Tíminn - 21.02.1967, Qupperneq 1
43. tbl. — Þriðjudagur 21. febrúar 1967. — 51. árg.
Vínlandskortið í Þjóðminjasafninu 15.-31. marz
„Lítið brot i kviksjá
norrænna fræða“
AK-Reykjavík, mánudag.
Helgi Þorstcinsson fram-
kvæmdastjóri Innflutningsdeild-
ar SÍS, lézt að heimili sínu,
Skaftahlíð 30 í Reykjavík s.l.
laugardagskvöld. Banamein hans
var 'hjartabilun.
Helgi Þorsteinsson var fæddur
á Seyðisfirði 6. okt. 1906, sonur
Þorsteins Ólafssonar og konu
hans Jónínu Guðrúnar Arngríms-
dóttur. Hann brautskráðist úr
YMIS STORMAL VERÐA RÆDD A
BÚNAÐARÞIN6ISETTU f GÆR
AK og B.T., Rvík, mánudag.
Búnaðarþing hið 49. í röðinni
var sett í Bændahöllinm kl. 10
árdegis í dag, og vóru langflestir
fulltrúar komnir til þings. þor-
steinn Sigurðsson, bóndi í Vatns
leysu, formaður Búnaðarfélagsins
setti þingið með ræðu, en að
henni lokinni ávarpaði Ingólfur
Jónsson, landbúnaðarráðherra,
þingið.
Þorsteinn bauð fulltrúa vel-
komna til þings og minntist síð
an Steingríms Steinþórssonar,
fyrrv. búnaðarmálastjóra, sem
lézt seint á s.l. ári sem kunnugt
er. Þingsetningarræða Þorsteins
verður annars birt í heild hér í
blaðinu, og verður hún því ekki
rakin hér, en hann ræddi einkum
um framleiðslu- og markaðsmál
landbúnaðarins. Einnig ræddi
h'ann fóðurbætismálið, lax O'g sil-
ungsrækt og veiðimál, svo og
jarðamál og frumvarpið um jarð
eignasjóð ríkisins og fleira.
Fundum Búnaðarþings verð-
ur haldið áfram á morgun, en;
kjörbréfanefnd starfaði eftir há!
degi í dag. |
Samkvæmt upplýsingum frá!
Þorsteini Sigurðssyni formanni
Búnaðarfélags íslands og Ásgeiril
L. Jónssyni ráðunaut i dág hafa
um 15 mál verið lögð fyrir þetta
Búnaðarþing. Átta þeirra koma
fyrir þingfund á morgun.
Eru það þessi mál:
1. Fjárhagsáætlun Búnaðarfélags
íslands 1967.
2. Frumvarp til laga um vinnu-
aðstoð til bænda i viðlögum. Þetta
mál er lagt fyrir af stjórn Bún
Framhald a bls 15.
Auglýsing í Tímanum
kemur daglega fyrir augu
80—100 þúsund lesenda.
Gerizt áskrifendur að
Tímanum.
Hnngið í síma 12323
Frá setningu Búnaðarþings í Bændahöliinni í gærmorgun, Þorsteinn Sigurðsson, form. Bl í ræSustól.
iTimamynd: GE)
EJ—Reykjavík, mánudag.
Eins og TÍMINN hefur áður
skýrt frá, verður Vínlandskortið
sýnt á íslandi í næsta mánuði.
Kortið verður til sýnis í Þjóð-
minjasafninu frá 15. marz til 31.
marz. Chester Kerr, forstjóri Yale
University Press, kom hingað til
lands í gær, og í dag gekk hann
ásamt fulltrúum stjómvalda og
þjóðminjaverði, Kristjáni Eldjárn,
frá undirbúningi vegna komu
kortsins.
Á blaðamannafundi, sem hald-
inn var í dag vegna komu Vín-
landskortsins, voru mættir auk
Kerrs, þeir Birgir Thorlacíus,
Helgi Þorsteins
son er látinn
ráðuneytisstjóri, og Kristján Eld-
járn, þjóðminjavörður.
Kristján Eldjárn sagði, að gert
væri ráð fyrir að sýna kortið á
nákvæmlega sama hátt og Skarðs-
bók á sinum tíma, það er að segja
í anddyri safnsins fyrir framan
Bogasalinn. Yrði kortið í sérstök-
um sýningarkassa, og þess að sjálf
sögðu gætt vandlega.
Á blaðamannafundinum var,
Kerr spurður m.a. um fortið Vín-|
landskortsins og útgáfudag (sjá
baksíðu) og nánar um sýningui
þess hér. Hann sagði Yale-háskól- i
ann hafa talið rétt, að sýna kortið
hér á íslandi. — Við vorum ekki,
sérlega klókir þegar við kynntum j
kortið fyrst, en við höfum lært, —
sagði hann, og átti þá vafalaust
við að ísland varð útundan, ef svo !
mætti að orði komast, við tilkynn
ingu háskólans um tilvist kortsins.
Kerr skýrði frá því, að senni-
lega myndi koma hingað til lands
einn fremsti fræðimaður Yale-
háskóla í íslenzkum fræðum, Dr.
Constantine Reichard, og myndi
hann væntanlega flytja hér fyrir-
lestur.
— Það er okkur við Yale-há-
skólann, mikið ánægjuefni, að vera
nú að senda Vínlandskortið sjálft,
en ekki aðeins eftirmynd af því,
til lands ykkar í næsta mánuði,
sagði Kerr. — Eins og ykkur er
kunnugt, hefur kortið að undan-
förnu verið í British Museum og
verið rannsakað þar nánar og
sýnt almenningi í einn mánuð. Síð
an mun kortið fara í norðurátt,
Framhald á bls. 14.
Jim Garrison
Sanwinnuskólanum 1928 og réðist
litlu siðar til Sambands isl. ;am
vinnufélaga og starfaði að málurn
samvinnumanna æ síðan. Hann
var fyrst .starfsmaður Ham-
borgarskrifstofu SÍS og síðan í
Leith, og var síðan fulltrúi Inn
flutningsdeildar SÍS 1935. Fram
kvæmdastjóri skrifstofu SÍIS í
New York var hann árin 1940-
Framhald a bls. 15.
SAKSÓKNARINN í NEW ORLEANS FULLYRÐIR UM MORÐIÐ Á KENNEDY FORSETA
Það var samsæri
NTB-New Orleans, mánudag.
Dave Lewis, sem að sögn kemur
fram sem vitni í sambandi við
rannsókn Jim Garrison, saksókn-
ara í New Orleans á morði
Kennedys, Bandaríkjaforseta,
sagði í dag, að fjórir eða fimm
menn væru viðriðnir samsæri um
að ráða Kennedy, forseta af
dögum, og væru sumir þessara
manna enn í New Orleans.
Lewis, sem á að hafa vitað um
samsærið, sagði í viðtali í dag
að það eina, sem hann að svo
stöddu gæti sagt væri, að f jórir
eða fimm menn hefðu verið við
riðnir samsærið. Ég mun ekki
segja til þeirra fyrr en ég fæ um
það skipun frá Garrison, saksókn
ara, en eitt er öruggt, að um
samsæri var að ræða og fleiri
voru í vitorði með Oswald, sagði
Lewis.
Framhald á bls. 14.