Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 03.06.2000, Qupperneq 7

Lesbók Morgunblaðsins - 03.06.2000, Qupperneq 7
og nokkur kona getur verið - hún unni bónda sínum djúpt og heilshugar - en jafnframt var hún jafn þögul og hún var ástúðleg. En hér var hann mættur. Með þeirri list- gáfu sem ásótti hann stöðugt - hvort sem hann var staddur á söfnum, í skólum eða inni í vinnustofu sinni - hafði honum tekist að gefa til kynna líkamlega návist og endurgera mannslíf. Hann hafði skapað gegnheil form og rými í þrívídd. Leland Bell vissi mæta vel að til að endurgera líf í listaverki þýðir ekki að líkja eftir raunveruleikanum. Slík endur- gerð krefst málningar og meiri málningar, af- dráttarlausra pensildrátta en ekki ófrumlegra eftirlíkinga. Pannig tókst honum að færa okk- ur sjálfa tilvistina í sinni mögnuðustu mynd. Um leið gerði hann listaverk sem iða af þokka, leik og kímni. Af smitandi andríki. Þetta er eitt af mörgu sem hann afrekaði í myndlist sinni. Temma Bell ✓ UPPI HÆRRI HÆÐIR Eftir Jed Perl í MÁLVERKINU Yfir garðinn og inn til hrútanna geri ég ráð fyrir að Temma hafí viljað undirstrika frá- sögnina í myndinni. Titillinn virkar kannski ögn undarlega en í mynd- inni má greinilega sjá handbragð meistarans í ryþma pensilstrok- anna. Hún dregur viðfangsefni sín beint úr hversdagslífi sínu fjarri stórborginni. Garðurinn í forgrunn- inum, með hundum og hænum og girðingu sem er þakin vínviði, er eins og vettvangslýsing úr skáld- sögu. Þaðan leiðir hún okkur fram hjá undurvel málaðri trjákrónu út á grængullinn akur og að djúpbláum hæðum. Hún grípur áhorfandann með öruggum en áreynslulausum strokum, rispum og litum. Það sem greinir þessa mynd Temmu frá minni landslagsmyndum hennar er það hve mikla fjölbreytni hún getur túlkað hér og ákafinn sem er greini- legur í því að fanga slíka fjölbreytni. Temma sameinar mikla nákvæmni og áreynsluleysi til að kveikja í þessu norðaustur-landslagi ein- hvern undarlegan sætleika sem minnir einna helst á barnaævintýri. Hún er einn af þessum sjaldgæfu landslagsmálurum sem hugsar bæði bókstaflega og skáldlega, jafnvel svo að þess- ir tveir þættir verða eins og bergmál hver af öðrum. Hið minnsta smáatriði er þrungið til- finningu og breiðar hreyfingar virðast þéttar og sértækar. Enginn samtímamálari þekkir betur hið gjöfula fjölskyldulíf en Temma Bell. I röðum af kyrralífsmyndum, innimyndum, mannamyndum og landslagsverkum sem hún sýndi í Bowery-listhúsinu blandast ólík við- fangsefni saman. Borð þakið graskerum dregur augað að landslagi sem sést út um gluggann, sjálfsmynd verður að tvöfaldri mannamynd þegar barn birtist í horninu. All- ar myndirnar snúast um það líf sem Temma lifir með manni sínum og þremur dætrum á búgarði þeirra nyrst í New York ríki og hin fjölbreytilegu viðfangsefni - landslag að hausti, vori eða vetri, stúlkur sofandi eða að leik, listakonan sem móðir með smábarn eða stálpaða telpu - minna helst á flókna atburð- arás í langri skáldsögu. Alls staðar er eitt- hvað til að skoða í myndum Temmu, ávextir og grænmeti, vasar með blómum, krukkur og flöskur, myndir, húsdýr og börn. Hvert atriði er liður í þessari heimilissögu en hvert atriði er líka leit að lausn á tæknilegu vandamáli í málaralistinni og þótt það sé of djúpt í árinni tekið að segja að Temma leysi öll viðfangs- Temma Bell: Sjálfsmynd með Úllu, 1988. efni sem hún setur sér þá bregst hún við þeim öllum með skilningi og örlæti sem dreg- ur hversdagslífið upp í hærri hæðir. Fjöl- skyldan hefur alltaf gegnt miklu hlutverki í list Temmu. Hún heillast ekki af hefðbund- inni afstraktlist svo sá þáttur í list foreldra hennar á ekki við um hana. Fjölbreyttar og efnismiklar myndir Temmu varpa um leið nýju ljósi á hið agaða og nauma myndmál for- eldra hennar. Tengslin milli málverka Temmu og mynda Louisu móður hennar eru samt einkar skýr í litlum myndum sem hún hefur málað af dætrum sínum sofandi og sem eru næstum því endurtekningar í myndum sem Louisa málaði af Temmu fyrir nær hálfri öld. Og í nýlegum sjálfsmyndum Temmu sjá- um við hana horfa fram til okkar stolta og beina í baki, rétt eins og við þekkjum úr sjálfsmyndum móður hennar. Temma Bell lítur ekki svo á að jafnvægisleysi og ruglandi séu hluti af upplifun okkar á nútímanum en þessi afstaða hennar er persónuleg og hennar eigin, ekki hrokafull afneitun á skoðunum annarra. Hún heldur sig við þá nánd við við- fangsefni sem málarinn skynjai' og við skynj- um hana því líka. En Temma tekur þetta gamla raunsæi og gefur því lifandi og nútíma- legt yfirbragð. Temma Bell: Fjölskyldumynd, 1992. I' taas ■ jy í ’ /f ■ H §9 7 Hb •j-M LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 3. JÚNÍ 2000 X

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.