Lesbók Morgunblaðsins - 18.04.1998, Qupperneq 10
ÞAK sem straumar mætast er yfir-
skrift Listahátíðar í Reykjavík að
þessu sinni og fjölbreytt úrval at-
burða á opnunarhátíðinni þann
16. maí n.k. leggur línurnar í þeim
efnum. Listahátíð verður form-
lega sett við opnun fyrsta áfanga
Listasafiis Reykjavíkur í Hafnar-
húsinu og sýningu á úrvali verka úr Errósafni
Reykjavíkurborgar. Þennan dag verður flug-
drekasýning frá Kína við Reykjavíkurhöfn og
afríski danshópurinn Amlima skemmtir á stult-
um. Við Hljómskálann verður opnuð sýningin
Gatnamót eftir Vigni Jóhannsson þar sem sam-
an tvinnast málverk, tónlist og eldur í eitt alls-
herjar umhverfislistaverk. Skömmu síðar verð-
ur opnuð í Þjóðminjasafninu sýning á kirkju-
klæðum Margrétar Þórhildar Danadrottningar.
Listdans og aftur listdans
Listdansi verður gert hátt undir höfði á
Listahátíð að þessu sinni. Islenski dansflokkur-
inn minnist 25. ártíðar sinnar með afmælissýn-
ingu þann 4. og 5. júní í Borgarleikhúsinu. Þar
verða flutt verk eftir heimsþekkta danshöf-
unda; þá Jirí Kylián, Jorma Uotinen og Jochen
Ulrich.
Nederlands Dans Theater, NDT, er eitt
frægasta og virtasta danshús heims. Stjómandi
þess síðastliðinn 20 ár hefur verið Jirí Kylián
og velur hann til samstarfs við sig fjölþjóðlegan
hóp dansara og danshöfunda. Dansflokkurinn
þykir samþætta með eftirminnilegum hætti
klassískan dans og nútímadans, leikhús, tónlist,
myndlist. Flokkar yngstu og elstu dansara
Nederlands Dans Theater, NDT II og NDT
III, koma saman fram á Listahátíð í Borgar-
leikhúsinu 28. og 29. maí. Á efnisskrá verða
verk eftir Jirí Kylián, Hans van Manen, Johan
Inger og Paul Lightfoot.
Amlima eru listamenn úr þjóðarballetti Af-
ríkuríkisins Tógó sem á undanfómum árum hafa
sýnt á listahátíðum víða um Evrópu. Dans og
tónlist byggist á hefðbundnum helgiathöfnum
Tógóbúa þar sem saman fer seiðandi taktur og
dulúð vúdútrúarinnar. Sýningamar em litrík og
kraftmiki] blanda dans og fimleika þar sem sum-
ir dansaranna koma fram á 4 metra háum stult>
um. Sýningar Amlima verða í Borgarleikhúsinu
16. og 17. maí en eins og áður sagði munu lista-
mennimir einnig skemmta á opnunarhátíð
Listahátíðar við höínina þann 16. maí.
Archana Joglekar er virtasta dansmær Ind-
lands auk þess að vera fræg leikkona í sjón-
varpi þar í landi. I tilefni af 50 ára lýðveldisaf-
mæli Indlands flytur Joglekar danslist kennda
við Kathak á Norður-Indlandi í Iðnó 6. og 7.
júní. Þessi dans er upprunninn meðal farand-
skálda sem miðluðu sögum og ljóðum á ferðum
sínum.
Listreenl f jölleikahús og
tilraunaleikhús
Á mörkum danslistar og leiklistar er hópur
sirkuslistafólks í franska fjölleikahúsinu Le
Cercle Invisible. Að flokknum standa hjónin
Victoria Chaplin og Jean-Baptiste Thierrée.
Victoria er ein átta bama Charlie Chaplin og
þriðju eiginkonu hans Oonu O’Neill, dóttur
bandaríska leikritaskáldsins Eugene O’Neill.
Ásamt manni sínum hefur Victoria fundið hæfi-
leikum sínum eigin leið í listrænum sirkusi sem
er ný tegund af leikhúsi og sambland af trúð-
leik, töfrabrögðum og leiklist. Le Cercle Invisi-
ble kom fram í Kaupmannahöfn þegar hún var
menningarborg Evrópu 1996 og hlaut mikið lof
fyrir „yndislegustu og elskulegustu sirkussýn-
ingu“, svo vitnað sé í orð gagnrýnanda
Jyllands-Posten. Sýningar verða í Þjóðleikhús-
inu dagana 19., 20., 21. og 22. maí.
Irinas nya liv er leikrit eftir Nils Gredeby
sem kemur frá leikhópnum Unga Klara sem
starfar við Borgarleikhúsið í Stokkhólmi. Leik-
stjóri er Suzanne Osten. Leikritið er skrifað af
Nils Gredeby og byggist á bók sænsk/finnsku
skáldkonunnar Irinu von Martens sem er með
Downs heilkenni. Þetta er gamanleikur sem
lýsir sambýli þroskaheftra einstaklinga en leik-
persónumar lifa einnig í heimi barnabók-
mennta Astridar Lindgren. Höfuðpersónan er
Ronja Ræningjadóttir ásamt foreldmm Ronju
og vini hennar Birki. Og þegar mikið liggur við
er gott að eiga vin í Línu Langsokk. I stuttu
máli fjallar verkið um drauma og þrár þessara
NEDERLANDS Dans Theater undir stjórn Jirí Kylián heimsækir Listahátið í sumar og verður með
tvær sýningar í Borgarleikhúsinu.
ÞAR SEM STRAUMAR
MÆTAST OG
DRAUMAR RÆTAST
Innan fárra vikna verður Listahátíð sett í Reykjavík.
HULDA STEFANSDOTTIR lítur yfir mikinn fjölda
margvíslegra menningarviðburða sem verða í boði þær
þrjár vikur sem hátíðin stendur yfir.
einstaklinga með Downs heilkenni, löngunina
eftir því að vera „eðlileg." En löngun þeirra er
hræðslu blandin. Unga Klara hefur lengi verið
eitt framsæknasta leikhús á Norðurlöndum og
leiksýningin um líf Irinu hefur verið sýnd hjá
Borgarleikhúsinu í Stokkhólmi í tvö leikár.
Sýningar á Listahátíð fara fram í Borgarleik-
húsinu 24., 25. og 26. maí.
Frumflutningur nýrra tónverka og
endurmat fornrar túnlistar
I tilefni komu Margrétar II Danadrottningar
á Listahátíð verður efnt til hátíðartónleika í
Þjóðleikhúsinu henni til heiðurs þar sem fram
koma Danski útvarpskórinn og Caput.
Danski útvarpskórinn var stofnaður árið
1932 og er skipaður allt að 75 atvinnusöngvur-
um. Aðalstjómandi kórsins frá árinu 1989 er
Stefan Parkman. Kórinn hefur vakið heimsat-
hygli fyrir fágaðan söng og gefið út fjölda
geislaplatna. Kjarninn i efnisskrá kórsins er
flutningur a capella, söngur án undirleiks, frá
rómantíska tímanum auk kórverka frá þessari
öld, ekki síst verk norrænna tónskálda. Á tón-
leikunum á Listahátíð mun kórinn flytja tvo
rómantíska kórsöngva eftir Jörgen Jersild,
þrjár lofgjörðir eftir Peter Nörgard og hefð-
bundna norræna kórsöngva.
Ásamt því að koma fram á hátíðartónleikum
í Þjóðleikhúsinu gengst Caput tónlistarhópur-
inn fyrir tónleikum í Iðnó 22. maí. Caput hefur
sérhæft sig í flutningi á nýrri tónlist og á tón-
leikunum 17. maí frumflytja Caput og Sigrún
Eðvaldsdóttir fiðlukonsert eftir Hauk Tómas-
son. Haukur hlaut nýverið menningarverðlaun
DV fyrir óperuna Fjórði söngur Guðrúnar.
Jafnframt flytur Caput Minnelieder eftir Bent
Sörensen en á efnisskrá tónleikanna í Iðnó eru
auk fiðlukonsertsins eftir Hauk verkin Release
eftir Mark-Antony Turnage, Living Toys eftir
Thomas Adés og Stokkseyii eftir Hróðmar
Sigurbjörnsson við ljóð eftir ísak Harðarson
sem Sverrir Guðjónsson syngur.
Hljómsveitarstjórinn og gömbuleikarinn
Jordi Savall er frægasti núlifandi flytjandi end-
urreisnar- og barokktónlistar. Framlag hans
hefur leitt til algjörs endurmats á eldri tónlist,
ekki síst er hann stjórnaði tónlistinni í frönsku
kvikmyndinni Allir heimsins morgnar (Tous les
matins du monde) eftir Alain Corneau sem
varð til þess að forn tónlist náði miklum vin-
sældum hjá mun fleiri og yngri áheyrendum en
áður. Árið 1986 stofnaði Savall tónlistarhópinn
Hesperion XX ásamt eiginkonu sinni, sópran-
söngkonunni Montserrat Figueras og
AMLIMA eru listamenn úr þjóðarballetti Afríkuríkisins Togo
og verða með sýningar á Listahátíð.
CAPUT frumflytur m.a. tónverk eftir Hauk Tómasson á tvennum
tónleikum á Listahátíð.
JORDI Savall er gestur Listahá-
tíðar ásamt tónlistarhópi sínum.
bassalútu og gítarleikaranum Rolf Lislevand.
Montserrat Figueras hefur tileinkað sér
söngmáta endurreisnar- og barokktímans og
þróað mjög persónulegan söngstíl þar sem hún
hefur í heiðri hugmyndir um að tilfinningin að
baki orðunum skipti sköpum í túlkun og tækni
söngsins. Fyrir vikið hljómar söngur hennar
mjög „náttúrulega” og tilgerðarlaust og hefur
hún unnið til fjölda verðlauna fyrir söng sinn.
Rolf Lislevand er eftirsóttur einleikari og pró-
fessor við Tónlistarháskólann í Toulouse auk
þess sem hann heldur Master Class námskeið í
Austurríki, Noregi og á Spáni. Tónleikar hóps-
ins á Listahátíð verða haldnir í Hallgrímskirkju
25. maí. Á efnisskrá eru verk eftir Marin Mara-
is, Giulio Caccini, Targuinio Merula, Tobias
Hume, Juan Hidalgo, Sebastian Durón, José
Marin og Gaspar Sanz.
Chilingirian String Quartet með fiðluleikar-
anum Levon Chilingirian í fararbroddi er einn
vinsælasti kvartett heims og upptökur með
honum hafa verið gerðar af mörgum virtum
hljómplötuútgefendum á borð við EMI, Nimb-
LISTAHÁTÍÐ í
10 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 18. APRÍL1998