Tíminn - 01.04.1967, Blaðsíða 1
1
Gerizt áskrifendur að
Tímanum.
Hringið í síma 12323
Auglýsing í Tímanum
kemut daglega fyrir augu
80—100 þúsund lesenda.
73. tbl. — Laugardagur 1. apríl 1967. — 51. árg.
Myndin hér að ofan er tekin
á blaðaniannafundi í New
York á þriðjudaginn, er U
Thant, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna gerði
grein fyrir þriggja liða til-
lögum sínum um frið í Yiet-
nam. Bandaríkjamenn
hafa Iýst stuðningi við þær,
sem og stjórn S-Vietnam,
en Hanoi-stjórnin og stjórn
Kína liafa hafnað þeim.
SKÝRSLA BANKASTJÖRNAR SEÐLABANKA ÍSLANDS:
flallinn á viðskiptum vil
útiönd nam 350 millj. kr.
Ráðstafanir í efnahagsmáium
aðeins gerðar tii bráðabirgða
IGÞ-Reykjavík, föstudag.
í dag var birt ársskýrsla Seðlabanka fslands 1966. Jafnframt rakti
dr. Jóhannes Nordal, formaður bankastjórnar Seðlabankans nokkur
meginatriði í þróun efnahagsmála í ræðu sem hann flutti í hádegis-
verðarboði að viðstöddum ráðherrunum dr. Gylfa Þ. Gíslasyni, Magnúsi
Jónssyni og Eggert G. Þorsteinssyni, bankastjórum, bankaráðsmönn-
um og fulltrúum banka og ráðuneyta. Kom m. a. fram í ræðu banka-
stjórans, að búast megi við að verðstöðvunin í núverandi myni og
aðrar aðgerðir að undanförnu geti aðeins tryggt sæmilegt jafnvægi í
efnahagsmálum og viðunandi afkomu atvinnuveganna um takmarkaðan
tíma.
irkic í skýrslu bankastjórnar seg-
ir m.a. að halli á viðskiptum
við útlönd hafi numið 350 millj. j
kr. Hins vegar hafi gjaldeyris-
forðinn ekki minnkað vegna
þess að á móti hallanum á við-
skiptajöfnuði hafi komið hag-
stæður jöfnuður á fjármagns-
hreyfingunum. Er þarna átt við
lántökur, en þær nema sam-
tals 353 millj. kr.
★★★ Meðalverð þeirra sjávar-
afurða, sem út voru fluttar á
Læsti yf irborgarf ógetann
inni á uppboðsstað í gær
!ViaSínovskí
failinn frá
NTB-Moskvu, föstudag.
Rodíon Malínovski, marskálkur,
varnarniálaráðiherra Sovétríkjanna,
lézt siðdegis í dag eftir langa og
erfiða sjúkdómslegu, 68 ára að
aldri. Jarðarförin fer fram á
mánudag. Malinovskí hafði legið
marga mánuði á sjúkrahúsi, sem
sérstaklega er ætlað fyrir krabba-
meinssjúklinga. Andrei Gretsjko,
marskálkur og fyrsti varavarnar-
málaráðherra, hefur farið með
embætti hans þennan tíma og verð
ur sennilega skipaður eftirmaður
Framhald á bls. 15.
Malínovskí, marskálkur
I KJ-Reykjavik, föstudag.
|. Sá einstæði atburður skeði í
! dag, að Kári B. Helgason lokaði
yfirborgarfógeta, einn borgar-
fógeta, tvo starfsmenn fógetaemb-
ættisins, nokkra lögfræðinga og
nokkra aðila aðra inni í húsi, sem
bjóða átti upp á nauðungarupp-
boði. Kölluðu báðir aðilar á lög-
regluna, Kári B. Helgason, vegna
þess að hann áleit yfirborgarfó-
geta undir álirifum áfengis og þess
vegna ófæran um að gegna emb-
ættisstörfum, en þeir, sem lokað-
ir voru inni, til að sleppa út.
Aðdragandi þessa máls er sá,
að í dag átti að bjóða upp á nauð-
ungaruppboði hluta af húsinu
Njálsgata 49, sem er eign þrota-
bús Kára B. Helgasonar. Kom
yfirborgarfógeti, Kristján Krist-
jánsson, á staðinn í þessu skyni
ásamt Unnsteini Beck, borgarfó-
geta, starfsmönnum borgarfógeta-
embættisins auk þess sem lögfræð
ingar og fleira fólk kom á stað-
inn.
Kári B. Helgason sagði í viðtali
við Tímann í dag, að yfirborgar-
fógeti hefði verið undir áhrifum
áfengis, sjáanlega mjög mikið, við
upphaf uppboðsins, og hefði hann
því óskað að yfirborgarfógeti viki
af staðnum. Væri hann ekki fær
um að halda uppboðið vegna ölv-
unarálhrifa. En á bak við þetta
allt væri miklu meiri saga og
lengri, sagði Kári B. Helgason. Þeg
ar yfirborgarfógeti vildi ekki :íta
sig, sagði Kári ennfremur, lokaði
ég hann inni ásamt embættismönn
um fógeta, þeirn lögfræðingum,
sem mættir voru, og öðrum, sem
þarna voru staddir. Læsti ég, og
bringdi þessu næst á lögreglustöð-
ina og ósikaði eftir að gerð væri
blóðrannsókn á yfirborgarfógeta.
Lögreglan kom á staðinn og óskaði
ég þá aftur að hún tæki yfirborgar
fógetann og færði hann til blóð-
rannsóknar, en hún vildi það ekki.
Unnsteinn Beck, borgarfógeti,
tjáði blaðinu í dag, að uppboðinu
hefði verið frestað vegna þess, að
á seinustu stundu áður en þeir
fóru á uppboðsstað hefði hann upp
götvað, að ekki var alveg ljóst,
hvernig varið væri veðsetningu á
húsinu. Kiom fram á seinustu
stundu, að við höfðum haft rang-
ar hugmyndir um þetta, sagði Unn
steinn, og því e’kki um annað að
gera en fresta uppboðinu. Að
forminu til varð að fara á stað-
inn til að fresta uppboðinu, vegna
þess að búið var að auglýsa það.
Menn sem voru á staðnum stað-
Eramhaid a 14. siðu
árinu, var hærra en meðalverð
ársins 1965, en verulegur hluti
framleiðslunnar hafði verið
seldur fyrir verðfall. Verðlag
á ls.ndbúnaðarvörum mun hafa
lækkað verulega, en verðlag á
útfluttum afurðum í heild mun
hafa hækkað um 1 til 2%.
★★*- Innstreymi fjár í Seðlabank
ann vegna viðskipta við ríkis-
sjóð og ríkisstofnanir nam sam
tals 331 millj. kr. Má eftir
hreyfingum á reikningum ríkis
sjóðs í Seðlabankanum og
breytingu sjóðs hjá níkisfé-
hirði áætla að greiðsluafgang-
nr hjá ríkissjóði hafi numið
tæplega 400 millj. kr.
-*•★★ Aukning peningamagns allt
árið var miklu minni en undan
farin ár, eða 5,1% á móti
24,8% 1965. Heildaraukning
sparifjár á árinu varð einnig
mir.ni en undanfarin ár.
í niðurlagi ræðu sinnar sagði dr.
Jóhanr.es Nordal m.a.:
„Mikilvægt er að tillit sé tekið
til áhrifa, sem efnahagslegar að-
gerðir geta haft á traust þjóðar-
innar erlendis. Nauðsynlegt er að
byggja efnahagsstefnu næstu ára
á sern stöðugustu verðlagi og
keppa verður að aukinni fram-
leiðni og hagkvæmni, bæði í dreif
ingu og framleiðslu.
Æskilegt er að fjármálastefna
Framhald á 14. síðu.
Á myndinni sést verzlunin aS Njálsgötu 49, þar sem yfirboraarfógeti ásamt
tiokkrum lögfræðingum, og öðrum, voru lokaðir inni í hálftima i gær.
nokkrum starfsmönnum embættisins,
(Tímamynd G. E.