Lesbók Morgunblaðsins - 20.06.1998, Side 14
H IOI 'erfið er síbrey RFIN HÚS EFTIR GÍSLA SIGURÐSSON
Umh\ Tilegt. Bæði umhverfi náttúrunnar í landi sem sífellt er í
sköpur svo hið manngerða umhverfi. Hús sem settu svip á einstaka staði og
tengdust þeim órjúfanlega, hafa horfið. Sum hafa brunnið, önnur orðið að
víkja I yrir nýrri og stærri húsum.
Ljósmynd/Vigfús Sigurgeirsson
ÞRASTALUNDUR VIÐ SOGSBRÚ
ANNA
SNORRADÓTTIR
SÓNHENDA
Á HAUSTI
Er bátur minn á hafsins öldum hló
heyrði ég söng í lofti nótt og dag
himinsins fuglar fegurst áttu lag
ífomu húsi gömul klukka sló.
Og tíminn þaut ég þóttist heyra
óm
er þaninn strengur gladdi rrína sál
en nú er hljóðnað hússins undra-
mál
þótt heyra megi á kvöldi daufan
róm.
Himinsins fuglar flugu burt í gær
fennir á tinda stjömur blika dátt
á fögm himinhveli og hjarta sátt
hlustar á söng er ljóðið burtu rær.
Bátur sem fyrr á hafsins öldum hló
hljóðnaði um leið og gamla klukk-
an sló.
í ÁGÚST-
HÚMINU
Sólroðið haf í óskiljanlegum
litum
og í skapi sem ekki verður
skýrt.
Allt það sem er en við
sjáum ekki
allt sem við áttum og
skildum ekki
allt það ogfleira
sem fer ekki hátt
allt þetta flúr og látleysi í
náttúrunni
- allar þessar gjafir í
ágústhúminu -
allt þetta og andblær þess
fylgir mér áleiðis
BALLETTSKOR
í LINCOLN
CENTER
Smávaxnir ballettskór slitnir
tU sölu í búðarglugga -
ég skunda hjá
í Lincoln Center
með morgunkaffi í pappakrús.
Hvar dönsuðu þessir nettu fætur?
Hver átti þessa Utlu skó?
Kannski stúlkan
með hnút í hnakka
sem ég sá ígær tindilfætta hraða
sér á æfingu - orðin stór og dálítið
útskeif -?
SUMARKVÖLD
Á RHÓDOS
- þetta sumarkvöld var einstakt
og við reistum hús úr heitu rökkri
leiddumst hijóðlega inn íhúsið
þurftum ekkert ljós
settumst í dularfúllt rökkrið
drukkum úr sama glasi
„þetta kvöld kemur aldrei aftur“
sagðir þú, en það hefír aldrei farið
það varekki ætlast til neins
- þetta var hæverskt kvöld.
Höfundurinn býr í Reykjovík. Ljóðin eru í
nýrri Ijóðabók, í speglasal, sem út kom fyrir
siðushj jól. Áður hafo komið út tvær Ijóða-
báekur eftir höfundinn: Þegar vorið vor
ungt, 1990, og Bak v/ð ougo, 1993.
ÞRASTALUNDUR í Grímsnesi hefur ekki
verið til í 57 ár í þeirri mynd sem hér sést.
Nútímafólk þekkir Þrastalund sem sviplitla
skúrbyggingu við Sogsbrúna, þar sem veit-
ingar eru á boðstólum, hægt að fylla á tank-
inn og fá sér ís og kaffisopa í leiðinni. Sú var
tíð að hér stóð glæsileg bygging sem brann;
hús sem í útliti gat minnt á norskan skíða-
skála eða virðulegt klúbbhús á enskum eða
skozkum golfvelli.
Upphaflð má rekja til þess að hinn kunni
athafnamaður Tryggvi Gunnarsson hafði
eignast 45 ha spildu austan Sogsins, frá
brúnni og inn með ánni, þar sem var og er
enn kjarri og skógi vaxið hraun. Tryggvi gaf
þessa landareign Ungmennafélagi Islands
með gjafabréfi á 76. afmælidegi sínum árið
1911. Síðar var spildan nefnd Þrastaskógur
og þótti rómantískur og fallegur samkomu-
staður, en skemmtisamkomur voru stundum
haldnar þar á grasflöt. Þar er tjaldsvæði og
hafa göngustígar verið lagðir um skóginn svo
þar er ákjósanlegt útivistarsvæði. Árið 1989
var efnt til hugmyndasamkeppni um fram-
tíðarskipulag Þrastaskógar og er nú unnið
eftir þeim hugmyndum. Skóginum hafði ver-
ið skipt í reiti með tilliti til skógræktar og
átti nokkur ungmennafélög í Árnessýslu þar
sinn ræktunarreit.
Byggingin sem brann, Þrastalundur, á sér
hinsvegar það upphaf að einhvemtíma árs
1927 fór Elín Egilsdóttir, gistihúseigandi í
Reykjavík, fram á það við sambandsstjóm
UMFÍ, að „fá á leigu blett í suðurodda
Þrastaskógar við Sogsbrú, til þess að reisa
þar gesthús", segir í Skinfaxa, tímariti
UMFI. Þar segir eínnig að samningurinn við
Elínu hafi verið mjög strangur og að tryggt
sé að rekstor hússins verði UMFI til sæmd-
ar. Jafnframt var áskilið að UMFÍ ætti for-
kaupsrétt að húsinu og sé stefnt að því að
samband ungmennafélaganna verði með tím-
anum eigandi þess.
Á sumarmálum 1928 var hafizt handa og
Þrastalundur opnaður almenningi 1. júlí
sama ár. Svo segir í Skinfaxa frá þessu sama
ári:
„Húsið er reist í íslenskum burstastíl, eftir
uppdrætti er gert hefur Þorleifur Eyjólfs-
son, húsameistari. Allt er húsið hið prýðileg-
asta og stendur fyUilega á sporði sumargest-
húsum í nágrannalöndum vorum. Það er
snoturtvistlegt og mörgum þægindum bú-
ið.“ Á fjórða áratugnum urðu eigenda-
skipti, en án vitundar stjómar UMFI. Nýi
eigandinn var Sigurður Jónasson, þjóðkunn-
ur maður í embætti forstjóra Tóbakseinka-
sölu ríkisins og sá sem gaf ríkinu Geysi og
Bessastaði. En Sigurður átti Þrastalund ekki
lengi. Hann tilkynnti sambandi umgmenna-
félaganna um nýjan eiganda: Pál B. Melsted
heildsala og gaf um leið UMFÍ skuldabréf að
upphæð kr. 5000 sem varið skyldi til skóg-
ræktar.
í fyrsta hefti Skinfaxa 1941 segir frá því,
að nú hafi eigandi Þrastalundar, Páll B. Mel-
sted, leigt það brezka setuliðinu með ófyrir-
sjáanlegum afleiðingum fyrir Þrastaskóg.
Þessar afleiðingar urðu þó engar fyrir
skóginn, en þeim mun hörmulegri fyrir hús-
ið, sem brann síðla vetrar 1942. í Kaldaðar-
nesi var þá herflugvöllur og töluverð her-
stöð, en yfirmenn þar höfðu búið um sig í
Þrastalundi. Tekur Páll B. Melsted fram
vegna áðurgreindrar fréttar í Skinfaxa, að
hann hafi aldrei leigt herliðinu Þrastalund,
heldur hafi húsið verið tekið sem hvert ann-
að herfang gegn vilja sínum, enda hafi hann
farið með málið í Utanríkisráðuneytið. Hafi
hann fengið tvo daga til að rýma húsið og sé
ekki við sig að sakast um afleiðingar af þessu
hernámi.
Lengi stóð grunnurinn einn eftir þar sem
Þrastalundur hafði staðið og sett svip á stað-
inn. Það er langt í frá að vera rétt sem segir í
Skinfaxa, að Þorleifur hafi hannað húsið í ís-
lenzkum burstastfl. Þetta hefur verið stór
bygging með háu risi, en það sem setur svip
á hana og Skinfaxi kallar burstastíl, eru þrír
kvistir á suðurhliðinni. Þar verða að vísu til
þrjár burstir, en eitt af því fallegasta við
þetta hús er gluggaskipanin sem myndar
borða þvert yfir suðurhliðina; hver gluggi
með 9 rúðum. íslenzldr burstabæir skörtuðu
aldrei þeim glæsileika í gluggaskipan.
Myndina sem hér fylgir af Þrastalundi tók
Vigfús Sigurgeirsson ljósmyndari sumarið
1934. Þá hefur greinilega verið mikið um
dýrðir í Þrastalundi: Drossíur, rútubflar og
hálfkassar á hlaðinu og meðfram veginum,
en menn með hvíta kolla víðsvegar í kringum
húsið. Sú tilgáta að hér hafi fjöldi stúdenta
verið á ferð liggur beinust við, en er röng.
Tilefnið er hópferð Karlakórs Reykjavíkur,
en þá skörtuðu menn hvítum húfum í kórn-
um.
Við þetta er því einu að bæta, að nú þarf
að stíga á stokk og strengja þess heit í göml-
um ungmennafélagsanda að endurbyggja
Þrastalund, hvort sem UMFÍ gerir það á
eigin spýtur eða felur það einhverjum öðr-
um. Þá þarf að grafa upp teikningar Þorleifs
Einarssonar. En hafi þær af einhverjum
ástæðum glatazt, ætti að vera auðvelt að
endurteikna húsið eftir þeim útlitsmyndum
sem til eru.
Þorletfur Einarsson
húsameistari teiknaði
Þrastalund en húsið
brann veturinn 1942
eftir að brezki herinn tók
það til sinna nota.
14 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 20. JÚNÍ1998