Tíminn - 03.03.1967, Síða 1
Bók um Kennedy-
morðið:
Sakar háttsetta
lögreglumenn um
þátttöku í þvi!
NTB-Lundúnum, fimmtudag.
I bók sem kemur á almcnnan
markað í næsta mánuði, eftir
þýzkfædda rithöfundinn Joa-
ehim Joesten eru háttsettir emb
ættismenn í lögreglunni í Dall
as sakaðir um þátttöku í morTí-
inu á Kennedy, Bandaríkjafor-
seta. í bókinni er gengið leugra
en í öðrum bókum um þetta
mál. þar sem höfundurinn nefn
ir þá með nafni, sem hann tel-
ur raunverulega hafa staðið að
morðinu.
Á blaðamannafundi, scm út-
gefandi bókarinnar, Pekter
Dawney, hélt í Lundúnum í
dag, sagði hann, að höfundur
bókarinnar skoraði á nefndar
persónur í Dallas-lögreglunni að
höfða meiðyrðamál gcgn sér svo
að dómstólar gætu fjallað um
staðhæfingar höfundar.
Eins og áður segir kemur bók
in ekki út fyrr en í næsta mán-
uði, en eintökum af henni var
deilt út meðal blaðamanna í
dag. Bókin ber titilinn: Oswáld-
Sannleikurinn. Útgefandinn
sagði á blaðamannafundinum,
að lannsóknir Jim Garrison, rík
Framhald á bls. 15.
A l\r\| Ekkl linnir hryðjuverkum í Aden og hafa blóðugar
/»l/CI » ” óeirSir veriS í iandinu í fimm daga í röS. Brezkir
hermenn fara um götur höfuðborgarinnar og brezka fjölskyldur hafa
fengið skipun um' aS halda sig innan dyra. Á myndinni sést maður
traðkaður tii bana og annar félagi hans hlaut sömu öriög.
RITSKOÐUN
RÍKISST.IÓRNIN LÆTUR STÖÐVA ÚTVARPSÞÁTTINN
ÞJÓDLÍF - ÓTTAST UMRÆÐUR UM HEILBRIGÐISMÁL
Olafur Ragnar Grimsson
stjórnandi útvarpsþáttarins
! IGÞ-Reykjavík, fimmtudag.
Síðastliðinn mánudag krafðist
Sigurður Bjarnason, alþingismaður
i og aðal forsvarsmaður Sjálfstæðis
: flokksins í útvarpsráði, þess, að
. þátturinn Þjóðlíf, sem útvarpa átti
! á fimmtudag, þ. e. í kvöld og
i fjalla átti um lækna og heilbrigðis
þjónustu, yrði stöðvaður, þar sem
umræður um heilbrigðismál væru
ríkisstjórninni viðkvæmt mál að
svo komnu. Þessi krafa Sigurðar
Bjarnasonar mun hafa verið sett
fram samkvæmt ósk Jóhanns Haf
steins, heilbrigðismálaráðherra.
Þegar krafan um stöðvun þáttarins
kom fram, var ekki byrjað að
vinna þáttinn, engin viðtöl eða
annað efni hafði verið tekið upp.
Fólst því í þcssari kröfu sendi-
manns heilbrigðismálaráðherra al
menn viðleitni til að stöðva allar
umræður um heilbrgiðismál i út-
varpinu. Eftir að lokið var við
I þáttinn var kallaður saman sérstak
: ur fundur útvarpsráðs um málið
j og fegnu Sjálfstæðismenn, full-
! Framhald á bls. 14.
10% tekin af öllum framlögum til verklegra fram-
kvæmda og 20 millj. að aukí af sveitarfélögunum,
sem þýðir hærri útsvör — eftir kosningar
TK-Reykjavík, fimmtudag.
-Á Ríkisstjórnin lagði i dag fram
á Alþingi frumvarp sitt um ráð-
stafanir vegna sjávartúvcgsins,
bátaútvegs og frystihúsa. í frum-
varpinu er fátt nýtt umfram það,
sem komið hefur fram í fréttum
varðandi opinbera aðstað við þess-
ar atvinnugreinar, en hitt er nýtt
og vakti mikla undrun manna svo
þeir trúðu vart eigin augum er
þeir lásu, að ríkisstjórnin ætlar
enn að skera , niður framlög til
verklegra framkvæmda um lO'i
og klípa þar að auki 20 milljón-
ir króna af sveitarfélögunum, þ.e.
framlagi til Jöfnunarsjóðs sveitar-
félaganna.
-jír Ríkisstjórnin heggur enn í
sama knérunninn og lækkar fram-
lög til verklegra framkvæmda,
þrátt fyrir það, að íramlög til
þeirra hafi verið í algeru lágmarki
miðað við hina brýnu þörf á ýms-
um sviðum við afgreiðslu fjárlaga
fyrir árið 1967 svo sem til skóla-
bygginga, sjúkrahúsa og hafna.
★ Þrátt fyrir hundruð milljóna
króna tekjuafgang ríkissjóðs á síð-
asta ári og þrátt fyrir það, að
fjárlög í heild nálgist nú fimmta
milljarðinn segist stjómin neydd
Framhald af bls. 7.
BJÓÐA EKKIÚT
SJÁLF HÚSIN
Framkvæmdanefnd byggingaáætlana beitir
sér fyrir stofnun verktaka-samsteypu
EJ-Reyikjavík, fimmtudag.
Framkvæmdanefnd bygginga-
áætlunar hefur beitt sér fyrir
stofnun verktakasamsteypu, sem í
eru 3 verktakar, og ætlar að
semja við þessa samsteypu um
byggingu sjálfra húsanna í bygg-
ingaáætluninni, í stað þess að
bjóða þær framkvæmdir út. Þetta
kom fram í umræðum þeim, sem
urðu í borgarstjórn í dag vegna
fyrirspuma borgarfulltrúa Fram-
skónarflokksins um gagn bygg-
ingará ilunarinnar.
í svörum borgarstjóra kom í
Ijós, að kostnaður vi" undirbún-
ing framkvæmdanna frá því nefnd
in tók til starfa í september 1965
þar til í árslok 1966 er 12.731.000
krónur í heild. Telur nefndin
þetta minni kostnað, en reiknað
hafði verið með í upphafi.
Fram kom, að greiðslur borgar
sjóðs til áætlunarinnar voru árið I
1965 tæp 40 þúsund en 1.6 millj-j
ónir árið 1966. Skuld borgarinnar
var um áramótin rúmlega 916
þúsund, eða samtals var þáttur
borgarinnar fram að áramótum
tæplega 2.6 milljónir.
Samkvæmt bréfi frá 16. septem-
ber 1966 væri áætlaður kostnað-
ur við framkvæmdir á árinu á-
ætlaðar 210.5 milljónir, og þyrfti
borgin því á árinu að greiða %
hluta þess.
Talið væri, að nokkur einbýlis-
hús yrðu tilbúin á þessu ári, og
Framhald á bls. 14.
Birgir Benjamínsson
ARANGURSLAUS LEIT
GERD AD VB. FREYJU
OO-Reykjavík, fimmtudag.
Mjög umfangsmikil og nákvæm
leit var gerð að vélbátnum Freyju
frá Súðavík í gær en hún bar ékki
árangur. Á bátnum, sem er 24 lest
ir að stærð, er fjögurra manna á-
höfn og skipverjar allir búsettir á
Súðavík. Síðast heyrðist í bátnum
kl. 16.30 í gær. 17 skip og tvær
flugvélar tóku þátt í lcitinni auk
leitarflokka í Iandi. Það eina sem
fannst úr bátnum voru fjórir línu-
belgir.
Skipstjóri á Freyju er Birgir
Benjamínsson og er hann jafn-
framt eigandi bátsins.
Flugvélarnar hættu leit í gær
en haldið verður áfram að leita á
landi.
Um miðjan dag skall á foráttu-
veður á Vestfjarðarmiðum og kom
ust margir bátar við illan leik til
iands. Síðast heyrðist til Freyju
Framhald á bls. 14.