Lesbók Morgunblaðsins - 21.11.1998, Side 2
• •
ASKELL HORFIR UM OXL
HORFT um öxl er yfirskrift tón-
leika sem haldnir verða í Iðnó í
dag. Verða þar flutt verk eftir
Áskel Másson tónskáld sem á 25
ára starfsafmæli um þessar
mundir. Tónleikarnir hefjast
klukkan 16.
Tónverkaskrá Askels telur um
eitt hundrað verk en tónskáldið
segir efnisskrá dagsins endur-
spegla einleiks- og kammertón-
verk hans í gegnum tíðina -
hvernig stíllinn hafí þróast.
„Nú seturðu mig í vanda,“ seg-
ir Askell þegar blaðamaður spyr
hvað hafi breyst á þessum aldar-
fjórðungi. Hann telur hæpið að
hann gæti í dag samið verk í
sama stíl og hann gerði árið 1973
- og þó! „Þegar ég fer að skoða tónsmíðar
mínar gegnum árin kemst ég að því að maður
kemst aldrei langt frá sjálfum sér.“
Verkin sem flutt verða á tónleikunum
spanna tuttugu ára_ tímabil á tón-
sköpunarferli Áskels, frá
1978-98. Eitt verk verður frum-
flutt, Sónatína fyrir klarínettu og
píanó, sem er svo nýtt af nálinni
að blekið er vart þomað, eins og
Áskell kemst að orði. Hjónin Sig-
urður Ingvi Snorrason og Anna
Guðný Guðmundsdóttir munu
flytja verkið en það er skrifað
með þau í huga.
Annað verk heyrist hér á landi
fyrsta sinni, Rhythm Strip fyrir
sneriltrommur. Flytjendur verða
Pétur Grétarsson og Steef van
Oosterhout. Var verkið frumflutt
í Bandaríkjunum fyrr á þessu ári.
Áskell mun sjálfur leika í einu
verkanna, Fantasíu, á hand-
trommuna darabúku. Með honum leikur Einar
Jóhannesson klarínettuleikari. Annars er
hljóðfæraskipan fjölbreytt í verkunum sem
eru átta talsins. Auk listamannanna sem þegar
hafa verið nefndir koma fram í Iðnó Blásarak-
vintett Reykjavíkur, Sigi'ún Eðvaldsdóttir
fíðluleikari, Bryndís Halla Gylfadóttir selló-
leikari, Einar Kristján Einarsson gítarleikari
og Guðmundur Kristmundsson víóluleikari.
Tónskáldið kann þessu fólki bestu þakkir
fyrir að leggja honum lið í Iðnó. „Þetta eru allt
eðalhljóðfæraleikarar sem sýna mér mikla
virðingu með því að koma fram á tónleikun-
um;“
Áskell hefur í mörg horn að líta um þessar
mundir. Hann er meðal annars að semja verk
fyrir norskt tríó sem fyrirhugað er að flytja í
níu menningarborgum Evrópu árið 2000. Þá
er hann að skrifa verk fyrir túbu og stóra
kammerhljómsveit sem frumflutt verður á
stórri tónlistarhátíð í Lahti í Finnlandi árið
2001.
Áskell er jafnframt með í smíðum fiðlu-
konsert handa Sigrúnu Eðvaldsdóttur, sem
hann vonast til að ljúka við innan tveggja ára,
og slagverkskonsert sem Evelyn Glennie, hin
skoska, hefur óskað eftir að fá að frumflytja.
Á TÓNLEIKUNUM í Snælandsskóla koma fram liðlega 100 hljóðfæraleikarar sem æft hafa
fyrir þessa tónleika frá því í haust. Myndin var tekin á æfingu.
SKÓLAHUÓMSVEIT KÓPAVOGS
UMRÆÐUFUNDUR UM
MÓTUN LISTAHÁSKÓLA
(SLANDS
NÝIR
MÖGULEIKAR
KORTLAGÐIR
FÉLAG um Listaháskóla fslands efnir til
umræðufundar um mótun stefnu Listahá-
skólans í Norræna húsinu á mánudags-
kvöld. Fundinum er ætlað að byrja að
safna í hugmyndapott fyrir skólann og ef
undirtektir verða góðar er gert ráð fyrir
að slíkir fundir verði fleiri, að sögn Péturs
Einarssonar, formanns Félags um Lista-
háskóla íslands.
Frummælendur á fundinum verða Páll
Skúlason háskólarektor, Gunnar J. Ama-
son listheimspekingur og Hjálmar H.
Ragnarsson, nýráðinn rektor Listaháskól-
ans. Þeir munu flytja stutt erindi og að
þeim loknum verður fundargestum hugs-
anlega skipt upp í umræðuhópa svo að
sem flestir eigi kost á að tjá sig, að sögn
Péturs. „Við höfum hingað til verið í bið-
stöðu eftir að skólinn yrði stofnaður. Nú er
loksins búið að stíga það skref og meira að
segja kominn rektor,“ segir Pétur. „Nú er
að hefjast mótunarferli og við verðum að
gefa okkur góðan tíma í það. Við erum að
búa til nýjan skóla með alveg nýjum
möguleikum og það þarf að kortleggja þá,“
segir hann.
Fundurinn hefst kl. 20.30 á mánudags-
kvöld í Norræna húsinu og er opinn öllum
félagsmönnum í Félagi um Listaháskóla
íslands, sem eru nú þegar vel á þriðja
hundrað, að sögn formannsins.
SUÐRÆNT I
SKÓLAHLJÓMSVEIT Kópavogs heldur tón-
leika í íþróttahúsi Snælandsskóla laugardag-
inn 21. nóvember kl. 15. Yfirskrift tónleikanna
er Suðrænt í Snælandi.
Þessir tónleikar eru að því leyti frábrugðnir
öðrum tónleikum hljómsveitarinnar, að allri
tónlist sem flutt verður fylgir ákveðinn suð-
rænn blær og á rætur sínar að rekja til í Suð-
ur-Ameríku og Afríku Spánar og Arabíu. M.a.
eins og Tequila, La Bamba og La Cumparsita
og lög úr teiknimyndunum um Lion löng og
SNÆLANDI
Aladdin. Einnig verður flutt verk í fjórum
þáttum sem samið er um ákveðna kastala á
Spáni.
Á tónleikunum koma fram liðlega 100 hljóð-
færaleikarar sem æft hafa fyrir þessa tónleika
frá því í haust og hafa helgarferðir í æfínga-
búðir verið stór hluti af undirbúningnum.
Hljóðfæraleikararnir eru mislangt komnir í
námi, sumir eru að stíga sín fyrstu spor á tón-
leikapall en aðrir hafa allt að 7 ára nám að
baki.
STEINUNN ÞÓRARINSDÓTTIR MYNDHÖGGVARI
FÆR GÓÐA
NÚ UM stundir stendur yfir sýning á verkum
Steinunnar Þórarinsdóttur myndhöggvara í
borgarlistasafninu í Kristianstad í Svíþjóð.
Gagnrýnendur hafa farið lofsamlegum orðum
um verk Steinunnar en hún sýnir þar 18 verk
unnin í gifs, járn, blý og gler. Kristianstadborg
hefur fest kaup á tveimur verkum hennar og
verða þau sett upp í borginni nú á næstunni.
Bera Nordal forstöðumaður listasafnsins í
Málmey opnaði sýninguna og hélt um leið stutt
erindi um verk Steinunnar og stöðu þeirra í ís-
lenskri samtímalist.
Gagnrýnandinn Jörgen Klinthage segir í
Norra Skáne að verk Steinunnar taki á ýmsum
krefjandi spumingum tilvistarstefnunnar (ex-
istensialismans) um frelsi og helsi mannsins og
um samband anda og efnis. Thomas Kjellgren
gagnrýnandi í Kristianstadsbladet segir m.a. að
myndmál Steinunnar sé ákveðið, beinskeytt og
um leið klassískt. Hún fari ekki í kringum hlut-
ina. Um eitt verkanna, „Rauður þráður", segir
hann: „í einfaldleika sínum er þetta verk hreint
snilldarlega margslungið og lýsir vel flókinni
tilvist manneskjunnar. Það er jafnframt í verk-
um sem þessum sem Seinunn Þórarinsdóttir
nær lengst og dýpst í list sinni.“
DOMA I SVIÞJOÐ
Ljósmynd/Amaldur Halldórsson
STEINUNN Þórarinsdóttir myndhöggvari.
MENNING/
LISTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Ásmundarsafn - Sigtúni
Yfirlitss. á verkum Ásmundar Sveinssonar.
Fálkahúsið, Hafnarstræti 1
Greipar Ægis: Sandskúlptúrar. Til áramóta.
Gallcri Bflar & iist
Hildur Waltersdóttir. Til 10. des.
Gallerí Borg
Pétur Gautur. Til 6. des.
Gallerí Fold, Rauðarárstíg
Zhang Hong. Til 22. nóv.
Gallerí Horn
Lára Halldórsdóttir. Til 2. des.
Gallerí Listakot
Hrönn Vilhelmsdóttir og Charlotta R. Magnús-
dóttir. Til 28. nóv.
Gallcrí Sævars Karls
Sjónþing Hannesar Lárussonar. Til 25. nóv.
Hafnarborg
Úrval verka Sigurjóns Ólafssonar. Til 23. des.
Hallgrímskirkja
Benedikt Gunnarsson. Til 1. des.
Ingúlfsstræti 8
Guðmunda Andrésdóttir. Til 29. nóv.
Kjarvalsstaðir
Austursalur: „Framsýning: Foroysk nútíðarlist".
Vestursalur: Nýjar kynslóðir í norrænum arki-
tektúr. Miðsalur: Myndlist og tónlist: Halldór Ás-
geirsson og Snorri Sigfús Birgisson. Til 20. des.
Listasafn ASÍ
Ásmundarsalur: Anna Þóra Karlsdóttir. Gryfjan:
Sigríður Ágústsdóttir. Arinstofa: Kristinn Pét-
ursson. Til 6. des.
Listasafn Einars Jónssonar, Skólavörðuholti
Opið laugardaga og sunnudag 14-17.
Höggmyndagarðurinn opinn alla daga.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn
Sæmundur Valdimarsson. Til 13. des.
Listasafn Islands
80/90. Speglar samtímans. Til 31. jan.
Listasafn Siguijóns Ólafssonar
Sigmjón Ólafsson _ Ævi og list. Til 1. des.
Listaskálinn í Hveragerði: Haustsýning. Til 13.
des.
Listhós Ófcigs, Skólavörðustíg
Sigrún Jónsdóttir. Þjóðbúningar. Til 9. des.
Menningarmiðstöðin Gerðubergi
Sjónþing Hannesar Lárussonai'. Til 31. des.
Mokkakaffi, Skdiavörðustíg
Þóroddur Bjamason. Til 20. des.
Norræna húsið, Hringbraut
Herdís Tómasdóttir. Til 29. nóv.
Anddyri: Ljósmyndir Ujuukulooqs. Til 1. des.
Nýlistasafnið
Þóroddur Bjarnson, Lilja Björk Egilsdóttir, Að-
alsteinn Stefánsdóttir, Hjörtur Hjartarson og
Pétur Guðmundsson. Til 29. nóvember.
Stofnun Árna Magnússonar, Árnagarði v. Suð-
urgötu
Handritasýning. Þriðj., mið., fim. 14-16. Til 14.
maí.
SPRON, Mjódd
Jón Axel. Til 19. feb.
TONLIST
Laugardagur
Ráðhús Reykjavíkur: Lúðrasveit verkalýðsins.
Kl. 14.
Langholtskirkja: Kór- og Gradualekór Lang-
holtskirkju. Kl. 17.
Iðnó: Kammertónleikar með verkum Askels Más-
sonar. Kl. 16.
Tjarnarbíó: Tjarnarkvartettinn. Kl. 16.
Sunnudagur
Hafnarborg: Hlíf Sigurjónsdóttir, fiðluleikari,
Junah Chung, lágfiðluleikari og Sigurður Hall-
dórsson, sellóleikari. Ki. 20.30.
Þriðjudagur
Gerðuberg: Einieikstónleikar David Bobroff
kontrabassabásúnuleikara. Kl. 20.30.
Iðnó: Camerarctica leikur rússneska tónlist. Kl.
20.30.
Miðvikudagur
Hafnarborg: Sólrún Bragadóttir og Margaret
Singer. Kl. 20.30.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið
Abel Snork býr einn, frums. fós. 27. nóv.
Maður í mislitum sokkum, lau. 21., íim. 26., fös.
27. nóv.
Solveig, lau. 21., sun. 22. nóv.
Bróðir minn ljónshjarta, sun. 22
Tveir tvöfaldir, fim. 26., íös. 27. nóv.
Borgarleikhósið
Grease, lau. 21., sun. 22. nóv.
Sex í sveit, lau., 21., fim. 26., fös. 27. nóv.
Mávahlátur, sun. 22. nóv.
Sumarið 37, lau. 21. nóv.
Iðnó
Dimmalimm, sun. 22. nóv.
Rommí, lau. 21, fös. 27. nóv.
íslenska óperan
Avaxtakarfan, sun. 22. nóv.
Hellisbúinn sun. 22., fim. 26. nóv.
Loftkastalinn
Fjögur hjörtu, sun. 22. nóv.
Listaverkið, lau. 21. nóv.
Hafnarfjarðarleikhúsið
Vírus, lau. 21., fim. 26. nóv.
Síðasti bær í dalnum, sun. 22 nóv.
Skcmmtihúsið, Laufásvcgi 22
Ferðir Guðríðar, sun. 22. nóv.
Sjúnleikur. Tjarnarbíó
Svartklædda konan, lau. 21. nóv.
Nemendaleikhúsið, Lindarbær
Anton tsjekhov, lau. 21., sun. 22., mið 25. nóv.
Leikfólag Kópavogs
Betri er snurða í þræði en þjófur I húsi, irums.
lau. 21. nóv.
Leikbrúðuland Fríkirkjuvcgi 11
Jólasveinar einn og átta, sun. 22. nóv.
Möguleikliúsið við Illemm
Snuðra og tuðra, lau. 21. nóv.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 21. NÓVEMBER 1998