Lesbók Morgunblaðsins - 04.12.1999, Síða 20
HASKOLINN EFNIR TIL SAMKEPPNI UM LAG VIÐ KVÆÐIJONASAR HALLGRIMSSONAR
TIAAABÆRT AÐ HA-
SKOLINN EIGNIST
SINN SÖNG
Háskóli íslands á sér engan háskólasöng en það
stendur brátt til bóta, því nú hefur verið efnt til
samkeppni um lag við eri ind iúrlj óði eftir Jónas Hall 1-
grímsson, sem hefur að geyma eii nkunnarorð Háskc >i-
ans, „Vísindii n efla alla dáð". MARGRÉT SVEIN-
BJÖRNSDÓTTIR hitti Guðrúnu Björk Guðsteinsdóttur,
dósent í ensku við HÍ, sem átti frumkvæðið að
saml< :epF Dninni um i háskólasöng.
ÞEGAR Guðrún er spurð hvemig hugmyndin
um samkeppnina hafi komið tii segist hún ein-
hverju sinni hafa verið stödd á samkomu í Há-
^skólanum og farið að hugsa um hvort það væri
virkilega ekki til háskólasöngur. Hún hugsaði
með sér að réttast væri að skrifa grein í Frétta-
bréf Háskólans til að vekja athygli á málinu. Lít-
ið varð hinsvegar úr því enn um sinn. „Svo datt
tækifærið upp í hendumar á mér þegar farið var
að skipuleggja fræða- og menningarhátíð Há-
skóla Islands í tengslum við dagskrá Reykjavík-
ur menningarborgar Evrópu á næsta ári,“ segir
Guðrún Björk Guðsteinsdóttir. Hún er ásamt
Ástráði Eysteinssyni prófessor hópstjóri á dag-
skránni Borgarmenning- Listalíf, sem er liður í
fyrmefndri íræða- og menningarhátíð sem fram
V«rí Háskólanum dagana 26.-28. maí 2000.
Tillaga Guðrúnar fékk strax góðar undirtekt-
ir þegar hún kynnti hana í hópstjóm. Fram-
kvæmdin var síðan rædd og þróuð í undirbún-
ingshópi fyrir dagskrána Borgarmenningu -
Morgunblaðið/Sverrir
Fyrir aftan Guðrúnu Björk Guðsteinsdóttur - og fyrir ofan dyrnar að Hátíðarsal Háskóla íslands -
má sjá fyrstu línurnar í erindinu sem verður í framtíðinni háskólasöngurinn.
Listalíf. „Þegar við fóram að ræða um hvort við
ættum líka að hafa samkeppni um texta, kom-
umst við fljótt að þeirri niðurstöðu að það væri
best að halda sig við fimmta erindið í ljóði Jónas-
ar Hallgrímssonar, „Kveðja til herra Páls Gaim-
ard“, en í því em einkunnarorð Háskólans, „Vís-
indin efla alla dáð“. Ljóðið var upphaflega flutt í
samsæti Islendinga í Kaupmannahöfn árið
1839, nánar tiltekið í Stúdentafélaginu," segir
Guðrún.
Lagið f rumf lutt í Háskólanum 26. maí
Lagið á að vera kórlag án undirleiks og að
sögn Guðrúnar er skilyrði að það sé auðlært og
henti vel til samsöngs við hin ýmsu tækifæri.
Nótur skulu merktar dulnefni og nafn höfundar
fylgja í lokuðu umslagi, merktu dulnefninu. Til-
lögur skulu sendar fyrir 1. febrúar 2000 til sam-
skipta- og þróunarsviðs Háskóla íslands. Veitt
verða tvenn verðlaun, að upphæð 150.000 og
50.000. Urslit keppninnar verða kynnt við opn-
un fræða- og menningarhátíðar Háskólans að
kvöldi 26. maí, og Háskólakórinn fmmflytur
verðlaunalagið. I dómnefnd em, auk Guðrúnar,
Egill Gunnarsson, stjómandi Háskólakórsins,
sem jafnframt er formaður nefndarinnar, Öm
Óskarsson, MA í tónlistarstjómun, Reynir Ax-
elsson, dósent í stærðfræði og Páll Skúlason há-
skólarektor.
Söngur sameinar
Guðrún segir að þó að samkeppni sé mikil í
Háskólanum þá viti hún ekki til þess að þar hafi í
annan tíma verið haldin samkeppni um lag.
Henni þykir það löngu tímabært að Háskóli ís-
lands eignist sinn söng og geri um leið eitthvað
meira úr einkunnarorðum sínum en að hafa þau
fyrir ofan dymar á hátíðarsal skólans og vitna í
þau í ræðum á tyllidögum. Guðrún bendir blaða-
manni á áletmnina fyrir ofan innganginn að há-
tíðarsalnum, þar sem fyrstu línur erindisins
standa gylltum stöfum. Ljóðlínumar vom sett-
ar þar upp þegar aðalbygging Háskóla íslands
var vígð árið 1940. Á þeim tæpu sex áratugum
sem liðnir em síðan hafa stafimir gylltu smátt
og smátt fallið niður og týnt tölunni, þar til ein-
kunnarorðið í fyrstu línunni stóð eitt eftir. „Það
var eitt af fyrstu embættisverkum Magnúsar
Diðriks Baldurssonar, aðstoðarmanns rektors,
að hafa uppi á þessum stöfum og láta setja þá
upp aftur,“ segir Guðrún. í ljós kom að í kassa
hjá húsverðinum lá slangur af stöfum en búnir
vom til nýir stafir til að bæta í eyður þeirra sem
glataðirvom.
Guðrún segir að Páll Skúlason háskólarektor
hafi unnið markvisst að því að endurvekja gaml-
ar hefðir og skapa nýjar og hún telur að
hljómgrunnur sé fyrir því innan veggja Háskól-
ans, hefðimar séu til þess fallnar að efla sam-
kennd háskólaborgara. Sjálfri þykir Guðrúnu
afskaplega gaman að syngja og hún er á því að
söngur sameini. „Við eram að vonast til að fá
svolítið kröftugt og skemmtilegt lag, því að
þetta erindi kvæðisins er mjög öflugt,“ segir
hún.
Háskóli íslands
VISINDIN
EFIA ALLA
DAÐ
FIMMTA erindið úr kvæði Jónasar Hall-
grímssonar, „Til herra Páls Gaimard",
sem brátt mun hljóma sem söngur Há-
skóla íslands, hljóðar svo:
Vísindin efla alla dáð,
orkuna styrkja, viljann hvessa,
vonina glæða, hugann hressa,
farsældum vefja lýð og láð;
tífaldar þakkir því ber færa
þeim, sem að guðdómseldinn skæra
vakið og glætt og vemdað fá
viskunnar helga fjalli á.
WWW.ROGB.IS
SERVERSLUN MEÐ HLJOMTÆKI • SKIPHOLTI 25 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 511 6333 • INFO@ROGB.IS
þigallcaf langað
til að heyra hvað hann er að segja
Við blðjumst velvirðingar á þvl að
ílest hljómtæki okkar hljóma svo
skýrt að þú heyrir gjarnan eitthvað
sem þú áttir ekki von á.
REYNISSON
& BLÖNDAL
20
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 4. DESEMBER 1999