Tíminn - 21.02.1967, Side 12
12
ÍÞRÓTTIR
TIMINN
ÞRIÐJUDAGUR 21. febrúar 1967.
13 valdir til landsliðsæfinga í handknattleik
EinvaÍdurinn
ur sig við kokkteil
Únglingalandsliðspiltar eftir æfinguna á sunnudag. Aftari röð frá vinstri
Hilmar þjálfari, Björgvin Björgvinsson, Fram, Sigurbergur Sigsteinsson,
Fram, Arnar Guðlaugsson, Fram, Einar Magnússon, Víking, Bogi Karls-
son, KR og Jón Kristjánsson, form. unglingan. Fremri röð: Birgir Finn-
bogason, FH, Georg Gunnarsson, Víking, Rúnar Gíslason, Víking, Jón
Karlsson, Val og Emil Karlsson, KR.
Æfa undir Norðurlanda-
mót í handknattleik
Norðurlandamót unglinga í
handknattleik, keppni pilta, fer
fram í Svíþjóð um mánaðarmót-
in marz—apríl, og um þessar
mundir æfa ísl. unglingalandsliðs-
piltarnir af miklum krafti undir
mótið.
Sl. sunnudagsmorgun rákumst
við á þá á hlaupaæfingu á Sel-
tjarnarnesi. Þeir vpr.u 11 saman
piltarnir undir stjórn þjáifara síns
Hilmars Björnssonar, íþróttakenn
ara, sem sjólfur lék með unglinga
landsliðinu í fyrra og gat sér góð-
an orðstír sem fyrirliði þess. Það
var gott hljóðið í piltunum og
þeir eru staðráðnir í því að mæta
vel undirbúnir til keppninnar.
Auk Hilmars, þjálfar Karl Jó-
(hannsson liðið einnig. í unglinga-
nefndinni eiga sæti Hjörleifur
Þórðarson og Jón Kristjánsson,
formaður, og sagði Jón okkur, að
liðið héldi utan 30. marz, en ekki
væri enn akveðið, hverjir yrðu
mótherjar okkar í fyrsta leiknuin.
í síðustu keppni stóð ísl. ungl-
ingalandsliðið sig mjög vel og
sigraði bæði Dani og Finna. Von-
andi verður árangurinn enn þá
betri að þessu sinni.-alf.
Alf—Reykjavík. — Einvaldurinn
um val íslenzka Iandsliðsins í hand
knattleik, Sigurður Jónsson, hefur
nú valið 13 leikmenn til æfinga
vegna landsleikjanna við Svía í
apríl. Margir höfðu álítið, að Sig-
urður myndi breyta til og byggja
liðið í kringum eitt félagslið, eni
hann virðist ætla að halda sig við
kokteilinn, því að hann hefur val-
ið leikmenn úr 5 félögum til æf-
inganna, ótvíræð vísbending um
óbreytta stefnu í landsljðsmálun-
um.
Áður en lengra er haldið er
rétt að líta á listann yfir þá leik-
menn, sem valdir hafa verið til
æfinga:
Frá FH:
Kristófer Magnússon
Geir Hallsteinsson
Örn Hallsteinsson
Auðunn Óskarsson
Frá Fram:
Þorsteinn_ B j örnsson
Ingólfur Óskarsson
Gunnlaugur Hjálmarsson
Sigurður Einarsson.
Frá Víking:
Einar Magnússon
Jón H. Magnússon
Frá Val:
■Stefán Sandholt
Hermann Gunnarsson.
Frá llaukum:
Logi Kristjáns'son '
Það skal tekið fram, að þetta
er ekki endanlegt val, bugsanlegt
er, að fleiri leikmenn verði vaid-
ir. Heyrzt hefur, að Ragnari Jóns-
syni hafi verið boðið að taka þátt
í æfingunum, en hann hafnað því.
Ragnar er, eins og kunmigt er,
einn af þremur landsliðsþjálfur-
um.
Á sunnudaginn mættu flestir
þeirra, sem valdir hafa verið, í þol
próf hjá Benedikt Jakobssyni og
var útkoman eftir atvikum góð.
Orn Hallsteinsson, 'FH, í þolprófi hjá Benedikt Jakobssyni á sunnudaginn.
Örn er einn af 13, sem valdir hafa verið til æfinga.
Er það einsdæmi?
Leikur einhentur
í handknattleik
Þeir, sem fylgzt hafa með
leikjum Víkings í 1. flokki, í
handknattleik, hafa veitt ung-
um pilti, Jóhannesi Tryggva-
syni, sérstaka athygli. Hann er
nefnilega einhentur, en lætur
það ekki aftra sér frá þátt-
töku í handknattleik. Er það
áreiðanlega einsdæmi, að ein-
hentur maður sé virkur kepp-
andi í þessari íþróttagrein.
Það merkilega er, að Jóhannes
er mikill styrkur fyrir lið sitt.
Þannig var hann maðurinn á
bak við sigur Víkings gegn
Val sl. laugardag, 13:10. Vik-
ingur byggði mikið upp á línu-
spili og átti Jóhannes upptök-
in að því. Voru margar send-
ingar hans bráðsnjallar, enda
er knattleikni Jóhannesar mjög
mikil.
Sem drengur varð Jóhannes
fyrir því slysi að missa vinstri
handlegginn, en liann hefur tek
ið þátt í íþróttum síðan, sér-
staklega knattspyrnu, og stað-
ið sig með ágætum.-alf.
Á æfingu
hjá KR
l
Þreyttir KR-ingar eftir æfingu á sunnudaginn. Fremri röö frá vinstri: Eyleifur Hafsteinsson, Einar ís-
feld, Hörður Markan, Jón Sigurðsson, Guðmundur Pétursson, Kjartan Hannesson, Einar Kvaran, og
Gunnar Felixson. Aftari röð: Ársæil Kjartansson, Bjarnl Felixson, Ragnar Kristinsson, Bolli Bollason,
Ellert Schram, Viktor Björnsson, Þórður Jónsson og Baldvin Batdvinsson.
Alf.—Reykjavík. — Það var líf
og fjör á KR-vellinum s.l.
sunnudagsmorgun, þegar blaða
mann Tímans og ljósmyndara
bar að garði. Knattspyrnumenn
KR voru á útiæfingu og sipör-
uðu sig hvergi. Æfingasóknin
var mjög góð og meðal kunnra
andlita mátti sjá Ellert Schram
en sögusagnir voru um það, að
hann. væri hættur knattspyrnu-
iðkunum./
Þjálfari KR er Sigurgeir Guð
mannsson og mun hann gegna
þjálfarastörfunum, unz KR hef
ur tekizt að útvega sér erlend-
an þjálfara, en að þvf stefna
KR-ingar, hvort sem það tekst
eða ekki.
Æfingar utannúss hjá knatt-
spyrnumönnum í Reykjavík og
nágrenni eru hafnar fyrir
nokkru og er æfingasókn víð-
ast hvar góð, enda hefur veðrið
verið ágætt, hálfgert vorveður,
og hvetur það menn til að
þurrka rykið af skónum og
hefja æfingar.
Á næstnnní munum við
væntanlega heimsækja fleiri
lið og bregða upp myndum frá
æfingum þeirra.