Tíminn - 21.02.1967, Side 2
■»
TÍMINN
ÞRIÐJUDAGUR 21. febrúar 1967.
yndin er tekln viS afhendingu gjafarinnar í Kaupmannahöfn. Frá vlnstri senöinerranjonin i Kaupmanna-
ifn, G. Schlöler biskup, Poul Hjermind skólastjórl, B. Koek aðalritstjóri og S. Haugstrup Jensen skólastjóri.
9ANSKA GJÖFIN TIL
SKÁLHOLTSSKÓLANS
Blaðinu hefur borizt eftirfar-
mdi frá hr. Sigurbirni Einarssyni
jiskup;
Eins og kunnugt er af fréttum
’iafa Danir gefið álitlega fjárupp-
íæð til lýðHáskólans í Skálholti.
Laugardaginn 18. þ.m. afhentu
forgöngumenn fjársöfnunamefnd-
arinnar, Gunnari Thoroddsen, am-
bassador, gjafabréf, þar sem
greind er upphæð söfnunarfjár-
ins. Samkvæmt ósk minni verður
þetta fé geymt á banka í Dan-
mörku þar til hafin verður bygg-
ing lýðháskólans. Sama máli gegn
ir um það fé, sem safnað er í sama
skyni í hinum Norðurlöndunum.
Það verður látið standa á vöxtum
í viðkomandi löndum unz fram-
kvæmdir hefjast. Endanlegt upp-
gjör hefur enn ekki borizt frá
Noregi og Svíþjóð. Sr. Harald
Hope afhenti stóra upphæð til
skólans á vígsludegi kirkjunnar,
200 þús. norskar kr. og hann hefur
síðan safnað nokkru til viðbótar.
Láta mun nærri, að fé það, sem
safnað hefur verið til skólans til
þessa í Danmörku, Noregi, Fær-
eyjum og Svíþjóð, nemi fast að
4 milljónum ísl. kr.
Að tmdanfömu hefur verið unn
ið að teikningu lýðháskólans.
Húsameistari ríMsins tók að sér
það verk en fékk til ráðuneytis
danskan arkitekt, Tyge Axnfred
og lagði hann á ráð um staðsetn-
ingn skðlans og skipulag staðarins.
Er nú Ibeðið eför tillöguuppdrætti
frá Arnfred. Byggingamefnd skól
ans skipsc Þórarinn Þórarinsson
skólastjðri, Reykjavfk; Bjami Páls
son, skólastjöri og húsameistari á
Selfossi, og Sveinbjöm Finnsson,
kennari, Reykjavík.
Mér hefur nú borizt gjafabréf
döiisku söfnunamefndarinnar á-
samt> bréfi frá Bent A. Koch, rit-
stjóra. Gjafabréfíð fer hér á eftir
SKAKIN
með nöfnum þeirra góðu manna,
sem skipuðu söfnunarnefndina:
„Eftir að hin nýja kirkja í Skál-
holti hafði verið vígð og þar með
menningarmiðsföðvar á þessum
sögufrœga stað, var það ósk
margra á íslandi að reisa þar
síðan lýðháskóla. Þessi hugmynd
fékk hljómgrunn hjá mörgum vin
um íslenzku þjóðarinnar á hinum
Norðurlöndunum og vildu þeir
gjarnan styðja frumkvæði í þessa
átt og láta stuðning sinn í ljós
með gjöf til byggingarsjóðs slíks
lýðháskóla. Hefur söfnunin staðið
yfir undanfarin ár og nú veitist
oss sú gleði að geta tilkynnt, að
í bankabók í Köbenhavns Handels
bank er nú upphæð, sem nemur
kr. 220.595,22 og er hún til ráð-
stöfunar fyrir byggingarnefnd
hins áformaða lýðháskóla, þegar
byggingin hefst.
Það verður oss mikil gleði, ef
þessi lýðháskóli getur risið á
næstu árum og orðið hinni ís-
lenzku þjóð til nytsemdar og
stuðlað að því að treysta vinátt-
una milli hennar og hinna Norð-
urlandaþjóðanna“.
Svart-Reykjavík:
Jónas Þorvaldsson
Hallur Símonarson
yíj.+py.\N/A 4 *
Hvítt-Akureyri:
Gunnlaugur Guðmu’v
Margeir Steingrímssuu.
?. "ft___«r*>
4. RbJ—c3
Rb8—c6
VÍNLANDSKORTIÐ EKKI
Yale telur fullkomlega heiðarleg
an.
Hann hefur farið fram á það
við Yale, ag engar upplýsingar
verði gefnar um, hvar hann fékk
kortið. Yale hefur fallizt á þessa
beiðni hans. Við erum sannfærðir
um, að hann hafi komizt yfir það
á löglegan hátt.
Eg hef heyrt það sagt, að kort
ið hafi komið frá Spáni. Eg hef
ekki heyrt því neitað, og vitað er
að umræddur bóksali hefur dvalið
á Spáni. Eg get aftur á móti neitað
þvi algjörlega, að það hafi komið
frá Saragossa bókasafninu. Það
kom ekki þaðan.
Þegar bóksalinn kom fyrst til
Yiale með kortið og handritið af
,,the Tartar Relation", sem því
fylgdi, spurðu fræðimenn Yale
hann ag því, hvers vegna hann
teldi kortið þýðingarmikið; hver
væri hans skoðun á kortinu. Hann
ritaði 25 blaðsíðna skýrslu fyrir
Yale, sem Skelton, Painter og
aðrir fræðimenn, sem síðan rann
sökuðu kortið í átta ár, segjia að
sé mjög góð skýrsla og lýsti veru
legri þekkingu.
Kerr skýrði blaðamönnum frá
því, hvernig á því stóð að tilkynn
ingin um kortið, og útgáfa bókar
innar „The Vinland map and the
Tatar relation" var gefin daginn
fyrir Kolumbusardag.
Aðalfundur Fram-
sóknarfélags Reyð-
arfiarðar
Aðalfundur Framsóknarfélags
Reyðarfjarðar var haldinn sunnu
daginn 13. febr. í stjórn voru
kjörnir: Kristinn Þ. EinarssQn,
formiaður, Aðalsteinn Eiríksson
varaformaður. Meðstjórnendur:
Magnús Guðmundsson, Hans J.
Beck. Til vara: Björn Egilsson,
Steindór Einarsson. Fulltrúar á
Kjöræmaþing 26. febr. n. k. voru
kjörnir Magnús Guðmundsson,
Björn Egilsson. Fulltrúar á flokks
þing Framsóknarfl. 1967 voru
kjörnir: Egill Jónsson og Aðal-
steinn I. Eiríksson.
— Upphaflega var ætlun okkar
að gefa bókina út 9. október, á
degi Leifs Eiríkssonar, þar sem
okkur þótti það vel við eiga. En
ekki er hægt að /búa til bók á_ein-
um degi, og verkið dróst nokkuð.
Ef höfundar bókarinar hefðu ver
ið lengur að lesa prófarkir af rit-
gerðum sínum, þá hefði bókin alls
ekki komið út í október, og ef þeir
hefðu verið fljótari að því, þá
hefði bókin alls ekki komið út
t. d. í júní. En útgáfudagurinn var
sem sagt tilviljun.
Þegar ljóst var, að bókin yrði
tilbúin til útgáfu snemma í októ-
ber, þá litum við á dagatalið og
sáum, að 9. október var dagur
Leifs Eiríkssonar. Við ákveðum þá
að gefa bókina út þann dag.
En þá kom í ljós, að 9. október
var laugardagur, og það er ekki
góður dagur til þess að koma
fréttum í hlöðin vestra. Við gef
um aftur á móti út dagblöð á
mánudögum, og þess vegna ákváð
um við að gefa bókina freloar út
þann dag, svo blöðin gætu skýrt
frá því.
Við ákváðum einr.V: að hafa mót
töku fyrri gesti á útgáfudaginn, og
bjóða m. a. fulltrúum íslands og
Noregs þangað og sjá kortið.
Þetta var allt saman skipuliagt.
En sex vikum áður en útgáfudag
urinn rann upp, rankaði einhver
við sér og sagði: — „Guð minn
góður, þetta er dagurinn á undan
Kolumbusardegi!" Fréttin verður
í blöðunum á degi Kolumbusar, og
það mun valda miklum vandræð
um.“
Við snérum okkur til konunmr,
sem skipulagði móttökuna, en þeg
ar hún var um það spurð, hvort
ekki væri hægt að halda samsætið
9. október, þá neitaði hún því al-
gjörlega, og sagði allt vera undir
búið, og engu yrði um breytt úr
því, sem komið var.
Og því fór sem fór.
— En hafa ekki öll lætin aukið
sölu bókiarinnar?
— Jú, vissulega. Við bjuggumst
alls ekki vig þessum miklu skrif
um um bókina, og gáfum því að-
eins út 2.500 eintök. Við höfum
selt 40.000 eintök. En ég er viss
um, að mikill hluti þessara ein-
taka liggja ólesin í bókasöfnum,
sagði Kerr.
SAMSÆRI —
FramHals af bls. 1.
Lewis var að því spurður, hvers
vegna hann hefði ekki látið F.B.
I., ríkislögreglunni vitneskju sína
í té og svaraði hann því til, að
hann hefði aldrei verið spurður.
Lewis starfar nú á bifreiðastöð.
Garrison, saksóknari lét í dag
uppskátt um rannsóknir sínar, en
hann heldur efni þeirra leyndum
og neitar að veita bandarísku
stjórninni aðild að þeim. Heldur
hann fast við, að samsæri hafi
verið að baki forsetamorðinu í
nóvember 1963 og hafi morðið
verið ákveðið í New Orleans.
Garrison vísaði á bug beiðni
Gerald R. Ford, sem sat í Warren
nefndinni, um að saksóknarinn
léti bandaríska dómsmálaráðu-
neytinu upplýsingar sínar í té,
þannig að Johnson, forseti gæti
'kynnt sér þær. Garrison segir, að
það sé ekki forsetans eða dóms
málaráðuneytisins að fram-
kvæma og stjóma rannsóknunum,
heldur hans. Við höldum áfram
starfi okkar við að fletta ofan af
samsæri, sem virðist hafa verið
skipulagt í New Orleans og herr
arnir í Washington hafa ekkert
með það mál að gera. Ef þeir
óska eftir að aðstoða mig yrði ég
þakklátur fyrir það, en ég mun
ekki gefa neinum skýrslu um
rannsóknir minar, sagði Garrison.
Hann bætti og við, að rannsókn
irnar myndu tefjast, ef stjómar
menn frá WaShington ættu hlut
að máli.
Bandaríski lögfræðingurinn
Mark Lane, sem í bók hefur
andmælt niðurstöðum Warren-
nefndarinnar, sagði á blaðamanna
fundi í Róm í dag, að rannsókn
irnar í New Orleans gætu leitt til
þess, að samsærið yrði algerlega
afhjúpað. Rannsóknir Garrisons
eru mjög mikilvægar og geta leitt
til stórmerkilegra afhjúpanna,
sagði Lane í samtali við Reuter
í dag. Lane sagði, að mörg atriði,
sem Garrison nú fjallaði um
hefðu að öllum líkindum verið
nefnd í Warren-skýrslunni. Ríkis-
lögreglan hefði vitað um þau, en
ekki rannsakað þau. Lane lét þá
ósk í Ijós, að Garrison stjórnaði
rannsóknum sjálfur allt til loka
þeirra og léti Bandaríkjastjórn
hvergi nærri’koma.
Ef Garrison tækist að hafa upp
á Kúbumönnunum tveim, sem
voru í New Orleans ásamt Oswald,
rétt fyrir morðið á Kennedy, að
þvi er saksóknarinn telur, væru
miklar líkur til, að koma mætti
upp um samsærið. Lane skýrði
frá þvi, að Oswald, undir nafninu
Leon Oswald, hefði ásamt Kúbu-
mönnunum tveim heimsótt Sylvia
Odio, ein naf leiðtogum andstæð-
inga Castros, í september f 1963.
Þá hafi Oswald látið orð faiJa
eitthvað á þá leið, að drepa ætti
Kennedy vegna afstöðu hans *il
hinnar misiheppnuðu innrásar á
Kúbu og yrði létt verk að ráða
forsetann af dögum.
Fullyrðingar Garrisons um
að samsæri hafi verið að baki
forsetamorðinu fá góðan hljóm
grunn erlendis, en vekja litla
athygli heimafyrir, þar sem menn
yfirleitt telja niðurstöður Warren
skýrslunnar um að Oswald hafi
verið einn að verki, fullnægjandi
og rétta.
Því hefur verið haldið fram, að
hinn raunverulegi morðingi hafi
haft samband við Jack Ruby, sem
skaut Oswald til bana og sézt á
sjúkrahúsi fyrir skömmu og á
það bent. að Ruby og Oswald
hafi verið samtímis í New Orleans
í gærkvöldi sagði hins vegar vsrj
andi Rubys, að þar hafi verið um
tilviljun að ræða.
í New Orleans voru margir
þeirrar skoðunar, að frásögn Garri
sons um rannsóknir sinar, hafi
verig til þess að vekja á sér
persónulega athygli. Nokkuð dró
úr þessari skoðun, er kúbanskur
einkaspæjari skýrði frá því á
Miami í gær, að hann aðstoðaði
Garrison í rannsóknum hans. Hlut
verk hans væri að afla upplýsinga
um þá Kúbumenn, sem hefðu ver
ið samtímis Osvald í New Orleans.
Einkaspæjarinn, Bernardo Torr
es að nafni, sagði og, að rannsókn
in myndi leiða í ljós, að skýrsla
Warren-nefndarinnar væri alls-
endis ófullnægjandi. Hann hefði
farið margar ferðir milli Miami
og New Orleans í sambandi við
rannsóknirnar. Er þeim væri lok
ið, myndi nýr kapítuli bætast við
W arren-skýrsluna.
RUNTAL - OFNAR H.F.
RUNTAL er ódýrastur!
RUNTAL gefur hitann!
RUNTAL er svissneskur rJ
STÁLOFN, framleiddurl
á íslandi.
A B
C D
RUNTAL-ofninn er hægt
að staSsetja við ólíkustu
aðstæður og hentar öllum
byggingum. — Leitið nán-
ari upplýsinga hjá fram-
leiðanda:
puntil OFNAR h.f.
Síðumúla 17. Sími 35555
Atvinnuflugmenn
Aðalfundur Lífeyrissjóðs atvinnuflugmanna verð-
ur haldinn að Hótel Loftleiðum, sunnudaginn
26. febrúar kl 14.00.
Atkvæðaseðlar liggja irammi á skriístofu F.Í.A.,
Hafnarstræti frá og með fimmtudegimim 23. febr.
Dagskrá: Venjuleg aðalíunúarstorf.
STJÓRNIN. 1