Lesbók Morgunblaðsins - 04.12.1999, Blaðsíða 2
FÍLHARMÓNÍUSVEIT New
York-borgar mun í maí á næsta
ári flytja tónverk Áskels Másson-
ar, Konsertþátt fyrir litla
trommu og hljómsveit, á sex tón-
leikum. Stjómandi verður Leon-
ard Slatkin og einleikari Evelyn
Glennie.
Fernir tónleikanna eru í áskrift
en tvennir í barnatónleikaröð
hljómsveitarinnar sem Leonard
Bernstein gerði fræga með sjón-
varpsþáttum á sjötta áratugnum.
Fyrr á þessu ári var Konsert-
þáttur Askels fluttur af National
Symphony Orchestra í Kennedy
Center í Washington og einnig af
Cleveland Orchestra á Blossom-
hátíðinni í Cleveland með sama hljómsveitar-
stjóra og einleikara.
„Þetta eru ákaflega ánægjuleg tíðindi," seg-
ir Askell. „Ég átti ekki von á þessu en greini-
legt er að þetta kemur í beinu framhaldi af
flutningnum í Washington og Cleveland.
Slatkin hefur sýnt verkum mínum mikinn
áhuga og segja má að hann beri hitann og
þungann af því að kynna þau vestra, ásamt
Evelyn að sjálfsögðu. Bandaríkin eru lang-
stærsti markaður fyrir svona tónlist í heimin-
um og þess vegna hefur þetta mikla þýðingu."
Áskell segir áhuga á verkum sínum vera að
aukast í Bandaríkjunum og
nýverið skrifaði hann undir
bráðabirgðasamninga við tvo út-
gefendur vestra þess efnis að þeir
gefi út tíu verk eftir hann á
prenti. „Mér líst mjög vel á þessa
aðila en þeir eru í tengslum við
búðir og dreifingaraðila ekki bara
í Bandaríkjunum heldur víða í
Evrópu líka.“
Kynntu þessir aðilar verk Ás-
kels á stærstu slagverkshátíð
sem haldin er, Pasic, en hún fór
fram í Bandaríkjunum á dögun-
um. „Það gekk ágætlega en þessa
hátíð sækja allir sem með ein-
hverjum hætti tengjast slag-
verki.“
Af Áskeli er það jafnframt að frétta að hann
hefur nýlokið við stóran einleikskonsert sem
tileinkaður er Evelyn Glennie. Segir hann
Evelyn stefna að því að æfa konsertinn eins
fljótt og hún getur og flytja sem fyrst á tónleik-
um. „Staður og stund hafa þó ekki verið ákveð-
in enda er Evelyn ákaflega upptekinn tónlist-
armaður, spilar næstum því annan hvem dag
ársins á tónleikum, hvorki meira né minna.“
Evelyn er stödd í Þýskalandi þessa dagana,
þar sem hún leikur meðal annars verk ef'tir
Áskel, en það er tileinkað sameiginlegum
kennara þeirra sem lést á árinu.
SÖNGSVEITIN
FÍLHARMÓNÍA
ÞRENNIR
AÐVENTU-
TÓNLEIKAR
AÐVENTUTÓNLEIKAR Söngsveitarinnar
Fílhannóníu verða þrennir að þessu sinni og
verða haldnir í Langholtskirkju. Tónleikarnir
hafa yfírskriftina Heill þér himneska orð og
eru þeir fyi'stu annað kvöld, sunnudagskvöld,
kl. 20.30.
Flutt verða jóla- og hátíðarverk frá ýmsum
tímum. Flest þeirra eru á geisladiski Söng-
sveitarinnar, Heill þér himneska orð, sem
nýkominn er út.
Við flutning af hluta efnisskrárinnar nýtur
kórinn fulltingis hljómsveitar sem skipuð er
hljóðfæraleikumm úr Sinfóníuhljómsveit ís-
lands og er konsertmeistari hennar Rut Ing-
ólfsdóttir.
Einsöngvari með kórnum er Sigrún Hjálm-
týsdóttir en einnig syngur hún aríuna Rejoice
greatly, 0 daughter of Zion úr Messíasi og
Jesú Bambino eftir P.A. Yon. Þá eiga tónieika-
gestir þess kost að taka undir með í þremur
laganna á tónleiknum.
Stjórnandi Söngsveitarinnar Fílharmóníu
er Bernharður Wilkinson.
Tónleikarnir verða endurteknir þriðjudag-
inn 7. og miðvikudaginn 8. desember og hefjast
einnig kl. 20.30.
FÍLHARMÓNÍUSVEIT NEW YORK-BORGAR
____________r__________
FLYTUR KONSERTÞÁTT
ÁSKELS MÁSSONAR
Áskell Másson
JOLAUNDIR-
BÚNINGURÁ
ÁRBÆJARSAFNI
JÓLASÝNING Árbæjarsafns verður opin
sunnudagana 5. og 12. desember næstkomandi
kl. 13-17. Á jólasýningunni gefst gestum tæki-
færi til að fylgjast með undirbúningi jólanna
eins og hann var í gamla daga.
Flest hús safnsins verða opin þessa daga. í
Árbænum sitja fullorðnir og börn með vasa-
hnífa að skera út laufabrauð. Síðan er það
steikt í eldhúsinu og gestum boðið að bragða á.
Einnig verða búin til kerti bæði úr tóig og vaxi
í skemmunni. Uppi á baðstofulofti verður
spunnið, prjónað og saumaðir roðskór. Þar
verða einnig krakkar að vefja jólatré lyngi og
jólasögur verða lesnar. í Hábæ verður hangi-
kjötið komið í pottinn og leikfangasýningin í
Komhúsi hefur fengið jólasvip, þar verður
einnig sýnt jólaföndur. Klukkan 14 verður
messa í safnkirkjunni og klukkan 15 hefst jóla-
trésskemmtun á Torginu. Jólasveinar, þessir
gömlu íslensku, verða á vappi um safnsvæðið
frá kl. 14 til 16.30 hrekkjóttir og stríðnir.
Söngsveitin Fílharmónía heldur þrenna aðventutónleika í Langholtskirkju að þessu sinni.
MorgunblaðiS/Golii
Jochen Ulrich stjórnar æfingu í Borgarleikhúsinu.
Dansarar íslenska dansflokksins æfa Diaghilev: Goð-
sagnirnar.
ISLENSKI DANSFLOKKURINN
HEIMSFRUMSYNIR VERK EFIR ULRICH
ISLENSKI dansflokkurinn heimsfrurnsýnir
11. febrúar næstkomandi í Borgar-
leikhúsinu nýtt verk eftir Jochen Ulrich.
Kallast það Diaghilev: Goðsagnirnar og er
lokaþáttur þrfleiks um Sergeij Diaghilev,
stjórnanda Les Ballets Russes í París í
upphafi þessárar aldar.
Diaghilev: Goðsagnirnar verður fimmta
verk Ulrichs sem íslenski dansflokkurinn
setur upp en þetta er í annað sinn sem
hann semur sérstaklega fyrir flokkinn. UI-
rich kom fyrst til Isiands fyrir tuttugu ár-
um, 1980, þegar hann setti upp Blindings-
leik við tónlist Jóns Ásgeirssonar.
MENNING/
LISTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Ásmundarsafn:
Verk Ásmundar Sveinssonar.
Galleri@hleminur.is:
Sara Björnsdóttir. Til 19. des.
Gallerí Reykjavík:
Ebba Júlíana Lárusdóttir. Til 1. jan.
Gallerí Smíðar/Skart:
Ragnheiður I. Ágústsdóttir. Til 4. des.
Gallerí Stöðlakot:
Linda Eyjólfsdóttir. Tii 5. des.
Gallerí Sævars Karls:
Vignir Jóhannsson. Til 19. des.
Gerðuberg:
Eiríkur Smith. Til 9. jan.
Hafnarborg:
Sigurður Magnússon. Hrönn Axelsdótt-
ir. Lárus Karlsson. Tan Baoquan og
Wu Zhanliang. Til 13. des.
Hallgrímskirkja:
Leifur Breiðfjörð. Til 16. feb.
i8, Ingólfsstræti 8:
Magnús Pálsson. Til 5. des.
Islensk grafík
Smámyndasýning. Til 19. des. Skúffu-
gallerí félagsmanna.
Kjarvalsstaðir:
Ragna Róbertsdóttir. Til 19. des.
Listasafn ASÍ:
Ingimar Ólafsson Waage, Karl Jóhann
Jónsson. Harpa Björnsdóttir. Til 5. des.
Arinstofa: Verk úr eigu safnsins.
Listasafn Akureyrar:
Stefán Jónsson.Yfirlitssýning á vegum
safnsins. Til 5. des.
Listasafn Einars Jónssonar:
Opið laugardaga og sunnudag kl. 14-17.
Höggmyndagarðurinn opinn alla daga.
Listasafn íslands:
Ásgrímur Jónsson.Verk í eigu safnsins.
Til 21. des. Kaffist. Dunganon. Til 31.
des.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar:
Verk Sigurjóns Ólafssonar.
Norræna húsið:
Kalevala. Til 31. des.
Nýlistasafnið:
Didda Hjartardóttir Leaman, Þórunn
Hjartardóttir, Olga Bergmann og Anna
Hallin. Til 12. des.
Sparisjóður Garðabæjar:
Átta myndlistarkonur. Til 31. des.
Stofnun Árna Magnússonar:
Handritasýning opin þriðjudaga-föstu-
daga kl. 14-16. Til 15. maí.
TÓNLIST
Laugardagur
Fríkirkjan í Reykjavík:
Ýmsir fíytjendur. Kl. 14.
Islenska óperan:
Arnaldur Arnarsson gítarleikari. Kl.
16.
Hafnarborg:
Syngjandi jól. Kl. 13.
Langholtskirkja:
Hljómskálakvintettinn, Kvintett Coret-
to og Jón Stefánsson organisti. Kl. 17.
Sunnudagur
Hallgrímskirkja:
Scola Cantorum. Kl. 17.
Bústaðakirkja:
Kammermúsíkklúbburinn. Kl. 20.30.
Langholtskirkja:
Söngsveitin Fílharmónía. Einsöngur
Sigrún Hjálmtýsdóttir. Kl. 20.30.
Þriðjudagur:
Langholtskirkja:
Söngsveitin Fílharmónía. Kl. 20.30.
Miðvikudagur:
Langholtskirkja:
Söngsveitin Fílharmónía. Kl. 20.30.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið:
Krítarhringurinn, 4., 8, , 9. og 10. des.
Glanni glæpur í Latabæ, 4. og 5. des.
Abel Snorko býr einn, 5. des.
Borgarleikhúsið:
Bláa herbergið, 4. og 10. des. Litla
hryllingsbúðin, 4. og 9. des. Fegurðar-
drottningin frá Línakri, 4. og 10. des.
Pétur Pan, 5. des. Leitin að vísbend-
mgu..., 27. og 5. des.
Islenska óperan:
Mannsröddin, 8. des. Baneitrað sam-
band, 4. des.
Iðnó:
Frankie & Johnny, 10. des.
Kafflleikhúsið:
Ó, þessi þjóð, 4. og 10. des.
Bæjarleikhúsið Mosfellsbæ:
Kötturinn sem fer sínar eigin leiðir, 4.
og 5. des.
Hjáleigan Kópavogi, Leikfélag Kópa-
vogs:
Kirsuberjagarðurinn, 4. og 5. des.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 4. DESEMBER 1999