Lesbók Morgunblaðsins - 20.06.1998, Blaðsíða 8
H USGAGN ASYNINGAR
MARKAÐSHYGGJA OG/EÐA SIÐMENNTUN?
EFTIR ÁSDÍSI ÓLAFSDÓTTUR
Stórar al þjóðlegar sýning-
ar á sviði húsmuna, bíla.
fæðu o.s.frv. líkjast við
fyrstu sýn risavöxnum
markaðstorgum þar sem
sýnendur leitast við að ota
f. 'am sinni vöru og kaup-
endur prútta um verð og
skilyrði. Vi6 heimsókn á
hina árlegu húsgagnasýn-
ingu í París vaknaði sú
spurning hvort slíkar mess-
ur qeti einniq falið í sér
dýpri boðskap og jafnvel
vakið fólk til umhugsunar
um stöðu mannsins í þjóð-
félagi morgundagsins.
EINN framtíðarbása VIA innréttaður af Háberli og Marchand. (Mynd: D. Feintrenie, VIA)
E SALON du Meuble" er árviss við-
burður á fyrstu vikum janúar í lífi
Parísarbúa. Með sínum þúsund
sýnendum frá 38 löndum sem dreifa
framleiðslu sinni á 145.000 m2 fyrir yf-
ir 50.000 gesti likist þessi sýning lítilli
sem breiðir úr sér syðst í París
^^^^Tiar sem þjóðvegurinn til Versala byrj-
ar. Skipulagslega séð er þetta lýðræðisleg borg,
allar húsgagnategundir hafa sína umbjóðendur
og bása, frá sögulegum og sveitastíl til bama-
húsgagna. Einn er þó sá flokkur sem nýtur
vissra forréttinda og fær mesta athygli og um-
fjöllun, en það em nútímahúsgögn. Á tímum
örra tækniframfara, alnets og nýrra efna eru
húsgögn jafn virkur þáttur í nútímalegri ímynd
þjóða og tölvur og bílar. Land sem getur státað
af frumlegri hönnun og skapandi, ungum hönn-
uðum virðist vel búið undir stökkið yfir í 21.
öldina.
í París áttu nútímahúsgögn sér sérsvæði
kallað „La Métropole", sem var skipulagt og
sett á svið af Christophe Pillet, einum fremsta
af ungum hönnuðum Frakka í dag. Auk sýning-
arbása þátttakenda vora þar ýmsar uppsetn-
ingar undir yfirskriftinni „Alþjóðlegar leiðir
sköpunar". Þar mátti finna „Vitann“ sem sýndi
fram á víxlverkanir og samtvinnun uppfinninga
og nýjunga; einnig „Contents of Alien.s“ eftir
breska hönnuðinn Michael Young þar sem upp-
blásnar plastlengjur mynduðu hringlaga svæði
umhverfis súlu, en hreyfingar og nálægð gesta
höfðu áhrif á liti súlunnar og hljóð henni tengd
(sjá viðtal). Á ári hverju er valinn „hönnuður
ársins“ meðal nútímahönnuða og féll þessi við-
urkenning nú í skaut Bretanum Ross
Lovegrove. Einnig var gerð könnun á sölu-
hæstu nútímahúsgögnum árið 1997 í Frakk-
landi og skipar Frakldnn Philippe Starck þar
fyrstu fjögur sætin.
Þögul, óefniskennd
og mannleg framtíð
Á fyrirlestrinum sem Ross Lovegrove hélt
við móttöku verðlauna sinna lagði hann mikla
áherslu á hlutverk og ábyrgð hönnuðarins í
heildammhverfi mannsins. Hann kynnti feril
sinn og verk er einkennast einkum af lífrænum
formum og leit að hagkvæmum framleiðslu-
lausnum, og sagði framtíð hönnunar liggja í
sem bestri nálgun við náttúmna, með hjálp
nýrra efna.
Viljinn til að móta einhvers konar framtíðar-
sýn birtist einnig í bókaútgáfum þeim er tengd-
ust sýningunni. VIA, deild innan Félags
franskra húsgagnaframleiðanda, sem ætlað er
að stuðla að nýsköpun innan geirans, gaf út
RÝMISVERK Michael Young, „Contents of Aliens“. (Mynd: Salon du meubie de Paris 98)
bókina : 00, stillum mælana aftur á núlll, þar
sem félagsfræðingar, menningarfrömuðir, arki-
tektar og hönnuðir leita að svöram varðandi
framtíð mannsins. Þar segir ítalinn Ettore
Sottsass: „Fyrir mér er framtíðin þögn, saman-
þjöppuð þögn... ég held að list og arkitektúr séu
ef til vill síðustu svæðin þar sem hægt er að
hugsa, sem þýðir um leið að vekja til umhugs-
unar“ (bls. 44). Og Philippe Starck: „Fyrir mér
er algerlega nauðsynlegt að hið eiginlega óefn-
iskennda - í tölvutækni, upplýsingum og hvers
konar ferlum - sé afleiðing hins mannlega. Fyr-
ir mér mun 21. öldin ekki verða andleg, heldur
óefniskennd og mannleg" (bls. 160).
VIA leitaðist við að formgera þessar kenn-
ingar í fimm sýningarrýmum þar
sem ungir hönnuðir settu á
svið leitina að nýjum
lausnum við upphaf
næsta árþúsunds. Auk
þess að taka þátt í um-
ræðu dagsins í dag var
þetta einnig tækifæri fyr-
ir þessa hönnuði til að
koma á framfæri sköpun
sinni og ná athygli framleið-
enda.
Nýjwslu tilhneigingar
Sýningargestur á svo margþættri
og fjölbreytilegri sýningu leitast við að
draga það sem fyrir augu ber í afmark-
aða dilka. Undirritaðri sýndist að í
nútímahúsgagnahönnun skæra
sig úr eftirfarandi aðaltilhneig-
ingar sem virðast nokkum
veginn óháðar landsvæðum
og þjóðemi.
Léttleiki er það lýsingarorð
er fyrst og oftast kemur upp í
hugann. Hann kemur fram í
grönnum og léttum form-
um, svo og í efnisnotkun,
en þar era helst áberandi
ýmis ný plastefni, oft í pastellitum, og léttir
málmar svo sem ál og aðrar málmblöndur.
Verðlaunastóll Starcks, „Dr. No“, er lýsandi
dæmi um þessa stefnu, sætið er mótað í heilu
lagi úr plastefninu polypropylene og hvílir á ál-
röram.
Vönduð en jafnframt nútímaleg lúxushús-
gögn er annar áberandi þáttur. Þar fer saman
áhersla á vandaðan frágang, dýr efni og nú-
tímaleg form, oft með tilvísunum til annama
tímabila á þessari öld. Itölsku fyrirtækin Capp-
ellini og Driade og hin frönsku Ecart Studio og
Domeau & Pér'es sýndu húsgögn í eins konar
„lobbý“-stíl undir áhrifum áranna upp úr 1960,
nema að í stað appelsínuguls eða brúns gerviá-
klæðis era sófar og sessur nú klædd bómull,
hör eða leðri í fínlegum pastellitum.
Kringluleitt og litríkt eru orð sem mætti nota
yfir þriðja þáttinn. Hann er ólíkur þeim síðast-
talda að því leyti að þar eru form stór, mjúk og
allt að því barnaleg og má skilja sem vörn gegn
köldu kreppuþjóðfélagi. Dæmigerður hér er
kúlustóllinn „Glup“ eftir Sophie Larger sem sjá
mátti í mörgum básum í sterkum, glaðlegum
litum. Hann er nútímaleg útfærsla „Sacco“
stólsins frá 1968, sem er einmitt endur-
framleiddur nú af Zanotta, með silfurlitu
áklæði. Hins vegar virðist náttúra- og
endurnýtingarbylgjan vera mikið til
hjöðnuð í hönnunarheiminum, það sést
áberandi minna af tré- og pappahús-
gögnum en fyrir nokkrum áram. Skir-
skotanir til náttúrunnar er nú fremur
að finna í lífrænum formum en efnum,
svo og í ábyrgu viðhorfi hönnuða eins
og Philippe Starck og Ross
Lovegrove, sem líta á hönnun út frá
siðfræðilegu sjónarmiði.
Þegar á heildina er litið er viss tU-
hneiging tíl að sækja fyrirmyndir til
síðustu 20-30 ára, en heim-
færa þær á daginn í
dag með fram-
tíðarlegri
MICHAEL Young, Smartís (my 22),
framl. af Cappellini, Arosio.
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 20. JÚNÍ 1998