Lesbók Morgunblaðsins - 11.03.2000, Síða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 11.03.2000, Síða 10
Eyðikot, gömul hjáleiga frá Óttarsstöðum, er nú sumarbústaður. : 11 ■ 3 7 ,ÍJS .. .... *» „KOMIN ER SÓLIN KEILI Á OG KOTIÐ LÓNA" UM BYGGÐ OG NÁTTÚRU í HRAUNUM GREIN OG LJÓSMYNDIR GÍSLI SIGURÐSSON Tólf bæir, lögbýli, hjáleig- ur og þurrabúðir stóðu á ströndinni frá Straumsvík suðurað Lónakoti. Þarvar kallað í Hraunum og heitir svo enn þó að nú sjáist þar aðeins garðar, tóftir og nokkrir sumarbústaðir. Þarna er unaðsreitur feg- urðar, samt minna þekktur en vert væri. Hér verður í þremur greinum rifjað upp ýmislegt um sögu byggð- arinnar, búskap, náttúru- gæði og landmótun í Hraunum. Komin er sólin Keili á og kotið Lóna, Hraunamennimir gapa oggóna, Garðhverfínga sjá þeirróna. Þessi gamli húsgangur um nágrannana í Garðahverfi og Hraunum segir sína sögu um kappsfulla sjósóknara sem réru á bátskeljunum sínum frá vörum í Hraunum og frá Dysjum í Garðahverfi. Sjóróðrar voru snar þáttur í lífsbar- áttunni, ekki sízt á Hraunabæjunum þar sem landkostir voru litlir og landþrengsli mikil. Þá hefur munað um sjávarfangið, en ekki hefur alltaf verið heiglum hent að lenda í Ottarsstaðavör þeg- ar norðanáttin rekur ölduna beínt á hraunbrún- imar sem skaga út í fjöruna. Það hefur á hinn bóginn ekki verið talið gott til afspumar að híma í vomum þegar sólin var komin „Keili á og kotið Lóna“ og Garðhverfmgar byrjaðir að lemja sjó- inn. Fyrir utan Óttarsstaðavör ýttu menn á flot úr Eyðikotsvör og nokkrum vörum við Straumsvík- ina: Péturskotsvör, Jónsbúðarvör, tvær varir voru við Þýzkubúð og ein vör var kennd við Straum. Meðalbú 18-20 lcindur og 1 -3 kýr Annar bjargræðisvegur á Hraunabæjunum var sauðfjárbúskapur, sem hefur þó verið í smá- um mæli hjá flestum vegna þess að túnin voru varla annað en smáblettir og engjar ekki til. Hins- vegar var treyst á kvistbeit í hraununum og ekki tíðkaðist að taka sauði á hús. Þeir vom harðgerð- ar skepnur; leituðu sér skjóls í hraunskútum í af- tökum, en gengu hrikalega nærri beitarlandinu. Á heimildum eins og Jarðabók Árna Magnús- sonar og Páls Vídalín má sjá að algeng búfjáreign á Hraunabæjunum í upphafi 18. aldar hefur verið 1-3 kýr og aðeins 18-20 kindur. Síðar á sömu öld snarfækkaði fé af völdum fjárkláðans sem átti upptök sín skammt frá, á Elliðavatni. Búfé í Hraunum fjölgaði á 19. öld og fram á þá 20. Þá var algengt að 80-100 fjár væri þar á bæjunum, svo og tvær mjólkandi kýr og ef til vill ein kvíga að auki. Á stærri jörðunum áttu menn tvo hesta en smá- kotin stóðu ekki undir hrossaeign. Af manntölum má sjá að víða hefur verið mann- margt á kotunum og stórir bamahópai- komust þar upp. Það er nútímafólki gersamlega óskiljan- d 1 O LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 11. MARS 2000

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.