðst á hjáguðadýrkun íbúa Mekka og
hversu Mammon væri í hávegum hafður og
bakaði sér því fjandskap valda- og auð-
manna. Árið 632 var hinn frægi flótti hans
til Medina, sem er um 360 km frá Mekka.
Það er sá atburður, á arabísku hijra — sem
markar upphaf tímatals múslima.
í Medina varð Múhameð fljótlega áhrifa-
mikill leiðtogi bæði í trúarlegu og pólitísku
tilliti. Honum tókst síðan að safna að sér tíu
þúsund manna liði og sigraði Mekka og voru
þá eyðilagðar allar styttur af skurðgoðum
og trúin á Allah, einn guð, staðfest.
Frwm-islam var byllingarkennd
ekki sisl meó tilliti til stöów kvenna
Óhætt er að segja að á þeim tíma sem
Múhammeð tók að boða islam er margt bylt-
ingarkennt í guðsorði, enda réðst hann einnig
harkalega gegn ríkjandi ójöfnuði og rangind-
um í samfélaginu og hann hélt því fram að
konur og karlar væru jafningjar og ættu sömu-
leiðis að vera jafnundirgefin orðum guðs.
Þar erum við líka komin að einu kjarnaatr-
iði í islam: konur og karlar voru jafnrétthá
fyrir guði og hvergi í Kóraninum verður séð
að guð líti á konur óæðri körlum þó svo að
þær skuli sýna mönnum sínum undirgefni,
eru þeir ekki síður brýndir að sýna konum
fulla virðingu og sóma.
Sjálfur var Múhameð einnig á undan sinni
samtíð, ungur kvæntist hann konu sér tölu-
vert eldri og hefði sú kona verið kölluð „kona
á framabraut" nú, hún fékkst við kaupsýslu
og stjórnunarstörf og virðist hafa lagt sig
eftir því að vera sjálfstæð í orði og athöfnum
og Múhameð virt það til fulls. Meðan hún
lifði átti Múhameð ekki aðra konu.
Sú kenning Kóranins að karlar megi eiga
allt að fjórar konur hefur oft verið tekin sem
barbarískt dæmi um að islam væru frumstæð
trúarbrögð sem gengu gegn réttindum
kvenna. Það er ekki rétt, því upphaflega virð-
ist guð hugsa þetta á þann hátt að aukakon-
urnar þijár væru í flestum tilvikum ekkjur
sem hefðu misst menn sína, oft í stíðsátökum
og þyrftu því að standa einar í lífsbaráttunni
eftir fráfall mannsins.
Þar sem ekkjur höfðu lítillar virðingar
notið og áttu ekki margra kosta völ hvað
snerti framfærslu má því í reynd líta á þetta
sem hið athyglisverðasta framfaramál fyrir
konur. Enda hafa múslimskir karlar verið
brýndir til að mismuna ekki konum sínum
þótt það sem fleira hafi verið mistúlkað og
afbakað í tímans rás.
Islam fer aó breióast hratt út
eftir andlát Múhameós
í Kóraninum kemur skýrt fram að islam
viðurkennir marga atburði Gamla testament-
isins og islam viðurkennir spámenn þess.
Jesús er talinn einn spámanna og ekki eru
boðunarhæfileikar hans dregnir í efa þótt
islam kveði skýrt upp úr með það að hann
hafi ekki verið sonur guðs heldur einn margra
merkra spámanna.
Hin nýja trú breiðist hratt út að Múhameð
látnum 632 og um allt það svæði sem nú
telst til arabalanda. Tíu árum eftir lát hans
hafa þjóðir landa þar sem nú eru Egypta-
land, Sýrland, írak og vesturhluti írans svo
og Afganistan tekið trúna.
Gyðingar og kristnir menn voru ijölmennir
á þessum slóðum og sums staðar voru þeir
mjög fjarri því að vera sáttir við leiðtoga sína
og tóku því nýju trúarbrögðunum fagnandi.
En islam átti ekki alls staðar upp á pallborð-
ið án blóðsúthellinga, m.a. er talið að mörg
hundruð þúsund kristnir menn hafi verið lífl-
átnir í Egyptalandi vegna þess að þeir tregð-
uðust við að snúast til islam.
Annars staðar hermir sagan að múslimar
hafi sýnt þeim trúarbrögðum sem voru fyrir,
og þó sérstaklega kristinni trú og gyðinga-
trú, umburðarlyndi og látið gott heita svo
fremi menn berðust ekki gegn islam.
Islant skiptist i swnni
og shita árió 656
Öll helstu trúarbrögð heims greinast í mis-
munandi kvíslar. Islam er þar engin und-
antekning. Deilur risu um það þegar Múha-
með féll frá hver væri réttur arftaki hans þar
eð hann átti enga syni. Um völdin slógust
Abu Bakr, faðir annarrar eiginkonu Múha-
meðs, Aisha, og hins vegar Ali, frændi hans
og eiginmaður Fatimu, dóttur Múhameðs.
Ali féllst með tregðu á að Abu Bakr yrði
leiðtogi islam en fylgismenn hans sem nefnd-
ir voru shítar fengu síðan annað tækifæri
nokkru árum síðar og hrósuðu þá sigri um
stund. Ali flutti miðstöð islam til bæjarins
Najef í því sem nú er Irak.
En sunnítar — þ.e. fylgismenn Abu Bakr,
undu ekki ósigrinum og í frægum bardaga
í Kerbala, sem er borg ekki langt frá Najef,
sigruðu súnnítar áhangendur Husseins Alison
sem hafði tekið við að föðru sínum. Upp frá
þeim degi hafa sunnítar verið allsráðandi og
teljast nú 90% múslima. Kerbala og Najef
hafa frá þessum atburðum verið helgustu
staðir shíta.
Þó þær séu megingreinar islams eru ýmsar
smærri, má þar nefna Ibadia sem er nú trú
flestra Ómana og margra araba í Sameinuðu
furstadæmunum. Flestar aðrar eru eins kon-
ar undirgreinar annaðhvort frá sunnítum eða
shítum.
Menn verða að hafa í huga að trúarbrögð
verða aldrei merkilegri en mennirnir sem
aðhyllast þau og túlka. Ef litið er til islam
er það ekki aðeins háþróuð trúarbrögð heldur
ná þau til allra þátta í mannlegu samfélagi,
hvort sem er í heimspekilegu menningarlegu
og félagslegu tilliti og ekki síst til almennra
þátta sem menn verða að huga að hversdags.
Því er islam meira en trú — hún er lífsvið-
horf, lífsstíll mörg hundruð milljóna múslima.
Kcnningar islams hafa einatt verió
rangtúlkaóar af múslimwm sjálfwm
Þótt islam hafi á fyrstu öldunum verið
framfarasinnuð trúarbrögð er augljóst að á
síðustu öld hefur islam glatað mörgu af því
sem Allah vildi boða mönnunum. Kenningarn-
ar hafa verið rangtúlkaðar, kannski umfram
allt það sem laut að stöðu kvenna í islömsku
samfélagi, enda er það á þeim grundvelli sem
hvað mest hefur verið gagnrýnt.
Þeir islömsku bókstafstrúarmenn sem hafa
riðið húsum í ýmsum löndum múslima hafa
heldur ekki orðið til að bæta ímynd islams
þar sem þeir hafa í litlum mæli sinnt um að
túlka kenningar Kóransins eins og Allah
bauð þeim, heldur eftir sínum geðþótta og
oftar en ekki á afar öfgakenndan og lítt vits-
munalegan hátt.
Verst hafa konur farið út úr mistúlkunum
á islam, hvort sem er varðandi almenna stöðu
þeirra, klæðaburð eða hvaðeina. í Kóraninum
er til dæmis hvergi vikið að því að konur
eigi að hylja andlit sitt, en lögð áhersla á
að þær klæði sig siðsamlega og forðist léttúð
í framkomu. En hiklaust skulu þær njóta
réttinda og eins og áður hefur verið minnst
á eiga karlar að sýna þeim umhyggju og
láta sig velferð þeirra skipta á allan hátt.
Hafa skal í huga að menntunarmál á tím-
um Múhameðs voru ekki í þeim fai'vegi sem
orðið hefur á seinni öldum og árum. En mið-
að við það viðhorf sem fram kemur í Kóranin-
um gagnvart konum er lítill vafi á að þær
væru taldar jafnréttháar til menntunar og
karlar. íhugi maður hve islam var jafnréttis-
sinnuð trúarbrögð í upphafi má nokkurn veg-
inn slá því föstu. En margir múslimar hafa
tregðast við að færa islam nær nútímanum
og laga að viðhorfum hans.
í þriðju grein verður vikið að nútímasamfé-
lagi arabískra þjóða, ekki aðeins stöðu kon-
unnar og mikilvægi fjölsKyldunnar heldur og
rætt um stjórnskipun í löndunum, en víða
eru þar harðstjórnir við lýði eða í besta falli
misvel/illa heppnað einræði.
14 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 23. NÓVEMBER 1996