Lesbók Morgunblaðsins - 21.02.1998, Side 2
Morgunblaðið/Ásdís
ÞETTA fólk slær botninn í starfsár Kammermúsíkklúbbsins annað kvöld.
TÓNLEIKAR NÆSTA VETUR
Amis segir af
misþyrmingum
London. Reuters.
BRESKI rithöfundurinn Martin Amis sagði
nýlega frá því, að þegar hann hafí verið að
skrifa um frænku sína, sem var misþyrmt og
myrt af raðmorðingja, hafi rifjast upp hvernig
honum hafí sjálfum verið misþyrmt kynferðis-
lega af ókunnu fólki þegar hann var barn.
Amis sagði í viðtali við bandaríska netritið
Salon að frænka sín, Lucy Partington, hafi
horfið 1973, er hún var 21 árs. Hún hafi verið
ein þeirra að minnsta kosti 12 stúlkna sem
Fred og Rose West misþyrmdu kynferðislega
og myrtu síðan.
„Við vissum ekki hvað hafði komið fyrir
hana, fyrr en lík hennar var grafíð upp í garði
fjöldamorðingjans Freds Wests, árið 1995. Eg
gerði mér grein fyrir að þetta hafði verið á
ferðinni í undirmeðvitund minni, svo að ég fór
að skrifa um hana og Fred West. Eg komst
líka að því að ég var að skrifa um þrjú atvik
sem hentu mig þar sem ókunnugt fólk mis-
þyrmdi mér þegar ég var bam. I eitt skiptið
var það par. Pað var veisla í húsinu heima. Ég
var níu ára og var inni í svefnherbergi. Hann
sagðist vera læknir. Hún stóð bara í dyrun-
um. Svonalagað kemur manni af stað í hinar
undarlegustu áttir.“ Amis sagði að hin atvikin
tvö hefðu átt sér stað úti á götu og á strönd-
inni.
Frá því Amis gaf út fyrstu skáldsögu slna,
The Rachel Papers, þegar hann var 24 ára,
hefur yfirleitt blásið um hann.
AÆTLUN hefur verið gerð um tónleika á
næsta starfsári Kammermúsíkklúbbsins,
1998-99, sem er hið 42. í röðinni.
13. september 1998 er ráðgert að Sigrún
Eðvaldsdóttir og félagar flytji verk eftir Ha-
ydn, Dvorák og Mozart. 11. október mun
Camerarctica leika verk eftir Shostakovitsj,
Þorkel Sigurbjörnsson og Brahms. Á efnis-
skrá Guðrúnar Birgisdóttur og félaga 15. nóv-
ember verða verk eftir Beethoven og Mozart
og 11. janúar 1999 munu Tríó Reykjavíkur og
gestir spila verk eftir Beethoven, Ravel og
Brahms. Á lokatónleikum starfsársins, 28.
febrúar 1999, er svo fyrirhugað að Bernardel-
kvartettinn bjóði upp á efnisskrá með verkum
eftir Grieg og Beethoven.
Lokatónleikar
Kammermúsík-
klúbbsins á
starfsárinu
LOKATÓNLEIKAR Kammermúsíkklúbbs-
ins á þessu starfsári verða í Bústaðakirkju
á morgun, sunnudag, kl. 20.30. Fram koma
Edda Erlendsdóttir píanóleikari, fiðluleik-
ararnir Guðný Guðmundsdóttir, Auður
Hafsteinsdóttir og Ragnhildur Pétursdótt-
ir, Junach Chung víóluleikari og Sigurður
Halldórsson sellóleikari og á efnisskrá
verða verk eftir Chausson og Schumann.
Ernest Chausson (1855-1899) lét eftir sig
allmörg tónverk af mismunandi gerðum.
Það sem flutt verður í Bústaðakirkju er
ekki kammerverk í strangri merkingu, þótt
það sé leikið á sex hljóðfæri. Eins og nafn-
ið, Konsert fyrir fiðlu, pianó og strengja-
kvartett, gefur til kynna, er það konsert
fyrir tvö einleikshljóðfæri með samleik lít-
illar strengjasveitar. Verkið er samið í
rómantískum anda.
Árið 1842 var heillaár í lífi Schumanns.
Þá hafði hann í tvö ár verið giftur konunni,
sem hann unni. Hamingja hans var meiri en
nokkru sinni fyrr, svo og skáldlegt hugar-
flug. Þá um haustið samdi hann píanókvin-
tettinn, op. 44, sem fluttur verður annað
kvöld. Telja má kvintettinn eitt vinsælasta
verk á sviði kammertónlistar.
MATTIAS Wager leikur á orgel Hallgrímskirkju á sunnudag.
SÆNSKUR ORGELLEIKARI
í HALLGRÍMSKIRKJU
Wager er nú staddur hér á landi á vegum
sænska útgáfufyrirtækisins Opus 3 Records
við upptökur í Hallgrímskirkju fyrir geisla-
plötu, þar sem hann leikur tónlist fyrir orgel
og slagverk ásamt slagverksleikaranum And-
ers Ástrand, en þeir voru gestir Kirkjulista-
hátíðar í Hallgrímskirkju síðstliðið vor.
Á efnisskránni eru tvær umritanir Bachs á
verkum samtímamanna sinna þ.e. a-moll
konsert Vivaldis og aría í F-dúr eftir F.
Couperin, fantasíu um kantötustefíð Weinen,
Klagen, Sorgen, Zagen eftir Franz Lizt og
frjáls spuni um stef sem orgelleikari fær á
staðnum. Auk þess leikur Wager nýtt orgel-
vek eftir Anders Nilsson, sem nefnist Dóm-
kirkjan á fjallinu.
Mattias Wager er fæddur í Stokkhólmi ár-
ið 1967. Hann stundaði nám í kirkjutónlist og
orgelleik við Konunglega tónlistarskólann í
Stokkhólmi og lauk þaðan prófi í orgelleik og
spuna með Íáði. Hann hefur fengið styrk til
náms utan Svíþjóðar og nám hjá Johannes
Geffert í Bonn og hjá Naji Hakim í París.
Mattias Wager lilaut fyrstu verðlaun í al-
þjóðlegri keppni í St. Albans á Englandi og
Grand Prix d’improvisation „Pierre Cocher-
eau“ og Maruce Durflé-verðlaunin í fyrstu al-
þjóðiegu orgelkeppninni sem Parísarborg
hélt. Einnig vann hann fyrstu verðlaun í al-
þjóðlegri orgelkeppni í Stangnás í Svíþjóð og
verðlaun í alþjóðlegri orgelspunakeppni í
Haarlem í Hollandi 1992 og 1994.
LISTVINAFÉLAG Hallgrímskirkju gengst
fyrir orgeltónleikum nk. sunnudag kl. 17. Þá
leikur sænski orelleikarinn Mattias Wager
orgeltónlist eftir J.S. Bach, Franz Lizt og
Anders Nilsson, auk eigin spuna yfir gefið
stef.
Wager er af yngri kynslóð sænskra orgel-
leikara og hefur þegar hlotið fjölda verðlauna
fyrir orgelleik og leik af fingrum fram.
Styrktartónleikar
í Hveragerðis-
kirkju
JONAS Ingimundar-
son leikur á nýja
Steinway-flygilinn í
Hveragerðiskirkju
sunnudaginn 22.
febrúar kl. 16. Á efn-
isskránni eru fjórar
sónötur eftir Galuppi,
Mozart, Beethoven
og Schubert. Að-
gangseyrir er 1.000 kr. og rennur
óskiptur til flygilkaupanna.
MENNING/
LISTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Asmundarsafn - Sigtúni
Yfirlitssýning á verkum Ásmundar Sveins-
sonar.
Gallerí Fold
Þorfinnur Sigurgeirsson. Til 8. mars
Gallerí Sævars Karls, Bankastræti
Margrét H. Blöndal. Til 4. mars.
Galleríkeðjan Sýnirými
Gallerí Sýnibox: Karl J. Jónsson. Til 1. mars.
Gallerí Hlust: Karl J. Jónsson syngur „Graf-
skrift“. Síminn er 551 4348. Til 1. mars
Elsa D. Gísladóttir.
Listasafn Akureyrar
Vatnslitamyndir Ásgríms Jónssonar. Til 19.
apríl.
Listahorn, Laugavegi 20b
Ólafur Már Guðmundsson. Til 7. mars.
Listasafn Kópavogs - Gerðarsafn
Baltasar. Til 1. mars.
Listasafn Siguijóns Ólafssonar
Sýning vetrarins nefnist Svífandi form. Verk
eftir Sigurjón Ólafsson. Til 5. apríl.
Hafnarborg
Björg Þorsteinsdóttir sýnir vatnslitamyndir
og Kristján Jónsson sýnir málverk. Til 23.
febr.
Hallgrímskirkja, anddyri
Passíusálmar Hallgríms Péturssonar í list
Sveins Björnssonar.
Ingólfsstræti 8 - Ingólfsstræti 8
Sigurður Árni Sigurðsson. Til 29. mars.
Kjarvalsstaðir - Flókagötu
Úr Kjarvalssafni - Sýningarstjóri Thor Vil-
hjálmsson.
Líkamsnánd, norrænt sýningar- og safn-
fræðsluverkefni til 1. mars.
Landsbókasafn íslands - Háskólabókasafn
Passíusálmar Hallgríms Péturssonar - frá
handriti til samtíðar. Til 9. apríl.
Listasafn ASÍ - Ásmundarsalur,
Freyjugötu 41
Ásmundarsalur: Kristinn E. Hrafnsson.
Gryfja: Margrét Jónsdóttir. Til 8. mars. Arin-
stofa: Ný aðfóng. Til 29. mars.
Listasafn íslands
Ný aðíong. Salur 1-3. Til 3. mars.
Salur 4: Ásgrímur Jónsson, Þórarinn B. Þor-
láksson, Jón Stefánsson Jóhannes Kjarval.
Mcnningarmiðstöð Gerðuberg
Myndskreytingar úr íslenskum barnabókum.
Mokkakaffi
Ljósmyndasýning Gunnars Kristinssonar. Til
5. mars.
Norræna húsið
Anja Snell og Lisbet Ruth. Til 18. mars.
Norrænt ljós og myrkur: Rosa Liksom,
Merja Aletta Ranttila, Lars Pirak, Maj-Doris
Rimpi, Erling Johansson, Bengt Lindström
og Lena Stenberg. Til 22. mars.
Nýlistasafnið
Benedikt Kristþórsson, Anna Líndal, Andre-
as og Michael Nitschke.
Ráðhús Reykjavíkur
Sigþrúður Pálsdóttir. Til 26. febr.
Safn Ásgríms Jónssonar -
Bergstaðastræti 74
Kyrralífs- og blómamyndir ásamt myndum úr
Reykjavík og nágrenni. Til febrúarloka.
Sýning á uppstillingum og landslagsmyndum.
Til marsloka.
SPRON, Álfabakka 14, Mjódd
Bragi Ásgeirsson. Til 5. júní.
Stöðlakot
Guðbjartur Gunnarsson. Til 1. mars.
TONLIST
Laugardagur 21. febrúar Kirkjuhvolur,
Garðabæ: Skoskir tónlistarmenn. Kl. 17.
Sunnudagur 22. febrúar
Bústaðakirkja: Kammertónlist. Edda Er-
lendsdóttir, Guðný Guðmundsdóttir, Auður
Hafsteinsdóttir, Ragnhildur Pétursdóttir,
Junach Chung, Bryndís Halla Gylfadóttir. Kl.
20.30.
Hallgrímskirkja: Orgeltónleikar, Mattias Wa-
ger. Kl. 17.
Mánudagur 23. febrúar
Listasafn Kópavogs: Frönsk efnisskrá.
Martial Nardeau, Sigrún Eðvaldsdóttir,
Jönah Chang, Inga Rós Ingólfsdóttir og
Elísabet Waage.
Þjóðleikhúsið
Poppkorn, sun. 22., mið. 25., fós. 27. febr.
Hamlet, fös. 27. febr.
Meiri gauragangur, sun. 22., mið. 25. febr.
Yndisfríð og ófreskjan, sun. 22. febr.
Grandavegur 7, fím. 26. febr.
Kaffi, fim. 26. febr.
Borgarleikhúsið
Galdrakarlinn í Oz, lau. 21., sun. 22. febr.
íslenski dansflokkurinn: Útlagar, lau. 21., fós.
27. febr.
Hár og hitt, lau 21., fós. 27. febr.
Feitir menn í pilsum, lau. 21., fós. 27. febr.
Ástarsaga, sun. 22. febr.
Loftkastalinn
Bugsy Malone, lau. 21., sun. 22., mið. 25. febr.
Fjögur hjörtu, fös. 27. febr.
Á sama tíma að ári, sun. 22. febr.
Listaverkið, lau. 21. febr.
Islenska óperan
Ástardrykkurinn, lau. 21., fös. 27. febr.
Hafnarfjarðarleikhúsið
Hermóður og Háðvör
Síðasti bærinn í dalnum, lau. 21.,
sun. 22. febr.
Góð kona eða þannig, lau. 21. febr.
Grafarvogskirkja
Heilagir syndarar, mið. 18., fos. 27. febr.
Möguleikhúsið
Einar Áskell, lau. 21., sun. 22., mið. 25. febr.
Menningarmiðstöðin Gerðuber
Dimmalimm, sun. 22. febr.
Nemendaleikhúsið
Börn sólarinnar, lau. 21. febr.
Tjarnarbíó
Leikfélag MH
Machbeth, lau. 21. febr.
Skemmtihúsið
Ferðir Guðríðar, lau. 21., sun. 22. febr.
Kaffileikhúsið
Svikamyllan, frums. fim. 26. Fös. 27. febr.
Upplýsingar um listviðburði sem óskað er eftir að
birtar verði í þessum dálki verða að hafa borist bréf-
lega eða á netfangi fyrir kl. 16 á miðvikudögum
merktar: Morgunblaðið, Menning/iistir, Kringlunni
1, 103 Rvík. Myndsendir: 5691222. Netfang: menn-
ing @mbl.is.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 21. FEBRÚAR 1998