Alþýðublaðið - 11.07.1985, Blaðsíða 1
Fimmtudagur 11. júlí 1985
129. tbl. 66. árg.
Furðuleg álvktun fiskifélazsins:_
Sjómenn sagðir
hafa kostað
þjóðina stórfé
Fiskifélag íslands hefur sent frá
sér þá furðulegu yfirlýsingu að sjó-
manna- og fiskimannaverkföllin á
þessu ári hafi orðið til þess að 140
þúsund tonn hafi tapast í afla, að
verðmæti úr sjó um 600 milljónir
króna og að útflutningsverðmæti
1.2 milljónir króna i erlendum
gjaldeyri.
Þetta lepja stjórnarblöðin,
Morgunblaðið og NT, upp úr Fiski-
félaginu og er bent á að „tapið“
nemi um 200 þúsundum á hvern
fiskimann. Er því slegið upp að hér
sé um glatað fé að ræða og það sé
sjómönnum að kenna — með því
að þeir fóru í verkföll.
Hér er um furðulega blekkingu
að ræða. „Þetta er hrein og klár
della og það sjá allir sem hafa
sæmilega skynsemi til að bera“
sagði Óskar Vigfússon, forseti Sjó-
mannasambands íslands, aðspurð-
ur um „stuldinn". „Auðvitað kem-
ur þetta allt í kvótann, það verður
veitt upp í hann. Það er spurning
frekar hvort það hafi ekki einmitt
verið hið skynsama í málinu að fara
út í þessi verkföll þegar á allt er litið.
Þau verða síst til skaða og á það má
benda, að ef ekki hefði komið til
kjarabót til sjómanna í kjölfar
verkfallanna, þá hefðu hreinlega
engir sjómenn fengist til að ná í
þann afla sem er fyrir hendi, þann
fisk sem þarna er verið að tala um.
Þessi yfirlýsing Fiskifélagsins er án
samráðs við okkur og í raun látum
við sem ekkert sé varðandi það sem
frá félaginu kemur“ sagði Óskar.
Kristján Ragnarsson hjá Lands-
sambandi íslenskra Útvegsmanna
vísaði aðspurður um þetta málinu
til Fiskifélagsins, efasemdir um yf-
irlýsinguna væru réttmætar, en hún
hefði verið send án samráðs við
LÍÚ.
Þingmál Albýðuflokksins á 107. lözziafarbinginu:
5 frumvörp
og 3 tillögur
samþykktar
Þingmál alþýðu-
flokksmanna voru alls
107: 28 frumvörp, 21
þingsályktunartillaga,
56 fyrirspurnir og 2
beiðnir um skýrslur.
Á nýafstöðnu lengsta löggjafar-
þingi Islandssögunnar fluttu þing-
menn Alþýðuflokksins alls 107
þingmál. Þetta voru 28 frumvörp til
laga og voru S þeirra samþykkt sem
lög. 21 þingsályktunartillögur voru
fluttar og voru 3 þeirra samþykktar
sem ályktanir Alþingis. Þá fluttu
þingmenn flokksins 56 fyrirspurnir
og lögðu fram 2 beiðnir um skýrslur
— um heildarendurskoðun lífeyris-
kerfisins og um Sjóefnavinnsluna.
í Alþýðublaðinu í dag eru öll
helstu frumvörp og þingsályktun-
artillögur þingmanna Alþýðu-
flokksins kynntar. Ekki er farið sér-
staklega út í hinar fjölmörgu fyrir-
spurnir, en margar þeirra leiddu til
stórmerkra svara og má þar nefna
fyrirspurnir um málefni banka og
sparisjóða, um fjárhagsstöðu hús-
næðislánakerfisins, um skattsvik,
um ríkisstyrki Norðmanna í sjávar-
útvegi, um vatnstöku íslandslax,
um íhlutun stjórnvalda í kjara-
samninga, um gjaldskrárhækkanir
tannlækna og fleira. Þá er ógetið
fjölmargra og ítarlegra breytingatil-
lagna þingmanna flokksins við
stjórnarfrumvörp, svo sem fjárlög,
lánsfjárlög, útvarpslög og fleira.
Öll þessi mál eru í samræmi við
skeleggan málflutning Alþýðu-
flokksmanna um land allt undan-
farna mánuði — málflutning sem
náð hefur eyrum landsmanna og
hlotið hljómgrunn. Góð málefna-
staða Alþýðuflokksins hefur orðið
til þess að á skömmum tíma hefur
flokkurinn margfaldað fylgi sitt.
Þetta verður þeim ofur skiljanlegt
sem líta yfir þann lista þingmála Al-
þýðuflokksins sem Alþýðublaðið
birtir í dag.
25 þúsund eintök í dag
Alþýðublaðið í dag er gefið út í 25 þúsund eintökum og s rstak-
lega helgað atvinnulífinu. Blaðinu er dreift ókeypis í nœr h\ rt hús
í Reykjavík. Nœsta stóra biað er rúðgert í ágúst, en umsjó~
* höndum Guðlaugs Tryggva Karlssonar (ábm.).
fgSJÐ&KögJR
VIÐ BJÓÐUM
NÝJAN OG GÓMSÆTAN
BAKSTUR í
GLÆSILEGRI BRAUÐBÚÐ
í HAGKAUP, Skeifunni 15, hefur verið opnuð
glæsileg brauðbúð með fjölbreyttu og
freistandi úrvali af brauði og sætum kökum.
Þar má nefna Kleinur og Klasabrauð,
Skonsur og Skeifubrauð, Tebollur og Toska-
stykki, Kaffibollur og Kósakkabrauð,
Kossa og Kúmenbrauð, Snúða og Snittu-
brauð, er þá aðeins fátt eitt talið.
Nú er lokkandi ilmur í Hagkaup.
gflpK;
f> '
.,..,lí0AyM§ý§
P m - * »
hrs. -• •' mm ■
HAGKAUP
íí Llglll'ahll Lh