Lesbók Morgunblaðsins - 13.06.1998, Síða 8
Ljósmyndimar tók greinarhöfundurinn.
SYÐRI-Neslönd í Mývatnssveit. Nýja íbúðarhúsið frá 1952 og það eldra frá 1922. Hverfell, Lúdent og Búrfell í baksýn.
ÞRJÁR KYNSLÓÐIR
IBUÐARHUSA AÐ
SYÐRI-NESLÖNDUM
ISYÐRI-NESLONDUM í Mývatnssveit
standa enn saman þrjár kynslóðir íbúð-
arhúsa. Þau kúra hógvær á bæjarhóln-
um; það elzta að hruni komið og það
næstelzta verulega farið að láta á sjá.
Sigtryggur Þorsteinsson frá Strönd
keypti Syðri-Neslönd um síðustu alda-
mót og fluttist þangað með fjölskyldu sína
1902. Þá var á jörðinni lítill torfbær með fjós-
baðstofu og þrjú þrep voru upp í baðstofu,
þar sem voru fjögur rúmstæði. Þar var
einnig eldstó. Undir baðstofu var fjósið með
básum fyrir tvær kýr. Tvennar hlóðir voru
einnig í bænum, bæði í frambænum og í eld-
húsi. Brunnhús er þar einnig; ágætt vatnsból
sem innangengt var í. Þessi bær er nú að
falla ofan.
Arið 1922 var byggt reisulegt íbúðarhús
og tengt gamla bænum þannig að allt var
sem órofa heild. Yfirsmiður var Bárður Sig-
urðsson, síðar kenndur við Höfða í Mývatns-
sveit, þjóðhagasmiður. Þetta hús var fyrst
með panelklæðningu að utan en var síðar
klætt sléttu, zinkhúðuðu blikki til hlífðar og
einangrað með reiðingi.
A hæðinni eru tvær samliggjandi stofur og
var hægt að opna nær alveg þilið milli þeirra.
Varð þá til stærsta dansgólf sveitarinnar,
enda voru haldnir dansleikir þar. Kjallari er
undir stofum, en lofti skipt í þrjú kamers. I
norðurhlutanum er eldhús og tengigangur
upp í rjáfur. Eldunaraðstaða var fyrir tvær
fjölskyldur, alls um 10 manns. Tvær eldavél-
ar voru þar og mest kynt með taði. Stigi, sem
Kolbeinn Asmundsson á Stöng smíðaði, lá
upp á loftið. I stofunni var ekki miðstöðvar-
hitun, en hitað upp með stórum óni.
Arið 1952 var byggt nýtt timburhús að
Syðri-Neslöndum. Það var á einni hæð, as-
bestklætt. Yfirsmiður var Jóhannes Sig-
finnsson á Grímsstöðum, kunnur listasmiður.
Þessu húsi er haganlega fyrir komið aðeins
einum metra frá eldra timburhúsinu og voru
gerðar dyr úr glugga á eldra húsinu á móti
bakinngangi nýja hússins til þess að stytta
leiðina gegnum eldra húsið norður í gamla
bæinn, þar sem kýmar bauluðu enn. I nýja
húsinu var fyrst stór kokseldavél með mið-
stöð, en nú er kynt með rafmagni.
Þessu er öllu svo haganlega saman stillt að
EFTIR BIRKI FANNDAL HARALDSSON
TIMBURHÚSIÐ frá 1922, sem sambyggt var við gamla bæinn og lengst til hægri má sjá að
íbúðarhúsið, sem byggt var 1952, er ekki langt undan. Vindmylla sem búin er lifa sitt feg-
ursta, stendur enn að hluta til á stalli sínum.
GAMLI Neslandabærinn, uppfenntur í marzmánuði, þegar frostið fór upp í 35 stig.
NÝJA íbúðarhúsið í Syðri-Neslöndum, sem
byggt var 1952.
MJÓLKURKERRAN, gamall hestvagn, stend-
ur undir fjárhúsvegg á Syðri-Neslöndum og
hefur lokið hlutverki sínu.
ekkert rýfur samræmið. Bæjarhólinn ber að-
eins hærra en landið umhverfis. Hann er af
kyni fomrar jökulurðar og því eldri en Mý-
vatnshraunin sem mótað hafa Neslandstang-
ann. Af bæjai’hlaði hef ég þá tilfinningu að
vera staddur í miðri sveitinni, þar sem fagur
fjallahringurinn nýtur sín einkar vel og
hvergi betur.
Byggingamar þrjár mynda saman heild
sem að mínu áliti er mjög sérstök og má ef til
vill tala um mývetnskan arkitektúr? Mér
finnst rík ástæða til að húsfriðunamefnd
skoði þessa þrenningu þingeysks sveitabæj-
ar og varðveizlugildi hennar.
I Syðri-Neslöndum þynnist nú óðum
byggð. Þar er nú aðeins eftir ein háöldruð
kona, Sigurveig Sigtryggsdóttir, f. 1906.
Hún er hafsjór af fróðleik um liðna tíð og
vinnur ull, allt frá lagði til fagurrar flíkm’,
svo ekki gera aðrir betur. Að henni genginni
á ég ekki von á öðra en að búseta falli niður
þarna og eldri húsin tvö jafnist við jörðu, en
yngsta húsið verður þó efalaust nýtt sem
sumarhús.
A Syðri-Neslöndum er nýstandsett veður-
stöð, sem skráði stundum mestan kulda í
byggð á íslandi síðastliðinn vetur og kemur
það Mývetningum ekki á óvart; eina nótt í
marz varð þar 35 gráðu frost. I slíkum kuld-
um iýrri tíðar hefur ekki verið verra að hafa
ylinn af kúnum til að verma sér á löngum
vetrarnóttum, eða þá að hafa vatnsbólið inni
í bænum.
Við þetta má bæta því, að á morgun verð-
ur í sunnudagsblaði Morgunblaðsins viðtal
við Sigurveigu á Syðri-Neslöndum ásamt
ljósmyndum sem Ragnar Axelsson, ljós-
myndari Morgunblaðsins, hefur tekið.
Höfundurinn býr i Mývatnssveit.
I
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 13. JÚNÍ 1998