Lesbók Morgunblaðsins - 03.06.2000, Síða 11
Freyr með sveróið góða og svínið Gullinbursta sem dró vagn hans. Myndskurð-
ur eftir Halldór Einarsson.
Þór á fullri ferð með hamarinn Mjölni og hafrana spennta fyrir vagn sinn. Ein af
myndum Halldórs í Valhöll Hjartar Þórðarsonar.
Bragi, guð skáldskaparins, leikur á hörpu sína. Ein af myndum Halldórs í Val-
höll.
Iðunn með eplin f öskjunni og Loki, en yfir svffur jötunninn Þjasi f arnarham.
Myndskurður: Halldór Einarsson.
Útskorið stólbak eftir Halldór Elnarsson f Valhöll Hjartar Þórðarsonar.
%•
EFTIR KOLBEIN ÞORLEIFSSON
Vestur-íslendingurinn Hjörtur Þórðarson,
uppfinningamaður í rafmagnsfræðum, reisti sér minn-
isvarða með sérkennilegu húsi ó Kletta-eyju. 1 >að var
einskonar Valhöll með r íkulegum myndskurði eftir Flóa-
manninn Halldór Einarsson.
Asíðastliðnu hausti var gefin
út á Washington-eyju í
Michigan-vatni myndabók
um goðafræðilegar útskurð-
armyndir íslenska lista-
mannsins Halldórs Einars-
sonar frá Brandshúsum í
Flóa á húsgögnum í fyrir-
huguðu bókasafni Chester Hjartar Þórðarsonar
á Kletta-eyju („Rock Island“) rétt fyrir norðan
Washington-eyju.
Bók þessi er skrifuð af þeim
hjónum próf. Douglas „Dag“
Rossman og Sharon G. Rossm-
an. Þessi hjón eru nú komin á
eftirlaun og hafa atvinnu af því
að segja sögur. Hverri mynd í
bókinni fylgir saga um mynd-
ina. Þessar myndir eru nú flest-
ar varðveittar í glæsilegu báta-
skýli Hjartar Þórðarsonar á
Kletta-eynni.
Hvernig stendur á því, að
þessar undarlegu myndir af
íbúum Valhallar eru komnar í
afskekkt hús á eykomi nokkru
á vötnunum miklu í Noður-Am-
eríku? Það er saga að segja frá
því, sem hefst með því að
nokkrir Eyrbekkingar héldu
vestur um haf árið 1870, komu
fyrst við í Milwaukee, sem var
bæheimsk byggð í Wisconsin,
settust síðan að á Washington-
eyju, þar sem fiskigengd var
mikil. Þessi litli hópur tók á
móti þeim íslendingahópum
sem komu til Milwaukee á
næstu árum, þar á meðal Stef-
áni G. Stefánsson og litla barn-
inu Hirti Þórðarsyni, sem síðar átti eftir að gera
garðinn frægan sem uppfinningamaður í raf-
magnsfræðum, fyrst sem starfsmaður Edisons,
og síðan í hlutafélagi með þeim fræga eyr-
bekkska klæðskera, Julie Gilsson (Júlíönu Frið-
riksdóttur Gíslasonar, sem líka var dóttir elsta
löggilta skreðara á íslandi „Gróu skreðara", en
hún dó á Washington-eyju nokkuð yfir 100 ára
gömul).
Þess vegna voru hjónin Hjörtur og Júlíana
alla tíð tengd íslendingunum á Washington-
eyju.
Því var það, að þegar þau eltust eftir árang-
ursríkt líf í Chicago, þar sem Júlíana saumaði
klæðaskápinn fyrir 8 ríkustu fjölskyldur borg-
arinnar (og hafði stundum stúlkur úr Washing-
ton-eyju í vinnu) og Hjörtur fann upp milljón
watta straumbreyta og rafvæddi borgina og
gerðist um leið einkavinur bórgarstjórans „Big
Bill“ Thompson, fann Hjörtur upp á því að
kaupa Kletta-eyju og ætlaði að
reisa þar minnismerki um sjálfan
sig í húsagerð. Hjónin voru ólík að
því leyti að Hjörtur var eyðslu-
seggur hinn mesti, en Júlíana gæt-
in í fjármálum. Hjörtur réð 20 múr-
ara í vinnu, sem unnu stanslaust í
þijú ár við að reisa fjölda sérvisku-
legra húsa á eynni, þar á meðal var
sumarbústaður fyrir borgarstjór-
ann í Chicago og bátaskýli, þar sem
hann sótti lögun glugganna í al-
þingishús Islendinga í Reykjavík.
Hjörtur var mikill bókasafnari og
safnaði gömlum og dýrmætum
bókum í náttúruvísindum og ætlun
hans var að reisa sérstakt safnahús
yfir bókasafn sitt, en það tókst hon-
um ekki áður en hann dó 1945. En
hann hafði þegar látið skera út hús-
gögnin í væntanlegt bókasafn og
geymdi þau ásamt bókasafni sínu í
„Riddarasalnum" á efri hæð báta-
skýlisins. Þangað bauð hann tign-
um gestum sínum og bað þá setjast
til borðs í stóla sem merktir voru
ásum og myndir af merkisatburð-
um úr ævi þeirra voru skornar út í
stólbökin.
Til þessa verks réð hann ungan
listamann sem 10 árum áður (1922) hafði komið
til Chicago, þar sem hann vann við húsgagnafyr-
irtæki nokkurt. Þetta var Flóamaðurinn Hall-
dór Einarsson (1893-1977), fæddur í Brandshús-
um í Gaulverjabæjarhreppi. Sá hafði eins og
fleiri lært hjá Stefáni Eiríkssyni í Reykjavík.
Hann var líka guðspekingur að upplagi og til-
heyrði flokki slíkra listamanna í Chicago á þess-
um árum. Sá hópur nefndi sig The Seven. Þess
vegna var honum eiginlegt að hagnýta sér goð-
Halldór Einarsson frá
Brandshúsum í Flóa. Hann
gaf Árnessýslu fjölbreytt
safn myndskuróarverka
sinna og fjármuni til að
byggja yfir þau. Halldór
lærði myndskurð hjá Stef-
áni Eiríkssyni myndskera ,
en átti lengst af heima í
Chicago.
Hjörtur Þórðarson við skrifborð sitt sem prýtt er veglegum myndskurði eftir Halldór Einarsson.
Valhöll Hjartar Þórðarsonar á Kletta-eyju í Michiganvatni.
fræðilegt myndmál, hvort sem það var alþjóð-
legt eða íslenskt. Þetta sambland sáum við á sín-
um tíma, þegar gripir hans voru hafðir til sýnis í
réttu umhverfi í safndeild þeirri sem hann hafði
gefið safnahúsinu á Selfossi í minningu foreldra
sinna, Brandshúsa-hjónanna. Það var e.k. vasa-
útgáfa af Vigelands-garðinum í Osló. í hugsun
hans ægir saman alþjóðlegum táknum eins og
Ying og Yang, einhyrningum og söguskilningi,
þar sem íslandssögunni er skipt niður í aldir,
þar sem hápunktur sögunnar er alþingi á Þing-
völlum 1944. Nóg um safnið á Selfossi.
I bátaskýlinu á Klettaeyju setti Halldór upp
sitt eigið 19-rúna stafróf, og reisti fjölina yfir
arninum í riddarasalnum. Með aðstoð þessa
stafrófs má síðan lesa textana á stólunum; orð
svo sem Sól, Máni, Njörður, Þór, Loki, Freyr,
Fenrisúlfur, Þór og Miðgarðsormur o.fl. Þetta
var á þeim tíma þegar rúnirnar á Kensington-
steininum voru hvað vinsælastar. Þess má geta,
að einn aðalbaráttumaðurinn fyrir gildi Kens-
ington-steinsins var Henry Holand, sem einnig
hafði mikinn áhuga á skemmtilegum stöðum í
Door-sýslu í Wisconsin, þar sem hann í bók sinni
um þetta svæði, helgaði íbúunum á Washington-
eyju einn kafla. Á skrifborð Hjartar skar Hall-
dór myndir sem sýndu íslenska atvinnuhætti,
m.a. eldsmiðju, fjárrekstur og báta í naustum.
Og á skrifborðsstólnum (hásæti Hjartar) eru
táknmyndir heiðni og kristni. Snorri Sturluson í
líki Gísla Konráðssonar og Hallgrímur Péturs-
son og mitt í milli var andlátsmynd Hallgríms
Péturssonar.
Af þessu öllu birta höfundar áðurnefndrar
bókar greinilegar myndir með stuttum og grein-
argóðum frásögnum um goðfræðilega merkingu
myndanna. Það ber að afsaka þau fyrir að átta
sig ekki á sögunni um andlát Hallgríms Péturs-
sonar, heldur segja að myndin lýsi ímynduðu
andláti Hjartar Þórðarsonar. Þaðgildir einu, því
að Islendingar hafa allt frá Ijóði Matthíasar
Jochumssonar um andlát séra Hallgríms litið á
það sem fyrirmynd að dauða guðhrædds íslend-
ings.
Saga Kletta-eyjarinnar eftir daga Hjartar
Þórðarsonar er í stuttu máli sú, að ekkja hans
seldi hana Wisconsin-ríki, sem gerði hana að
þjóðgarði. Því eru flestar byggingar Hjartar
Þórðarsonar látnar drabbast niður af viðhalds-
leysi, því að bandarísk lög um þjóðgarða leyfa
varla mannshöndinni að koma nálægt þeim,
ekki einu sinni til að slökkva skógarelda. Báta-
skýlið er eitt eftir sem skrifstofa þjóðgarðsvarð-
ar. Húsgögnin voru seld í ýmsar áttir en að
mestu leyti voru þau keypt af skóla nokkrum,
sem hugðist nota þau í einhverjum skólasal sín-
um. Eftir 40 ár var það sýnt, að skólinn hefði
ekki not fyrir húsgögnin lengur og því auglýsti
hann þau til sölu. Þá keypti einhver þjóðminja-
sjóður Wisconsin-ríkis húsgögnin og setti þau
upp að nýju í bátaskýlinu. Þar eru þau í umsjá
Marks Eggleson þjóðgarðsvarðar. En hið dýr-
mæta bókasafn Hjartar seldi ekkjan Madison-
háskóla i Wisconsin, þar sem það hefur verið
hluti háskólabókasafnsins.
Heimildir:
Douglas „Dag“ Rossman & Sharon C. Rossman: Valhalla
in America. Norse Myths in Wood at Rock Island State
Park, Wisconsin. Útgefið af Jackson Harbor Press, Was-
hington Island, Wisconsin, 1999.
Colin Easton: Rock Island, útg. á Washington-eyju.
Eigin endurminningar hðfundar (K.Þ.) frá dvöl hans á
Washington-eyju 1986.
Höfundurinn er guðfræðingur.
1 O LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 3. JÚNÍ 2000
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 3. JÚNÍ 2000 1 1