Lesbók Morgunblaðsins - 03.06.2000, Qupperneq 4
ASTA SIGU RÐARDOTTIR
- LIF HENNAR OG LIST
EFTIR
KRISTÍNU RÓSU ÁRMANNSDÓTTUR
Ásta Sigurðardóttir storkaði viðteknu siðgæði og
gerði uppreisn gegn rík jandi gildum samfélagsins.
Hún var áberandi í bæjarlífinu, ögraði og storkaði al-
menningsálitinu, en var sjálf fjölhæfur listamaður,
jafnvíg á ritlistog myndlistog leitaði í þjóðsagna-
1 brunninn þegar hún skapaði þjóðsagnaspilin.
Ásta Sigurðardóttir. Myndin birtist í tímaritinu Líf og list með grein eftir Ástu um leirmunalist.
Ekki er víst hvort gripirnir eru eftir Ástu, en af myndinni að dæma er hún að skreyta einn.
/
ILandsbókasafni, Háskólabókasafni
stendur Kvennasögusafn íslands þessa
dagana fyrir sýningu á verkum Ástu Sig-
urðardóttur. A sýningunni eru málverk
og önnur verk eftir Astu en án efa ber
þar hæst afar sérstök og merkileg spil
sem Ásta hannaði og málaði. Við gerð
spilanna sækir hún hugmyndir í Lslensk-
an þjóðsagnabrunn og skreytir hvert mannsspil
með myndum af persónum úr þjóðsögunum.
Ásta mun hafa haft fullan hug á því að gefa spil-
in út en entist ekki aldur til þess.
Ásta Sigurðardóttir var fædd 1. apríl árið
1930 að Litla-Hrauni í Kolbeinsstaðahreppi á
Snæfellsnesi. Bærinn er í hrauninu á sjávar-
ströndinni sunnan við prestssetrið Stórahraun.
Litla-Hraun var harðbýlt og jörðin afskekkt.
Ásta ólst þar upp til 14 ára aldurs þegar hún
flutti til Reykjavíkur til að mennta sig og lauk
hún landsprófi árið 1946. Um haustið lá leið
hennar í Kennaraskólann og útskrifaðist hún
með kennarapróf árið 1950, aðeins tvítug að
aldri. Hugur Ástu stóð aldrei til kennslu. Hún
sýndi fljótlega einstaka listræna hæfileika bæði
á sviði rit- og myndlistar. Ásta var fjölhæf og
lagði einnig stund á grafík og leirkerasmíði
ásamt skreytingu leirkera. Sögur hennar og
myndir bera vott um tilfinningaríka og hrein-
skipta listakonu, sem á ögrandi hátt storkaði
viðteknu siðgæði í smábænum Reykjavík um
miðja 20. öld. Ásta hafði að atvinnu að sitja fyrir
sem nakið módel myndlistarnema og varð með-
al annars þess vegna vinsælt umræðuefni bæj-
arbúa og var stundum kölluð Ásta módel.
Árið 1957 tók Ásta saman við skáldið Þorstein
frá Hamri og eignuðust þau fimm börn, - þrjá
drengi og tvær stúlkur, en fyrir átti Ásta einn
son með Jóhannesi Geir listmálara. Leiðir henn-
ar og Þorsteins frá Hamri skildu. Árið 1967 gift-
ist hún Baldri Guðmundssyni. Ásta Sigurðar-
dóttir dó langt um aldur fram, 21. desember árið
1971, aðeins fjörutíu og eins árs að aldri.
Ásta Sigurðardóttir er mörgum Islendingum
kunn sem höfundur smásögunnar „Sunnudags-
kvöld til mánudagsmorguns“. Sagan birtist í
tímaritinu Lífí og list árið 1951 og vakti mikla
athygliogumtal.
Ásta var í félagsskap atómskálda og vöktu
smásögur hennar mikla athygli. Árið 1961 safn-
aði hún sögum sínum saman í bók og nefndi eftir
fyrstu smásögu sinni „Sunnudagskvöldi til
mánudagsmorguns". Dúkristur Ástu prýða
bókina, táknrænar myndir sem tjá og túlka
textann. I bókinni Sögur ogljóð, sem kom út ár-
ið 1985, birtist heildarsafn smásagna hennar og
þoða.
Ásta skrifaði greinar í tímarit og má t.d.
nefna grein um leirkerasmíði sem birtist í tíma-
ritinu Lífí og list árið 1951, þar teflir Ásta fram
skoðunum sínum á þróun þessarar fomu list-
greinar hér á landi. Frásögnin „Frá mýri,
hrauni og fjörusandi", birtist í bóldnni ísland í
máli og myndum árið 1961. Átthaga- og
náttúrulýsingar Ástu eru einstaklega mynd-
rænar og áreiðanlega með því besta sem ritað
hefur verið á íslensku um mýrar, hraun og
fjallasýn á Snæfellsnesi og sýna afburða vald
Ástu á íslenskri tungu. Lesandinn skynjar nátt-
úruna eins og væri hann staddur í eigin persónu
í heimahögum hennar. Lýsingin höfðar til allra
skynfæra; augu, eyru og lyktarskyn eru örvuð,
tilfinningar vakna og kyrrð færist yfir hugann.
Ásta hafði næma og tilfmningaríka skynjun á
fegurð náttúru og umhverfis og bjó yfir einstök-
um hæfileika til að miðla og tjá náttúrusýn,
enda var hún mjög vel að sér í grasa- og
náttúrufræði. Ljóð þjóðskálda og ljóðabækur
segja samtímamenn hennar að hún hafi kunnað
utan að, auk þess sem hún hafði á hraðbergi
sögur og tilvitnanir úr bókmenntum, þjóðsög-
um, fomsögum og sögum biblíunnar. I frásögn-
inni „Frá mýri, hrauni og fjömsandi“ lýsir Ásta
því hvemig andleg upphafning gerði vart við sig
við að hlýða á fuglasöng og hún fylltist orku;
ímyndunaraflið losnaði úr læðingi í „þessari
risaveröld“ fjalla og jökla og hugurinn spann
ævintýri og sögur en í sjávarmálinu öðlaðist
hugur hennar frið:
Yfir holtadregnu mýralandinu hvílir sæll frið-
ur og andi guðs svífur yfir keldunum í líki lóu
sem syngur dýrðin dýrðin. Trúlegast þykir mér
að hann sé að lofsyngja sjálfum sér og sínum. Þá
má heyra spóa vella í hverri veisu, einn er rétt
að fá upp hitann þegar bullsýður hjá öðmm og
úr þessu verður einn vellandi kliður sem rennur
beint inní sálina og hefur þau áhrif að maður
verður góður, glaður og þakklátur...
Sterka gróðuranganina af nýsprottinni blá-
stör og hringabroki leggur fyrir vit manns og
ekki vantar litadýrðina í mýrina: hvítir sinuflók-
ar skreyttir grænkandi bláberjalyngi, ljósgular
mýrasóleyjar, blátt lyfjagras, allskonar maríu-
lyklar og himnaríkislyklar í ótal hvítum og blá-
um litum. Á mýrarauðanum er regnbogalit
jámlá og lútuð dýjasortan bullar upp úr hveiju
spori.
Þessi óviðjafnanlegi þokki mýralandsins blátt
áfram seytlar um mann, einkum ef maður er
berfættur.
Réttlætisgyðjan
Ásta Sigurðardóttir storkaði viðteknu sið-
gæði og gerði uppreisn gegn ríkjandi gildum
samfélagsins um konur og gegn smáborgara-
legum viðhorfum til kvenna. Ásta féll ekki að
hugmyndum samfélagsins um hvemig konur
áttu að haga sér. Hún var áberandi í bæjarlífinu,
ögraði og storkaði almenningsálitinu þannig að
vakti athygli, drakk og reykti, klæddi sig í
óhefðbundin litrík föt og notaði sterkan and-
litsfarða og varaliti. Hún mætti miklum fordóm-
um og var umtöluð. Það var erfitt fyrir unga
stúlku utan af landi að takast á við allt umtalið
og athyglina sem hún fékk. Hún var viðkvæm
og áfagið var mikið, en þessi stolta og sjálfstæða
stúlka lét ekki kúga sig, neitaði að vera óvirk og
undirgefin og bar höfuðið hátt.
Ásta hafði sterka réttlætiskennd og hlut-
skiptí lítilmagnans lá henni á hjarta. Kom þetta
skýrt fram í sögum hennar og ljóðum. í bréfi
sem Ásta sendi bömum sínum ásamt afsteypu
af sjálfri Réttlætisgyðjunni, segir hún meðal
annars:
Réttlætisgyðjan hefur bundið fyrir augu sín
svo að þau, þetta næma skilningarvit blindi ekki
dómgreind hennar. Þetta er að vísu táknrænt
en hveiju bami auðskilið Ég vona að við getum
þyngt skál réttlætisins með því að stríða aldrei
aumingjum, með því að létta sjúkum byrðina,
með því að hafa ekki fé af fátæklingum, gerið
ekki skepnum mein, hjálpið þeim sem van-
megna er vegna heilsuleysis og fátæktar. Að
síðustu ellefta boðorðið og kannski það mikil-
vægasta: Það sem þér viljið að aðrir menn gjöri
yður, það skuluð þér og þeim gjöra.
Jafnréttisbaróttan
Yrkisefni Ástu Sigurðardóttur vom konur,
böm og dýr og fjalla smásögur hennar margar
um konur sem eru utangátta í lífmu. Þær em á
jaðri samfélagsins og eiga ekki samleið með
öðm fólki. Sögupersónumar skera sig úr fjöld-
anum og þeim er í mun að samfélagið taki þær í
sátt. Persónur hennar túlka mikla togstreitu,
annars vegar á milli eigin óska og hins vegar
krafna samfélagsins. Óskir þeirra og þrár falla
ekki að hugmyndum og kröfum samfélagsins en
kröfurnar era smáborgaralegar hugmyndir um
hvemig konur eigi að vera og haga sér og em í
engu samræmi við þeirra eigin óskir.
Hugsunarháttur samfélagsins í þá daga var
að steypa alla í sama formið og helst mátti eng-
inn vera öðravísi en tiltekin gildi sögðu til um,
og stóð ekki á gagnrýni og fordæmingu. Þor-
steinn frá Hamri lýsir þessu vel í bókinni Stríð
og söngur. það var algengt að gert væri aðkast
að fólki sem var á einhvem hátt öðravísi en aðr-
ir, sem kallað er, en það er reyndar gamalgróinn
siður á voru landi, Islandi.
Það segir töluvert um tíðarandann að smá-
sögum Ástu Sigurðardóttur var yfirleitt tekið
með mesta kotungsbrag. Þær þóttu hneykslun-
arhella og jafnvel hinn versti ósómi. Nú orðið
kann fólk hins vegar að meta þær sem fagrar
bókmenntir. Þegar ég kynntist Ástu þótti mér
alveg óskaplegt hvað fólk gat verið smátt í sál-
inni. Smám saman fór manni að standa á sama
um þessi viðhorf fólks. Þótti þau svo ómerkileg
að það tæki því ekki að láta sér sáma. En ég við-
urkenni að stundum fýkur ennþá í mig þegar ég
hugsa til þessara tíma. Ég hef alla tíð haft
megna skömm á lágkúruhætti, hvers kyns sem
hann er.
Athyglisvert er að skoða líf og sögur Ástu
Sigurðardóttur í sögulegu samhengi íslenskrar
kvennabaráttu. Því hefur stundum verið haldið
li'am að kvenréttindabaráttan hafi liðið undir
lok þegar konur öðluðust kosningarétt og kjör-
gengi árið 1915. Reyndar var það sannfæring
margra kvenna að með þessum réttindum væri
takmarkinu náð, en konum varð fljótlega ljóst
að ekki var allt fengið með kosningaréttinum
einum saman.
í kvennabaráttunni hafa verið tvö uppgangs-
tímabil, hið fyrra stóð frá 1880-1920 og hið síð-
ara hófst með Rauðsokkunum áiið 1970. Sumir
kalla tímabilið 1920-1960 stöðnunarskeið jafn-
réttisbaráttunnar.
Þegar Ásta fæðist og síðar þegar hún er að
skrifa sögur sínar og vinna að list sinni er tíma-
bil þagnar í kvennabaráttu í íslensku þjóðfélagi.
Kynslóðin á undan Ástu hafði náð fram auknum
kvenréttindum; kosningarétti, lqörgengi og
menntun. Breytingarnar sem orðið höfðu á
stöðu kvenna, birtust í sjálfsímynd uppvaxandi
kynslóðar kvenna og togstreitan var mikil. Kon-
ur fá aðeins að hluta til að vera með í karlasam-
félaginu, þær höfðu náð fram ákveðnum réttind-
um en vora að öðra leyti þaggaðar.
Steingrímur St. Th. Sigurðsson ritstjóri tíma-
ritsins Líf og list segir um sögu Ástu í grein
sinni Asta og Líf og list sem birtist í tímariti
Máls og menningar árið 1986:
Sunnudagskvöld til mánudagsmorguns er
merkileg að því leyti, og ég hef oft íhugað það,
að þetta er sennilega fyrsta sagan eftir kvenrit-
höfund sem hefur það að hugsjón að ljóstra upp
um karlrembuháttinn í íslensku samfélagi og
víðar.
Steingrímur segir einnig í íyrmefndri grein:
4 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 3. JÚNÍ 2000