Alþýðublaðið - 27.03.1984, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 27.03.1984, Blaðsíða 16
16 Þriðjudagur 27. mars 1984 Góð frétt fyrir sóldýrkendur: Vorhitinn á Beni- dorm 23,7 gráður Ferðamiðstöðin vill koma þeim skilaboðum á fram- færi til allra sannra íslendinga og sóldýrkenda, að nú er vorið mætt í allri sinni dýrð á Benidorm. Samkvæmt upplýsingum hinna áreiðanlegu spænsku veðurfræð- inga er meðalhitinn á vorin þar 23.7 gráður C, enda standa þeir ekki i neinu kuldametakapphlaupi, „a la“ starfsbræður þeirra á íslandi. Þeir siðarnefndu eru líka velkomnir í sólina þó það væri ekki nema til þess að sjá einu sinni hvernig virkilega gott veður lítur út. Séu þeir blankir og Albert á ekki krónu, þá er þeim bent á að sækja um styrk í endurmenntunarsjóð opinberra starfs- manna. Kannski að veðrið fari þá eitthvað að skána á ís- landi. Um aðra „statistik" segir að sumarhitinn á Benidorm sé að með- altali 31.0 gráða og hausthitinn að meðaltali 19.2 gráður. Fyrir töl- fróða menn upplýsist að meðalhit- inn á veturna er 18.7 gráður. Hin vinsæla páskaferð verður farin í beinu leiguflugi 18. apríl n.k. og síðan koma vorferðirnar í beinu leiguflugi 2. maí n.k. og 26. maí n.k. Þar sem þetta er allt að fyllast er fólki bent að hafa sem fyrst sam- band við Ferðamiðstöðina, Aðal- stræti 9, s. 28133 og s. 11255 til þess a4 tryggja sér far eða fá upplýsing- ar um sumaráætlunina. Hér á eftir fara nokkrar „prak- tískar“ upplýsingar til væntanlegra farþega til Benidorm. Ferðamið- stöðin í Miðbæjarmarkaðinum bíður ykkur velkomin og minnir sérstaklega á hin vinsælu kynning- arkvöld í Þórscafé á sunnudags- kvöldum, samkvæmt nánari upp lýsingum. Addios Framhald á næstu síðu þúdiekkur sykurlaust Soda Stream meó góóri samvisku! Nú fást fjórar tegundir: Appelsín, Cola, Límonaöi og Ginger Ale. Þér er óhætt að drekka sykurlaust Soda Stream eftir æfingar því þaö er minna en ein kaloría í glasi. Sól hf. ÞVERHOLTl 19 SÍMI 26300 REYKJAVÍK Vörur stundum undir fram- leiösluveröi Á Vöruloftinu í Markaðshúsinu við Sigtún í Reykja- vík hittum við annan eigandann, Guðmund Yngvason og tókum hann tali. „Við rekum þetta tveir“, sagði Guðmundur, „Kristján Ólafsson og ég. Við vorum áður í verslunarrekstri, en hættum með það. Talsverður vörulager var þó fyrirliggj- andi, sem við urðum að koma í eitthvert verð og þannig varð þessi hugmynd til. Við erum hér á 650 fermetrum, en svona rekstur verður ekki hagkvæmur fyrr en af þess- ari stærðargráðu. Markaðshúsið byrjaði starfsemi sína síðastliðið haust en 2. febrúar tókum við þessa nýbreytni upp hér á Vöruloftinu. Við erum nú með vörur frá yfir 60 fyrirtækjum, þannig að vöruúrvalið er gifurlegt. Reyndar fer það stöðugt vaxandi, því fyrirtækjunum sífjölgar, sem taka þátt í þessu. í sölusamningi okkar ábyrgjumst við vörurnar og önnumst trygging- ar og þess háttar. Hver sá aðili sem selur hér, fær sitt viðskiptanúmer og fylgja þar einnig upplýsingar um lagerstöðu hans. Margir selja hér á beinu heildsöluverði eða á fram- leiðsluverði og bæta þá aðeins sölu- skattinum við. Aðrir greiða meira að segja söluskattinn sjálfir og má þá segja að varan sé undir fram- Íeiðsluverði. Ég vil sérstaklega koma því á framfæri við væntanlega viöskipta- vini að fylgjast vel með því sem kemur hér inn daglega, því auðvitað brennur það við að mest spennandi vörurnar seljast svo til jafnóðum upp og þær koma. Margir kaupa líka mikið hér í einu, ef þeir sjá eitt- hvað sem þeim líkar, svona eins og þeir væru á markaði. Við ábyrgjumst allar vörur sem hingað koma inn og sjáum sjálf um söluna, þó mest sé stuðst við sjálfs- afgreiðslufyrirkomulag. Fyrirtæk- in sem eiga vöruna hafa ekki sér- staka sölumenn á staðnum. Við miðum við 0.78% rýrnun á vör- unni, sem eru venjulegur staðall á Norðurlöndunum. Við leigjum þetta húsnæði til eins árs í senn og getum framlengt ef vel gengur. Það ræðst af vöru- framboðinu og eftirspurninni eftir vörunum hvort við höldum áfram“, sagði Guðmundúr Yngvason að lokum. G.T.K. Guðmundur Yngvason, annar eig- enda Vöruloftsins: Fylgist vel með nýju vörunum, þœr geta selst upp á augnabragði því þœr eru svo ódýr- ar. Ljósm.: G.T.K. Rœtt við Guðmund Yngvason, annan eiganda Vöruloftsins

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.