Alþýðublaðið - 27.03.1984, Síða 5
Þriðjudagur 27. mars 1984
Olís eykur þjónustuna:
Efnavörur,
smávörur og
þéttiefni á
boðstólum
Rœtt við Þórð Asgeirsson forstjóra
Hjá Olís í Hafnarstræti hittum við forstjórann, Þórð
Ásgeirsson og spurðum hann hvað hefði komið til, að
skrifstofustjóri í ráðuneyti hefði tæplega fertugur staðið
upp úr opinberu stjórnsýlsunni og tekið að sér rekstur
einkafyrirtækis í verslun og þjónustu?
„Ég hafði starfað í ráðuneytinu í
tæp 11 ár,“ sagði Þórður, „lengst af
sem skrifstofustjóri sem og ráðu-
neytisstjóri í forföllum hans. Ég hef
verið þeirrar skoðunar að það sé
nálægt hámarki þess tíma, sem
menn eiga að halda mikilvægu
stjórnunarstarfi, hvort sem það er
hjá því opinbera eða hjá einkafyrir-
tækjum. Því miður cr ekki um það
að ræða í stjórnsýslukerfi íslands,
að menn „róteri“ á milli ráðuneyta
eða á milli stofnanna og því fannst
mér ég verða að velja á milli þess að
staðna í starfi mínu og daga þar
uppi, sem skrifstofustjóri eða ráðu-
neytisstjóri, eða þá að leita út fyrir
stjórnarráðið að nýjum verkefnum.
Forstjórastarf hjá Olíuverslun
íslands var auk þess svo sannarlega
áhugavert verkefni að takast á við,
því Olís er eitt af stærstu fyrirtækj-
um Iandsins, sem rekur marghátt-
aða verslunar- og þjónustustarf-
semi, til sjós og lands. Já, — að
ógleymdu fluginu. Margir við-
skiptavinir Olís í útgerðinni voru
líka viðskiptavinir mínir í ráðuneyt-
inu, ef svo mætti segja, og hefur
verið mjög þroskandi að kynnast
vandamálum útgerðar á íslandi ná-
ið frá þessum tveimur ólíku sjónar-
hornum“
— „Þú nefndir þjónustustarf-
semi við flugið?"
„Já, Flugleiðir hf., og Loftleiðir
sömuleiðis hafa verið viðskiptavin-
ir Olís frá upphafi, þannig að allt
eldsneyti, sem notað er í Norður-
Atlantshafsflugi íslendinga, er í
okkar umsýsluí'
— „Nú er Olís gamalt og rót-
gróið olíufélag og starfsemin meira
eða minna hefðbundin. Hefur þú
lagt áherslu á einhverjar nýjungar?"
„Á þessum stutta tíma, sem ég
hef verið hjá Olís, hefur aðaláhersl-
an beinst að því, að ná fram ýmiss-
konar hagræðingu í rekstrinum, til
þess að bæta afkomu félagsinsí*
Við höfum líka bryddað uppá
ýmsum nýjungum á þessum tíma.
Þannig höfum við t.d stofnað nýja
deild, sem sér um sölu á efnavörum
og erum reyndar enn frekar að
hasla okkur völl á því sviði. Við
höfum líka aukið vöruúrvalið á
bensínstöðvunum til þess að koma
á móts við óskir og þarfir viðskipta-
vina okkar.
Bensínstöðvar okkar hafa verið
þekktar í gegnum árin fyrir gott úr-
val ýmisskonar vöru, sem tengist
rekstri bifreiða. Þarna hefur núna
verið unnið að því að gera gott
betra, auk þess sem bætt hefur ver-
ið við ýmsum vörum óskyldum
rekstri bifreiða. í þessu sambandi
get ég nefnt svo óskylda hluti sem
tölvuúr, snyrtivörur og sælgæti,
sem nú fæst á bensínstöðvum Olís
og hefur verið geysi vel tekið.
Fyrir rúmlega ári síðan opnuðum
við einnig stóra og glæsilega verslun
á Grensásvegi í Reykjavík. Þar er að
finna mikið úrval af allskonar
ferðavöru, gastækjum til ferðalaga,
í sumarbústaðinn og heimilið.
Þórður Ásgeirsson, forstjóri Olís.
Áhersla á nýjar vörur og reksturinn
styrktur. Ljósm.: G.T.K.
Nýr þáttur í starfseminni hefur
einnig gengið mjög vel hjá okkur.
Það er innflutningur á þéttiefnum
og hverskonar efnum til raka- og
lekaviðgerða. Þessi efni eru frá BP
í Englandi og heita Aquaseal. Frá
sama fyrirtæki fáum við þakpappa,
sem líkað hefur frábærlega vel!‘
— „Margir halda því fram að
menn fái sama bensínið og sömu
þjónustuna hjá öllum olíufélögun-
um. Jafnvel er talað um það, að
óþarfi sé að vera með þrjú olíufé-
lög. Nóg sé bara að vera með eitt.
Hvað vilt þú segja um þetta?“
„Það er að vísu rétt að öll olíufé-
lögin þrjú selja sama bensínið og
sömu gasolíuna á einu verði, þannig
að ekki er um samkeppni að ræða á
því sviði.
Hins vegar má alls ekki gleyma
því að það er mikil samkeppni á
milli olíufélaganna að veita sem
besta þjónustu. Þetta er líka atriði,
sem við að minnsta kosti hjá Olís,
leggjum höfuðáherslu á. Eg vil í
þessu sambandi hreinlega hvetja
bifreiðaeigendur að prófa þjónust-
una hjá okkur og gera samanburð.
Auk þess, sé mönnum annt um véi-
ina í bílnum, þá ættu þeir að sjálf-
sögðu ekki að nota neitt annað en
BP eða Mobil smurolíur,“ sagði
Þórður Ásgeirsson, forstjóri Olfs
að lokum.
ifir ★★★★★★★★ ★/★^
yL Þú átt möguleika á glæsilegum ÁÉ\
vinningi f Þórscafé! yRsj^ckFE^
Xfrá Þórscafé *
tii
*
★
★
*
*
★
*
*
*
*
★
★
*
★
★
Hótel
Do
Hvað er
milljon'
, Milljónasti gestur Þórscafé hlýtur glœsileganv
ferðavinning fgrir tvo í 26 daga til Benidorm.l*
Hótel Don Pancho
*
★
★
______
^ ★ ★★★★★★★★★★^
Don Pancho er glæsilegasta hótelið í Benidorm. Er það
við aðalgötu bæjarins í u.þ.b. 100 m fjarlægð frá
ströndinni. I öllum herbergjum er bað, útvarp, simi og
svalir sem snúa út aö sjó.
011 herbergin eru loftkæld. Úti er stór sundlaug og
önnur minni fyrir börnin. Sólbaðsaöstaða er mjög góð.
A neöstu hæð er bar og setustofur búnar glæsilegum
húsgögnum. Uppi er matsalur og næturklúbbur sem
býður upp á fjölbreytt skemmtiatriði og dans á hverju
kvöldi.
Kröfuharðir velja Don Pancho. Það gera gestir Þórs-
café.
★
★
SA HEPPNI
ER
JT
I
Benidorm
Benidorm er á Costa Blanca, hvítu
ströndinni, á Suðaustur-Spáni. Liggur
bærinn í 42 km fjarlægð frá Alicante og
i 141 km fjarlægð frá Valencia. A þrjár
hliðar er hann umkringdur f jallahring
sem tengist saman með fallegri sand-
strönd Miðjarðarhafsins. Benidorm er
þvi einn veöursælasti staður Spánar og
meðalárshiti er 22 stig C.
Dvalist á Hótel
Don Pancho — fu/lt '
fæði í 26 daga
Að sjálfsögðu
verður boðið upp á
kvöldverð í Tiffanys '
★
Og einnig nætur-
klúbbaferð til .
Benidorm Palace
A LEIÐINNI
ÞÓRSCAFÉ
★
— G.T.K.