Lesbók Morgunblaðsins - 03.01.1998, Page 7
RETTLÆTIÐ
SIGRAR
SMÁSAGA EFTIR
ERLU KRISTJÁNSDÓTTUR
Á götunni móts við gamla húsið stóð sjúkrabíll og líka
löggubíll, það vissi ekki ó gott, löggurnar voru líka svo
alvarlegar ó svipinn. Tveir frakkaklæddir menn með
hatta fóru inn í gamla húsið, krakkarnir stóðu í þéttum
hnapp og fylgdust með, ein löggan kom til þeirra og
sagði þeim að fara heim.
MYND: GuSný Svova Sfrondberg.
TÍMANNA rás höfðu flest gömlu hús-
anna við götuna verið rifin og ný byggð
í þeirra stað. Eitt stóð þó eftir, ef til vill
vegna þess að það stóð spölkom frá
götunni hálffalið bak við tvö nýleg hús.
Þar kúrði það lengi vel óáreitt, hvorki
fallegt eða Ijótt en í augum þeirra sem
við götuna bjuggu óaðskiljanlegur hluti
umhverfisins rétt eins og gömlu hjónin sem
byggðu það af vanefnum á kreppuárunum og
höfðu búið þar alla tíð síðan. Þeir sem slitið
höfðu barnsskónum í götunni minntust gamla
mannsins þar sem hann gekk hvem virkan
morgun til vinnu sinnar við höfnina, hreinn
og strokinn með gleðiglampa í augum. Alltaf
átti hann aflögu bros og gamanyrði og margt
bamið hafði hann leitt við hönd sér á leið í
skóla, einkum ef veður var vont. Þau vom
bamlaus hjónin, en samt var aldrei barnlaust
í kringum húsið þeirra, margar moldarkök-
umar vom bakaðar í garðholunni þeirra og
margur smiðurinn rak fyrstu naglana bak við
litla húsið undir leiðsögn gamla mannsins.
Alltaf áttu þau kakó og kringlur f sísvanga
munna smáfólksins og kettimir í nágrenninu
áttu vísan glaðning að húsabaki. Það var því
sjaldnast bamlaust og kattalaust hjá þeim
hjónum og margur virðulegur borgarinn fann
enn í vitum sér ilminn af heitu kakói og lófinn
mundi mjúkan kattarfeld þegar gengið var
framhjá gamla húsinu.
Nú var gamli maðurinn hættur að vinna,
þegar aldurinn færðist yfir varð hann að
víkja fyrir öðrum yngri, þá fór honum að
hraka meira en aldurinn einn gaf tilefni til,
hann fór að nöldra við konuna sína og fannst
hann engum vera til gagns. Jafnvel börnin
urðu honum til ama og honum var þvert um
geð að taka við ellistyrknum, hann sem alla
ævi hafði kappkostað að vinna fyrir sér var
nú orðinn styrkþegi, ómagi á samfélaginu. Að
lokum var hann hættur að sjást úti við, var
lagstur í rúmið. En gamla konan var enn á
stjái, daglega rölti hún í búðina á horninu og
einu sinni í mánuði í bankann til að taka út
ellistyrkinn þeirra. Enn áttu bömin athvarf í
garðinum við gamla húsið, oft var til
súkkulaði eða annað góðgæti og hlýtt klapp á
kollinn. „Blessuð litlu blómin“ var hún vön að
segja þegar beðið var leyfis að baka moldar-
kökur eða byggja kofa í garðinum, enn var
köttunum gefið að húsabaki, „verið þið góð
við ræfilsskinnin, þeir eiga engan að“ sagði
hún iðulega þegar hún fór með út með mat
handa köttunum. Oft var setið undir húsvegg
og horft á kettina éta matinn sinn og gerðar
gælur við þá á eftir, á slíkum stundum feng-
ust svör við margri erfiðri spurningu, sem
bamshugurinn glímdi við og margt vanda-
málið leyst.
„Þarft þú nokkuð að fara í burtu?“ spurði
lítill strákur og horfði alvarlegur beint fram-
an í gömlu konuna.
„Hvert ætti ég svosem að fara væni minn?“
„Á spítala eða eitthvað svoleiðis, pabbi seg-
ir að þið getið ekki verið héma lengur.“
„Jæja, segir hann það?“
„Já, svo segir hann að það verði að rífa
húsið ykkar svo hægt sé að búa til bílastæði.“
„Einhvers staðar þurfa bílamir að vera.“
,Áttir þú einhverntímann bíl?“
„Onei, ég hef aldrei átt bfl.“
Sá litli hnyklaði biýmar og sagði síðan full-
ur trúnaðar: „Stundum deyr fólk á spítölum,
hún Gunna frænka dó á spítala og hún var
ekkert gömul. Þarft þú nokkuð að fara á spft-
ala?“ Þegar ekkert svar kom bætti hann við:
„Er það veiki að vera gamall?“
„Nei góði minn það er ekki veiki en þegar
maður er orðinn gamall þá getur maður ekki
lengur unnið og séð um sig sjálfur. Sumir
fara þá á elliheimili.“
„Er hægt að taka fólk og láta það á elli-
heimili?" Þetta var orðið mikið alvörumál.
„Eg heyrði pabba segja við kallinn á efri
hæðinni að það ætti að taka ykkur og setja
ykkur á stofnun og rífa húsið ykkar. Getur
fólk gert svoleiðis?"
„Fólk segir svo margt væni minn og það
meinar ekki allt sem það segir.“
„En hver á þá að gefa köttunum og tala við
okkur og þá getum við hvergi leikið okkur.“
„Það verða einhverjir til þess góði minn.
En nú skulum við koma inn, kannski á ég
súkkulaði í lítinn munn.“
Svo þungt getur alvara lífsins hvílt á ung-
um herðum að jafnvel súkkulaði getur ekki
bætt þar um. Og krakkamir veittu því at-
hygli að frakkaklæddir menn með hatta áttu
tíð erindi í gamla húsið og það sem verra var,
gamla konan gleymdi stundum að gefa kött-
unum. Það gat ekki vitað á gott. Og nú var
gamla konan hætt að brosa þegar garðurinn
hennar var fullur af köttum og krökkum, hún
varð beygðari og lotnari með hverjum degin-
um sem leið.
Loks var hún hætt að sjást úti við nema til
að fara í búðina og í bankann.
Dag einn stoppaði gulur bfll fyrir utan
gamla húsið og garðurinn fylltist af galla-
klæddum mönnum með mælistikur og mál-
bönd. Enginn þeirra kvaddi dyra en bak við
gluggatjöldin sást gamla konan fylgjast með
aðförunum, eftir það fór hún aldrei ein út úr
húsinu, hjálpsamir grannar keyptu fyrir
hana nauðsynjar og litu til með henni.
Frakkaklæddu mennirnir áttu nú oftar er-
indi í gamla húsið, þeir voru ábúðarmiklir og
alvarlegir og ekki bama meðfæri að eiga við
þá orðastað. Altalað var að einhvem næstu
daga yrðu íbúar gamla hússins fluttir á
stofnun og húsið rifið, margir sögðu að það
hefði dregist alltof lengi, þetta hefði ekki náð
nokkurri átt að fólk byggi í svona lélegu og
heilsuspillandi húsnæði, lóðin alltaf full af
villiköttum og guð mátti vita hverju. Svo
vom þau gömlu hjónin bæði orðin mgluð og
elliær og gátu því hvenær sem var farið sér
að voða. Einn og einn maldaði í móinn, þau
voru svo viðkunnanleg og krakkarnir hændir
að þeim, væri ekki rétt að hjálpa þeim að
vera þarna meðan þau gætu. Það vantaði
vissulega bílastæði en -
Það var kaldur og drungalegur febrúar-
morgunn og þar að auki mánudagur, leiðin-
legasti dagur vikunnar, helgin að baki og
hversdagsleikinn allsráðandi. Á slíkum dög-
um em jafnvel hugmyndaríkustu ki-akkar
ekki í essinu sínu. Nokkrir þeirra stóðu undir
húsvegg og horfðu á gamla húsið. Tveir
horaðir og tætingslegir kettir hímdu í skjóli á
lóðinni og vonuðust eftir mat.
„Greyin, þeim er kalt og þeir em svangir,“
sagði einhver.
„Fömm og finnum mat handa þeim,“ sagði
annar.
„Við skulum kaupa fullt af mat handa
þeim.“ Og nú stóð ekki á framkvæmdum, allir
sparibaukar vom tæmdir í hasti og sumir
fengu sælgætispeningana fyrirfram. Það var
ekki oft sem svona margir krakkar vom sam-
ankomnir í búðinni á horninu.
„Okkur vantar helling af mat handa kött-
unum.“
„Emð þið með pening?" sagði búðareig-
andinn. Hann hafði ekki góða reynslu af
mörgum krökkum saman innan dyra í búð-
inni í einu. Og það var enginn fullorðinn með
þeim og aldrei að vita upp á hverju þessir
ormar tækju. Sum þeirra vissi hann að höfðu
meira að segja hrekkt gamalt fólk.
„Við eram með fullt af peningum.“ Hann
var til alls vís, strákurinn sem hafði orð fyrir
hópnum, spurall og uppátektasamur. Hann
hafði oft sést fylgjast með umferð embættis-
manna í garði gömlu hjónanna, hafði meira
að segja hent snjó í einn þeirra.
„Hvað ætlið þið að gera við kattamat?“
„Gamla konan er hætt að geta gefið kött-
unum og þeir em svo svangir." Maðurinn
horfði á rannsakandi á krakkana sem lögðu
fram aurana sína, flest vom með smápeninga
en nokkur með samanvöðlaðan seðil. Þeim
var alvara, á því var ekki vafi.
„Ég fékk nammipeninginn minn fyrir-
fram,“ sagði áköf rödd í hópnum.
„Ég tók alveg allt úr sparibauknum mín-
um.“ Maðurinn tók poka og fyllti hann af
kattamat og fékk einum krakkanna.
„Það er gott að einhver hugsar um kisum-
ar þegar gamla konan er farin,“ sagði hann.
„Hvert er hún að fara?“ „Farin hvert?“
„Er einhver að taka hana?“ Vemleg ókyrrð
komst á hópinn.
„Ætli þau verði ekki sett á elliheimili, það
er vaninn," sagði maðurinn.
„Ég er viss um að þau vflja ekkert fara á
elliheimilið," sagði einn krakkinn.
„Það er ekkert verið að spyrja að því, takið
þið aurana ykkar aftur, kisurnar verða
svangar seinna."
„Getum við ekki bara keypt gamla húsið,
þá þurfa þau ekki að fara á elliheimilið?" Það
var sá fyrirferðarmikli sem spurði.
„Ég er hræddur um að aurarnir ykkar
dugi ekki til þess, en ég er viss um að gömlu
konunni þætti gaman að fá blóm. Ef pening-
amir ykkar duga ekki þá skal ég bæta við.“ Á
allri ævi sinni höfðu krakkamir aldrei orðið
jafnhissa, þau vom því vönust að vera rekin
út úr búðinni með skömmum en nú ætlaði
maðurinn að gefa þeim peninga. Það var
þeirra skilningi alveg ofvaxið. Loks gat sá
fyrirferðarmikli ekki orða bundist.
„Það er bara alger lygi að þú sért okrari,
þú ert bara helvíti góður kall.“ Að þeim orð-
um töluðum þrammaði hersingin út, brosandi
út að eyram með fullan poka af kattamat.
Þegar þau komu inn í blómabúðina var eig-
andinn að tala í símann. Þegar hún hafði lagt
á snéri hún sér brosandi að krakkahópnum
með þeim orðum að hún hefði heyrt að þau
ætluðu að kaupa blóm handa gömlu konunni.
„Hún kallaði okkur stundum blessuð litlu
blómin,“ upplýsti minnsta stelpan í hópnum.
Konan sýndi þeim fullt af blómum og talaði
við þau eins og fullorðið fólk. Það fannst þeim
stórkostlegt, þessi kona var ömgglega af-
skaplega merkileg. I sameiningu bjuggu þau
til stóran og fallegan vönd, sem konan bjó um
með stakri vandvirkni. „Það er svo kalt úti“
sagði hún um leið og hún vafði einni pappírs-
örk enn utan um vöndinn. Hún tók við pen-
ingunum og taldi þá tvisvar.
„Er þetta nóg?“ var spurt lágri rödd.
„Ekki alveg, en góðir viðskiptavinir fá af-
slátt.“
Mikið var fullorðna fólkið gott í dag, þetta
hlaut að vera afskaplega merkilegur dagur.
Það voru hamingjusöm böm sem héldu áleið-
is að gamla húsinu.
f gærkvöldi reifst fulltrúinn við konuna
sína, það var ekki í fyrsta skiptið og hann var
viss um að það var heldur ekki í síðasta
skiptið. Enda tóku þau upp þráðinn strax
morguninn eftir, konan sagðist vera orðin al-
veg uppgefin á að búa með svona duglausum
manni í blokkarfbúð innan um allskonar
verkalýð. Hann væri bara fulltrúablók hjá
bænum og kæmist aldrei neitt áfram, það
sæist best á því að elliæmm gamlingjum lið-
ist að hírast áram saman í handónýtu kofa-
skrifli innan um almennileg hús. Hver einasti
maður með snefil af sómatilfinningu hlyti að
sjá þetta væri til háborinnar skammar fyrir
hverfið. Fulltrúinn reyndi að malda í móinn,
það væri nú verið að vinna í málinu, en af
gamalli reynslu vissi hann að mótbámr vom
eins og að hella bensíni á eld. Hann var að
verða of seinn í vinnuna en konan hafði ekki
lokið sér af, nú var gleymska hans og sauðs-
háttur umræðuefnið, konudeginum hefði
hann til dæmis gleymt og afmælisdeginum
hennar myndi hann örugglega gleyma líka.
Þegar hér var komið sögu ákvað fulltrúinn
að gleyma að kveðja, hann skálmaði út og
skellti á eftir sér.
Á götunni móts við gamla húsið stóð ►
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/USTIR 3. JANÚAR 1998 7